Morgunblaðið - 29.05.1999, Side 8

Morgunblaðið - 29.05.1999, Side 8
8 LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ í DAG Aflatillfignr Hafrannsóknasto&iunar. VERIÐ þið bara rólegir, hann á eftir að ná sundtökunum, hann er nú ekki nema sextán vetra. Keppt á tækjum til skautskipta, skúmhreinsunar og dráttar SIGURÐUR Höskuldsson varð sigurvegari í óvenjulegri ökukeppni sem haidin var á vegum íslenska álfélagsins í Straumsvík í gær. Sigurður var fúlitrúi vaktar 2 í steypuskála og munu allir á vaktinni, ásamt mökum, njóta verðlaunanna, kvöldverðarboðs á veitingastað að eigin vali, í boði fyrirtækisins. Keppnin fór þannig fram að fulltrúar vakthópa í framleiðsludeildum kepptu á tækjum sem þeim tilheyra: Vaktir úr kerskála kepptu á skautskipti- tækjum, vaktír úr steypuskála á skúmhreinsunar- tækjum en fulltrúar vakthópa í skautsmiðju á dráttarvélum með tvo skautvagna í eftírdragi. Sigurvegarar úr hverjum flokki kepptu siðan sín á milli um sigurlaunin og þurftu þeir að sýna leikni sína bæði á pallbíl og reiðhjóli. Keppnin var nú haldin í fyrsta sinn, en tilgang- ur hennar er, að sögn Hrannars Péturssonar upplýsingafulltrúa ISAL, að árétta mikilvægi ör- uggrar og faglegrar stjórnunar vinnuvéla, að ógleymdu skemmtanagildi. Fulltrúar hópsins hafa ákveðið að kvöldverðurinn verði snæddur á Grillinu fljótlega. Flugfélagið óbundið af ákvörðun samkeppnisráðs FLUGFÉLAG íslands hefur und- anfarin misseri flogið 19 manna Metró vél sinni án farþega í síðustu ferð hennar á kvöldin frá Reykja- vík til Akureyrar þar sem fyrir- tækið hefur talið sig bundið af ákvörðun samkeppnisráðs um að annars væri það að misnota mark- aðsráðandi stöðu sína á þessari flugleið. Guðmundur Sigurðsson, forstöðumaður samkeppnissviðs Samkeppnisstofhunar, telur hins vegar að félagið sé ekki bundið af ákvörðun samkeppnisráðs frá 1997, áfrýjunamefnd samkeppnis- mála telji hana úr gildi fallna með hæstaréttardómi. Eftir sameiningu innanlands- flugs Flugleiða og Flugfélags Norðurlands í hinu nýja Flugfélagi íslands gerði samkeppnisráð m.a. athugasemd árið 1997 um skipan í stjóm fyrirtækisins og að ekki mætti breyta áætlunum sem þá voru í gildi án þess að Samkeppnis- stofnun yrði tilkynnt það. Með ákvörðun áfrýjunaraefndar sam- keppnismála, sem staðfesti úr- skurð samkeppnisráðs að því er varðaði skipan stjómar en ekki hvað varðaði fjölda ferða, og svo dómi Hæstaréttar síðar, taldi áfrýjunamefndin þennan úrskurð samkeppnisráðs allan úr gildi fall- inn og því væri fyrirtækið ekki bundið af henni. Guðmundur Sig- urðsson segir að hins vegar hafi samkeppnisráð lagst gegn því síð- astliðið haust að félagið fjölgaði ferðum milli Reykjavíkur og Akur- eyrar án þess þó að um formlega ákvörðun ráðsins hafi verið að ræða. Hann segir það hugsanlega verða skoðað hvort Flugfélagið væri að misnota markaðsráðandi stöðu á þessari flugleið ef félagið tæki að nýta vélina í þessari síð- ustu ferð. Vélin stundum nýtt fyrir leiguflugshópa Jón Karl Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Flugfélags íslands, segir að félagið hafi einungis til- kynningaskyldu gagnvart Sam- keppnisstofnun vegna breytinga á áætlun en ekki þurfi að sækja um leyfi fyrir breytingum. Hann segir það verða athugað hvort félagið til- kynnir þessa síðustu ferð og selji hana sem áætlunarferð. Stundum gefist hins vegar sá möguleiki að selja hópum sæti í vélinni sem leiguferð og það hafi félagið not- fært sér öðru hverju. Það hafi einnig sína kosti að hafa þennan opna möguleika á sölu fyrir sér- staka hópa. Jón Karl segir að almennt verði að hafa í huga að innanlandsflugið sé síbreytilegur markaður og vaxt- armöguleikar ýmsir sem menn verði að þreifa sig áfram með. Sér virðist hins vegar Samkeppnis- stofnun stundum halda að þessi markaður sé fost stærð og óbreyt- anleg eins og eigi við varðandi Egilsstaði, að félagið hefur ekki fengið að bæta við þriðju ferðinni frá Reykjavík á daginn yfir vetur- inu. ...... Styrkir Forvarnasjóðs auglýstir Styrkir til vimuvarna Ni 'ÝLEGA voru auglýstir styrkir úr Forvamasjóði. Um þá styrki geta sótt félög, félagasamtök, op- inberar stoftianir og ein- staklingar, en hinir síð- astnefndu fá styrk úr sjóðnum aðeins til rann- sókna. Styrkimir em ætlaðir til vímuvama- verkefna og forgangs- markmiðið þetta árið er vímulaus grunnskóli, að sögn Þorgerðar Ragn- arsdóttur, framkvæmda- stjóra Áfengis- og vímu- vamaráðs. Heilbrigðis- ráðherra veitir styrkina en Afengis- og vímu- vamaráð gerir tillögur. Núna em auglýstar 20 milljónir króna til ráð- stöfimar og umsóknar- fresturinn er til 15. júní. Þorgerður var spurð hvort margir sæktu um svona styrki? „I fyrra vom veittir á fjórða tug styrkja og þegar em komn- ar hátt í tuttugu umsóknir.“ - Hverjir sækja helst um þessa styrki? „Það er mjög fjölbreyttur hópur, en allir eiga það sameig- inlegt að vinna að einhvem hátt að fyrmefndum málefnum. Þetta geta verið vísindaleg rannsóknarverkefni, sótt hefur verið um styrlri til útgáfu, kynn- ingar á útivistarreglum og ótal- margt fleira. Hingað til hafa stærstu styrlrimir verið veittir til verkefna sem taka til fleiri ára, svo sem sveitarfélagaverk- efnis SÁÁ og heilbrigðisráðu- neytisins, íslands án eiturlyfja og Fjölskyldumiðstöðvarinnar. Styrkir til þessara verkefna era fyrir utan þessar 20 milljónir króna sem nú em til úthlutun- ar.“ - VímuJaus grunnskóli - það er markmiðið í ár? „Kannanir undanfarinna ára sem gerðar hafa verið meðal grannskólanema sýna að ótrú- lega margir krakkar hafa próf- að að neyta áfengis áður en þeir ljúka grunnskólaprófi. Nokkrir úr þessum hópi neyta áfengis oft í mánuði. Líka er vitað að það að byrja svona ungur að neyta áfengis eykur líkur á að fólk eigi eftir að lenda í ýmsum vandamálum tengdum vímu- efnaneyslu síðar á ævinni og það eykur líka hættu á að ung- lingar missi fótanna í skólanámi eða skaði á annan hátt framtíð- armöguleika sína. Auk þess ein- kennir diykkju íslenskra ung- linga það að þeir verða ölvaðri en annars staðar gerist og lenda þess vegna í alls kyns vandræð- um. Unglingar verða af þessum sökum mun oftar fómarlömb of- beldis af ýmsum toga en ella myndi gerast.“ -Áfengis- og vímu- ____________ varnaráð var stofnað um síðustu áramót, hver er megintilgang- ur þess? „Hann er sá að efla ......... og styrkja vímuvamir, sérstak- lega meðal bama og ungmenna, og draga úr skaðsemi vímuefna- neyslu. Ráðinu er meðal annars ætlað að stuðla að samvinnu og samræmingu hjá þeim sem vinna að þessum málum, svo sem heilbrigðisstofnunum, fé- lagsmálayfirvöldum, sveitarfé- lögum, löggæslu, menntakerfi Þorgerður Ragnarsdóttir ► Þorgerður Ragnarsdóttir er fædd í Reykjavik 1958. Hún lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum við Sund 1978 og BS-prófí frá Háskóla íslands í hjúkrun 1982 og MA-prófi í fjölmiðlafræði frá Madison í Wisconsin í Bandarikjunum 1992. Hún hefur starfað við hjúkmn hér á landi og í Dan- mörku og ritstýrði tímariti hjúkmnarfræðinga þar til um sfðustu áramót. Hún hefúr einnig starfað að sjálfstæðum verkefnum í greinaskrifum. Nú er hún framkvæmdastjóri Áfengis- og vímuvamaráðs. Þorgerður er gift Gfsla Kr. Heimissyni verkfræðingi og eiga þau þrjú böm. Markmiðið er vfmulaus grunnskóli og félagasamtökum. Átta full- trúar eiga sæti í ráðinu, bæði fræðimenn og áhugamenn á sviði vímuvama." - Hvað með stefnumörkun? „Við höfum verið að vinna að mótum stefnu Áfengis- og vímu- vamaráðs og það má segja að hún sé tilbúin í gmndvallarat- riðum, en auðvitað er slík stefna alltaf í endurskoðun. Hægt er að lesa um stefnu ráðsins á heimasíðu Heilsuvemdarstöðv- ar www.hr.is. Þar kemur fram að við viljum byggja starfið á rannsóknum og athugunum á þessu sviði og vinna út frá því á markvissari hátt en gert hefur verið. Við viljum byrja for- vamastarfið fyrr en gert hefur verið. Það er of seint að messa yfír unglingum - við viljum leggja áherslu á mikilvægi upp- eldisins. Það verður að benda uppalendum á leiðir sem geta stutt þetta markmið af því að margir virðast vera óöraggir í að setja bömum sínum reglur og mörk. Rannsóknir sýna að það skiptir miklu máli hvemig böm em alin upp með tilliti til -------- þess hvemig þau ná að fóta sig í lífinu. Þetta era auðvitað ekki nein ný sannindi, _________ en þau hafa verið staðfest með rann- sóknum síðustu ára. Þetta á einnig við um það hvort fólk vel- ur að nota áfengi og hvemig það umgengst það. Ég vona að sem flestir vilji vinna með Áfengis- og vímuvarnaráði í framtíðinni og að styrkimir sem við eram nú að auglýsa komi að gagni í baráttunni við áfengis- og vímuefnavandann.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.