Morgunblaðið - 29.05.1999, Page 14
14 LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Birgir Isleifur Gunnarsson seðlabankastjóri
Rökrétt að heyri
undir forsætis-
ráðuneyti
■-—-n—m—=>—in---
‘ I '' —
: ? .. ;
„ Morgunblaðið/Jón Stefánsson
nUSGRUNNURINN við Lækjasmára sem staðið hefur óhreyfður í um fimm ár.
Ibúar við Lækjasmára telja opinn húsgrunn slysagildru
Engar framkvæmdir
gerðar í fímm ár
í STEFNUYFIRLÝSINGU ríkis-
stjórnarinnar er kveðið á um að lög
um Stjórnarráð íslands verði end-
urskoðuð. Fyrsta verkefnið verði að
færa Byggðastofnun frá forsætis-
ráðuneyti undir iðnaðarráðuneytið.
Einnig er gert ráð fyrir að Seðla-
banki Islands flytjist frá viðskipta-
ráðuneytinu og heyri undir forsæt-
isráðuneytið sem efnahagsráðu-
neyti. Leitað var eftir viðhorfum
Birgis ísleifs Gunnarssonar seðla-
bankastjóra og Guðmundar
Malmquist, forstjóra Byggðastofn-
unar, til þessa máls.
Birgir Isleifur segir að Seðla-
bankinn hafí átt mjög gott samstarf
við viðskiptaráðherra í gegnum ár-
Sjónvörp end-
urgreidd ef
Selma vinnur
OLL sjónvörp, sem keypt
verða í verslunum B.T. í dag,
verða endurgreidd ef íslenska
lagið vinnur Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva í
kvöld. Tilboðið er engum öðr-
um skilyrðum háð, það tekur
til allra sjónvarpa sem seld
eru í verslunum og magn er
ótakmarkað.
Guðmundiu- Magnason,
markaðsstjóri B.T., sagði í
samtali við Morgunblaðið að
þessi ákvörðun byggði hreint
ekki á vantrú á laginu, for-
svarsmenn fyrirtækisins von-
uðu að Selma ynni. „Við erum
aðeins farin að svitna,“ sagði
Guðmundur þó, þegar hann
var spurður að því hvort fyrir-
tækið væri ekki að taka óþarfa
áhættu í ljósi þess hve ís-
lenska laginu er spáð góðu
gengi.
„Spennan mun vissulega
verða mikil, bæði hjá okkur
og viðskiptavinum okkar,“
sagði Guðmundur. Það ræðst
svo um kl. 10 í kvöld hverjir
munu ekki hafa heppnina með
sér.
in. Sú ráðstöfun að færa Seðlabank-
ann undir forsætisráðuneytið sem
efnahagsráðuneyti er hins vegar, að
hans mati, rökrétt.
„Eins og stjómkerfíð er hjá okk-
ur heyra hin almennu efnahagsmál
undir forsætisráðuneytið. Þess
vegna er ekki óeðlilegt að Seðla-
bankinn, sem mikilvægur þáttur í
efnahagslífinu, heyri undir forsætis-
ráðuneytið. Það er yfírleitt þannig í
öðrum löndum að þau embætti sem
bera ábyrgð á efnahagsstefnunni
heyra undir viðkomandi ráðuneyti,
oft forsætisráðuneyti, en í Dan-
mörku er t.a.m. sérstakt efnahags-
ráðuneyti. Hjá okkur er hins vegar
það fyrirkomulag að forsætisráð-
herra ber ábyrgð á hinni almennu
efnahagsstefnu. Þess vegna er þetta
rökrétt að mínu mati,“ segir Birgir
ísleifur.
Hann segir að nánustu samskipti
Seðlabankans hafi verið við við-
skiptaráðherra og fjármálaráð-
herra. Einnig hafí verið náin sam-
skipti við forsætisráðherra svo
breytingin verður ekki mikil. „Við
hyggjum gott til _ samstarfs við
hann,“ segir Birgir ísleifur.
Gefíð stofnuninni styrk að heyra
undir forsætisráðuneyti
Guðmundur Malmquist, forstjóri
Byggðastofnunar, kveðst fyrst hafa
heyrt af því í stefnuyfirlýsingu rík-
isstjómarinnar að gert sé ráð fyrir
að færa Byggðastofnun undir iðnað-
arráðuneyti. Hann hafi því ekki náð
að mynda sér ákveðna skoðun á
málinu, enda séu það stjórnmála-
mennirnir sem leggi línurnar í þess-
um efnum. Hann segir þó að
byggðamálin hafi í langan tíma
heyrt undir forsætisráðuneytið og
það hafí gefíð starfsemi Byggða-
stofnunar vissan styrk. „Við könn-
umst hins vegar við það að t.d. í Sví-
þjóð heyra þessi mál undir iðnaðar-
ráðuneytið og félagsmálaráðuneytið
aðallega í Noregi. Við höfum þvf
heyrt um aðra skipan mála,“ segir
Guðmundur.
Hann segir að þetta leggist ekk-
ert illa í sig en hann muni sakna
þess styrks sem stofnunin hafí haft
af því að heyra undir forsætisráðu-
neytið.
ENGAR framkvæmdir hafa verið við
húsgmnn við Lækjasmára 7 í Kópa-
vogi um fimm ára skeið og hafa íbúar
í nágrenninu miklar áhyggjur af því
hversu hægt framkvæmdum miðar,
enda telja þeir um slysagildru að
ræða fyrir böm og aðra vegfarendur.
Verktaki í erfíðleikum
„Það er búið að gera ýmislegt til
að þoka þessu máli áleiðis en þarna
virðist hafa verið um einhverja erfið-
leika að ræða,“ segir Gísli Nordal
byggingarfulltrúi Kópavogsbæjar.
Fyrst og fremst voru það fjárhags-
erfiðleikar verktaka, að sögn Gísla,
og er málið nú í höndum bæjarlög-
manns.
Við Lækjasmára eru þrjár húsa-
samstæður byggðar í þeirri röð sem
þama um ræðir, en ein er óbyggð og
hefur gmnnurinn staðið óhreyfður
um nokkurra ára skeið. I gmnninum
er timbur og rasl af ýmsu tagi, auk
hálfreistra móta.
„Þetta hefur verið löng og ströng
píslarganga,“ segir Þórður Þórðar-
son bæjarlögmaður. Hann segir þó
horfur á að gerðar verði róttækar
breytingar til hins betra á næstunni,
þar sem nýr verktaki hafí hug á að
ráðast í framkvæmdir á lóðinni. „Mér
skilst að undirritaður hafí verið
kaupsamningur í seinustu viku sem
hljóðar m.a. upp á að byggingaraðilar
yfirtaki allar framkvæmdir á staðn-
um og ætli að hefja framkvæmdir."
Aðspurður um hvort umræddri
þrautagöngu sé lokið með nýjum eig-
endum, kveðst Þórður hafa haldið
svo oft að málið væri að leysast, en
Kópavogsbær
bindur vonir við
nýja eigendur
hann bindi þó vonir við að vel gangi í
þetta skipti.
Þórður kveðst lengst af hafa átt
von á að málið leystist með þeim
hætti að eignin færi á nauðungarapp-
boð, enda eigi lífeyrissjóðir veð í
þessum framkvæmdum. „Það gladdi
mig að heyra að nýr aðili væri kom-
inn að þessu máli og mér skilst að
veðhafar hafi samþykkt þá sölu.
Bærinn er að sjálfsögðu ánægður ef
þama kemur aðili sem hefur burði til
að Ijúka þessu verki.“
Gísli segir að þarna hafi verið út-
hlutað lóð til eins aðila fyrir
þónokkrum árum en það hafí gengið
hægt og illa að ljúka við verkið.
„Þetta mál hefur verið til heilmikillai’
umfjöllunar hérna og ég tel mig hafa
gert allt sem í mínu valdi stendur til
að vekja athygli á því,“ segir Gísli.
Þórður tekur í sama streng og seg-
ir að seinustu misseri hafí Kópavogs-
bær staðið í stappi við fyrri eiganda
grunnsins um að ganga sómasamlega
frá honum. „Vandinn virðist hafa ver-
ið sá að menn hafí ætlað sér um of og
farið út í miklu stærra og meira en
þeir réðu við.“
Gísli segir að framan af hafi grunn-
urinn verið afgirtur, en síðan hafi
girðingin fallið. Ekki hafi tekist að fá
verktakann til að reisa hana að nýju,
þannig að aðgangur að granninum
hafi verið greiður um u.þ.b. tveggja
ára skeið.
BILA- og búvélasýning Ingvars Helgasonar og Bílheima fer um landið
næstu daga og lýkur henni 10. júní á Suðurlandi.
Sammála um að innleiða eigi
samkeppni í orkumálum
FORSVARSMENN orkufyrirtækj-
anna í landinu eru sammála um það
markmið að innleiða samkeppni í
orkumálum, eins og getið er um 1
stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.
Rætt var við forsvarsmennina og
kom fram í máli þeirra að margt
væri góðra gjalda vert í kaflanum
um orkumál.
Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, segir að sér lítist
vel á kaflann um orkumál í stefnuyf-
irlýsingunni. „Undir forystu iðnaðar-
ráðuneytisins verður áfram unnið að
breytingu á rekstrarlegu umhverfí á
orkusviðinu eins og gert hefur verið
víðast annars staðar í okkar ná-
grannalöndum. Aherslan verður lögð
á samkeppni í sölu og vinnslu.
Landsvirkjun tekur þátt í því starfi.
Við erum jafnframt þátttakendur í
þróun og rannsóknum á nýjum orku-
gjöfum. Varðandi uppbyggingu
orkufreks iðnaðar gegnir Lands-
virkjun að sjálfsögðu því lykilhlut-
verki að virkja hreinar orkulindir
landsins,“ sagði Friðrik Sophusson.
Guðmundur Þóroddsson, forstjóri
Orkuveitu Reykjavíkur, kvaðst
sammála um að innleiða ætti sam-
keppni í orkumálum. „Hins vegar
höfum við lagt áherslu á að jafnræð-
is verði gætt og eitt gangi yfir alla í
samkeppninni. Það þarf einnig að
taka afstöðu til framtíðar Lands-
virkjunar og Rarik og hvort ríkið
eigi áfram að reka orkufyrirtæki
með hliðsjón af því veigamikla eftir-
litshlutverki sem því verður falið í
samkeppnisumhverfí. Jöfnun orku-
verðs getur verið gott markmið en
það þarf að vera gagnsætt, þannig
að sjáist hvað er jöfnun og hvað
ekki. Jafnframt er óeðlilegt að hafa
það inni í orkuverðinu nema sem
sérstakan skatt.“
Guðmundur sagði að önnur mark-
mið í stefnuyfirlýsingunni væra
góðra gjalda verð. „Orkuveita
Reykjavíkur er ásamt ýmsum öðr-
um orkufyrirtækjum á kafí í því að
rannsaka umhverfísvæna orkugjafa
eins og vetni og metanól. Við erum
hluthafar í nýju vetnisfyrirtæki með
erlendum stórfyrirtækjum og það er
engin spurning að orkufrekur iðnað-
ur á áfram eftir að verða mikilvægur
í atvinnuuppbyggingu.“
Samkeppni og lækkað orkuverð
Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu
Suðumesja, sagði að þær hugmyndir
um orkumál sem fram koma í stefnu-
yfirlýsingunni væra flestar góðra
gjalda verðar og litu ágætlega út á
pappímum. „Það er hins vegar
spurning um hvemig samkeppni og
það að lækka orkuverð vinnur sam-
an. Reyndar fínnst mér að texti um
jöfnun orkuverðs eigi ekki heima í
orkumálakafla heldur í félags-
málakafla. Og ef menn era að tala
um að auka hagkvæmni í geiranum
og auka samkeppni má segja að hitt
atriðið stangist á, nema því sé haldið
utan við sem félagsmáli. Að öðru
leyti held ég að þetta sé ósköp al-
mennt orðað og segi ekki mikið,“
sagði Júlíus.
Kristján Jónsson, forstjóri Raf-
magnsveitu ríkisins, sagði það sína
skoðun að það sem fram kæmi í kafl-
anum um orkumál væri rétt stefna.
„Við hjá Rafmagnsveitum ríkisins
höfum áhuga á því að taka þátt í
samkeppni og þá sérstaklega í orku-
vinnslu og orkusölu. Við teljum því
að þessi stefnumörkun sé af hinu
góða og erum þess fullvissú- að það
muni leiða til betri kjara fyrir við-
skiptavini okkar en er í dag.“
Kristján sagði að varðandi orku-
verðsjöfnun hefði íyrirtækið lagt á
það áherslu að það verði að vera
visst samræmi á milli viðskiptavina
þess á landsbyggðinni og þeirra sem
búa á höfuðborgarsvæðinu. „Þess
vegna höfum við lagt til að það verði
tekið á því í þeirri skipulagsvinnu
sem nú er í gangi og stefnt að öflugu
orkufyrirtæki á landsbyggðinni, sem
væri þá mótvægi við þau fyrirtæki á
höfuðborgarsvæðinu, sem eru að
verða öflug og sterk. Þannig að
landsbyggðin njóti í raun þeirra
kosta sem við höfum í þessu landi og
að það verði í raun orkujöfnun á
þessu sviði.“
Sýna bíla og
búvélar víða
um land
FYRIRTÆKIN Ingvar Helgason
og Bflheimar hefja um helgina
sýningarherferð á bflum og búvél-
um. Fyrst verður sýnt í Reykja-
vík, siðan farið um Vestur- og
Norðurland og endað á Laugar-
vatni, Selfossi og Þorlákshöfn
fímmtudaginn 10. júní.
Sýnt verður í aðsetri fyrirtækj-
anna við Sævarhöfða í Reykjavík í
dag, laugardag, milli klukkan 12
og 17 og á morgun 14 til 17. Á
mánudag verður sýnt í Borgar-
nesi, við Vegamót og í Búðardal,
á þriðjudag Staðarskála,
Hvammstanga og Blönduósi, frá
miðvikudegi til föstudags á Norð-
urlandi og laugardaginn 8. júní á
Norðausturlandi. Sunnudaginn 6.
júní og mánudaginn 7. júní verður
sýnt á Egilsstöðum, Neskaupstað,
Breiðdalsvík, Djúpavogi, Höfn og
Fagurhólsmýri og síðan endað á
Suðurlandi eins og fyrr segir.
Sýndar verða búvélar frá véla-
deild Ingvars Helgasonar, Nissan-
og Subaru-bflar frá sama fyrir-
tæki og Opel og Isuzu frá Bfl-
heimum.