Morgunblaðið - 17.06.1999, Page 6

Morgunblaðið - 17.06.1999, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ VANDI ÞINGEYRAR Einhugur um að fínna var anlega lausn á vandanum Morgunblaðið/Jón Svavarsson 70 Pólverjar hafa unnið hjá Rauðsíðu. Þeirra á meðal eru Katarzyna, Dominik, Darek, Agnieszka og Marta. Darek Dariusz vonast til að halda vinnunni hjá Rauðsíðu á Þingeyri. Halldór Halldórsson bæjarstjóri ísafjaröar- bæjar segir stöðuna alvarlega. Hlynur Aðalsteinsson yfirverksljóri hjá Rauð- síðu segir að fá þurfi hluta kvótans til baka. Ragnheiður Ólafsdótt- ir formaður stjórn- ar íbúasamtakanna Átaks á Þingeyri. Um eitt hundrað starfsmenn hraðfrysti- hússins Rauðsíðu á Þingeyri bíða nú í óvissu meðan framtíð fyrirtækisins er rædd eftir synjun Byggða- stofnunar á láni sem fyrirtækið fór fram á til að bjarga rekstrinum. Haldinn var fundur í gærkvöld með stjórn íbúasamtakanna Ataks og bæjarstjórn ásamt þingmönnum Vest- fjarðakjördæmis um framtíð fyrirtækisins. Orlygur Steinn Sigur- jónsson og Jón Svavarsson voru á Þingeyri í gær og heyrðu hljóðið í Þing- eyringum vegna at- vinnuástandsins þar. EINAR K. Guðfinnsson, 1. þingmaður Vestfirðinga, sagði í samtali við Morg- unblaðið í gærkvöld að fundurinn med bæjarstjóminni og íbúasamtökunum hefði verið gagn- legur þótt engar heildarlausnir hefðu komið fram. „Þetta var mjög málefnalegur fundur og mikill einhugur allra sem hann sátu um að finna góða og var- anlega lausn á þesum vanda sem er mjög alvarlegur. Við horfum til þess að hér hefjist að nýju öflug fisk- vinnsla sem er auðvitað undirstaða atvinnulífsins á svæðinu,“ sagði Ein- ar. Að sögn Halldórs Halldórssonar, bæjarstjóra Isafjarðarbæjar, er staðan alvarleg þegar fyrirtæki á borð við Rauðsíðu er komið í vinnslustöðvun vegna rekstrarörð- ugleika. Ljóst sé að tekjur sveitar- félagsins lækki og samfélagið í heild líði fyrir slíkan vanda, sem nú blasir við, ef helmingur vinnufærs fólks í sveitarfélaginu sé án atvinnu. „Rauðsíða er stærsti vinnuveitand- inn á Þingeyri og hefur sennilega ná- lægt 50% af vinnufæru fólki í vinnu á staðnum þegar með er talið það fólk sem hefur flutt hingað frá Póllandi til að vinna hér,“ segir hann. Hann segir að staðan sem nú sé komin upp krefj- ist þess að strax verði hafist handa við að leysa málið. Aðspurður segir hann að ýmislegt komi tii greina í þeim efnum og bendir á hugmyndir íbúasamtakanna. „íbúasamtökin hafa til dæmis lagt fram tillögu um það að lengja flugvöllinn hér og leggja á hann bundið slitlag, reisa iðngarða til að veita smáfyrirtækjum aðstöðu, en þetta eru langtímamarkmið," sagði hann. Að mati Halldórs lúta þær að- gerðir, sem grípa verður til strax, að fá fyrirtæki á borð við Sparisjóð Bolungarvíkur og rekstraraðila Rauðsíðu til að hefja starfsemi á sviði fiskvinnslu á Þingeyri. „Hvort sem það verða þeir eða einhverjir aðrir, þá eru hér tæki- færi fyrir metnaðarfulla atvinnu- rekendur. Þetta gæti til dæmis hentað fyrir einhvern sem á bát ef hann vill komast í vinnslu. Þetta getur verið samvinnuverkefni ein- hverra en við viljum bara að áhuga- samir fari af stað og ég er viss um að þeir gera það og reyna að setja af stað einhverja starfsemi í kring- um veiðar og vinnslu," sagði hann. Halldór segir að það sem ætti að hvetja aðila til að setja af stað slíka starfsemi sé væntanlegur byggða- kvóti og segir að á næsta fiskveiði- ári sé talað um að úthluta 1500 tonna byggðakvóta og þótt slíkur kvóti sé lítill miðað við margt annað er hægt að nýta sér hann. „Þingeyri verður vonandi einn af þeim fáu stöðum sem fær byggðakvótann. Það hlýtur að vera, því það er eng- inn kvóti hérna.“ Mikil óvissa hjá fólki Valdís Bára Kristjánsdóttir, for- maður Verkalýðsfélagsins Brynju, segir mikið áhyggjuhljóð vera í fólki sem unnið hefur hjá Rauðsíðu þar sem óvissa ríki um framtíð fyrir- tækisins og þar með afkomu fólks. „Fólk veit ekkert hvað verður um það í rauninni og það er stór skellur að þetta fyrirtæki skuli ekki geta haldið uppi vinnu nema í tvö ár, vonandi getur það gengið áfram en forsvarsmennirnir virðast hinsveg- ar vera bjartsýnir," segir hún. Að hennar sögn hefur upplýsingum um stöðu fyrirtækisins ekki verið komið skipulega til starfsfólks og hún tel- ur að það hafi ekki komið sérstak- lega vel við starfsfólkið. „Það hefði mátt segja okkur miklu fyrr í hvað stefndi og hvemig aðstæðumar voru innanhúss og við hefðum þegið að vita meira. Það hefði litið allt öðmvísi út ef for- svarsmenn fyrirtækisins hefðu tek- ið fmmkvæði að því að veita okkur meiri upplýsingar svo að við hefðum getað gert okkar ráðstafanir." Starfsólk Rauðsíðu fékk síðast út- borgað 14. maí og eiga nú inni laun frá og með 17. maí og segir Valdís Bára að hvergi sé unnt að sækja þá peninga sem hér um ræðir nema til Rauðsíðu. „Þó að ábyrgðasjóður launa sé okkar trygging, fáum við ekki þá tryggingu nema fyrirtækið fari í gjaldþrot og það getur tekið tvo til sex mánuði.“ Valdís segir að þótt ekki sé ljóst hvað taki nú við sé hinsvegar, ef marka megi umsögn forsvarsmanna Rauðsíðu, þrennt sem gæti gerst á næstunni. „Þeir töluðu um gjald- þrot, greiðslustöðvun eða nauða- samninga," segir hún. Meðal þeirra sem nú bíða eftir að lausn fáist í málum Rauðsíðu em um 70 pólskir starfsmenn fyrirtæk- isins og segir Valdís Bára að fyrir- tæki hvaðanæva að af landinu sæk- ist nú eftir vinnuafli þehra enda hafa þeir hlotið mikla þjálfun í fisk- verkunarstörfum. Að þeirra eigin sögn er það hinsvegar ekki fýsileg- ur kostur að flytjast brott frá Þing- eyri, enda hafa þeir sem Morgun- blaðið talaði við í gærkvöld aðlagast samfélaginu vel og hafa tveir Pól- verjar meira að segja fest kaup á íbúð og sá þriðji var kominn á fremsta hlunn með það en hætti við í ljósi síðustu fregna. Derek Darius 26, ára gamall Pól- verji, sem flutti til landsins fyrir tveimur ámm, segii' að ef hann ásamt nokkrum félögum sínum og ættingjum neyðist til að fara burt hætti Rauðsíða starfsemi, þá verði ekki erfiðleikum bundið að finna aðra sambærilega vinnu enda sé nægilegt framboð af henni. Hann vill hinsvegar ógjarnan flytja frá Þingeyri. „Við höfum ekki miklar áhyggjur af atvinnuleysi, en við vonum samt að allt fari á besta veg í málefnum Rauðsíðu," segir hann. „Við viljum ekki fara heim til Pól- lands því þar er ekkert að gera og auk þess eru launin þar mjög Iág. Okkur finnst mjög gaman að vinna við fiskverkun og vinnan er ekki ýkja erfið og hún krefst ekki mikill- ar sérþekkingar. Við vonum að við getum unnið hér í mörg ár í viðbót. Svo era Þingeyringar afar hjálpleg- ir og vinsamlegir og við höfum eign- ast ágætá vini hér og því er okkur illa við að fara héðan þótt við vitum að við getum auðveldlega fengið vinnu aniiars staðar.“ Verkstjóri Dereks og félaga hans er Hlynur Aðalsteinsson, yfirverk- stjóri hjá Rauðsíðu til tveggja ára, en hann hefur ákveðnar skoðanir á atvinnumálefnum í sinni heima- byggð. Hann segir að vinnslustöðv- unin hafi ekki legið í loftinu og því hafi það ástand sem nú hefur skap- ast komið á óvart. „Við höfum ekki heyrt annað en að Rauðsíða hafi gengið vel. Það var sagt að þrír síðustu mánuðir hafi lofað góðu. Ég var vonsvikinn þegar ég heyrði í morgun að Byggðastofn- un hefði neitað að lána fyrirtækinu upphæðina. Ég er alls ekki þeirrar skoðunar að það eigi að lána í ein- hverja vitleysu en mér finnst hún hafa bragðist.“ Hlynur segir einnig að miklu skipti að Þingeyr- ingar fái eitthvað af þeim kvóta sem var áður í sveitarfélaginu og bendir á að áður hafi verið 6000 tonna kvóti á Þingeyri en nú sé hann kominn niður í 200 tonn. „Við þurfum að fá 1500 til 2000 tonna kvóta en hvað getur hinn almenni borgari gert þegar sægreifarnir eiga allan kvót- ann og sigla með hann í burtu? Það getur ekkert annað komið í staðinn fyrir byggðakvóta því það á enginn peninga til að byrja á því að kaupa kvóta.“ Að sögn Hlyns hefur Byggða- stofnun brugðist með ákvörðun sinni, sem gerð var heyrinkunnug í gær og telur hann alrangt af henni ad synja Rauðsíðu um lánið en hann segir að forsvarsmenn Rauð- síðu hefðu átt að fara fyrr til stofn- unarinnar með vandamál fyrirtæk- isins. Hlynur hefur ennfremur nokkrar áhyggjur af því ef fólk flyst burt í sveitarfélaginu ef til atvinnuleysis kemur. „Ef hér er enga vinnu að hafa þá fer fólk í burtu og ég var með um 100 manns í vinnu, þar af 70 Pólverja. Þetta er fólk sem hefur lært að vinna fisk í tvö ár og þeir hljóta að fara eitthvert annað til að vinna og skapa þar með öðrum sveitarfélögum tekjur." Hlynur er þeirrar skoðunar að menn hafi fullan rétt til að róa sinn sjó og fiska en hann lýsir því sem skoðun sinni að þótt í stjómar- skránni standi að fiskimiðin séu sameign þjóðarinnar, blasi annað við augum þegar grannt sé skoðað. „Það er talað um að þjóðin eigi fisk- inn í sjónum en hún á hann alls ekki. Það em ríkir sægreifar sem fá gjafakvóta, sem eiga fiskinn. Þannig að þetta er bara rugl í stjórnar- skránni um að við eigum fiskinn í sjónum," segir hann að lokum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.