Morgunblaðið - 17.06.1999, Page 66
:v>'
j
&
I
i
I
\
i
i
;
í
i
i
i
!
:
t
;
i
!
I
9
í
f}
•f
u
!■ 'i
f
66 FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1999
Matur og matgerð
Rabarbari
Kristín
Gestsdóttir
segist nota
nýsprottinn
rabarbara talsvert
í grauta, súpur og
ábætisrétti.
1 V2 dl sykur
7 dl vatn
150-200 g steinlausar
sveskjur
1 '/2 dl kalt vatn + Vi dl
kartöflumjól
1. Setjið rabarbara-
bita, sykur og vatn í pott
og sjóðið í 15 - 20
mínútur. Merjið þá
rabarbarann í pottin-
um örlítið
með
Rabarbaragrautur
með sveskjum
Þeim má sleppa.
500 g hreinsaður og
niðurbrytjaður rabarbari
ÉG hefí alltaf haft mikið uppá-
hald á rabarbara og læt allt tal
um oxalsýru lönd og leið, en
oxalsýra bindur kalk í líkaman-
um. Reyndar er magn oxalsýru
misjafnt eftir rabarbarategund-
um, er mest í hinum grófa og
græna og minnst í mjóum, rauð-
um leggjum. Fáiir eða engir
borða svo mikinn rabarbara að
oxalsýran skaði þá. Bamabömin
mín elska rabarbarasúpu með
tvíbökum og fá auk þess ekki
betri sultu en rabarbarasultu.
Hér á landi hafa aðallega verið
ræktuð þrjú afbrigði rabarbara:
Rauður vínrabarbari - Mars-
halls Early Red, sem er með
stutta, granna leggi og er mjög
bragðgóður en gefur íremur litla
uppskeru, nær engin oxalsýra er
í honum, svo er önnur algeng,
snemmvaxin tegund - Linnaeus,
mjög lítil oxalsýra er í honum.
Hann er ljósrauður að utan en
grænn að innan með granna
leggi, hann gefur
góða uppskeru.
Svo er hinn
stóri, grófi,
græni - Vict-
oria. I honum
er meira af
oxalsýru og
hann er mjög
uppskeru-
mikill.
Einnig má
nefna tegundim-
ar Reeds Early og
Temperley Early,
sem ég veit lítið um.
Rabarbari er ætt-
aður frá Asíu þar
sem hann var
ræktaður um aldaraðir vegna
rótanna, sem notaðar vom til
lækninga. Þeir sem rækta rabar-
bara vita að hann hefur miklar
og langar rætur. Fyrst á 18. og
19. öld var farið að nota rabar-
bara til matar víða um Evrópu.
Erfitt er að áætla sykurmagn
í rabarbara, hann er missúr eftir
tegundum og árstíð, sterkari á
vorin en á haustin. Svo er
smekkur manna mismunandi.
Hver og einn verður örlítið að
prófa sig áfram.
kartöflustappara eða sleif.
2. Setjið sveskjurnar út í og
sjóðið áfram í 10 mínútur.
3. Setjið kalda vatnið og kart-
öflumjölið í hristiglas og hristið
saman. Takið pottinn af hellunni
og hrærið kartöflumjölsblönd-
una út í. Kælið grautinn. Með-
læti: Rjómabland, nýmjólk,
óþeyttur eða þeyttur ijómi.
Rabarbarasúpa
250 g hreinsaður og
niðurbrytjaður rabarbari
Ví-Ví dl sykur
7 dl vatn
1 msk. kartöflumjöl + 1 dl kalt vatn
tvíbökur
Sjóðið rabarbara, sykur og
vatn á sama hátt og í uppskrift-
inni hér að framan, farið eins að
með kartöflumjölsvatnið. Berið
fram með tvíbökum.
sMBHwnnaHMm
Rabarbaratrifli
150 g makkarónukökur
150 g niðurbrytjaður rabarbari
1 dl vatn
1 dl jarðarberja-
sulta
'/2 dl sjerrí, mó
sleppa_______
vanillu-pakkabúðingur,
heitur eða kaldur
1 dl rjómi
1. Raðið makkarónu-
kökunum á botninn á flat-
botna skál.
2. Sjóðið rabarbarann í vatn-
inu í 5 mínútur, setjið þá jarðar-
beijasultu og sjerrí út í og sjóðið
í 3 mínútur.
3. Búið til búðinginn skv. leið-
beiningum á pakkanum, kælið ef
þið notið heitan búðing.
4. Þeytið rjómann og blandið
út í búðinginn og hellið yfír það
sem er í skálinni.
Athugið: Skreyta má búðing-
inn með þeyttum rjóma og
ferskum jarðarberjum.
í DAG
VELVAKAMII
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Svar frá
Nýkaupi
ÉG var að sjá í Velvak-
anda frá 6. júní bréf frá
„ópólitískum neytanda".
Þar kemur fram sú full-
yrðing að Frissi fríski fá-
ist ekki í Nýkaupi. Ég
hefði gjarnan viljað koma
því á framfæri að Frissi
fríski er til í Nýkaupi og
hefur verið frá stofnun
Nýkaups. Auk þess selur
Nýkaup Bragakaffi, vöru
sem skrifari nefnir einnig.
Það er yfirlýst stefna
Nýkaups að selja þær
vörur sem viðskiptavinir
óska eftir að kaupa. Til-
vist kaupmanna byggist á
þvi að bjóða vörur sem
fólk sækist eftir og eru
vinsælar. Okkur í Ný-
kaupi er það fullljóst og
við störfum samkvæmt
þeirri stefnu. Nýkaup
býður mesta úrval mat-
vöru á Islandi og því tel
ég Nýkaup eiga gagnrýni
á vöruúrval síst skilið.
Með kveðju, _
Finnur Ámason,
framkv.stj.
Ambögur
í útvarpi
ÉG heyrði skemmtilegan
brandara í útvarpinu í
morgun. Kvenmaður og
karlmaður voru að tala
um íslenska hestinn. Þau
sögðu að hestunum hefði
fjölgað mikið og „fjöl-
mennastir væru þeir á Is-
landi“. Oft koma svona
ambögur í útvarpinu og er
þessi með þeim skemmti-
legustu sem ég hef heyrt.
Það gleður mann að heyra
svona vitleysu þegar mað-
ur er að borða morgun-
matinn. Einnig finnst mér
átakanlegt að heyra vel
menntað fólk tala í út-
varpinu og nota í öðru
hverju orði „hér“ og
„hérna“. Þetta er miklu
verra en stam - það er þó
afsakanlegt.
Skúli.
MORGUNBLAÐIÐ
Tapað/fundið
Silfurnæla í óskilum
í Hafnarfirði
SILFURNÆLA fannst í
Lyfju, Setbergi, Hafnai’-
firði. Sú sem saknar næl-
unnar er vinsamlega beðin
að hafa samband í síma
555 2306.
Dýrahald
Kettlingar óska
eftir heimili
KASSAVANIR, kátir og
skemmtilegir kettlingar
þurfa góð heimili. Þeir eru
6 vikna og rosalega falleg-
ir. Upplýsingar eftir kl. 19
í 554 4604.
Með morgunkaffinu
FINNST þér þetta ekki
svoh'tið dýr staður,
Magmís?
247 -4
ÉG vildi að ég gæti líka
verið í bikiníi. Ég hef bara
ekki vöxtinn til þess.
ÉG er í mínum, þessi er
auka, sem ég nota bara
sem tálbeitu.
HOGNI HREKKVISI
„ TComctu, nú er k&nirvo timc tió aá
gera, eitthi/cui í- maLanc/m ■
BRIDS
Vmsjón Guðmundnr
l’áll Arnarson
Á EM í Menton 1993 fékk
Sævar Þorbjörnsson þá
flugu í höfuðið að sektar-
dobla fjögur hjörtu
mótherjanna með tvo gosa.
Og uppskar 500-kall. Þetta
var í leik Islands og San
Marino. Sævar hélt á spilum
vesturs, en Jón Baldursson
var í austur:
Suður gefur; enginn á
hættu.
Vestur
* 109853
»9
* G2
* G10732
Norður
A DG4
¥ ÁG54
♦ ÁK97
♦ 98
Austur
AÁK7
¥ K632
♦ D1053
* D6
Suður
A62
¥ D1087
♦ 864
*ÁK54
Vestur Norður Austur Suður
Pass Pass 1 grand Pass
21auf* Pass 2tíglar** Pass
2 hjörtu Pass 3 hjörtu Pass
4hjörtu Dobl*** Allirpass
* PuppetStayman.
**Neitar fimmspila hálit
***“Get ekki sleppt þeim!“
Sævar kom út með spaða-
tíu, Jón tók gosa blinds með
kóng og skipti yfir í lauf-
sexu! Suður drap og spilaði
spaða að drottningunni
(hann hélt að Sævar ætti
kannski einhver spil). En
Jón tók slaginn á ás og hélt
áfram með laufið. Suður
drap og lagði niður ÁK í
tígli. Spilaði síðan spaða úr
borði og henti þriðja tíglin-
um heima.
Jón hélt slagnum á
spaðasjöu og spilaði tígli,
sem suður trompaði með
sjöu og Sævar yfirtrompaði
með stakri níunni! Spilaði
svo laufi. Sagnhafi var alveg
orðinn ruglaður og tromp-
aði smátt í borði, en Jón gat
þá yfirtrompað með sex-
unni. Jón fékk loks slag á
hjartakóng og spihð endaði
þrjá niður.
Á hinu borðinu varð
Björn Eysteinsson sagnhafi
í sama samningi í norður.
Hann fékk út spaðaás, sem
þýddi að hann gat fríað slag
á spaða til að sjá fyrir
tígultaparanum. Bjöm sá
svo enga ástæðu til að gefa
nema einn slag á tromp og
fékk tíu slagi.
Víkverji skrifar...
AÐ ER margt, sem menn gera
sér til dundurs og nýlega bár-
ust Víkverja í tölvupósti vangavelt-
ur frá einhverjum tölfræðingi í
Bandaríkjunum, sem var að velta
fyrir sér hvernig atlæti mannkynið
byggi við. Hann ímyndaði sér að
mannkynið væri eitt lítið þorp, sem
teldi ekki nema 100 manns og síðan
fór hann að reikna.
Tölfræðingurinn bandaríski
komst að því, að af þessum 100
mönnum í þorpinu væru 57 Asíubú-
ar, 21 Evrópubúi, 14 frá báðum
Ameríkunum, suður og norður, og
8 Afríkumenn. I hópnum voru 52
konur og 48 karlar.
70 einstaklingar í þorpinu góða
voru litir, það er að segja ekki af
hvíta kynstofninum, en 30 voru af
þeim stofni. 30 voru kristnir en 70
aðhylltust önnur trúarbrögð en
kristni. 89 voru gagnkynhneygðir
og 11 samkynhneygðir.
xxx
OG ÁFRAM hélt tölfræðingur-
inn leiknum og komst að því að
59% allra auðæfa heimsins eða
þessa ímyndaða þorps væru á valdi
aðeins 6 þorpsbúa og viti menn,
þeir voru allir með bandarískan
ríkisborgararétt. 80 þorpsbúar
bjuggu í húsakynnum undir gæða-
staðli, þ.e.a.s. í heilsuspillandi hús-
næði eins og það var einu sinni
kallað á Islandi er fólk bjó enn í
gömlum og ónýtum bröggum frá
stríðsárunum. Eða kannski voru
braggarnir, sællar minningar, bara
eins og hátimbraðar hallir miðað
við sumt af því sem þessir 80
þorpsbúar þurfa að gera sér að
góðu? 70 manns í þorpinu voru
ólæsir og 50 veikir vegna vannær-
ingar. Einn var að dauða kominn
og annar við það að fæðast. Aðeins
einn þorpsbúa átti tölvu og einn
hafði menntast svo að hann var
með háskólagráðu.
Það er sem sé ekki burðugt
ástandið í þessu litla þorpi og hugsi
menn nú aðeins um ástandið, hljóta
menn að komast að því að við ís-
iendingar megum teljast til lukk-
unnar pamfíla. Við erum sjálfsagt
vai’t mælanlegir í þorpinu vegna
smæðar, bara agnarlítð brot af ein-
um þorpsbúa, en heppnir samt.
xxx
VÍKVERJI sendir fslendingum
öllum, hvar svo sem þeir eru í
þorpinu góða, hugheilar þjóðhátíð-
arkveðjur og vonar að þeir gangi
hægt um gleðinnar dyr.