Morgunblaðið - 17.06.1999, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1999 65
<
_ >
Titian Islands
Frá Steingrími St. Th.
Sigurðssyni:
HANN á þrjú ár í hundrað ára
þessi listamaður sem nú sýnir
næsta hálfa mánuð Ódáinsverk
(krosssaumsmyndir) í einni allra
listrænustu rakarastofu hér á
landi. Minnir á Italiano Salon í
Soho í New York City. Petta gall-
erí, en það er gallerí, er í sjálfum
Hafnarfirði og heitir Hár og list og
kennt við Halla rakara - alias Hall-
berg Guðmundsson undan Jökli
sem er með skemmtilega næiweru
og er nú kveikjan að listrænni til-
tekt - heiður sé honum. Þetta er
steinsnar frá Nönnukoti, hennar
Nönnu að vestan, en það Café er
eitt óvenjulegasta kaffihús á Is-
landi og þótt víðar væri leitað. Það
er yndislegt.
Það er yndislegt að koma í þessa
krosssaumssýningu sem minnti mig
allt í einu á frönsku impression-
istana (Titian er sagður hafa málað
bezt eftir nírætt. Hann var sko eng-
inn elliheimilamatur). Þessi hafn-
firzki Dalamaður sótti sjóinn fast
um áravís. Hann ber aldurinn með
tign, enda þótt hann hafi fatlazt dá-
lítið sem maður aftur á móti veitir
ekki svo athygli vegna dýnamísks
persónuleika hans og nærveru sem
fyllir út heila hársnyrtistofu galler-
ísins hans Halla blessaðs hárskurð-
armeistara - á sama hátt og Ma-
estro Kjarval gerði hvar sem hann
kom í hús og salarkynni. Slík var
pranaorkan. Þegar maður horfði á
Jónatan datt
manni strax
Cézanne í hug,
sem var einn
náttúrulegasti
listamaður sem
uppi hefur verið
- andstætt við
sýndarmennsku
og hroka og
gervimennsku
og snobbisma
sem leggur til
manns úr listalífi
hérlendis í dag.
Og það talsvert
mikið.
Undanfarin
tíu ár, eða frá því hann er 87 ára
gamall, hefur Jónatan stundað
þessa skapandi list sína - aðeins tíu
ár þessi listamaður sér við undi.
Verkin gefa ekkert eftir því sem
kunnir málai-ar gera og fá lof fyrir
af flatbotnuðum gagnrýnendum.
Það veit heilög hamingjan! Þessi
ódáinsverk eru jafnvel fremri því
sem frægir listamenn auglýstir
gera hvað fegurð varðar. Verkin
eru innilega ótilbúin og minna helzt
á óð lífsins. Það er í þeim lífs-
reynsla. Sennilega af sjónum. Fyr-
ir þá manneskju sem leitar eftir
hugljómun í myndverki, þá finnst
slíkt þarna í hársnyrtistofunni í
galleríi í Strandgötu 39 í Gaflara-
firði.
Mér datt í hug, þegar ég hafði
notið sýningarinnar í fyrstu umferð,
að það væri ekki ólíkt farið um
Jónatan og djass - Dixelandsspilara
frá New Orleans í US - sem syngja
með sálinni og spOa frá hjartanu
enda þótt þeir séu komnir á háan
aldur. Það er eins og ég sagði áðan
yndislegt að koma á þessa sýningu
sem orkar á mann eins og aHt það
fallegasta í mannlegu fari.
Artistinn er gamall maður sem
er snarlifandi (trúið því eða trúið
því ekki). Hann heitir fullu nafni
Jónatan Sveinsson, fæddur í Döl-
unum af annáluðu sterku fólki en
uppalinn í Hafnarfirði, staður sem
alltaf býður upp á sjarma á sama
hátt og verkin hans Titians ís-
lands.
STEINGRÍMUR ST. TH.
SIGURÐSSON
listamaður.
Auðn og gróður í 100 ár
- Reynifellsætt
gróðursetur
Frá Þór Jakobssyni:
UM síðustu aldamót var dökkt um
að litast í Rangárþingi og gróður
ekki svipur hjá sjón í samanburði
við gróður 100 árum áður, hvað þá
fyrr. En um þær mundir höfðu
menn líka hafið vamarstörf, Sand-
græðslan sem síðar nefndist Land-
græðslan var stofnuð, og er
skemmst frá að segja að sýslan
hefur breytt um svip á ný og græni
liturinn komið í stað hins svarta.
En ekki má slaka á þótt gróðureyð-
ing af manna völdum minnki óðum.
Sandurinn berst og mun berast í
stói-viðrum ofan úr óbyggðum. í
vor, er Kristján bóndi Amason í
Stóra Klofa sýndi mér, reyndist
jörð á Baðsheiði nyrst í Landsveit
víða þakin sandi og í lautum sand-
lag, furðu þykkt.
Margir hafa lagt Landgræðslu
ríkisins lið, bændur, skógræktarfé-
lög og ótal einstaklingar. Síðustu
áratugi hefur orðið alsiða í landinu
að taka einhvern þátt í ræktun
fósturjarðarinnar, sáningu eða
gi’óðursetningu.
Frá Ólöfu Stefánsdóttur:
ÞAÐ var ómaklegt af Guðjóni
Þórðarsyni landliðsþjálfara sem
hann lét hafa eftir sér um Eið
Smára. Er landliðsþjálfarinn búinn
að gleyma meiðslum Eiðs Smára
eða veit hann ekki að hann stórslas-
aðist í landsleik fyrir íslands hönds
og var í tvö og hálft ár að berjast
við mikil meiðsli og mjög tvísýnt
um árangur.
En ekki var allt búið enn því að
Eiður Smári slasaðist aftur í lands-
leik fyi-ir ísland og átti í því 8 mán-
uði. Nú þegar loksins rofar til hjá
honum og hann er nokkum veginn
heill þá var ástæða til varkámi af
Landgræðslan og Landsvirkjun
Upp af Mörk á Landi, eyðibýli
nyrst á Baðsheiði, er Merkur-
hraun. Þar hétu áður Landskógar
um aldir, en skógurinn hvaif á tím-
um langalangafa míns, Jóns ríka
Finnbogasonar í Mörk. Gróðureyð-
ing, og raunar einnig fjárkláði sem
fór um þá um landið, kippti fótum
undan ríkidæmi síðustu æviár
hans.
Fyrir allmörgum áram lét ég
þau orð falla í blaðagrein að vinna
þyrfti að uppgræðslu og endur-
heimt Landskóga. Að öld liðinni
hétu Landskógar á ný þar sem nú
er Merkurhraun. Með hjálp Land-
græðslu ríkisins hafa áhugamenn
sáð nokkuð og gróðursett á hverju
ári syðst í Merkurhrauni, og þóst
sjá árangur.
En draumurinn rætist nú svo um
munar. Landgræðsla ríkisins og
Landsvirkjun hafa hafist handa,
með stuðningi Holta- og
Landsveitar.
Gróðursetning í hrauninu aust-
anvert hófst nýlega. Verki stjórna
Sveinn Runólfsson landgræðslu-
stjóri og Sigurður Sigmundsson í
Ey í Landeyjum, verkstjóri hjá
Landsvirkjun. Sigurður er frum-
hans hálfu og ekki rétt að taka mikla
áhættu í sambandi við þennan leik.
Eiður Smári veit best sjálfur um
sinn skrokk eða hvort hann var til-
búinn til að spila í landsliðinu, ekki
Guðjón Þórðarson eða þeir hjá
Bolton. Ég er ánægð með að hann
kann að segja nei þegar við á. Guð-
jón Þórðarson ætti sjálfur að biðja
Eið Smára afsökunar og óska hon-
um til hamingju með knattspyrnu-
árangur hans þrátt fyiir meiðslin.
Það eru aðeins tveir mánuðir síðan
hann fór að spila fótbolta aftur á
fullu.
ÓLÖF STEFÁNSDÓTTIR,
amma Eiðs Smára.
kvöðull að stórmerku fræðslustarfi
meðal ungmennaflokka í sumar-
vinnu hjá Landsvirkjun. Unga
fólkið er þar ekki „bara“ í vinnu,
heldur nýtur margvíslegrar
fræðslu sérfræðinga sem boðið er
að heimsækja „sumarskóla“ Sig-
urðar.
Mörg þúsund plöntur hafa nú
þegar verið gróðursettar í Merkur-
hrauni. Um miðja næstu öld verða
hin ötulu ungmenni á sjötugsaldri.
Þau geta þá farið um Landskóga
og glaðst yfir góðum verkum sín-
um.
Reynifellsætt
Þá er þar til að taka, að ýmsar
rangæskar ættir hafa komið sér
saman um að græða skika í
Rangárþingi, gjaman í grennd við
heimabæ forfeðra og formæðra.
Ein slík er Reynifellsætt.
Reynifellsætt er rakin til Þorgils
Þorgilssonar og Guðrúnar Er-
lendsdóttur sem bjuggu á Reyni-
felli á Rangárvöllum um miðja 18.
öld. Tvisvar hafa verið haldin fjöl-
menn niðjamót að Laugalandi í
Holtum. Að tillögu eins niðjanna,
Guðrúnar Þórsdóttur hjá Fræðslu-
miðstöð Reykjavíkur, var ákveðið
fyrir nokkrum ámm að taka til
hendi og hjálpa til við gróðursetn-
ingu í sýslunni. Fyrir milligöngu
Landgræðslu ríkisins í Gunnars-
holti og Skúla Lýðssonar á Keld-
um, „næsta bæ við“ Reynifell, hef-
ur landgræðslusveit Reynifellsætt-
ar gróðursett trjáplöntur innan
Landgræðslugirðingar í landi
Keldna.
Laugardaginn 19. júní nk. er
ætlunin að bæta um betur og em
allir velkomnir að slást í hópinn
hvað sem upprana líður. Leikurinn
hefst kl. 15 hjá fræverkunarstöð
Landgræðslunnar í Gunnarsholti
en berst þaðan sem leið liggur í
skógarlundinn í Keldnalandi, aust-
an vegar í átt til Reynifells sem
stendur norðan Þríhyrnings. Að
gi'óðursetningu lokinni verður
bökkum skilað í Gunnarsholt, nesti
snætt á góðum stað og skrafað um
stund um landsins gagn og nauð-
synjar áður en haldið verður heim.
ÞÓR JAKOBSSON
veðurfræðingur.
Eiður Smári sýndi
landsliðinu ekki
lítilsvirðingu
Einangrunarstöð gælu-
dýra í Hrísey og land-
búnaðarráðuneytið
Frá Árna Þór Björnssyni:
MÉR er ekki hlátur í huga er ég
rita þessa grein. Algjört óskipulag
ríldr hvað varðar innflutning gælu-
dýra til landsins.
Undirritaður flyst til Islands í
lok júní. Að sjálfsögðu vill fjöl-
skyldan hafa hundinn okkar með.
Hann er átta ára tíbetskur temer.
Um leið og við hjónin ákváðum að
flytjast heim var gengið í að afla
tilskilinna leyfa fyrir innflutning
hundsins. Þetta var í byrjun febr-
úar á þessu ári. Þá hófst þrauta-
gangan. Ómældum tíma höfum við
fórnað til að afla upplýsinga, skjala
og vottorða. Langlínusímtöl landa
á milli skipta orðið tugum. Oftast
er ekki hægt að ná í réttan aðila.
Dýrt er það líka (100 þús). Ég hef
haft samband við einangranarstöð
gæludýra í Hrísey a.m.k. 15 sinn-
um. Tvisvar hef ég náð sambandi
við Stefán Björnsson forstöðumann
en aldrei fengið skýr svör um
hvenær hann gæti tekið hundinn.
Að öðram kosti er símsvari sem
hægt er að tala inn á skilaboð.
Ekkert gerist í málunum þrátt fyr-
ir það. Mér skilst nú að hundurinn
okkar sé í forgangsröð ef ske kynni
að eitthvert pláss losnaði fljótlega
eða skyndilega. En maður kemur
ekki dýri í flug með ein dags fyrir-
vara landa á milli. Það ætti að vera
öllum ljóst. Að lokum var hægt að
toga upp úr forstöðumanninum að
plássleysið væri vandræðamál.
Hann væri jafnvel að hugsa um að
hætta starfseminni þar sem engar <
undirtektir fengjust hjá landbún-
aðari'áðherra um fjölgun plássa úr
10 í 15. Ekki svarað einu sinni.
Ekkert. Nú í dag frétti ég frá milli-
göngumanni á íslandi að hundurinn
komist ekki að fyrr en í janúar árið
2000! Hundurinn minn lifir ekki þá.
Þetta er hneykslanlega á málum
haldið og tafarlausra úrbóta kraf-
ist. Landbúnaðarráðherra á að lesa
og svara pósti. Það er skylda opin-
berra starfsmanna og þjóðkjör-
inna.
ÁRNIÞÓR BJÖRNSSON
svæfingalæknfr,
Stigtomta, Wallsnas, Sviþjóð.
STlGÞk
• Nolendavænar
• Margar gerðir
VETRARSOL
HAMRABORG 1-3 • Sími 564 1864
Landsþekkt
varahlutaþjónusta
L0ND0N
frá kr. 16.645
í SUMAR MEÐ HEIMSFERÐUM
Heimsferðir bjóða nú beint leiguflug vikulega til London í sum-
ar, en við höfum stórlækkað verðið fyrir íslenska ferðalanga til
þessarar mestu heimsborgar Evrópu. Nú getur þú valið um að
kaupa flugsæti eingöngu, flug og bfl eða valið um eitthvert ágæt-
is hótel Heimsferða í hjarta London. Brottför alla miðvikudaga í
sumar. Bókaðu strax og tryggðu þér lága verðið.
Verð kr.
16.645
M.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára,
flugsæti og skattar.
Verð kr.
19.990
Flug og skattur.
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 • www.heimsterdir.is