Morgunblaðið - 29.05.1999, Page 10
10 LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Reglur um launagreiðslur til sveitarstjórnarmanna mismunandi
Greiðslur oft miðaðar við
hlutfall af þingfararkaupi
INNAN bæjarstjórna á Akureyri, Fjarð-
arbyggð, Arborg og Hafnarfírði hefur ver-
ið ákveðið að afstýra þeim launahækkun-
um sem niðurstaða kjaradóms ætti að færa
sveitarstjórnarmönnum vegna viðmiðunar
við hlutfall af þingfararkaupi.
Frá fundi borgarstjórnar Reykjavíkur. Laun borgarfulltrúa tengjast
ákvörðunum kjaradóms og eru ákveðið hlutfail af þingfararkaupi.
SVEITARSTJÓRNIR á höfuð-
borgarsvæðinu, nema á Seltjam-
amesi, og allmargar sveitarstjóm-
ir úti á landi miða launagreiðslur
til bæjarfulltrúa við hlutfall af
þingfararkaupi. Önnur sveitarfé-
lög miða gjarnan við launataxta
bæjarstarfsmanna eða opinberra
starfsmanna í héraði. I þeim sveit-
arfélögum, sem miðað hafa við
kjaradóm, er nokkuð misjafnt
hvort laun sveitarstjórnarmanna
hækka um mánaðamót í framhaldi
af nýjum úrskurði kjaradóms.
Bæjarstjómir Fjarðarbyggðar og
Árborgar hafa þegar samþykkt að
taka ekki við hækkun samkvæmt
nýjum kjaradómi. Bæjarráð Akur-
eyrar samþykkti í gær að leggja til
við bæjarstjóm að tenging við
kjaradóm verði endurskoðuð og
bæjarráð Hafnarfjarðar sam-
þykkti að hækkun kjaradóms
skyldi ekki hafa áhrif á launa-
greiðslur bæjarins.
í Reykjavík, Kópavogi, Garða-
bæ, Reykjanesbæ, Borgarbyggð
og á Akranesi munu greiðslur bæj-
arfulltrúa hækka um mánaðamót í
samræmi við nýgenginn dóm
kjaradóms en í nokkrum öðrum
sveitarfélögum með sömu viðmiðun
hefur ekki verið ákveðið hvort
hækkanir nái fram að ganga.
Magnús Jóhannsson, forstöðu-
maður fjármálasviðs Fjarðar-
byggðar, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að ákveðið hefði verið í
fyrrasumar að laun bæjarfulltrúa í
sameinuðu sveitarfélagi miðuðusj
við hlutfall af þingfararkaupi. ,Á
fundi bæjarráðs í síðustu viku var
samþykkt að hafna þessari viðmið-
un og taka í staðinn mið af almenn-
um breytingum launa í landinu,“
sagði Magnús.
Eins og fram kom í Morgunblað-
inu í gær hefur bæjarstjóm Ár-
borgar þegar ákveðið að afnema
viðmiðun bæjarfulltrúalauna við
þingfararkaup.
A Akureyri hefur Kristján Þ.
Júlíusson bæjarstjóri afsalað sér
hækkun í samræmi við ákvörðun
kjaradóms eins og fram hefur kom-
ið. Á fundi í gær samþykkti svo
bæjarráð Akureyrar að leggja til
við bæjarstjóm að nýgenginn úr-
skurður kjaradóms hafí ekki áhrif
á launagreiðslur bæjarins, þ.e.
greiðslur til bæjarfúlltrúa og
nefndarmanna.
Kristján Þór Júlíusson bæjar-
stjóri sagði að bæjarráð hefði sam-
þykkt að leggja til við bæjarstjóm
jafnframt að reglur um kaup og
kjör nefndarmanna og bæjarráðs-
manna verði endurskoðaðar en
greiðslur til þessara aðila hafa
hingað til miðast við hlutfall af
þingfararkaupi, sem ákveðið er af
kjaradómi.
Halldór Ámason, bæjarritari í
Hafnarfirði, sagði í samtali við
Morgunblaðið að laun bæjarstjóra
hafi verið ákvörðuð miðað við þing-
fararkaup og laun bæjarfulltrúa og
nefndarmanna taki mið af bæjar-
stjóralaunum. Á bæjarráðsfundi í
gær var hins vegar samþykkt að
síðasti úrskurður kjaradóms mundi
engin áhrif hafa á launagreiðslur
bæjarins.
Halldór sagði að samkvæmt
þessu gengi hækkun kjaradóms
ekki til kjörinna fúlltrúa og bæjar-
stjórans í Hafnarfirði.
Elsa Jónsdóttir, bæjarritari í
Skagafirði, sagði að þar hefðu
greiðslur til bæjarfulltrúa miðast
við þingfararkaup, bæði vegna setu
í bæjarstjórn og í nefndum. Nú
hefur verið ákveðið að hækka ekki
launagreiðslur vegna maímánaðar í
samræmi við nýjan kjaradóm og
verður tekinn tími til að kanna
málið nánar áður en framhaldið
verður ákveðið, að sögn Elsu. Við-
miðun af þessu tagi á hins vegar
ekki við um laun bæjarstjóra.
I sveitarfélaginu Homafirði taka
laun bæjarfulltrúa ekki sjálfkrafa
breytingum í takt við hækkun á
þingfararkaupi, að sögn Garðars
Jónssonar bæjarstjóra, þó að upp-
haflega hafi launin verið háð slíkri
viðmiðun. „Hækkun á launum bæj-
arfulltrúa er því háð ákvörðun
sveitarstjómar hverju sinni,“ sagði
Garðar. Garðar sagði jafnframt að
laun bæjarstjóra tkju ekki heldur
mið af þingfararkaupi.
I Vestmannaeyjum varð Páll
Einarsson bæjarritari fyrir svöram
og sagði laun bæjarfulltrúa og
nefndarmanna miðuð við þingfar-
arkaup, laun bæjarfulltrúa og
nefndarmanna, ekki hefði hins veg-
ar verið tekin ákvörðun um breyt-
ingu í samræmi við nýjan kjara-
dóm en málið yrði væntanlega tek-
ið á dagskrá fljótlega.
Hækkanir í Reykjavík,
Kópavogi, Garðabæ, ísafirði,
Reykjanesbæ, Borgarbyggð,
og Akranesi
Helga Jónsdóttir, borgarritari í
Reykjavík, sagði að laun borgar-
fulltrúa væra miðuð við hlutfall af
þingfararkaupi og laun borgar-
stjóra við laun forsætisráðherra.
„Þetta er bein viðmiðun og það
hafa ekki verið teknar neinar
ákvarðanir um að breyta því,“
sagði Helga aðspurð hvort hækk-
anir samkvæmt nýjasta úrskurði
kjaradóms yrðu látnar ganga til
borgarfulltrúa um mánaðamótin.
Miðað við síðustu mánaðamót
hafa fengu borgarfulltrúar í
Reykjavík greitt fyrir störf sín með
eftirfarandi hætti:
30% til borgarfulltrúa
Borgarfulltrúar fá 30% af þing-
fararkaupi, 68.641 kr., fyrir setu í
borgarstjóm en forseti borgar-
stjómar fær 45%, 102.691 kr. Þá
sömu greiðslu fá einnig þeir sem
sitja í borgarráði.
Greiðslur fyrir nefndarsetur í
borgarstjóm Reykjavíkur era
þrenns konar. 14% af þingfarar-
kaupi, 31.949 kr. er greitt fyrir
setu í barnaverndarnefnd, bygg-
inganefnd, félagsmálaráði,
fræðsluráði, hafnarstjóm, hús-
næðisnefnd, skipulagsnefnd,
stjóm Innkaupastofnunar borgar-
innar og Stjórn Orkuveitu Reykja-
víkur.
10% af þingfararkaupi, 22.820
kr. er greitt fyrir setu í atvinnu-
málanefnd, heilbrigðisnefnd, ÍTR,
Jafnréttisnefnd, Menningamála-
nefnd, Stjórn Dagvistar, Stjóm
SVR og Stjórn Sjúkrahúss Reykja-
víkur. 6% af þingfararkaupi, 13.692
era greiddar á mánuði fyrir setu í
Samstarfsnefnd um lögreglumál-
efni. Formenn nefnda fá 50% álag
á greiðslur til nefndarmanna.
Þessar tölur munu hækka um
tæp 30% um mánaðamót.
Guðjón E. Friðriksson, bæjarrit-
ari í Garðabæ, sagði að laun nefnd-
arfulltrúa og bæjarfulltrúa væra
miðuð við hlutfall af þingfarar-
kaupi og tækju breytingum sam-
kvæmt kjaradómi. Laun bæjar-
stjóra og sviðsstjóra bæjarins
tækju mið af samningum háskóla-
menntaðra starfsmanna stjómar-
ráðsins.
Ólafur Briem, bæjarritari í
Kópavogi, sagði að þar væra laun
bæjarfulltrúa, nefndarmanna og
bæjarstjóra, miðuð við hlutfall af
þingfararkaupi og hefðu ekki verið
teknar ákvarðanir um annað en að
laun þessi hækki í samræmi við
nýjan kjaradóm um mánaðamót.
I Mosfellsbæ era laun sveitar-
stjómarmanna einnig tengd hlut-
falli af þingfararkaupi, að sögn Jó-
hanns Sigurjónssonar bæjarstjóra.
Greiðslurnar hækka því um mán-
aðamót enda hefur ekki átt sér
stað nein umræða um annað. Bæj-
arstjóralaunin era hins vegar ekki
tengd launum hópa sem heyra und-
ir kjaradóm.
Á Isafirði hefur þingfararkaup
verið grannur allra nefndar-
greiðslna, svo sem vegna setu í
bæjarstjóm og bæjarráði. Að sögn
Þorleifs Pálssonar bæjarritara
hefur verið í umræðunni að taka
þessa viðmiðun til endurskoðunar í
framhaldi af síðasta úrskurði
kjaradóms. Laun bæjarstjóra era
hins vegar ekki tengd neinum hópi
sem þiggur laun samkvæmt kjara-
dómi.
í Reykjanesbæ era laun bæjar-
fulltrúa og greiðslur fyrir setu í
nefndum bæjarins einnig miðuð við
þingfararkaup og munu þau, að
sögn Hjartar Zakaríassonar bæj-
arritara, hækka um mánaðamót í
samræmi við nýja niðurstöðu
kjaradóms enda hefur annað ekki
komið til umfjöllunar. „Málið hefur
ekki komið til umfjöllunar og við
göngum út frá því að til hækkunar
komi,“ segir Hjörtur. Laun bæjar-
stjóra í Reykjanesbæ tengjast hins
vegar ekki ákvörðunum kjara-
dóms.
í Borgarbyggð varð Eiríkur
Ólafsson, starfandi bæjarstjóri,
fyrir svöram og upplýsti að þar
væra laun bæjarfulltrúa og nefnd-
armanna miðuð við þingfararkaup.
„Þau laun munu væntanlega breyt-
ast í samræmi við nýjan kjara-
dóm,“ sagði Eiríkur.
Gísli Gíslason, bæjarstjóri á
Akranesi, sagði að bæjai-fulltrúar,
taki laun sem era hlutfall af þing-
fararkaupi og muni greiðslurnar
breytast í samræmi við úrskurð
kjaradóms um mánaðamót. Slíkar
viðmiðanir era þó ekki hafðar um
nefridagreiðslur né um laun bæjar-
stjóra.
I þeim sveitarfélögum, sem ekki
nota viðmiðun við þingfararkaup,
virðist algengast að samið sé um
ákveðin laun við bæjarstjóra í upp-
hafi kjörtímabils en laun fyrir setu
í bæjarstjóm, bæjarráði og öðrum
nefndum sveitarfélaga séu ákveðið
hlutfall af tOteknum launaflokki
opinberra starfsmanna í viðkom-
andi héraði.
Hlutfall af launum
bæjarstarfsmanna
Þetta hlutfall er t.d. 5% af launa-
flokki 77 hjá opinberam starfs-
mönnum í SDS í bæjarstjóm Snæ-
fellsbæjar. Þar er greiðsla fyrir
setu í bæjarstjóm því 5.600 krónur
á mánuði. Að sögn Kristjáns Jón-
assonar bæjarstjóra miðast bæjar-
stjóralaun einnig við samninga fé-
lags opinbema starfsmanna í Snæ-
fellsness- og Dalasýslum.
HHðstæðar viðmiðanir er t.d. um
að ræða á Blönduósi og Siglufirði,
að sögn bæjarstjóranna Skúla
Þórðarsonar og Guðmundar Guð-
laugssonar. Þar er miðað við laun
bæjarstarfsmanna fyrir nefnda-
setu. Sigurgeir Sigurðsson, bæjar-
stjóri á Seltjamamesi, sagði að
laun bæjarfulltrúa þar séu ákveðið
hlutfall af ákveðnum launaflokki í
samningum BSRB. „Við eram á
sama róli og okkar starfsmenn,“
sagði hann.
I Hveragerði era laun fyrir störf
bæjarfulltrúa ákveðin af bæjar-
stjórn samkvæmt viðmiðun við op-
inbera starfsmenn á Suðurlandi og
hafa ekki verið endurskoðuð síðan
1990, að öðru leyti en fylgt hefur
verið breytingum í samræmi við
meðalhækkun á vinnumarkaði, að
sögn Einars Mathiesens bæjar-
stjóra.
Sjálfstæð viðmiðun er einnig fyr-
ir laun bæjarfulltrúa og bæjar-
stjóra í Stykkishólmi, að sögn Ólafs
H. Sverrissonar bæjarstjóra og
hefur úrskurður kjaradóms þar
engin áhrif. Sömu sögu er að segja
frá Húsavík, segir Reinhard Reyn-
isson, bæjarstjóri.
Á Austur-Héraði era laun bæj-
arfulltrúa ákveðin með fastri tölu
við afgreiðslu fjárhagsáætlunar, að
sögn Björns H. Guðmundssonar
bæjarstjóra. Sú fjárhæð hefur ekki
tekið breytingum frá því við gerð
fjárhagsáætlunar fyrir árið 1998.
Laun íyrir nefndasetu era ákveðin
á svipaðan hátt. Laun bæjarstjóra
hafa viðmiðun við umsamin kjör
opinberra starfsmanna á Austur-
landi.
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir,
bæjarritari á Dalvík, sagði að laun
bæjarfulltrúa þar væra miðuð við
samninga starfsmannafélags bæj-
arins.
Kristinn Hreinsson, bæjarritari í
Ólafsfirði, sagði að laun bæjarfull-
trúa þar væra miðuð við kjarasamn-
ing starfsmannafélagsins í bænum.
Fráfarandi bæjarstjóri hafði tekið
laun samkvæmt ákvörðun kjara-
dóms, flokki 502.130, en ekki hefur
verið gengið fiá samningi við nýjan
bæjarstjóra bæjarins.