Morgunblaðið - 29.05.1999, Qupperneq 81
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999 81
Stutt
Grimmir
rukkarar
►REIÐIR lánardrottnar í Kiev
tóku skuldunaut sinn, 23 ára mann
frá Úkraínu, og píndu haim á
grimmilegan hátt vegna 70 þúsund
króna skuldar. Maðurinn var af-
klæddur og geymdur hlekkjaður í
göturæsi mánuðum saman og fékk
ekkert að borða nema gras. Maður
slapp að lokum úr prísundinni og
furðu lostinn hjólreiðamaður kom
honum til aðstoðar og keyrði hann
hálfmeðvitundarlausan á nærliggj-
andi sjúkrahús. Þar var gert að
sárum hans, en maðurinn var
kjálkabrotinn, rifbrotinn og hafði
slæm sár á hálsi. Lögreglan hefur
ekki enn náð ódæðismönnunum
sem sagðir eru rúmlega tvítugir í
fréttablaðinu Fakty.
Reykingabann
til bóta?
►LÖG sem banna reykingar hafa
gert bari og veitingastaði að hrein-
ustu stöðum í Bandaríkjunum en
þessi sömu lög hafa gert strendur
Kaliforníu að öskubökkum. Strand-
nefnd Kalifomíu, er stendur fyrir
hreinsunardegi stranda árlega, telur
að fjöldi sígarettustubba hafi aukist
um 40% milli áranna 1997-1998.
„Um leið og Bandaríkin herða lög
sem banna fólki að reykja innandyra
er engin furða að sígarettustubbum
fjölgi utandyra,“ sagði talsmaður
nefndarinnar. „Ef engir öskubakkar
eru til staðar, hendir fólk stubbunum
á götuna sem síðan skolar niður á
strönd. Við verðum að auka skilning
fólks á þessu.“
Ljósmynd
aldarinnar
►HUNDRAÐ Bandaríkjamenn
sem fæddir eru 4. júlí á hveiju og
einu ári tuttugustu aldarinnar
munu hittast í Sjálfstæðishöllinni í
hópmyndatöku í tilefni aldamóta
og 223 ára afmælishátíðar sjálf-
stæðis landsins. „Fólk sem er fætt
4. júlí frá árinu 1900 til ársins
1999 munu verða myndað," sagði
Phil Sheridan, talsmaður Þjóð-
garðastofnunarinnar sem er
starfrækt í Sjálfstæðishöllinni þar
sem sjálfstæði landsins var lýst yf-
ir 4. júlí árið 1776.
Ókurteis
löggudúkka
►VEGALÖGREGLAN í Hvíta-
Rússlandi hefur tekið upp á því að
setja löggudúkkur meðfram fjöl-
fomum þjóðvegum til að draga úr
ökuhraða. „Það hefur strax borið
árangur," sagði Vasily Bulbenkov
höfuðsmaður Áróðursdeildar lög-
reglunnar. „Ökumenn hægja á sér
og vara aðra bílstjóra við með því að
blikka ljósunum." En dúkkumar
hafa einnig haft neikvæð áhrif á
vegfarendur. „Eftir að lögreglu-
maður ók framhjá dúkku bar hann
fram kvörtun þess efnis að lög-
reglumaður á þjóðveginum hefði
ekki heilsað en í raun var þama á
ferðinni dúkka,“ sagði Vasily.
Berháttuð í
kennslustund
►KENNARI í menntaskóla í
Vancouver í Bandarflqunum er
talinn hafa gengið of langt er
hann bað nemendur sína í öld-
ungadeild skólans að fækka fötum
í kennslustund. Kennaranum, er
kenndi frumstæð trúarbrögð, var
sagt upp störfúm er skólanefndin
komst í málið. „Nemendur voru
ánægðir með námskeiðið og vildu
að það héldi áfram en voru þó
sammála um það að þessi kennslu-
aðferð hentaði ekki í opinberum
skóla,“ sagði talsmaður skólans.
FOLK I FRETTUM
Rokkað með Jon Spencer
Blues Explosion í kvöld
í kvöld mun bandaríska
hljómsveitin Jon
Spencer Blues Explos-
ion spila í bílageymslu
Rásar 2 við Efstaleiti en
Quarashi og Ensími jtw,
sjá um upphitun. ^
JON Spencer Blues Explosion er
frá New York og í sveitinni eru
söngvarinn Jon Spencer,
gítarleikarinn Judah Bauer og
trommarinn Russell Simins. Sveitin
þykir með eindæmum lífleg á sviði,
tónlistin er meira í ætt við rokk og
ról en blús þrátt fyrir að nafnið gæti
gefið annað til kynna. Jon Spencer
segir að í tónlist þeirra megi finna
ýmsar tónlistarstefnur þött allar séu
þær undir hatti rokksins en inn á
milli megi heyra rapp, popp,
rokkabillí, kántrí og pönk. Spencer
bendir á Rolling Stones sem
áhrifavald á sveitina, en oft hefur
lögum Rollinganna verið líkt við
rokkaðan blús.
Rokkið er því meira áberandi
Lágmenningar-
hátíð Reykjavíkur
en blúsinn í tónlist sveitarinnar þótt
blúsaðar melódíur megi greina hér
og þar. Sumir segja að Jon Spencer
taki staðlaðar blúsmelódíur og breyti
þeim í pönkaða samsuðu og telja
nafngift sveitarinnar dæmi um
póstmódernískt viðhorf Jons
Spencers þar sem vísunum í aðrar
tónlistarstefnur sé hrært saman í
rokkaðan bræðing
*r sveitarmeðlima.
r ' Jon Spencer hóf feril
I sinn í sveitinni Pussy
k Galore, en þegar hún
Hk leystist upp stofnaði hann
^ Jon Spencer Blues
Explosion. Sveitin hefur gefið út
átta breiðskífur en það var með
þriðju plötu hennar, Extra
Width sem gefin var úr 1993,
sem vinsældimar komu. Lagið
„Afro“ af Extra Width naut
talsverðra vinsælda og
sveitin þótti léttari, þéttari
og einnig var talað um að
Spencer syngi eins og
Elvis sjálfiir. Það eru þó
tónleikar sveitarinnar
sem hafa aflað henni
mestra vinsælda
enda þykja þeir
mikil rokk- og
svitaveisla.
Verzlunarskóli íslands
Innritun nýnema vorið 1999
Nýútskrifaðir grunnskólanemar
Umsóknarfrestur um skólavist í Verzlunarskóla
íslands rennur út föstudaginn 4. júní kl. 16:00.
Verzlunarskóli íslands getur nú innritað 280 nemendur til náms í 3. bekk. Berist fleiri umsókn-
ir verður valið úr þeim á grundvelli einkunna í samræmdum greinum á grunnskólaprófi.
Reiknað er meðaltal samræmdra einkunna og skólaeinkunna. Eldri umsækjendur, og þeir sem
hafa stundað nám í erlendum grunnskólum, eru þó metnir sérstaklega.
Nemendur sem innritast í Verzlunarskóla íslands geta valið eftirtaldar námsbrautir til stúdentsprófs:
Braut
Samskipti á erlendum tungumálum. Saga og menning
helstu viðskiptalanda, alþjóðastofnanir og starfsemi þeirra.
Viðskiptagreinar, stærðfræði og tungumál. Góður grunnur að
háskólanámi í hagfræði og öðmm þjóðfélagsgreinum.
Fimm erlend tungumál í kjama. Góður gmnnur að háskólanámi í
erlendum tungumálum og málvísindum.
Stærðfræði, raungreinar og viðskiptagreinar. Góður gmnnur að
háskólanámi í verkfræði og raunvísindum.
Rekstur og stjómun fyrirtækja. Stofnun og rekstur eigin
fyrirtækis. Góður gmnnur að háskólanámi í viðskiptagreinum.
Á fyrsta ári velja nemendur milli þýsku og frönsku en að öðm leyti stunda allir sama nám.
Að loknu fyrsta námsári er valið milli brauta.
Sérkenni hverrar brautar mótast af því framhaldsnámi sem stefnt er að og þeirri
starfsþjálfun sem nemendur fá.
Verslunarpróf er tekið að loknu tveggja ára námi og stúdentspróf að loknu fjögurra ára námi.
Umsóknareyðublað fylgir gmnnskólaskírteinum en það má einnig fá á skrifstofu skólans og
þar sem sameiginleg innritun í framhaldsskóla fer fram.
Upplýsingar um nám er að ftnna á heimasíðu skólans http://www.verslo.is
Þar er einnig hægt að leggja inn fyrirspumir og umsókn um skólavist.
Alþjóðabraut:
Hagfræðibraut:
Málabraut:
Stærðfræðibraut:
Viðskiptabraut:
Opið hús
verður í Verzlunarskóla íslands þriðjudaginn 1. júní 1999 frá kl. 15:00-18:00.
Þar munu kennarar og námsráðgjafar veita upplýsingar um
námið í skólanum og taka á móti umsóknum.
Verið velkomin.