Morgunblaðið - 17.06.1999, Síða 38
38 FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
BÆKUll
Byggðasaga
ÁRBÓK FERÐAFÉLAGS ÍSLANDS
Firðir og fólk 900-1900 - Vestur-ísa-
fjarðarsýsla eftir Kjartan Ólafsson.
Reykjavík 1999, 603 bis.
PESSI mikla bók er allt í senn
byggðasaga, atvinnusaga, saga
mannlífs og leiðarlýsing um Vestur-
Isafjarðarsýslu.
Að fornu voru fimm hreppar í
Vestur-ísafjarðarsýslu. Sunnan frá
talið eru það Auðkúluhreppur, Þing-
eyrarhreppur, Mýrahreppur, Mos-
vallahreppur og Suðureyrarhrepp-
ur. Suðurmörkin voru við Langanes
innst í Amarfirði, en norðurmörkin
norðan Galtar, norður af Súganda-
firði. Sýslan náði því yfir norður-
hluta Arnarfjarðar, Dýrafjörð, Ön-
undarfjörð og Súgandafjörð. Mikið
svæði er þetta. Bújarðir nokkuð á
annað hundrað, kauptún nokkur og
verstöðvar margar. Hér getur því
verið frá mörgu að segja um þúsund
ára mannvist.
Bók þessi skiptist í fimm áðal-
kafla eftir hreppum. Er fyrst í
hverjum kafla alllöng greinargerð
um hreppinn í heild sinni allt frá
fyrstu tíð eftir því sem heimildir
hrökkva til. Þar er almenn landlýs-
ing, greint frá mannfjöldaþróun,
landbúnaði, sjávarútvegi, samgöng-
um, kirkjumálum og ótalmörgu
fleiru. Því næst leggur höfundur í
Skólavörðustíg 35,
sími 552 3621.
langa ferð með lesanda
sinn. Hefst ferðin við
Hokinsdal í Arnarfirði
og endar í Keflavík
norðan Galtar. Löng er
sú ferð vissulega og að
mörgu að hyggja. Leið-
sögumaðurinn lætur
fátt fram hjá sér fara,
sem hann hefur heim-
ildir um. Landamerki
hverrar jarðar eru skil-
merkilega tilgreind,
dýrleiki jarðar, afgjald
og kúgildaleiga, ítök
kirkna og annarra
jarða, ábúðarsaga allt
frá fyrstu tíð, ábúend-
ur tilnefndir, sé um þá
vitað og margt sagt frá sumum
þeirra, sitthvað sorglegt, annað kát-
legt. Ekki er látið hjá líða að greina
frá seljum, hjáleigum, þurrabúðum,
verstöðvum, lendingarstöðum og
öllum þeim leifum mannvistar sem
finnast. Þær eru jafnvel mældar.
Leiðum er lýst, fjallvegum, mörgum
hverjum æði torfærum, fjöruleiðum
varasömum, einstigum og tæpum
götum bæja á milli, vöðum og yfir-
leitt öllu því sem frásagnar er vert.
Sérstaklega er ástæða til að nefna
örnefnaskráningu höf-
undar. Ég hygg að
hann hafi ógjaman lát-
ið örnefni fram hjá sér
fara hafi hann um þau
vitað. Eru örnefni
geysimörg í bókinni.
Þar sem mjög margar
jarðir eru nú komnar í
eyði er líklegt að hann
hafi unnið hér mikið
þarfaverk við að varð-
veita örnefni sem ann-
ars kynnu að hafa glat-
ast.
I stórum dráttum
nær frásögnin til alda-
mótanna 1900. Þó er
frá því sagt ef jörð hef-
ur lagst í eyði síðar eða enn er búið
þar. Finnst mér það nokkur kostur.
í lok hveri-ar opnu eru teknar
saman neðanmálsgreinar fjölmarg-
ar. Þeim er þjappað saman með ör-
smáu letri og skammstöfunum
(Langur skammstafanalisti er í bók-
arlok).
í eftirmála er greint frá því
hvernig rit þetta er tilkomið. „Fyrir
rúmum áratug samþykkti aðalfund-
ur Búnaðarsambands Vestfjarða að
gefa út eina bók fyrir hverja sýslu á
sambandssvæðinu, þar sem fram
kæmi leiðarlýsing frá bæ til bæjar
ásamt sögulegum fróðleik fyiTÍ
alda.“ Til_ þess að vinna verkið var
Kjartan Ólafsson ráðinn. Má af eft-
irmálsorðum skilja að verkið hafi
reynst mun umfangsmeira en í upp-
hafi var ætlað og að í stað einnar
bókar fyrir hverja sýslu verði þær
nú tvær. Önnur nær fram til 1900
og hin verður jarða- og ábúendatal
þessarar aldar. Sú bók sem nú kem-
ur á prent er því fyrri hluti ritverks
Kjartan
Ólafsson
ár
um Vestur-ísafjarðarsýslu og vænt-
anlega upphaf ritraðar. Kemur
þessi bók út í tvenns konar umbún-
aði, annars vegar sem hluti af
stærra ritverki og hins vegar sem
sjálfstæð Ferðafélagsbók.
I mínum huga er enginn vafi á að
þessi bók er hið mesta öndvegisrit,
raunar einstakt í sinni röð. Höfund-
ur hefur skoðað geysilegt magn
heimilda eins og ljóslega má sjá af
hinum fjölmörgu tilvitnunum neð-
anmáls og feiknalangri heimilda-
skrá. T.a.m. má nefna að heimilda-
menn hans nálgast hundraðið og
hafa margir þeirra veitt ómetanlega
vitneskju, sem annars hefði að lík-
indum glatast. Ekki verður annað
séð en höfundur hafi sjálfur gengið
og gjörskoðað allt þetta mikla svæði
og hljóta að hafa farið í það mörg
sumur. Verður seint ofmetið hversu
mikils virði svo nákvæm vettvangs-
skoðun er.
Ekki er þessi bók yfirfull af
myndum, enda hefði hún þá orðið
alltof stór. Þó eru allnokkrar svart-
hvítar myndir inni í texta, flestar
frá eldri tíð. Og vegna þessarar út-
gáfu hafa verið teknar 28 heilsíðu-
myndir í litum, yfirleitt gullfallegar.
Tvö ágæt kort er þar og að finna.
Tekur hvort þeirra yfir heila opnu.
Aður hefur verið minnst á langa
heilmildaskrá. Hún er liðuð sundur í
prentuð rit, óprentaðar heimildir og
heimildamenn. Nafnaskrár eru
tvær, mannanöfn og skrá yfir ör-
nefni og önnur staðaheiti. Þá er hér
og myndaskrá. Allar þessar skrár
taka yfir 112 þéttprentaðar blaðsíð-
ur. Textinn er 474 bls., tvídálka með
fremur smáu letri (50 1. í dálki). Þar
sem hann er þéttpakkaður af fróð-
leik er hann seinlesinn og varia
þeim lesendum allsendis að skapi
sem fremur kjósa léttari kost. En sé
gaumgæfilega lesið fer ekki hjá því
að lesandinn verði næsta fróður um
þennan hluta Vestfjarða og mannlíf
þar að lestri loknum. Og varla
kemst maður ósnortinn frá því að
kynnast öllum þeim raunum, mann-
fómum og hörðu lífsbaráttu sem
íbúar þessara „ystu voga“ hafa átt
við að etja í rás aldanna. Hugurinn
hlýtur einnig að reika til hinna fjöl-
mörgu eyðibýla sem geyma langa
örlagasögu undir grónum sverði.
Þrátt fyrir ótvíræða kosti þessar-
ar miklu bókar má draga í efa að
hún henti vel öllum þeim átta þús-
und félagsmönnum Ferðafélags Is-
lands, sem hana fá í hendur. Sumir
kæra sig líklega kollótta um rekaí-
tök, skógaítök, beitirétt, dýrleika
jarða, kúgildaleigu og landamerki.
Þeir kunna að vilja fljótlegri yfir-
ferð og kannski einhverja jarðfræði,
sem hér er ekki. Það er því hugsan-
legt að styttri útgáfa og meira
myndskreytt hefði fallið Ferðafé-
lagsmönnum betur í geð. En þetta
dregur ekkert úr gildi bókarinnar
sem slíkrar. Og víst er um það að
grúskaraeðlið í sjálfum mér - og
vonandi er svo um marga aðra -
nýtur þessarar bókar betur en
þeirra sem styttri eru. Vonast ég til
að fá brátt að sjá síðara bindið fyrir
þessa sýslu og helst áframhaldið
fyrir næstu sýslur. Veit ég þó að
róðurinn er erfiður í útgáfu bóka
sem þessara, nema allríflegur
styrkur komi til úr opinberum sjóð-
um. Þeim styrkjum hygg ég þó að
væri vel varið.
Þess skal að endingu getið að all-
ur frágangur bókarinnar er til mik-
illar fyrirmyndar. Prófarkir hafa
t.a.m. verið svo vandlega lesnar að
ég rakst ekki á neina villu og má
það óvenjulegt heita um svo stórt
rit. Enda hafa hvorki meira né
minna en sjö valinkunnir lærdóms-
menn verið viðriðnir prófarkalestur.
Sigurjón Björnsson
Alytt Naten JFyrsr há sem
ætla sér malrav
Frumkynning hjá L YFJU:
Lyfju Lágmula
Föstudaginn 18.06.99 frá kl 14:00 -18:00
Laugardagínn 19,06.99 frá kl 14:00 - 18:00
Sunnudagínn 20.06.99 frá kM 4:00 - 18:00
Lyfju Grindavík
Fimmtudaginn 24.06.99 frá kl 14:00 - 18:00
Lyfju Hafnarfiröi
Föstudaginn 25.06.99 frá ki 14:00 - 18:00
Lyfju Kópavógi
Laugardaginn 26,06.99 frá kl 14:00 -17:00
20% kynningarafsláttur