Morgunblaðið - 17.06.1999, Qupperneq 67
MORGUNBLAÐIÐ
í DAG
FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1999 67
KIRKJUSTARF r
ÁRA afmæli. Á
morgun, fóstudag-
inn 18. júní, verður áttræð
Sigurborg Ágústa Þorleifs-
dóttir, Aflagranda 40. Hún
verðr að heiman á afmælis-
daginn.
ÁRA afmæli. í dag,
fimmtudaginn 17.
júni, verður sjötugur Mar-
teinn B. Björgvinsson hús-
gagnasmiður, Yrsufelli 9.
Hann verður að heiman.
ÁRA afmæli. Á
morgun, fóstudag-
inn 18. júní, verður sextug
Margrét Nilsen, lijúkrunar-
kona, Randabergveien 101,
4027 Stavanger, Noregi.
Hún og eiginmaður hennar
Halvor Nilsen halda upp á
daginn i Stavangri með fjöl-
skyldu og vinum.
O A ÁRA afmæli. í dag,
OU fimmtudaginn _ 17.
júní, verður sextug Ásdís
Þórðardóttir, búsett í Los
Angeles, Kaliforníu. Eigin-
maður hennar er Valdimar
Hrafnsson. Ásdís og Valdi
eru stödd á íslandi þessa
dagana og halda upp á af-
mælið með vinum og ætt-
ingjum í kvöld.
A ÁRA afmæli. Á
U U morgun, föstudag-
inn 18. júní, verður fimm-
tugur Guðmundur E. Lár-
usson, Ránargötu 17, Akur-
eyri. Kona hans, Anna Guð-
mundsdóttir, vei'ður fimm-
tug síðar á árinu. í tilefni af-
mælanna taka þau á móti
gestum í sal Landsbanka Is-
lands hf., Akureyri, 4. hæð,
fóstudaginn 18. júní kl. 21.
pf A ÁRA afmæli. í dag,
tJ U fimmtudaginn 17.
júní, verður fimmtugur Gísli
H. Árnason verktaki, Fróð-
engi 8, Reykjavík. Hann og
eiginkona hans, Anna Kon-
ráðsdóttir, taka á móti gest-
um frá kl. 20 laugardaginn
19. júní í Kiwanis-húsinu,
Smiðjuvegi 13a, Kópavogi.
SKÁK
llinsjóii Margeir
Pétursson
og vinnur.
STAÐAN kom upp á Skák-
þingi Hafnarfjarðar í byrj-
un júní, en mótið er jafn-
framt minningarmót um
Freystein Þorbergsson.
Sævar Bjarnason (2.305)
var með hvítt, en Stefán
Kristjánsson (2.225) hafði
svart og átti leik.
17. _ Rxf2! 18. Kxf2 _ Dg3+
19. Ke3 _ Hxf3+ 20. Dxf3 _
Dxg5+ 21. Kf2 _ Rxd4 22.
Dg4 _ Df6+ 23. Ke3 _ e5
24. Bxh7+ _ Kxh7 25. Dh5+
_ Dh6+ 26. Dxh6+ _ Kxh6
og svartur vann.
Skákþing Hafnarfjarðar
1999 fór fram dagana 4.-6.
júní. Mótið er hluti af Bikar-
keppninni í skák 1999. Það
er jafnframt minningarmót
um Freystein Þorbergsson.
Jón Viktor Gunnarsson
sigi-aði með 6V2 v. af 7
mögulegum. Annar varð
Sigurbjörn Björnsson með
5V4 v. Sigurbjörn er jafn-
framt Skákmeistari Hafnar-
fjarðar fjórða árið í röð þar
sem Jón Viktor er ekki
Hafnfirðingur. Þriðji varð
Sigm-ður Páll Steindórsson
með 5 v. í 4.-6. sæti urðu
Stefán Kristjánsson, Ólafur
Isberg Hannesson og Þor-
varður F. Ólafsson með 4Vá
v.
GULLBRÚÐKAUP og 80 ára afmæli. í dag, fimmtudaginn
17. júní, eiga gullbrúðkaup hjónin Doris Konráðsson og Sím-
on Ingvar Konráðsson, Rjúpufelli 44, Reykjavík. I dag
verður Símon einnig áttræður. Þau munu eyða deginum með
fjölskyldu og vinum.
DEMANTSBRÚÐKAUP. í dag, fimmtudaginn 17. júní, eiga
sextíu ára hjúskaparafmæli Skafti Fanndal Jónasson,
verkamaður á Skagaströnd og Jóna Guðrún
Vilhjálmsdóttir, húsmóðir. Þau dvelja nú á dvalarheimilinu
Sæborg á Skagaströnd.
LJOÐABROT
HALLFREÐR OTTARSSON
[VANDRÆÐASKÁLD (D. um 1007)]
Hnauð við hjartasíðu,
hreggblásin, mér ási,
mjök hefr uðr at öðru
aflat báru skafli,
marr skotar mínum knen-i,
mjök er ek vátr, af nökkvi
munat úrþvegin eira
alda sínu skaldi.
STJÖRIVUSPA
eftir Frances llrake
TVÍBURAR
Afmælisbarn dagsins: Þú
ert gæddur leiðtogahæfíleik-
um og getur nýtt þér þá
hæfíleika ef þú gætirþess
að falla ekki á dramb-
seminni.
Hrútur ~ (21. mars -19. apríl) Láttu það vera að segja öðr- um stöðugt til syndanna. Enginn er fullkominn og þá þú ekki heldur. Vertu því til- litssamur.
Naut (20. apríl - 20. maí) Þér er illa við að draga í land en gættu þess þó að án mála- miðlunar verður ekkert sam- starf hvorki í starfi né einka- lífi.
Tvíburar t ^ (21. maí - 20. júní) M Þér virðist allt ganga eins og í sögu og mátt vel njóta þess um sinn en mundu bara að oft er skammt milli hláturs og gráts.
Krabbi (21. júní - 22. júlí) Þú þarft að taka á honum stóra þínum og sýna sveigj- anleika því annars sigla hlut- irnir bara í strand og enda í tómri vitleysu.
Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Það er margt sem hvílir á þér og þér finnst erfitt að ein- beita þér að hlutunum. Gefðu þér tíma til þess að fara í gegnum málin og skipuleggja framgang þein-a.
Meyjci jj. (23. ágúst - 22. september) (BlL Sköpunarþrá þín er rík og sjálfsagt að þú finnir henni farveg. Líttu til meginstoð- anna en láttu smáatriðin lönd og leið.
(23. sept. - 22. október) Það er lítið vit í því að segja öllum frá sínum fyrirætlun- um. Það er óþolandi að eiga allt sitt undir öðrum.
Sporðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Þér er það kappsmál að segja öðrum þína hlið á málunum. Mundu bara að taka tillit til skoðana annarra í leiðinni.
Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) fltCr Það er gaman að sigla fyrir fullum seglum en vertu við- búinn því að vindurinn geti blásið úr annarri átt. Gerðu þér glaðan dag með góðum vinum.
Steingeit (22. des. -19. janúar) flflP Þú þarft að taka upp nýtt og betra vinnulag og forðast að vera með allt á síðustu stundu. Samstarf þitt við aðra byggist á því að þú getir breytt til.
Vatnsberi (20. janúar -18. febrúar) C*Eí Þú átt ýmsar hliðar til og get- ur sýnt þær að vild. Gættu þín þó að falla ekki fyrir freistni sjálfselskunnar.
Fiskar (19. febnlar - 20. mai-s) >%■«> Það er gott að hafa stjórn á öllum hlutum en nauðsynlegt að vita hvenær maður á að sleppa hendinni af öðrum. Treystu á eðlisávísun þína.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvö 1. Spár af þessu tagi eru
ekki byggðar á traustum grunni
vísindalegra staðreynda.
Safnaðarstarf
Sólveig kirkju-
málaráðherra
í útimessu
kvenna
Á KVENRÉTTINDADAGINN,
laugardaginn 19. júní, kl. 20.30,
efna Kvennakirkjan, Kvenréttinda-
félag íslands og Kvenfélagasam-
band Islands til guðsþjónustu við
Þvottalaugarnar í Laugardal.
Brasskvintett, skipaður konum,
leikur nokkur lög áður en guðs-
þjónustan hefst og eftir að henni
lýkur. Ásdís Þórðardóttir leikur
Afram stelpur á trompet. Sólveig
Pétursdóttir, nýskipuð dóms- og
kirkjumálaráðherra, flytur ávarp.
Séra Auður Eir Vilhjálmsdótth-
prédikai-. Kvenprestar flytja bæn-
ir. Anna Sigríður Helgadóttir
syngur einsöng. Konur úr Létt-
sveit Kvennakórs Reykjavíkur og
Kór Kvennakirkjunnar leiða söng
undir stjóm Aðalheiðar Þorsteins-
dóttur.
Veitingahúsið Café Flóran í Gra-
sagarðinum verður opið á eftir og
einnig geta konur haft með sér
kaffi og meðlæti. Gott er að hafa
meðferðis teppi eða púða til að sitja
á.
Bókin Vinkonur og vinir Jesú,
sem Kvennakirkjan var að gefa út,
verður til sölu á staðnum. I henni
eru valdir kaflar úr Biblíunni á
máli beggja kynja og nokkrir ritn-
ingartextar úr guðsþjónustum
Kvennakirkj unnar.
Helgistund við
kapellu
st. Barböru
í Kapelluhrauni
HELGISTUND fer fram við
kapellu st. Barböra í Kapellu-
hrauni laugardaginn 19. júní kl. 14.
Stretchbuxur
verslunarmiðst. Eiðstorgi,
sími 552 3970.
Kapelluhraun er rétt austan við ál-
verið í Straumsvík og liggur sér-
stök aðkomuleið að henni norðan
við hana. Sr. Patrik Breen sóknar-
prestur Jósefskirkju, mun leiða
stundina ásamt sr. Jakob Roland
presti við Landakotskirkju, en
þjóðkirkjuprestar munu einnig
taka þátt í henni. Jónatan Garðars-
son, fulltrúi bæjarfélagsins í undir-
búningi kristnitökuhátíðar, mun
lýsa kennileitum og Valgerður Sig-
urðardóttir, forseti bæjarstjórnar,
gera grein fyrir áhuga bæjaryfir-
valda til þess að liðsinna þeim, sem
vilja fegi’a umhverfi kapellunnar
og gera hana aðgengilegri en nú
er.
Fulltrúar álversins í Straumsvík
og Bandalags kvenna í Hafnarfirði
munu lesa ritningarorð og Eyjólfur
Eyjólfsson leika á flautu. Fulltrúar
þjóðminjasafns munu einnig verða
viðstaddir. Eftir helgistundina
bjóða forsvarsmenn álversins til
kaffisamsætis í álverinu. Allir eru
velkomnir.
Kópavogskirkja. Kyrrðar- og
bænastund í dag kl. 18. Fyrirbæna-
efnum má koma til prests eða
kirkjuvarðar.
Hjálpræðisherinn. Kaffisala kl. 14-
18. Dagskrá um kvöldið frá kl. 21.
Allir hjartanlega velkomnir á með-
an húsrúm leyfír.
Ffladelffa. Á morgun sameiginleg
samkoma með Fríkirkjunni Vegin-
um og íslensku Kristskirkjunni í
tengslum við verkefnið frá Mínus
til Plús. Allir hjartanlega velkomn-
ir.
Þ. Þ0R6RIMSSDH & CO
abete**13*
harðpu\st á borð
ÁRMÚLA 29, SÍMI 553 8640
www.mmedia.is/stuss jj
msm ■I
-hrein og fallegjhönnuna ! e896-li|33^|!
Laugavegi 36
MORGUNHANI
fær 20% afslátt af
viðskiptum milli
kl. 9 og 11
Kaffihlaðborð &
MATARHLAÐBORÐ
í DAG 17. JÚNÍ
Hátíðarhlaðborð í tilefni dagsins
KAFFIHLAÐBORÐ FRÁ KL. 14-17.
MATARHLAÐBORÐ FRÁ KL. 18:30
Lifandi tóniist.
Úlafur B. Úlafsson
leikur á píanó og
harmónikku fyrir gesti.
Skíðaskálinn Hveradölum
Veitingahús og veisluþjónusta frá 1935
Hueradölum, 110 Reykjavík, borðapantanir 567-2020
<
<3