Morgunblaðið - 17.06.1999, Síða 71
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1999 71
--------------------------‘-í
FOLK I FRETTUM
SÖNGKONAN Shirley Manson er andlit Garbage.
BUTCH Vig, Steve Marker, Shirley Manson og Duke Erikson í Garbage.
orm
Q
Bandaríska hljómsveitin Garbage mun leika á stórtónleikunum
á þaki Faxaskála 22. júní nk. Dóra Ósk Halldórsddttir hringdi
í trommuleikarann Butch Vig sem, áður en Garbage kom til sög-
unnar, vann sér það til frægðar að taka upp plötur fyrir
hlj ómsveitirnar Nirvana og Smashing Pumkins.
HELDUR erfitt vai- að ná til
trommuleikarans Butchs
Vigs í hljómsveitinni Gar-
bage þar sem hann var staddur á
hóteli á Spáni. Blaðamaður hafði
fengið þær upplýsingar að Vig væri
skráður á hótelið undir dulnafninu
Doc Vargas en enginn með því nafni
var á hótelinu. í ljós kom á endanum
að trommuleikarinn hafði skipt um
dulnefni og skráð sig inn sem Peter
Love. Þótt dulnefnið gæti gefið vís-
bendingu um fjörugan viðmælanda
reyndist trommarinn Butch Vig
fremur hógvær ljúflingur og ærið
ólíkur hinni yfirlýsingaglöðu söng-
konu sveitarinnar, Shirley Manson.
Butch Vig er þekktur maður í
upptökubransanum og var upptöku-
stjóri á vinsælustu plötu hljómsveit-
arinnar Nirvana, Nevermind, en
hann hefur einnig tekið upp tvær
plötur fyrir Smashing Pumkins,
Gish og Siamese Dream auk þess
sem fjölmargir þekktir tónlistar-
menn hafa fengið hann til liðs við
sig. En núna er Vig ekki spenntur
fyrir tónlist annarra og vísar öllum
spurningum þar að lútandi á bug
enda nóg að gera í hljómsveitinni
hans, Garbage, sem hefur þotið
hratt upp á stjörnuhimininn undan-
farin ár og hafa báðar plötur sveit-
arinnar, Garbage og Version 2.0,
notið mikilla vinsælda vestanhafs og
í Evrópu.
í hljómsveitinni Gai’bage eni auk
trommuleikarans Butch Vig og
söngkonunnar Shirley Manson þeir
Steve Marker sem leikur á gítar og
bassa, Duke Eriksson sem nú leikur
á gítar og nýjasti liðsmaður sveitar-
innar Daniel Schulman sem tekið
hefur við bassanum. Vig, Eriksson
og Marker hafa þekkst í mörg ár og
verið áður saman í hljómsveitum í
bandaríska bænum Madison í
Wisconsin-fylki. Þeir sáu Shirley
syngja með hljómsveitinni Angelfish
á MTV og höfðu samband við hana
og Garbage var stofnuð.
Frægðin kostar sitt
- Skoska söngkonan Shirley Man-
son er andlit Garbage. Viljið þið hin-
ir vera í bakgrunninum?
„Já, svo sannarlega," segir Vig
með þunga. „Enginn okkar vildi í
raun og veru vera poppstjarna. Við
viljum semja tónlist, en höfum ekki
áhuga á því að geta ekki gengið óá-
reittir niður götu án þess að allir
þekki okkur og vilji tala við okkur.
Shirley getur núna hvergi farið án
þess að heill her elti hana um með
myndavélar og óskir um eiginhand-
aráritanir. Hún skilur að þetta er
það sem frægðin kostar. En Shirley
er frábær stelpa og góður félagi og
er tilbúin að vera þessi ímynd sveit-
arinnar í fjölmiðlum."
Nánir vinir sem vinna saman
Vig segir að aldursmunur karlanna
í sveitinni, sem allir eru komnir vel
yfir fertugt, og söngkonunnar, sem
er meira en tíu árum yngri, skipti
engu máli. „Eg held að við séum mun
nánari vinir en almennt gerist í
hljómsveitum. Við treystum á hvort
annað og andrúmsloftið í hljómsveit-
inni er ipjög afslappað og fínt. Við
gerum allt saman, framleiðum, hljóð-
blöndum og semjum lögin. Það er
ekki eins og hjá mörgum þar sem
kannski bara einn aðili sér um að
skrifa öll lögin, og einhver annar sér
um að framleiða og sá þriðji um
hljóðblöndunina. Við vinnum bara vel
saman sem hópur og allar ákvarðanir
hjá okkur eru mjög lýðræðislegar."
- En á fyrstu plötunni voruð þið
þrír búnir að semja öll lögin, áður en
Shirley gekk til samstarfsins.
„Það er rétt, en við vorum bara
búnir að semja lögin, en ekki text-
ana. Þegar Shirley kom inn í sveit-
ina, samdi hún flesta textana ogkom
með margar hugmyndir og setti því
vissulega sitt mark á þá plötu. En
þegar við gerðum Version 2.0 vorum
við búin að vera í löngu tónleika-
ferðalagi á árunum 1995 og 1996 og
við vorum búin að hrístast enn betur
saman sem hópur. Shirley skiifaði
alla textana á seinni plötunni og ég
held það heyrist bæði í söngnum og
textunum hve sjálfstraust hennar
hafði vaxið. Hún hefur líka blómstr-
að enn meira á þessu tímabili sem
söngkona og tónlistarmaður. Það
var öðruvísi þegar við vorum á tón-
leikaferðinni að kynna fyrstu plöt-
una því þá var samstarfið ennþá í
þróun og við að kynnast, bæði sem
tónlistarmenn og manneskjur.“
Kraftur og mildi söngkonunnar
- Nú er á Version 2.0 fjölmargar
vísanir í aðra tónlistarmenn. Fólk
eins og Chrissie Hynde í Pretend-
ers, Prince, Patti Smith og fleiri.
„Já, það eru ótal vísanir á plöt-
unni en öll lögin eru samt mjög
sterk Garbage-lög þar sem sterkar
melódíur eru áberandi. Við hlustum
á alls konar tónlist, eins og hip hop,
teknó, trip-hop og pönk, og oft för-
um við í gegnum svipaða hluti í tón-
listinni á sama tíma. En við erum
mjög ánægð með Version 2.0 og ég
tel að lögin vaxi við hverja hlustun.
Shirley hefur líka rosalega sterka og
skemmtilega rödd sem gerir okkur
kleift að fara ansi vítt um tónlistar-
sviðið, því hún ræður bæði við kraft-
mikinn söng og blíðari og mildari
flutning."
-Hvert er uppáhaldslagið þitt á
Version 2.0?
„Ég held að það sé Push It. Við
vorum öll sammála um að það lagyrði
fyrsta smáskífulagið af því að það lag
brúaði bilið á milh síðustu plötunnar
og þein-ar nýju. Og það er rosalega
skemmtilegt að flytja það á tónleikum
því það breytist eiginlega við hverja
spilun. Verður sífellt viiltai'a og við
vitum aldrei hverju Shh’ley tekur upp
á þegar við flytjum þetta lag.“
- Verða lög af Version 2.0 aðal-
uppistaðan á tónleikunum á Islandi?
„Já, við munum leika a.m.k. 6-7
lög af henni og svo nokkur lög af b-
hlið smáskífnanna og endurhljóð-
blandanir af nokkrum lögum. En
sum af eldri lögunum flytjum við í
breyttri útgáfu, en þó ekki svo
breyttri að þau þekkist ekki.“
Spennandi að koma til Islands
- Hvernig hefur tónleikaferðin
gengið?
„Hún hefur gengið frábærlega.
Við höfum verið á ferðinni í fjórtán
mánuði og spilum á stærri stöðum
en við höfum nokkurn tíma gert áð-
ur og förum á staði sem við höfum
aldrei komið til áður, eins og til ís-
lands sem er mjög spennandi."
-Þegar þið eruð á svona löngu
tónleikaferðalagi, liggja þá tónsmíð-
arnar ekki í láginni?
„Við semjum kannski nokkur lög,
en ekkert af viti fyrr en við erum
komin heim til Madison. Tónleika-
ferðin núna stendur fram á haust og
ég hugsa að einhvern tíma í október
munum við loka okkur inni í stúdíói
og fara að vinna nýtt efni.“
- Hefurðu einhverjar sérstakar
væntingar til tónleikanna á Islandi?
„Nei, engar fyrir fram ákveðnar
hugmyndir. Héma á Spáni hafa
áheyrendumir verið mjög góðir og
líflegir og við hlökkum til að sjá
hvernig Islendingar taka okkur.“
- Eruð þið ekki að spila á heima-
velli Shirley í Edinborg í Skotlandi
seinna í sumar?
„Jú, við höldum tónleika í júlí þeg-
ar skoska þingið hefur störf. Shirley
er mjög spennt vegna þess að við
vorum eina hljómsveitin sem var
beðin að koma fram við þetta tæki-
færi en plötumar okkar hafa selst
mjög vel í Skotlandi. Henni finnst
sér, sem Skota, sýndur mikill heiður
að fá að leika við þetta tækifæri,"
segir Vig að lokum.
DANS
& kalypso
Skólavörðustíg 12,
síml 551 5103.
Hættu að roka á þér fótlegginal
Notaðu One Touch háreyðingarkrem! Sársaukalaus ogfljótleg
aðferð sem skýrir vinsælair One Touch á íslandi 112 ár.
Svo einfalt er það
Rúllið kreminu yfir hársvæðið og strjúkið
það síðan afmeð rökum þvottaklút.
(Sjá leiðbeiningar.)
Húðin verður mjúk,
ekki hrjúf!
One Touch
er ofnæmisprófað
Margra ára reynsla segir sína sögu!
Fæst í apótekum og stórmörkuðum.
I.....
Sensitive
fyrir
viðkvæma
húð
Regular
fyrir
venjulega
Bikini
fyrir
„ínkini"
svæði