Morgunblaðið - 20.06.1999, Side 1
STOFNAÐ 1913
136. TBL. 87. ÁRG.
SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Eftirvænting við
Windsor-kastala
SNEMMA í gærmorgun hafði fólk
komið sér fyrir hjá Windsor-kast-
ala, skammt vestan Lundúna, til
þess að tryggja sér gott útsýni við
brúðkaup Játvarðs prins og
Sophie Rhys-Jones, er fram fór
síðdegis í gær. Játvarður er
yngsti sonur Elísabetar Englands-
drottningar, og var brúðkaupið
sagt vera helsti viðburðurinn í
bresku samkvæmislifi á árinu. Til-
kynnt var í Buckingham-höll í
gær, að Játvarður fengi titilinn
jarl af Wessex og muni erfa titil
Filippusar föður síns, hertogi af
Edinborg. Rhys-Jones mun fá tit-
ilinn hennar konunglega hátign,
greifynja af Wessex.
■ Birtir loks til/6
Tórínó
2006
BORGIN Tórínó á Ítalíu varð í gær
fyrir valinu sem vettvangur vetrar-
ólympíuleikanna 2006. Var þetta
ákveðið á fundi Alþjóðaólympíu-
nefndarinnar í Seoul.
Lokaatkvæðagreiðslan stóð á
milli Tórínó og Síon í Sviss og féllu
atkvæði þannig, að Tórínó fékk 53
atkvæði, en Síon 36. Valið fór fram
samkvæmt nýjum reglum sem
nefndin setti sér í kjölfar hneykslis-
málanna sem komu upp í Salt Lake
City í Bandaríkjunum sl. vetur, en
þar fara leikarnir fram veturinn
2002.
Aðrar borgir sem kepptu um að
halda leikana 2006 voru Helsinki,
Klagenfurt í Austurríki, Poprad-
Tatry í Slóvakíu og Zakopane í Pól-
landi.
------♦♦♦-----
Austur-Tímor
Samið um
afvopnun
Dili á Austur-Tímor. Reuters.
SAMEINUÐU þjóðimar fögnuðu í
gær friðarsamkomulagi stríðandi
fylkinga á Austur-Tímor, en ítrek-
uðu að enn væri margt ógert áður
en hægt yrði að efna til atkvæða-
greiðslu um sjálfstæði héraðsins.
Leiðtogi sjálfstæðissinna á A-
Tímor, Xanana Gusmao, og for-
maður héraðsyfirvalda, Domingos
Soares, skrifuðu undir samkomu-
lagið í Jakarta, höfuðborg Indó-
nesíu, á fóstudag. Kveður sáttmáli
þeirra á um, að báðir aðilar skuli
leggja niður vopn og stuðla að friði
og öryggi í héraðinu. Soares er
fylgjandi áframhaldandi yfirráðum
Indónesíu í A-Tímor.
Tugir héraðsbúa hafa fallið og
þúsundir orðið að flýja heimili sín
frá því í janúar sl., er herskáir fylg-
ismenn indónesískra yfirráða í hér-
aðinu hófu baráttu gegn sjálfstæð-
issinnum.
Áætlað er að SÞ muni skipu-
leggja atkvæðagreiðslu um sjálf-
stæði héraðsins frá Indónesíu í
ágúst nk., en fulltrúar SÞ hafa
ítrekað sagt að staða mála í hérað-
inu sé slík, að ekki sé unnt að halda
kosningamar. Samkomulagið sem
undirritað var á fóstudag gengur
lengra en samningur sem gerður
var í apríl sl. Sá samningur kvað
ekki á um afvopnun og varð ekki til
þess að stöðva blóðsúthellingar.
Samið um þátt Rússa í friðargæslunni
Ihlutun
Jeltsíns réð
úrslitum
Moskvu, Pristína. AP, Reuters.
RÚSSAR náðu samkomulagi við seta, sagði að Helsinkisamkomu-
Atlantshafsbandalagið (NATO) um
þátttöku í friðargæslu f Kosovo
vegna beinnar íhlutunar Borísar
Jeltsíns Rússlandsforseta á síðustu
stundu, að því er háttsettur emb-
ættismaður greindi frá í gær. ígor
Ivanov utanríkisráðherra og Igor
Sergeijev vamarmálaráðherra
komu til Moskvu í gær eftir að sam-
komulagið náðist í Helsinki á fóstu-
dagskvöld.
Sergei Prikhodko, aðstoðar-
starfsmannastjóri Rússlandsfor-
700
prent-
villur
Aminan. AFP.
JÓRDANSKUR barnabóka-
höfundur varð allt annað en
ánægður þegar honum barst í
hendur eintak af nýrri bók
sinni, sem menntamálaráðu-
neytið í Jórdaníu gefur út.
Kom nefnilega á daginn að yf-
ir sjö hundruð prentvillur var
að finna í bókinni, sem þó er
ekki nema fimmtíu blaðsíðna
löng.
Issa Garagirah, sem skrifað
hefur tuttugu og þrjár bækur,
kvartaði sáran yfir slælegri
frammistöðu menntamála-
ráðuneytisins í utgáfumálum
og sagði útilokað að lesa bók-
ina vegna þess gífurlega íjölda
prent- og stafsetningarvillna
sem í henni væri að finna.
„Hvemig eiga börn að geta
lært nokkum skapaðan hlut ef
bækur þeirra em uppfullar af
mistökum?" spurði Garagirah.
Mun menntamálaráðuneyt-
ið jórdanska hafa samþykkt að
hætta dreifingu bókarinnar
eftir að höfundurinn bar fram
kvartanir sínar.
lagið hefði orðið „að veruleika
vegna leiðbeininga frá Borís
Jeltsín". Prikhodko tjáði fréttastof-
unni ITAR-Tass að Ivanov og
Sergeijev hefðu rætt við Jeltsín í
síma þegar hlé hefði verið gert á
fundahöldunum í Helsinki, og hefði
forsetinn gefið þeim fyrirmæli sem
hafi gert þeim kleift að ná sam-
komulagi.
Helsta deiluefnið var sú krafa
Rússa að friðargæsluliðar þeirra í
Kosovo lytu ekki forráðum NATO.
Samkomulagið kveður á um að
rússnesku sveitirnar verði undir
rússneskri stjórn en í samstarfi við
foringja NATO á gæslusvæðum
Bandaríkjanna, Frakklands og
Þýskalands í Kosovo. Ekkert tiltek-
ið gæslusvæði mun koma í hlut
Rússa.
Brottflutningi að ljúka
Haft var eftir háttsettum emb-
ættismanni hjá NATO í gær að
serbneski herinn væri að ljúka
brottflutningi allra sveita sinna frá
Kosovo og væri útlit fyrir að allar
yrðu á brott hálfum sólarhring fyrr
en kveðið var á um í samkomulagi
NATO og Júgóslava. Um hádegi í
gær voru um fimm þúsund serb-
neskir hermenn enn í Kosovo, að
sögn embættismannsins, en hann
taldi að þeir yrðu allir famir um há-
degi í dag.
Fregnir af hefndarárásum kos-
ovo-albanskra skæruliða á serb-
neska borgara í Kosovo hafa orðið
til þess að NATO hefur heitið því
að fjölga herlögreglumönnum í hér-
aðinu til þess að vemda Serba er
flýja nú þaðan þúsundum saman.
Þá var ætlunin í gær að NATO
gerði samkomulag við Frelsisher
Kosovo (UCK) þar sem tilgreind
væm skilyrði fyrir því að herinn
legði niður vopn. Var þetta haft eft-
ir talsmanni NATO. Itrekað hafa
borist fregnir af því að slegið hafi í
brýnu milli UCK-liða og Serba, og
hafa hermenn NATO sett upp
vegatálma í Pristína og lagt hald á
vopn.
Framtíðin óliós ó
fjórmálamarkaði
ÁLFBÆR
ÞRÓUN
VERÐI
LEIÐAR-
LJÓSIÐ
22
NÝJA BÍÓ HELDUR í
VÍKING TIL NOREGS