Morgunblaðið - 29.05.1999, Blaðsíða 79

Morgunblaðið - 29.05.1999, Blaðsíða 79
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999 79 FÓLK í FRÉTTUM Gamansemi og glæpir UM ÞAÐ leyti, sem kvikmyndir frá Hollywood voru að komast til vits og ára, settu bandarísk yfir- völd eins konar eftirlitsnefnd á fót, sem fylgdist með kvikmyndafram- leiðslunni og sá um að fyllsta sið- gæðis væri gætt. Mátti sjá á starfi hennar að Bandaríkja- menn voru heilagri en páfinn á árunum frá 1930 og fram að heimsstyrjöld. Leikstjórar áttu í vand- ræðum með að lýsa ástföngnu fólki, enda mátti varla sjást að karl og kona kysstust. Alveg var ófært að sýna karl og konu í sama rúmi, hvað þá að leyfðist, eins og í dag, að sýnd væru eins konar fangbrögð undir sængum. Öðru máli gegndi um ofbeldi. Nóg var af því í amer- ískum myndum, strax í upphafi, og virtist siðanefndin ekki hafa miklar áhyggjur af því. Nú er þetta allt að baki og frá Hollywood streyma kynlífs- og ofbeldismyndir í bland við fjölskyldumyndir um börn og gamlar kerlingar, sem reynst hefur mjög vinsælt útsendingarefni hjá sjónvarpsmógúlum hér á landi, þar sem staðall „afdalaskemmtana“ er látinn ráða frekar en ríkisskipuð nefnd. Kannski vegna þess að þess- ar myndir, sem bandarískir fram- leiðendur kalla „gamanmyndir" öll- um til mikillar furðu, eru svo ódýr- ar í innkaupum að sumar þeirra nálgast að vera keyptar af rusla- haugunum. En hafi ameríska siðgæðisnefnd- in um kvikmyndir gleymt að rit- skoða ofbeldið á fyrstu dögum kvikmyndanna hefur á síðustu dög- um verið tekin upp eins konar sið- gæðisgæsla af öðrum þjóðum. Suð- ur-amerískar þjóðir eru eitthvað að ybba sig út af ofbeldi i Hollywood og viija sem góðir grannar segja þeim í Norður-Ameríku að hætta hinni miklu SJONVARPA LAUGARDEGI myndum. ----------------- Þær hafi slæm áhrif á áhorfendur, jafnvel börn. Clinton Bandaríkjaforseti hefur aftur á móti lýst yfir ævar- andi frelsi kvikmyndum til handa. Menn eru sem fyrr ekki á eitt sátt- ir í siðferðismálum. Þetta kemur náttúrlega ekki mál við íslensku sjónvarpsstöðvamar á meðan þær geta keypt morð í óheftum mæli og haft ameríska „gamanmyndafram- leiðslu“ með börnum og kerlingum til uppfyllingar. Fyrst verið er að minnast á gam- ansamar myndir frá Hollywood er ekki úr vegi að fara nokkrum orð- um um kvikmynd þeirra Nicks Noltes og Eddies Murphys, sem sýnd var á laugardaginn og nefnd- ist Tveir sólarhringar enn. Til að nota mælikvarða afdalagloríunnar á Nick Nolte, þá kom hann hingað við mikinn fógnuð skemmti- húsamafíunnar. Hins vegar liggur Murphy óbættur hjá garði, enda hefur engin afdalamafía litið hann augum. Hann er hins vegai- um- talsverður leikari og þegar honum tekst upp er hann með allra skemmtilegustu mönnum sem koma út úr Hollywood. í þessari annars venjulegu mynd fer hann á kostum. Síðan gerðist eiginlega ekki neitt fyrr en á mánudagskvöld, að sýndur var þáttur úr Kalda stríð- inu um Víetnam og síðasti þáttur- inn um Knut Hamsun. Ekki eru nema rúm tuttugu og fimm ár síð- an Víetnamstríðinu lauk, en samt eru áhrif þess á bandarískt þjóðlíf og menningu auðsæ enn í dag, al- veg eins og hin volduga þjóð ætli aldrei að losna við drauginn. Ekki þarf að rifja upp, að stríðið var í al- gleymingi þegar æskudýrkunin var hvað mest og poppið átti þegar sína kónga. Ungir menn voru sendir til Víetnam til að falla, fyrir óljósan málstað, að þeim fannst. Síðan yfirgáfu Bandaríkjamenn þennan blóðvöll, þar sem þeir gátu ekki sigrað, og það varð þeim vont niðurlag, jafnvel svo, að þeir virð- ast ekki hafa náð sér enn. Skiptir þá engu máli að höfuðpaurinn féll fyrir eigin hendi, sjálft Sovétið, en Kínamaður unir við að kaupa bandarísk ríkisskuldabréf í kyrr- þey. Loksins náði Knut Hamsun að tala yfir Norðmönnum í síðasta þættinum, þegar hann fékk að verja sig fyrir rétti nokkurn veg- inn óhindrað. Engu breytir, að þættirnir um hann voru gerðir af andstæðingum hans, og er það hryggileg staðreynd um þjóð helsta höfundar germansks á síð- ari tímum. Indriði G. Þorsteinsson Herra Island keppir á Filippseyjum Islenskur víkingur að metast við Svía í Asíu Morgunblaðið/Halldór ANDRÉS með borðann eftir sigur í herra ísland sfðastliðið haust. í KVÖLD fer fram í borginni Manilla á Filippseyjum keppnin „Manhunt International", eða Al- þjóðlegar mannaveiðar. Þó er ekki verið að keppa um að fanga eða eft- irlýsta glæpamenn heldur munu yf- irlýstir fegurðarkóngar frá 47 lönd- um keppa um titilinn „Man of the year“. Andrés Þór Bjömsson var valinn Herra fsland síðastliðið haust og er hann fyrsti fulltrúi ís- lendinga í keppninni sem hefur ver- ið haldin árlega síðan 1993. Andrés hefur dvalið í góðu yfirlæti á Manilla undanfarna daga en loka- kvöldið er aðeins hluti af sjálfri keppninni og því hefur verið í nógu að snúast fyrir keppendur. Alger geðveiki „Ég er búinn að vera héma í riíma viku og þetta hefur verið geð- veiki, það er svo mikið að gera,“ segir Andrés sem dvelur ásamt bróður sínum á hóteli í borginni. „Aðbúnaðurinn hér er mjög góður, hótelið er glæsilegt og það er pass- að mjög vel upp á okkur en Manilla er langt frá því að vera hugguleg- asta borg sem ég hef séð, því fá- tæktin hérna er rosaleg. En það er svo mikið að gera að við höfum eng- an tíma haft til að skoða okkur um. Eg var einmitt að koma inn úr dyr- unum núna úr viðtali við dómarana pn það er einn stærsti hluti keppn- innar.“ - Hvað hefar þú verið að gera síð- au þú komst út? ..Eg er nýbúinn að ná mér upp úr veikindum vegna þess að hitinn og uiaturinn fór illa í mig og ónæmis- kerfinu var hreinlega ofboðið. En við höfum verið að æfa fyrir loka- kvöldið, sýna á tískusýningum og líka í þjóðbúningum. Ég var reynd- ar ekki í nýja íslenska þjóðbúningn- um heldur klæddur sem víkingur. Svo var haldin hæfíleikakeppni til að auka á stemmninguna í kringum þetta.“ - Tókstu þátt í henni? „Já, ég skellti mér bara í þetta,“ segir Andrés og hlær. „Ég dansaði og sýndi tískusýningu og það gekk mjög vel. Sá sem sigraði var frá Kína, hann söng rokklag og það var rosalega flott hjá honum." Vöktu mikla athygli - Hafið þið haft einhvem tíma til að skemmta ykkur? „Við fengum eitt kvöld þar sem við flökkuðum á milli skemmti- staða.“ - Vöktu ekki svona margir sætir strákar saman athygU? „Jú, við vöktum óneitanlega mjög mikla athygli enda tæplega fimm- tíu!“ -Ertu stressaður fyrir loka- kvöldið? „Nei, ekki beint. Dagurinn í dag [fímmtudagur] er eiginlega stærst- ur. í dag er valið í efstu sætin í rauninni. Við fórum í dómaraviðtal og síðan til ljósmyndara og í kvöld verður tískusýning og þetta þrennt eru stærstu hlutar keppninnar. A laugardaginn komum við fyrst fram á sundskýlum, þá í þjóðbúningum og loks fórum við í smókinginn okk- ar. Eftir það er tilkynnt um topp tíu og síðan eru valin fyrstu fimm sæt- in.“ - Hvað er í verðlaun fyrir sigur- vegarann? „Það eru mjög vegleg verðlaun, rúmlega 3 milljónir íslenskra króna. Að auki er tveggja ára fyi’irsætu- samningur við eina stærstu módel- skrifstofu í Asíu. Það er þegar búið að bjóða mér nokkra samninga en það kemur allt í ljós eftir keppnina hvað ég geri.“ -Ertu með einhverjum í her- bergi? „Eg er með frændum okkar frá Svíþjóð í herbergi og sú sambúð gengur svona upp og niður. Það er mjög mikil samkeppni okkar á milli og mikill metingur um hvort landið sé betra. Við fórum t.d. í blaðaviðtal og þar byrjaði Svíinn á því að segja að þeir ættu sterkasta mann í heimi sem héti Magnús Ver Magnússon," segir Andrés hlæjandi. „Þannig að þeir virðast ekki vita mikið um hvað þeir eru að tala,“ segir Andrés Þór að lokum. Fokdýr menntun ►PAUL Fabsik nam stjórnmálafi’æði við Boston háskóla og útskrifaðist sl. mánudag. Af því tilefni ákvað hann að minna alla er mættu til útskriftarinnar á það liversu dýrt nám í háskólum Bandarfkjanna væri og hafði verðmiða hangandi í húfúnni sinni. Samkvæmt miðanum hefur námið kostað Paul um 8,5 milljónir króna, með fæði og húsnæði. Leikarar á frímerkjum í TILEFNI aldamótanna hefur póstþjónustan i Bandaríkjunum ákveðið að gefa út frí- merki til að minna á liðna tíma. Meðal ann- ars eru gefin út merki með mynd af leikurum þáttarins „I Love Lucy“ sem voru mjög vin- sælir í sjónvarpi á sjötta ára- tugnum. Með aðalhlutverkin fóru Lucille Ball og eiginmaður hennar Desi Arnaz. ■ Stórdansleikur í kvöld Hljómsveitln leikur fyrir dansi f ^{(Zturflatinn ^ Smiðjúvegi 14, ‘Kppavogi, sími 587 6080 í kvöld leikur Dans- hljómsveit Friðjóns Jóhannssonar Opiö frá kl. 22—3 leikurfyrir dansi frákl. 22.00 íkvöld. Söngvarar. Signin Eva Ármannsdöttir og Reynir Guðmundsson Radisson SAS Saga Hotel Reykjavik OTTÓ - AUGLÝSINGAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.