Morgunblaðið - 29.05.1999, Side 74
74 LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
HÉR má sjá afleiðingar af of hröðum akstri og lélegum dekkjabúnaði.
Fækkum óhöppum,
sýnum varkárni
Frá ungum ökumönnum:
LÍKT og barn sem er að byija að
læra að hjóla þá er mest hættan á
óhöppum hjá þeim sem er nýkominn
með bílprófið. Eina leiðin til að halda
þeim í lágmarki er að undirbúa sig vel
og afla sér reynslu. Til dæmis þegar
haldið er út á land í fyrsta sinn þá eru
nokkur atriði sem öruggt má telja að
taka þurfi með í reikninginn.
Lausamöl er þar einna efst á blaði.
Hver kannast ekki við fréttir af útaf-
keyrslum og bílveltum sökum hennar.
Þekktustu dæmin eru á vegköflum
þar sem malbikinu sleppir en á slík-
um stundum er það hraðinn sem
skiptir mestu máli að ekki fari illa. Þá
skal alltaf taka tillit til veðráttunnar
þegar ekið er. í rigningu og bleytu
geta góðir malarvegir orðið mjög
hálir og minnsta beygja getur valdið
endalokum ferðarinnar. Einnig er
mikilvægt að hugsa áður en tekið skal
fram úr. Er t.d. nauðsynlegt að fara
langt yfir leyfðan hámarkshraða og
skapa stórhættu einungis til að vera 2
til 3 mínútum fljótari á áfangastað?
Hættulegar brýr
Einbreiðum brúm fer fækkandi en
alltaf skal sýna ýtrustu varkámi áð-
ur en komið er að þeim. Ekki er nóg
að aðgæta hvort bíll komi á móti,
trébrýr geta orðið hálar, jafnvel í
þurru veðri og lausamöl vill oft safn-
ast fyrir á þeim. Samfara því að aka
um sveitir landsins þarf að taka tillit
til búfénaðar. Þótt lausaganga búfjár
sé víða bönnuð má alltaf gera ráð
fyrir því að bak við næsta hól geti
leynst lamb sem skyndilega hleypur
yfir veginn. Þá er mikilvægt að sýna
tillitssemi við hestamenn og draga
úr hraðanum áður en ekið er fram
hjá þeim.
Að síðustu ber að minnast á
blindhæðir og blindbeygjur. Slíkir
staðir skipta þúsundum í vegakerfi
landsins og eru engin svæði undan-
skilin. Aftur og enn þurfum við að
huga að hraðanum. Hver kannast
ekki við það að blóta ökumanninum
sem kom á móti fyrir glæfralegan
akstur bara vegna þess að hann
gerði ekki ráð fyrir því að bíll kæmi
á móti.
Fyrir hönd ökunemenda apríl-
mánaðar,
EINAR GUÐMUNDSSON,
forvarnafulltrúi Sjóvár-Almennra
trygginga hf.
Smáfólk
ONE FIN6ER UJILLMEAN A
5TRAI6HT BALL..TW0 FIN6EK5
WILL MEAN ANOTHER
5TRAI6HT BALL...
Einn fingur táknar beinan bolta..
tveir fingur tákna annan
beinan bolta...
Þrír fingur tákna annan
beinan bolta..
Eitthvað annað?
Þegar þar er koniið sögu
skiptir það ekki máli..
Skipting ráðherra-
stóla endurspegli
úrslit kosninga
Frá Guðmundi Rafni Geirdal:
ÚRSLIT kosninganna voru skýr.
Sjálfstæðisflokkurinn vann en fram-
sókn tapaði. Þannig bætti fyrmefndi
flokkurinn við sig einum manni en sá
seinni tapaði fjórum. í stuttu máli
sagt þá tapaði Framsóknarflokkurinn
fimmtungi atkvæða sinna og £jórð-
ungi þingmanna. Það kallast að bíða
afhroð í kosningum. Samt eru þeir
með í stjómarmyndunarviðræðum.
Gott og vel, þetta má, en þá fynd-
ist manni eðlilegt að stjórnarmynd-
unarviðræður ættu að endurspegla
vilja kjósenda. Nýlegar fréttir benda
hins vegar tii að framsókn fái jafnt
hlutfall af ráðherrastólum og Sjálf-
stæðisflokkurinn. Benda verður á að
framsókn hefur aðeins tæpan þriðj-
ung af samanlögðum fjölda þing-
manna beggja flokka. Þar af leiðandi
ættu þeir aðeins að fá þriðjung ráð-
herraembætta. Ef rétt er að fjölga
eigi ráðherrum úr 10 í 12 þýðir það
að framsókn ætti að fá um fjóra en
sjálfstæðið afganginn.
Ef í ljós kemur að þetta verði ekki
niðurstaðan heldur að framsókn fái
sama ijölda ráðherra og Sjálfstæðis-
flokkurinn má segja að slíkt endur-
spegli engan veginn vilja kjósenda í
lýðræðisríkinu Islandi þar sem skoð-
anafrelsi og ritfrelsi er bundið í
stjórnarskrá. Því legg ég til, ef svo
fer í raun, að kjósendur mótmæli því
að ekki sé farið eftir vilja þeirra.
GUÐMUNDUR RAFN GEIRDAL,
skólastjóri.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fyigir fyrirvari hér að lútandi.