Morgunblaðið - 29.05.1999, Side 77
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999 77
I DAG
Árnað heilla
OnOG 90 ÁRA afmæli. Á morgun, sunnudaginn 30. maí,
O vrverður áttræð Arnfríður Jónsdóttir, Selfossi. Eigin-
maður hennar, Sigurður Ingi Sigurðsson, verður níræður í
ágúst nk. Vegna þessara tímamóta taka þau á móti ættingj-
um og vinum á afmælisdegi Arnfríðar frá kl. 15-18 að
Grænumörk 5, Selfossi. Ósk þeirra er að þeir sem vildu
gleðja þau með blómum eða gjöfum láti Rauða kross Islands
eða Hjálparstofnun kirkjunnar njóta þess til styrktar flótta-
fólki frá Kosovo.
/?/\ÁRA afmæli. í dag,
vJ v/laugardaginn 29. maí,
verður sextugur Ingi Dóri
Einarsson, Furugrund 73,
Kópavogi. Eiginkona hans
er Sigurlaug Gísladóttir.
Þau taka á móti vinum og
vandamönnum að Duggu-
vogi 12 frá kl. 16-20.
BRIDS
llnisjón Guðmundur
Páll Arnarson
VESTUR spilar út hjarta-
drottningu gegn sex spöð-
um suðurs:
Suður gefur; allir á
hættu.
Norður
* ÁKD
¥ 74
* 986532
* 103
Suður
Á G109873
¥ ÁK52
♦ ÁK
4» 6
Vestur Norður Austur Suður
- - 1 spaði
Pass 2spaðar Pass 4 lauf
Pass öspaðar Pass Gspaðar
Pass Pass Pass
Hvernig er best að
spila?
Tvennt kemur til
greina: (1) Fría tígulinn í
blindum. (2) Trompa tvö
hjörtu í borði. Það er
greinilega betri kostur að
stinga hjarta tvisvar, því
þá þarf tígullinn ekki
endilega að liggja 3-2. En
það er ekki sama hvernig
er að verki staðið. Best er
að spila strax þrisvar
hjarta og trompa, og liðka
svo samganginn með því
að spila laufi úr borði:
Norður
* ÁKD
¥ 74
♦ 986532
* 103
Vestur Austur
♦ 6 * 542
¥ DG10 ¥ 9863
♦ DG74 ♦ 10
♦ KG542 * ÁD987
Suður
A G109873
¥ ÁK52
♦ ÁK
4» 6
Þá er sama hvað vömin
gerir. Ef hún spilár laufi
aftur, trompar suður,
trompar hjarta, tekur síð-
asta spaða blinds, og fer
loks heim á tígul til að
taka trompin. Og ef vörn-
in skiptir yfir í tígul,
trompar sagnhafi síðara
hjartað, tekur háspaða í
' borði og stingur lauf
heim. í stuttu máli, þá er í
lagi þótt tígullinn skiptist
4-1.
Við sjáum hvað gerist
ef strax er farið heim á
tígul til að trompa síðara
hjartað. Þá er engin greið
leið heim til að aftrompa
austur og vörnin getur
náð tígulstungu.
/?/AÁRA afmæli. í dag,
OUlaugardaginn 29. maí,
verður sextug Jóhanna
Helgadóttir, Víðivangi 1,
Hafnarfirði. Hún dvelur á
La Marina, Spáni. Sími og
fax: 00 34 96 679 7569.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar
um afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira
lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistil-
kynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns
og símanúmer. Fólk
getur hringt í síma
569-1100, Sent í
bréfsíma 569-1329,
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík.
pf /\ÁRA afmæli. Á morg-
tj Uun, sunnudaginn 30.
maí, verður fimmtug Hildur
Sigurðardóttir, kennari,
Silungakvísl 8. Hún og
bóndi hennar, Páll M. Stef-
ánsson, taka á móti vinum
og vandamönnum heima í
Silungakvísl 8 frá kl. 18 í
dag.
p /\ÁRA afmæli. í dag,
O V/laugardaginn 29. maí,
verður fimmtugur Magnús
Hreggviðsson, sljórnarfor-
maður Fróða hf. og Fijáls
framtaks ehf., Þingaseli 10,
Reykjavík. Magnús og eig-
inkona hans, Erla Haralds-
dóttir, taka á móti gestum í
Versölum í kjallara Iðnað-
armannahússins að Hall-
veigarstíg 1, frá kl. 20.30 á
afmælisdaginn.
LJOÐABROT
SVEFNLJOÐ
Rokkarnir eru þagnaðir
og rökkrið orðið hljótt.
Signdu þig nú, barnið mitt,
og sofnaðu fljótt,
því bráðum kemur heldimm
hávetrarnótt.
Signdu þig og láttu aftur
(1895/1964) lltlu aU^n Þín»
svo vetrarmyrknð geti ekki
villt þér sýn.
Lullu lullu bía,
og láttu það ekki sjá,
______ hvað augun þín eru
Brot úr yndisleg og blá,
Ijóðinu því mikil eru völd þess,
Svefnljóð og myrk er þess þrá.
STJÖRNUSPA
eftir Frances Ilrake
J
TVIBURAR
Afinælisbarn dagsins:
Þú átt auðvelt með að koma
skoðunum þínum á framfærí
ogfylgja þeim eftir. Þú
kannt vel að krydda mál
þitt með kímni.
Hrútur _
(21. mars -19. apríl)
Þetta verður hálfgerður leið-
indadagur hjá þér en þótt þér
finnist allt ganga á afturfót-
unum skaltu halda ró þinni
því allt hefst þetta nú að lok-
um með góðu móti.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er ágætt að leyfa tilfinn-
ingunum að njóta sín en um
leið skaltu varast að láta þær
hlaupa með þig í gönur. Hlu-
staðu á rödd hjartans.
Tvíburar ^
(21. maí - 20. júní) nn
Þú ert að fást við verkefni
sem krefst allrar þinnar at-
hygli og heilmikilla vanga-
veltna. Gefðu þér góðan tíma
því miklu skiptir að árangur-
inn verði sem bestur.
Krnbbi
(21. júní - 22. júlí)
Enginn getur rænt þinn innri
mann svo þér er óhætt að
leyfa honum að njóta sín í um-
gengni við aðra.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) W
Það eru einhverjar undiröld-
ur í kringum þig svo þú skalt
fara þér hægt og vera viðbú-
inn hverju sem er. Reyndu
samt að láta þetta ekki hafa
of mikil áhrif á störf þín.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) (SG>
Þú ert óvenju fljótur að kom-
ast að kjama málsins og það
vekur bæði aðdáun og öfund
þeirra sem með þér starfa.
'gTHi
(23. sept. - 22. október) 4*
Þótt þér finnist þú eiga fátt
þegar þú lítur í kringum þig
er það ekki öll sagan þvi að
sjálfur ertu þín dýrasta eign.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þær aðstæður hafa skapast
að þú ert í óvenju valdamMli
aðstöðu og því skiptir miklu
máli að þú kunnir með vald
þitt að fara.
KIRKJUSTARF
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) ft- r
Það er nauðsynlegt að draga
glögg skil milli draums og
veruleika því þótt draumar
geti verið góðir þá er veru-
leikinn oftast annar en í hon-
um hrærumst við.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) é&t
Þér er að takast að safna
saman öllum þeim upplýsing-
um sem þú þarft til að ganga
frá þýðingarmiklu máli. Þeg-
ar það er búið getur þú litið
bjartsýnn fram á veg.
Vatnsberi
(20. janúar -18. febrúar)
Það verður reynt að bera í þig
sögur en mundu að þú ert
engu nær um þann sem talað
er um en nokkru nær um
þann er mælir.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Finnist þér eins og traðkað sé
á tilfinningum þínum skaltu
draga þig í hlé gagnvart við-
komandi og leyfa öðrum að
njóta umhyggju þinnai-.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Safnaðarstarf
Grafarvogssókn
10 ára
Á MORGUN, sunnudaginn 30. maí,
heldur Grafarvogssókn upp á tíu
ára afmæli sitt, en prestakallið var
stofnað hinn 5. júní árið 1989. Há-
tíðardagskráin hefst með guðsþjón-
ustu kl. 11 í Grafarvogskirkju. í
guðsþjónustunni mun séra Vigfús
Þór Árnason sóknarprestur pré-
dika og þjóna fyrir altari ásamt
séra Sigurði Arnarsyni og séra
Önnu Sigríði Pálsdóttur. Kór Graf-
arvogskirkju mun ásamt Unglinga-
kór kirkjunnar annast sönginn,
undir stjórn organistanna og kór-
stjóranna Harðar Bragasonar og
Hrannar Helgadóttur. Eftir guðs-
þjónustu mun sóknarnefndin og
safnaðarfélagið
bjóða upp á
kaffi og af-
mæliskringlu í
aðalsal kirkj-
unnar, sem nú
hefur verið
klæddur með
granítsteinflís-
um.
Þennan sama
dag verða
haldnir tónleik-
ar í aðalkirkju-
skipinu. Þar
munu allir kór-
arnir koma
fram. Þar verða
m.a. flutt lög
sem kirkjukór-
inn mun flytja í
söngferð sinni
til Italíu í næsta
mánuði. Ein-
söngvari með
kórnum er okk-
ar ágæti óperu-
söngvari og fé-
lagi í
kirkjukórnum,
Valdimar
Haukur
Hilmarsson, en
hann er á leið til
Lundúna í framhaldsnám í söng.
Allur ágóði af tónleikahaldinu
rennur í orgelsjóð kirkjunnar sem
er minningarsjóður um Sigríði
Jónsdóttur, fyrsta organista Graf-
arvogssóknar. ^
Fella- og Hólakirkja. Opið hús fyr-
ir unglinga kl. 21.
Hafnaríjarðarkirkja. Kl. 11-12.30
opið hús í Strandbergi. Trú og
mannlíf, biblíulestur og samræður.
Leiðbeinendur sr. Gunnþór Inga-
son og Ragnhild Hansen.
KEFAS, Dalvegi 24, Kópavogi. Al-
menn samkoma kl. 14. Ræðumaður
Helga R. Ármannsdóttir. Allir
hjartanlega velkomnir. Mán. 31.5.:
Kvennabænastund kl. 20.30. Þri.
1.6: Brauðsbrotning og bænastund
kl. 20.30. Mið. 2.6.: Unglingasam-
koma kl. 20.30.
Krossinn. Unglingasamkoma kl.
20.30 í Hlíðasmára 5. Allir vel-
komnir.
GRAFARV OGSKIRKJA.
10 rósir kj- 99Q .
‘Daíía
Mikið úrval af
útskriftar- og
brúðargjöfum.
Opið til kl. 10 öll kvöld
Fákafeni 11, sími 568 9120
KYNNINGARFUNDUR
í NORRÆNA HÚSINU
ÞRIÐJUDAGINN
1.JÚNÍKL1700
Enski arkitektinn
John Thompson kynnir:
mm
Aðferðarfraeðl sem þekkt er undir heltinu "Acflon Planning" á uppruna sinn f
Bandarikjunum fyrir um 30 árum, en hefur verlð beltt á Bretlandseyjum og á
meginlondi Evrópu f 15 ár.
Aðferðin byggir á someiginlegri leit lœrðra og lelkra, almennings, sérfrœð-
Inga, embœttismanna og stjómmálamanna að hugmyndum og lausnum á
hlnum fjölbreytllegustu vandamálum og viðfangsefnum í þéttbýli, stórum
sem smáum. í fjölmörgum borgum Evróþu hefur "Action Planning" (gagnvirkt
skipulag) nýst vel við að hrinda Staðardagskrá 21 í framkvœmd.
Samtök um Betri byggð verða með oþinn fund um þetta
efni briðiudaalnn 1. iúní kl. 17:00 í Norrœna húsinu. Þar mun_
enski arkitektinn John Thomþson kynna þessa nýstárlega
aðferðarfrceðl við skipulagsvinnu og þéttbýlismótun.
Allir velkomnir!