Morgunblaðið - 17.06.1999, Qupperneq 80
-JIP
Mes/ seldi UNIX
midlarinn á íslandi
árið 1998 |
iSL
RS/6000
<Q>
NYHERJI
Slml: 569 7700
}/ i BliN '\ÐARBANKI NN
V iVERÐBRÉF
- 4 tr»y«l
ÖRUGG ÁVÖXTUN
MORGUNBLAÐID, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF 6691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTl I
FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
■4
Kaupendur hlutabréfanna í ÍE undirbúa sölu til innlendra fagfjárfesta
Hlutafé selt ti! einstaklinga
eftir skráningu á markaði
FORSVARSMENN Landsbank-
ans, Búnaðarbankans og Fjárfest-
ingarbanka atvinnulífsins segja að
hafinn sé undirbúningur að sölu á
hluta þess eignarhluta sem bank-
amir keyptu ígær í DeCODE, eign-
arhaldsfélagi Islenskrar erfðagrein-
ingar, í áföngum til fagfjárfesta og
stofnanafjárfesta. Stjómendur
Landsbankans og Búnaðarbankans
segja að einstaklingum muni svo
gefast kostur á að kaupa hlutabréf í
j, —jminni einingum eftir að íslensk
erfðagreining hefur verið skráð á
hlutafjármarkaði. Kári Stefánsson,
forstjóri IE, sagðist í gær vonast til
að fyrirtækið verði skráð á alþjóð-
legum hlutafjármarkaði fyrir lok
ársins.
FBA keypti fyrir þrjá milljarða
Samningur um kaup FBA, Lands-
bankans, Búnaðarbankans og eign-
arhaldsfélagsins Hofs á hlutabréfum
í DeCODE, fyrir rúma sex milljarða
króna, var undirritaður í gær. FBA
kaupir 50%, eða fyrir um þijá millj-
arða kr., Búnaðarbankinn 24% eða
fyrir um 1.400 milijónir, Landsbank-
inn 20% eða fyrir um 1.200 millj. og
Hof 6% eða tæpar 400 millj. króna.
Bjami Armannsson, forstjóri
FBA, sagði að þegar væri hafinn
undirbúningur að sölu til nokkurra
innlendra fagfjárfesta á hluta þess
hlutafjár sem bankinn keypti í ÍE.
Hann kvaðst gera ráð fyrir að verð-
bréfafyrirtæki sem keyptu myndu
svo selja áfram til sinna viðskipta-
vina. „Við útilokum að sjálfsögðu
engan frá því en meginmarkmiðið
er að selja í sem stærstum eignar-
hlutum," sagði hann.
Haildór J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbankans, sagðist vita að
áhugi forsvarsmanna ÍE væri mikill
á að fyrirtækið væri í sem dreifð-
astri eign. „Við munum stuðla að
því með þessum kaupum og ætlum
okkur að miðla hlutafénu til inn-
lendra fjárfesta. Fram að skráningu
til stofnana- og fagfjárfesta, en um
leið ogÍE verður skráð og komið á
markað seljum við ákveðinn hlut til
einstaklinga," sagði hann.
Stefán Pálsson, bankastjóri Bún-
aðarbankans, sagði að þegar búið
yrði að skrá DeCODE á verðbréfa-
þingi erlendis yrði almenningi gef-
inn kostur á að kaupa hlutabréf, en
áður en það yrði gert yrði stofnfjár-
festum einungis gefinn kostur á að
kaupa hlut af bankanum. Stefán
sagði að ekki hefði verið mótuð
stefna innan Búnaðarbankans um
það hvort miðað yrði við ákveðna
lágmarksupphæð þegar hluti bréf-
anna yrði seldur í lokuðu hlutafjár-
útboði, en reiknað væri með að þau
yrðu seld í dreifðri sölu.
Samningar við fleiri lyQafyrir-
tæki í náinni framtíð
Kári Stefánsson, forstjóri ÍE,
sagðist í gær í samtali við Morgun-
blaðið sjá fyrir sér að fyrirtækið
mundi ljúka gerð samstarfssamn-
inga við fleiri erlend lyfjafyrirtæki í
náinni framtíð en í febrúar í fyrra
gerði fyrirtækið samstarfssamning
við svissneska lyfjafyrirtækið
Hoffman-LaRoche um leit að mein-
genum tólf sjúkdóma, sem hljóðaði
upp á 15 milljarða króna.
Rannsakar 35 sjúkdóma
Alls hefur ÍE nú ýtt úr vör sam-
starfsverkefnum vegna rannsókna á
erfðaþáttum 35 sjúkdóma. „Ég sé
fyrir mér að við náum samningum
við fleiri lyfjafyrirtæki í náinni
framtíð vegna þess að samningur-
inn sem við höfum við Hoffman-
LaRoche er eingöngu bundinn við
ákveðna sjúkdóma og það er mikill
möguleiki á því að fara í samvinnu
við önnur fyrirtæki um aðra sjúk-
dóma,“ sagði Kári.
■ Stefnt að/40
Ný kjör-
dæmaskipan
samþykkt
ALPINGI staðfesti í gær breytingar
á stjórnarskránni sem fela m.a. í sér
breytingar á kjördæmaskipan lands-
ins. Samkvæmt hinu nýja ákvæði
skulu kjördæmi vera fæst sex og
flest sjö en landinu hefur verið skipt
í átta kjördæmi síðustu fjörutíu árin.
Þá er kveðið á um að í hverju kjör-
dæmi skuli vera minnst sex kjör-
dæmissæti sem úthluta skal á grund-
velli kosningaúrslita í kjördæminu,
en auk þess er kveðið á um það ný-
mæli að þau stjórnmálasamtök komi
ein til álita við úthlutun jöfnunar-
sæta sem hlotið hafa minnst fimm af
hundraði af gildum atkvæðum á
landinu öllu.
■ Alþingi staðfestir/10
Snjór á
Siglufirði
ÍBÚAR Siglufjarðar vöknuðu upp
við vondan draum í gærmorgun er
þeir litu út um gluggann og sáu hvíta
jörð. Að sögn Adolfs Amasonar lög-
reglumanns var einhver snjókoma
fram yfir hádegið en þá stytti upp og
var mesti snjórinn farinn úr bænum
þótt enn væri hann til fjalla.
Adolf sagði að það hefði verið
hægt að búa til snjókarl. Hann segir
að alltaf hafi snjóað annað slagið á
þessum tíma og hann sagðist muna
eftir mikilli snjókomu á þjóðhátíðar-
daginn þegar hann var krakki. Spáin
fyrir þjóðhátíðardaginn í ár var hins
vegar skapleg og ekki útlit fyrir
meiri snjókomu.
---------------
Kaupás opnar
verslun
á Selfossi
KAUPÁS hf. opnaði í gær fyrstu
verslunina í nýrri verslunarkeðju,
Kostakaupi, og er ætlunin að bjóða
þar vörur á svipuðu verði og í Bónus-
og Nettóverslununum.
Kaupás festi á þriðjudag kaup á
tveimur Nýkaupsverslunum í
Reykjavík af Baugi hf og hyggst
reka þar Nóatúnsverslanir. Að auki
hefur Kaupás keypt Tikk Takk-
verslun í Garðabæ sem verður rekin
undir merkjum 11-11.
■ Kaupás/B2
Morgunblaðið/Kristinn
MikiII skortur á réttindakennurum úti á landi
Aþekk skólaganga
kennara og nemenda
Byggðastofnun synjar Rauðsíðu um lán
Gagiirýni frá
stjórn Rauðsíðu
AMALÍA Björnsdóttir, lektor í
Kennaraháskóla íslands og deildar-
stjóri prófadeildar í Rannsóknastofn-
un uppeldis- og menntamála, segir að
hátt hlutfall leiðbeinenda sé við
kennslustörf úti á landi og menntun
þeirra almennt minni en leiðbeinenda
höfuðborgarsvæðinu. Sums staðar
Morgunblaðið kemur næst út
laugardaginn 19. júní. Frétta-
vakt verður á þjóðhátíðardag-
inn á fréttavef Morgunblaðs-
ins, mbl.is.
séu kennarar með litlu meiri mennt-
un en nemendumir. Hún telur þetta
líklega skýringu á lakari árangri í
samræmdum prófum úti á landi en á
höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt töl-
um frá Hagstofu íslands er um helm-
ingur þeirra sem fást við kennslustörf
á Vestfjörðum án tilskilinna réttinda.
„Vestfirðingar búa við það að í 10.
bekk eru kennarar sem hafa litlu
meiri menntun en nemendurnir sem
þeir eru að kenna og það hlýtur að
vera hæpið að þeim takist að ná
sama árangri og vel menntaður fag-
maður, jafnvel þótt viijinn til að gera
vel sé fyrir hendi,“ segir Amalía.
■ Hátt hlutfall/41
Hættir fram-
kvæmda-
stjórn hjá
LÍÚ
KRISTJÁN Ragnarsson lætur af
framkvæmdastjórn Landssam-
bands íslenskra útvegsmanna um
næstu áramót og við tekur Frið-
rik J. Arngrímsson. S^jórn sam-
takanna samþykkti þetta í gær
að ósk Kristjáns. Hann hefur
gegnt starfí framkvæmdasljóra
LÍU í 30 ár og verið kjörinn for-
maður LÍÚ í 29 ár. Hann mun
áfram gegna stjómarformennsku
í samtökunum og sljómaði fund-
inum í gær af röggsemi. Á mynd-
inni má einnig sjá stjórnarmenn-
ina Eirík Ólafsson, Þorstein Erl-
ingsson, og Eirík Tómasson.
■ Tímabært/24
STJÓRN Byggðastofnunar hefur
hafnað beiðni Rauðsíðu ehf., um 100
milljóna króna lán. Forstjóri
Byggðastofnunar telur að fyrirtæk-
ið uppfylli ekki þau skilyrði sem
stjómin setti fyrir láninu og segir
hann að málinu sé lokið af hálfu
stofnunarinnar. Stjóm Rauðsíðu
ehf. gagnrýnir þessa ákvörðun og
ákveður næstu skref eftir helgi.
Að sögn Egils Jónssonar, stjórn-
arformanns Byggðastofnunar,
verða aðrir en stjóm stofnunarinn-
ar að segja til um framtíð málsins.
Skilyrðin fyrir láninu hafi ekki verið
uppfyllt að mati forstjórans. Mikið
tap var á rekstri fyrirtækisins í
fyrra en afkoman fyrstu þrjá mán-
uði þessa árs hefur verið mun betri,
en Egill segir að erfitt sé að sýna
fram á með þriggja mánaða upp-
gjöri að viðsnúningur sé í rekstri.
Guðmundur Malmquist, forstjóri
Byggðastofnunar, segir að miðað
við háa skuldsetningu og að rekst-
urinn byggðist mest á Rússafiski,
séu rekstrarhorfur ekki nógu góðar.
■ Einhugur/6
■ Málinu er/24