Morgunblaðið - 29.05.1999, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
1 Mercedes Benz
230 E Classic ‘96
Ekinn 57 þús. km. Qullmoli með QSM, 4 hauspúðum,
Cruise Control, sjálfskiptur, álfelgur og fleira.
Upplýsingar i síma 892 1424 (Björn)
VERKMENNTASKOLINN
Á AKUREYRI
INNRITUN
til náms í dagskóla á haustönn 1999 lýkur föstudaginn 4. júní
nk. Skrifstofa skólans er opin kl. 8.00—15.00. Námsráðgjafar
verða til viðtals á sama tíma.
Einnig er hægt að innrita sig á heimasíðu skólans.
Veffangið er http://vma.ismennt.is.
Skólameistari.
fBIFREIÐASTÆÐASJÓÐUR
AKUREYRAR
Fastleiga á bifreiðastæðum í Miðbæ
Bifreiðastæðakort
Frá og með 1. júní 1999, til reynslu í sex mánuði, hefur
Bifreiðastæðasjóður Akureyrar fengið heimild til að
bjóða upp á takmarkaðan fjölda bifreiðastæða til fastr-
ar mánaðarleigu með svonefndum fastleigukortum.
Stæði þessi eru annarsvegar á fjölmælastæðinu aust-
an Skipagötu og verður leiga fyrir hvert stæði þar
3000 kr á mán. og hins vegar á fjölmælastæðinu
vestan Hólabrautar og verður leiga fyrir hvert stæði
þar 2000 kr á mán.
Þá hefur einnig verið heimilað frá og með 1. júní, til
reynslu í sex mánuði, að gefa út bifreiðastæðakort
þar sem handhöfum þeirra er veitt heimild til að ieggja
hvar sem er á fjölmælastæðum Bifreiðastæðasjóðs
Akureyrar. Verð er 5000 kr á mán.
Kortin verða seld á afgreiðslu
Tæknideildar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9.
Opið er kl. 10-15 alla virka daga og þar eru jafn-
framt veittar allar nánari upplýsingar.
Upplýsingar eru einnig veittar í síma 462 1000.
Hálshreppur kaupir
íbúðarhúsið í Birkihlíð
OFANFLÓÐASJÓÐUR hefur
samþykkt að veita Hálshreppi í S-
Þingeyjarsýlsu rúmar 7 milljónir
króna í styrk, til kaupa á íbúðarhús-
inu í Birkihlíð. Þessi upphæð er um
90% af kaupverði hússins en Háls-
hreppur leggur fram 10% til
kaupanna.
Milijónatjón varð er snjóflóð féll
úr hlíðinni ofan við bæinn Birkihlíð
um miðjan janúar sl. Ekki urðu slys
á fólki en miklar skemmdir á búvél-
um, auk þess sem skemma varð fyr-
ir flóðinu og eyðilagðist. Jaðar snjó-
flóðsins hafnaði á íbúðarhúsinu en
olli ekki teljandi skemmdum á því.
Friðrik Steingrímsson, bóndi í
Birkihlíð, var heima ásamt konu
sinni og tveimur af þremur börnum
er snjóflóðið féll. Þrjár rúður í íbúð-
arhúsinu brotnuðu og rigndi gler-
brotum yfir dóttur Friðriks, sem
slapp með skrámur á höfði. Hins
vegar fór lítið af snjó inn í húsið en
þama mátti ekki miklu muna að illa
færi. í kjölfarið flutti fjölskyldan úr
íbúðarhúsinu og yfir á næsta bæ en
fékk nokkru síðar inni í íbúðarhúsi
sem Ljósavatnshreppur á við Stóru-
tjamaskóla.
Tveimur mánuðum síðar féllu tvö
snjóflóð til viðbótar úr hlíðinni ofan
við bæinn en þá urðu eingöngu
skemmdir á trjágróðri. Flóðin féllu
nokkuð frá húsunum en Friðrik
sagði þá að tungan úr öðru flóðinu
hefði stefnt á bæinn og því eins gott
að það var ekki stærra og kröft-
ugra. í kjölfarið ákvað fjölskyldan
að bregða búi á jörðinni og þá í
kringum sláturtíðina í haust.
Ekki búandi í íbúðarhúsinu
Jón Þórir Oskarsson, oddviti
Hálshrepps, sagði kaupin á íbúðar-
húsinu ekki frágengin en að stefnt
væri að því að ganga frá málinu um
eða upp úr helginni. „Það er búið að
bíða eftir þessu mati frá ofanflóða-
sjóði frá því í janúar en nú er komið
svar sem við sættum okkur við og
teljum því að fólk geti staðið upp frá
málinu nokkuð sátt. Fyrsta hug-
mynd er að kaupa íbúðarhúsið en
jafnframt finnst okkur eðlilegt að
það verði kvaðir á útihúsunum og að
ekki verði skepnur í húsunum á
þeim tíma sem bannað er að dvelja í
íbúðarhúsinu,“ sagði Jón Þórir.
Hann sagði menn sannfærða um
að ekki væri hægt að búa í íbúðar-
húsinu lengur og hafi einhverjir
verið með efasemdir um það hafi sú
skoðun breyst eftir að tvö snjóflóð
féllu úr hlíðinni yfir ofan bæinn í
glampandi sólskini í apríl sl.
Tækin nánast öll ónýt
Friðrik, bóndi í Birkihlíð, sagð-
ist gera ráð fyrir að eiga áfram
jörðina og útihúsin og að mögulegt
væri nýta þær eignir á ýmsan hátt.
„Það á að vera hægt að nýta þessi
hús, alla vega yfir sumartímann,
en það er þó ekkert frágengið í
þessum efnum,“ sagði Friðrik og
bætti við að fjölskyldan stefndi að
því að kaupa íbúðarhúsið sem hún
býr í á Stórutjörnum af Ljósa-
vatnshreppi.
Friðrik sagði að vélar og tæki
sem lentu í snjóflóðinu í janúar
væru komin undan snjó en ekki hafi
enn gefist tími til að skoða hversu
illa þau hefðu farið í ósköpunum.
„Frá mínum bæjardyrum séð eru
þessi tæki nánast öll ónýt en það er
svo aftur matsatriði trygginga-
manna hvort það borgar sig að gera
við eitthvað af þeim.“
Rjúpu-
hreiður
undir
renni-
brautinni
ÞAÐ var líf og fjör á leikskól-
anuin Álfasteini í Glæsibæjar-
hreppi í gærdag en þá buðu
börn skólans fjölskyldum sínum
á opið hús. Börnin sungu fyrir
gesti, buðu þeim upp á hress-
ingu og þá prýddu myndir eftir
börnin veggi leikskólans.
I vikubyrjun varð uppi fótur
og flt þegar í ljós kom að rjúpa
ein hafði gert sér hreiður und-
ir rennibrautinni á lóð leik-
skólans en í gær voru komin
þrjú egg í hreiðrið. Jakobína
Áskelsdóttir leikskólastjóri
KA undir-
ritar sam-
starfs-
samninga
KNATTSPYRNUFÉLAG Akur-
eyrar, KA og PUMA hafa undirrit-
að samstarfssamning, þar sem KA
skuldbindur allar deildir félagsins
til að keppa í PUMA fatnaði. Á móti
leggur PUMA til keppnisbúninga á
alla meistaraflokka félagsins, ásamt
öðrum vörum. Samningurinn gildir í
5 ár. Helga Steinunn Guðmunds-
dóttir formaður KA og Halldór
Jensson markaðsstjóri PUMA und-
irrituðu samstarfssamninginn og
voru ungir leikmenn félagsins við-
staddir í nýju búningunum.
Einnig undirritaði formaður KA
samning við Sportver, sem er þjón-
ustuaðili PUMA á Akureyri, um
samstarf vegna meistaraflokka og
stjórna deilda innan félagsins.
Jafnframt hefur KA undirritað
samstarfssamning við Landsbanka
Islands hf. á Akureyri, er felur í sér
stuðning til félagsins til 1. október
árið 2000. Samningurinn nær til
allra deilda félagsins og innifelur
m.a. að félagar í Sportskóla KA og
Morgunblaðið/Kristján
Landsbankans fá 25% afslátt af
þátttökugjöldum. Einnig verður
Vörðufélögum boðið á einn leik á ári
hjá knattspyrnu- og handknatt-
leiksdeildum KA. Samningurinn
kemur í kjölfarið á árangursríku
samstarfi Landsbankans og KA
undanfarin ár.
sagði þetta mikinn viðburð og
að börnin fylgdust vel með
framvindu mála. Gangi allt
upp hjá rjúpunni geta eggin
orðið 10-15 alls en hvort
rjúpan mun halda sig við
hreiðrið á þessum sérstaka
stað á hins vegar eftir að
koma í Ijós.
Þau Gauti, Karen og Anna
Bára tóku að sér að sýna ljós-
myndara Morgunblaðsins
hreiður rjúpunnar á þessum
óvenjulega stað.
Morgunblaðið/Kristján