Morgunblaðið - 20.06.1999, Side 17

Morgunblaðið - 20.06.1999, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR TÖLVUSTÓLL eftir fínnsku hönnuðina Eppo Asikainen og Likka Ter- ho. Setjist gesturinn í hann hefur hann tækifæri til að kynna sér vef- síður ýmissa merkra hönnuða, sem þýðir framlengingu sýningarinnar. Af hönnun aldarinnar LIST OG HÖNJMM Epal, Skeifunni 6 HÖNNUN HEIMSÞEKKTIR HÖNNUÐIR Opið alla daga á afgreiðslutíma versl- unarinnar. Til mánaðamóta. Aðgangur ókeypis. NOKKRUM sinnum hefur rýnir- inn átt upplífgandi stundir á fágæt- um hönnunarsýningum í húsi Epal að Faxafeni 3, en íyrir tveim árum flutti verslunin um set að Skeifunni 6. Er hann nálgaðist svæðið á dögun- um var það í fyrsta skipti eftir flutn- inginn, sem honum var alls ókunnugt um, og var satt að segja alveg bit í fyrstu, en með aðstoð símaskrár í annarri húsgagnaverslun komst hann um síðir á sporið. Þetta sagt til að aðrir lendi ekki í sömu viliu, húsið að Faxafeni klæðskerasaumað fyrir starfsemina og menn hér síður varir um sig. Nýja húsnæðið er á einni hæð og nokkru minna, og má gera ráð fyrir að krepputímabilið hafl ráð- ið nokkru, en nú er flest á uppleið aftur. Kannski ekki mest fyrir upp- ganginn í efnahagslífinu sem þjóðin á meintu eitruðu kjötmeti í útlandinu öllu öðru fremur að þakka, heldur vaxandi áhuga ungu kynslóðarinnar og fólks almennt fyrir gildri hönnun, hvor tveggja módemískri sem því allra ferskasta, að ógleymdri antík- inni. Hér er brýn þörf á að beina sjón- um enn einu sinni að þeim borðleggj- andi staðreyndum, að í kreppunni féllu húsgögn ekki í verði líkt og mál- verk, í öllu falli ekki antík né eftir stórmeistara aldarinnar, hvað sem segja má um fjöldaframleiðsluna og rúmfatalagera heimsins. Uppboðs- markaðurinn var alla tíð í jafnvægi og frekar á uppleið en hitt, helst fyr- ir þá sök að síður var mögulegt að braska í húsgögnum og myndlist, en þar var boginn spenntur alltof hátt og hratt, hún mun háðari sveiflum á fjármagnsmarkaðinum og spákaup- mennsku hvers konar. Oheiðarleikinn yfírþyrmandi og stöðugt eru nýjar upplýsingar að koma fram þar að lútandi í listtíma- ritum, einkum varðandi mál- verkafalsanir, en hér skulu menn engu síður á varðbergi um hönnun. Oprúttnir nota sér ekki síður áhuga fáfróðra og hrekklausra með fjölda- framleiddri og rangfeðraðri hönnun og antík og eru hér stórtækir. Dönsk antík er þannig sögð geta verið frá Póllandi, jafnvel verk- smiðjuframleidd! Epal byggir alla tilveru sína á ekta vöru íslenzkri sem erlendri og þá helst eftir nafnkennda starfandi list- hönnuði. Mikið til danska og er sýn- ingin að nokkru borin uppi af þeim, ekki síst Arne Jacobsen (1902-1971), sem um sína daga var einn af risun- um í danskri húsagerð og hönnun. Athyglisvert að fyrir rúmum 40 ár- um teiknaði hann tvo stóla fyrir SAS-hótelið í Kaupmannahöfn sem frægir urðu, Eggið og Svaninn, sem eru báðir á sýningunni. Og sennilega er það dæmigert um rughð og fá- fræðina hérlendis, að kunnáttumað- ur rakst á Svaninn í verslun á Grens- ásveginum og keypti á 25.000 krón- ur, sem var uppsett verð, en mark- aðsverð hans er komið upp í 370.000 krónur samkvæmt uppboðsverði í Kjöben! Hér á almenningur enga sök heldur rangsýni menntakerfisins á gildi sjónmennta í kennslukerfinu, að ekki sé minnst á hjörðina í leik- húsinu við Austurvöll. Þannig þurfti víðfræg verslun Islenzks heimihsiðn- aðar að hrökklast úr Fálkahúsinu í Hafnarstræti fyrir rekstrarörðug- leika sem voru ekki nema örlítið brotabrot af kostnaðinum við að rembast og strembast við að koma vinnunni til fólksins á landi hér. Hins vegar er öllu minna hugsað um að styrkja þá sem koma til vinnunnar, en það eru þeir sem skapa hvarvetna auðlegðina. Með lokun verslunarinn- ar missti fjöldi dugmikilla hönnuða möguleika á að koma vöru sinni á framfæri og miðborgin þokkafyllstu verslunina. Um leið þá sem var helsta prýði borgarinnar út á við og skilaði ómældum óbeinum hagnaði, ókeypis auglýsingu á íslenzkri ull og hönnun í öllum heimshornum. Þetta gerist á sama tíma og allsstaðar í stórborgum Evrópu er peningum mokað í staði er styrkja gilda og virka framningu þjóðreisnar. Þessum staðreyndum ber að halda glaðvakandi þar til menn taka við sér, því hér er ekki einungis um verkmenntina eina að ræða heldur skarar einnig sjálft tungumálið, þetta tvennt fylgist að. Léleg verk- mennt er systir fáfræðinnar, fæðir af sér vont og bjagað mál eins og dæmin sanna og mannkynssagan er til vitnis um. Einmitt fyrir ofanskráð er framtak Epal svo mikilvægt og hvað íslenzka hönnun áhrærir eru menn þar á bæ ófeimnir við að lyfta undir hana. Að þessu sinni er fulltrúi landsins hin unga Erla Sólveig Óskarsdóttir, með létta og meðfærilega stóla sem komnir munu í framleiðslu erlendis. Það er margsannað að hæfileikamir eru hér nógir og áhuginn eftir því, færri en vilja komast að hönnunar- námi í skólum þótt hönnun sé ekki viðurkennd gild til námslána, að ég best veit. Hér eru á ferð skyldir hæfi- leikar og í hugbúnaði, sem sldla nú þjóðinni milljörðum króna árlega, en markaðssetning hönnunar mun hæg- ari og vandasamari. Þótt sýningin í Epal sé ekki stór kennir þar margra grasa á afmörk- uðu sviði, einfaldleikinn í fyrirrúmi. Kemur einkar vel fram í afar traustu og persónulegu sófasetti eftir Erik Jörgensen, sem er algjör andstæða þeirra dúnmjúku og vin- sælu sófa og sófastóla sem menn sökkva í og rýnirinn hefur tiihneig- ingu til að nefna óskadraum at- vinnulausa hnykklæknisins. Og þá er að taka fram regnhlífina og skunda í Epal þar sem sólin skín... Bragi Ásgeirsson SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ 1999 17 Þúsundir íslendinga hafa treyst okkurfyrir daglegri vellíðan sinnL Áralöng reynsla okkar og sérþekking starfffólks mun auðvelda þér valið. Markmið okkar er að þú sofir vel og eigir góða daga. fl VISA Raðgreiðslur í 36 mán. HÚSGAGNAHÖLUN Bíldshöfði 20 - 112 Reykjavík Sími 510 8000 -þcgar þú vilt sofa vel! Uppáhalds dýnur Norðurlandabúa SCANDI SLEEP er einstök li'na af úrvals boxdýnum frá stærstu dýnuframleiðendum á Norðurlöndum. Yfirburðir SCANDI SLEEP kerfisins eru rökrétt heild, allir finna dýnu sem passar þeim. Pær tryggja þér væran nætursvefn, þar sem líkaminn hvílist og nýtur fullkomins stuðnings, sem er forsenda fyrir algerri hvíld. Allar SCANDI SLEEP dýnurnar eru prófaðar með tilliti til langrar notkunar. Við erum viss um gæðin, eftir 20 ára reynslu í sölu og veitum þvf allt að 15 ára ábyrgð. Húsgagnahöllin býður upp á 10 mismunandi SCANDI SLEEP boxdýnur, allar einstaklega þægilegar, hver á sinn hátt. Líttu inn og prófaðu SCANDI SLEEP boxdýnu strax í dag. SCANDI SLEEP er trygging fyrir réttu vali á dýnu. andi ileer. Boxdýnan er næstum því rúm, aðeins vantar fætur eða meiða, mismunandi verð eftir vali og rúmgafl ef óskað er. Mörg venjuleg rúm eru einnig framleidd með boxdýnur í huga. Boxdýna er botn og dýna í einu og það er einkennandi fyrir flestar boxdýnur að þær eru byggðar f kringum tvö fjaðralög á trégrind. Boxdýnurnar leysa málin hvort sem er fyrir einstaklinga eða hjón, dýnurnar eru einfaldlega festar saman svo ekkert bil verður. B90 x L200 sm. kr. 115.160 B90 x L2IOsm. kr. 147.150 SCANDI SLEEP 3015 boxdýna með þykkri yfirdýnu. Millistíf dýna sem hentar flestum. Sérstak- lega valin fyrir börn og ung!inga.Tvöföld fjöðrun. B80 x L200 sm. kr. 27.230 B90 x L200 sm. kr. 27.230 B105 x L200 sm. kr. 38.690 B120 x L200 sm. kr.41.120 BI40 x L200 sm. kr. 46.760 SCANDI SLEEP 3020 boxdýna með þykkri yfirdýnu. Millistíf dýna sem lagar sig vel eftir likamanum og hentar flestum.Tvöföld fjöðrun. B80 x L200 sm. kr. 39.980 B90 x L200 sm. kr. 39.980 B105 x L200 sm. kr. 51.860 B120 x L200 sm. kr. 57.950 BI40 x L200 sm. kr.63.120 SCANDI SLEEP 3025 boxdýna með þykkri yfirdýnu. Millistíf dýna sem lagar sig fulikomlega eftir líkamanum. Pocketfjaðrir. Góð fyrir bakveika. Tvöföld fjöðrun. B80 x L200 sm. kr. 47.820 B90 x L200 sm. kr. 47.820 B105 x L200 sm. kr. 58.960 B120 x L200 sm. kr. 66.560 BI40 x L200 sm. kr. 72.210 SCANDI SLEEP 3026 boxdýna með yfirdýnu úr kaldsteyptum svampi. Millistíf dýna með svæðaskiptum Pocketfjöðrum.Tvöföld fjöðrun. SCANDI SLEEP 3030 boxdýna með þykkri latex yfirdýnu. Millistif dýna, sérlega þægileg. Pocketfjaðnr. Tvöföld fjöðrun. B80 x L200 sm. kr. 79.860 B90 x L200 sm. kr. 79.860 B105 x L200 sm. kr. 92.320 B120 x L200 sm. kr. 106.130 BI40 x L200 sm. kr. 123.750 SCANDI SLEEP 3035 boxdýna með þykkri latex yfirdýnu. Stif dýna sem hentar vel þungu fólki sem WÍMiSTtlHMS kýs að sofa á stlfri dýnu.Tvöföld fjöðrun. Dýnusett B90 x L200 sm. kr. 47.630 BI40 x L200 sm. kr. 62.590 B180 x L200 sm. kr.91.190 ■r..-ý SCANDI SLEEP 3050 Continental dýna með i T-'--y ITXSS þykkri yfirdýnu. Stif dýna sem sameinar boxdýnu * með einfaldri fjöðrun og lausa dýnu.Tvöföld fjöðrun. Dýnusett B90 x L200 sm. kr. 72.960 BI40 x L200 sm. kr. 105.420 BI80 x L200 sm. kr. 132.620 ;íb wmm SCANDI SLEEP 3060 Continental dýna með þykkri latex yfirdýnu. Millistíf dýna sem sameinar boxdýnu með tvöfaldri fjöðrun og lausa dýnu með svæðaskiptum Pocketfjöðrum. Þreföld fjöðrun. B80 x L200 sm. kr. 12.360 B90 x L200 sm. kr. 12.360 B105 x L200 sm. kr. 15.900 B120 x L200 sm. kr. 17.400 BI40 x L200 sm. kr. 19.750 SCANDI SLEEP 3010 boxdýna með yfirdýnu. Stíf dýna sem hentar vel léttu fólki sem kýs að sofa á stlfri dýnu. Einföld fjöðrun. B80 x L200 sm. B90 x L200 sm. 105 x L200 sm. 20 x L200 sm. B140 x L200 sm. kr. 19.200 kr. 19.200 kr.27.180 kr. 29.960 kr. 34.880 B80 x L200 sm. B90 x L200 sm. BI05 x L200 sm. B120 x L200 sm. BI40 x L200 sm. A kr. 59.710 kr. 59.710 kr. 77.970 kr. 82.230 kr. 89.760 fP flt SCANDI SLEEP 3045 boxdýna með yfirdýnu. l í T Millistíf dýna sem hækka má án þrepastillingar við höfða- og fótalag. Allar stillingar eru rafstýrðar. Svæðaskiptar Pocketfjaðrir.Tvöföld fjöðrun.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.