Morgunblaðið - 17.06.1999, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Ársskýrsla Amnesty International
Baráttumál að afnema
dauðarefsingar í heiminum
Morgunblaðið/Jim Smart
GUÐRÚN Ólafsdóttir, forraaður íslandsdeildar Amnesty Intemational,
kynnti ásamt stjórnarmeðlimum ársskýrslu samtakanna í gær.
ÍSLANDSDEILD Amnesty Inter-
national kynnti í gær ársskýrslu
samtakanna sem gerir grein fyrir
mannréttindabrotum sem framin
voru í 142 löndum árið 1998 af yfir-
völdum og vopnuðum andspyrnu-
hópum. I skýrslunni er sjónum
beint að dauðarefsingum í löndum
eins og Bandaríkjunum, Kína,
Saudi-Arabíu og Sierra Leone. Er
það eitt af baráttumálum samtak-
anna að dauðarefsingar verði
afnumdar í heiminum á árinu 2000.
A árinu 1998 áttu sér stað pynt-
ingar og ill meðferð í a.m.k. 125 lönd-
um, í 37 löndum urðu „mannshvörf',
þá var aftökum án dóms og laga
framfylgt í 47 löndum og samvisku-
fangar voru í minnst 78 löndum.
Dauðadómi var framfylgt samkvæmt
lögum í 37 löndum. Við aftökur er
fólk ýmist sett í rafmagnsstól, það
skorið á háls, grýtt, sprautað með
eitri, skotið eða kramið undir vegg.
Um ísland hefur aldrei verið fjallað í
skýrslunni.
I fréttatilkynningu samtakanna
segir: „Skipulagðar aftökur af hálfu
yfirvalda ættu ekki að líðast í neinu
þjóðfélagi. Með því að samþykkja
dauðarefsingu dæmum við okkur
sjálf til að búa í samfélagi þar sem
morðingjar ákveða viðmiðin og
MARGRÉT H. Sigurðardóttir,
viðskiptafræðingnr, var eina
konan í þeim hópi stúdenta sem
útskrifaðist frá Verslunarskóla
Islands árið 1949 og heldur nú
uppá 50 ára stúdentsafmæli
sitt. í samtali við Morgunblaðið
sagði Margrét það ekki hafa
verið erfítt að vera ein innan
um alla karlmennina, enda hafi
hún setið í bekk með flestum
þeirra um langt skeið og tekið
með þeim verslunarpróf áður
en til stúdentsprófsins kom.
„Ég þekkti þessa stráka því
alla og þeir tóku mér afskap-
lega vel. Við vorum eins og
jafningjar og ég var í raun bara
ein af hópnum,“ sagði Margrét.
grimmdin er viðurkennd með lög-
um.“
Einnig vakti Guðrún Ólafsdóttir,
formaður Islandsdeildarinnar, at-
hygli á því að fyrir komi að saklausir
einstaklingar séu teknir af lífi.
Fleiri dauðadómar í Kína
en annars staðar
Um 80% af öllum aftökum á síð-
asta ári fóru fram í Kína, Kongó,
Bandaríkjunum og Iran, að sögn
Margrét segir sjálft námið til
stúdentsprófs hafa verið öllu
strembnara. „Verslunarskólinn
var upphaflega bara verslunar-
skóli, en þegar kom í 5. og 6.
bekk fórum við allt í einu að
læra latínu, frönsku, meiri
stærðfræði og sitthvað fleira.
Þetta var því ansi erfitt,“ sagði
Margrét og bætti við að hópn-
um hefði vegnað vel í lífinu.
Sjálf gerði hún hlé á námi um
sinn að stúdentsprófinu loknu
og segir það ekki síst hafa staf-
að af því að erfitt var fyrir kon-
ur að fjármagna nám sitt á
þessum tima. Hún hóf þó síðar
nám í viðskiptafræði og lauk
því árið 1980.
Guðrúnar. Fleiri dauðadómum er
framfylgt í Kína en í öllum öðrum
löndum samanlagt, en þar liggur
refsingin við rúmlega 60 afbrotum. A
árinu 1998 var 1.067 dauðadómum
framfylgt í Kína samkvæmt tölum
Amnesty, en ætla má að tilfellin séu
mun fleiri.
Bandaríkin og Sómalía eru einu
löndin sem gert hafa fyrirvara við
barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna,
sem m.a. felur í sér að taka megi ein-
MEIRA en 90 aðilar munu taka þátt
í Vesturvegi, stórsýningu atvinnu-
lífsins á Vesturlandi, sem fram fer í
Stykkishólmi dagana 18.-20. júní.
Sýningin er hugsuð til þess að aðilar
í atvinnulífinu geti kynnt sig og sína
starfsemi. Ymiss konar uppákomur
verða á sýningunni s.s. söngur,
tískusýningar og leikþættir. Má þar
staklinga undir átján ára aldri af lífi.
Algengt er að fórnarlömb mann-
réttindabrota séu einstaklingar sem
tilheyra minnihlutahópum eða barist
hafa fyrir mannréttindum. Hvað
dauðarefsingar varðar er algengara
að svartir séu teknir af lífi í Banda-
ríkjunum en hvítir og að auki liggur
dauðarefsing oftar við manndrápi sé
fórnarlambið hvítt.
I skýrslunni segir að dauðarefsing-
ar séu á undanhaldi í heiminum og að
yfirvöld sem reyni að réttlæta notk-
un þeirra séu á skjön við þessa þróun
og komi til með að einangrast i al-
þjóðasamfélaginu.
Að lokum fagna samtökin því að
jákvæð þróun hefur átt sér stað í
heiminum hvap verndun mannrétt-
inda áhrærir. í júlí árið 1998 var til
að mynda ákveðið að alþjóðlegur
glæpadómstóll skyldi settur á lagg-
irnar til að bregðast við glæpum
gegn mannkyni og rétta yfir gerend-
um þeirra.
Handtaka fyrrverandi einræðis-
herra Chile, Augustos Pinochet,
sögðu samtökin annað skref í átt til
réttlætis. Telja samtökin það mikil-
vægt að yfirvöld alls staðar fylgi
þessari þróun eftir og sýni vilja sinn í
verki til að tryggja að mannréttindi
verði allra í raun.
nefna einþáttung eftir Guðmund
Braga Kjartansson og heimsókn
Eyrúnar eyðsluklóar frá Latabæ.
Sýningin verður opin fyrir almenn-
ing föstudaginn 18. júní kl. 15-18 og
laugardaginn 19. júní og sunnudag-
inn 20. júní kl. 13-18 og er aðgangur
ókeypis. Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra mun opna sýninguna.
Fjölbreytt
þjóðhá-
tíðar-
dagskrá
ALLIR ættu að geta fundið
eitthvað spennandi fyrir sig
og sína í dag, 17. júní, enda
dagskráin víðast mjög fjöl-
breytt og svo er spáð ágætis
veðri um land allt.
í Reykjavík geta borgar-
búar hafið daginn við leiði
Jóns Sigurðssonar í kirkju-
garðinum við Suðurgötu
klukkan 10, en forseti borg-
arstjórnar, Guðrún Agústs-
dóttir, mun leggja blómsveig
á leiðið. Frá kirkjugarðinum
er stutt að fara niður á Aust-
urvöll en klukkan 10.40 mun
borgarstjóri Reykjavíkur,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
flytja ávarp. Því næst mun
forseti íslands, Ólafur Ragn-
ar Grímsson, leggja
blómsveig að minnisvarða
Jóns Sigurðssonar og Davíð
Oddsson forsætisráðherra
flytur ávarp.
Tvær
skrúðgöngur
Eftir hádegi gefst borgar-
búum kostur á að fara í
skrúðgöngu, en tvær slíkar
verða í boði, önnur mun halda
frá Hlemmi klukkan 13.40 en
hin frá Hagatorgi klukkan
13.45.
I miðbænum og víða um
borg verður mikið að gerast
um daginn, en aðaláherslan
verður lögð á fjölskylduna og
að skemmta hinum yngstu.
Þó verður einnig boðið upp á
tónleika í Tjarnarsal Ráð-
hússins, sýningin Islensk
myndlist verður á Kjarvals-
stöðum og þar verður einnig
borgarlistamaður útnefndur.
Sérstök dagskrá verður í
Arbæjarsafni og í Fjölskyldu-
og húsdýragarðinum í Laug-
ardal og í Laugardalshöll
verður fjöllistahópurinn
Circus Cirkör með sýningu
klukkan 18.
Tónleikar
í miðbænum
Um kvöldið verða tónleikar
á fjórum sviðum í miðbænum,
þ.e. við Amarhól, á Ingólfs-
torgi, á horni Lækjargötu og
Vonarstrætis og í Hljóm-
skálagarðinum. Tónleikamir
við Amarhól standa til klukk-
an 1 í nótt en hinum lýkur á
miðnætti.
Á Seltjarnarnesi mun
skemmtunin fara að mestu
fram á Eiðistorgi og þar
verður m.a. fimleika- og
danssýning. I Kópavogi verð-
ur dagskrá fyrir fjölskylduna
á Rútstúni og um kvöldið
verða haldnir tónleikar þar,
sem standa munu til klukkan
23.30. í Garðabæ verða
skemmtiatriði við Garðaskóla
og í Hafnarfirði mun dag-
skróin fara fram á Víðistaða-
túni og í íþróttahúsinu við
Strandgötu.
Rigning sunnanlands
og vestan
Veðurstofan spáir rigningu
á Suður- og Suðvesturlandi í
dag og 5 til 11 stiga hita. Á
Vesturlandi verður rigning
eða súld og 4 til 9 stiga hiti. Á
Norðurlandi vestra verður
skýjað og 4 til 12 stiga hiti. Á
Norðurlandi eystra og Aust-
urlandi ætti að vera úrkomu-
laust, en þar er spáð 6 til 14
stiga hita. Á Suðausturlandi
er spáð rigningu síðdegis og 5
til 12 stiga hita.
Margrét H. Sigurðardóttir eina konan í hópi nýstúdenta frá VI fyrir 50 árum
Ljósmynd/
ÞESSI mynd birtist í Morgunblaðinu 17. júm 1949, fyrir nákvæmlega 50 árum, en á henni eru uýstúdentar frá Verslunarskóla íslands árið 1949,
ásamt Vilhjálmi Þ. Gíslasyni, skólastjóra. Frá vinstri: Eyjólfur Konráð Jónsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins og alþingismaður, Már Elís-
son, fyrrverandi fiskimálastjóri, Sigurður Kristinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri, Helgi Ólafsson, hagfræðingur, Agúst Hafberg, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Landleiða, Bjarni K. Bjamason, fyrrverandi hæstaréttardómari, Sveinn Elíasson, fyrrverandi bankamaður, Jón Brynjólfsson,
verkfræðingur, Vilhjálmur Þ. Gíslason, skólastjóri, Einar Haukur Ásgrímsson, verkfrseðingur, Margrét H. Sigurðardóttir, viðskiptafræðingur, Ol-
geir Möller, fulltrúi, Halldór Gröndal, prestur, Knútur Jónsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri, Jón Guðgeirsson, læknir, Sverrir Ótafsson, verk-
fræðingur, Þórður B. Sigurðsson, bankamaður, og Húgó Andreasen, verslunarmaður.
Eg var bara
ein af hópnum
Morgunblaðið/Gunnlaugur
UNDIRBÚNINGUR undir atvinnuiífssýninguna, sem opnuð
verður í Stykkishólmi á morgun, stóð yfir í gær.
Atvinnulífssýning í Stykkishólmi