Morgunblaðið - 20.06.1999, Page 22

Morgunblaðið - 20.06.1999, Page 22
22 SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ Hvorki hippar né öfgafólk í hestakerrum Sumir eru þeirrar skoðunar að þeir séu lítils megnugir og geti hvorki bætt umhverfí sitt né annarra. En til er fyrirbæri sem heitir vistmenning þar sem ábyrgðin er þegnanna. Helga Krístín Einarsdóttir blaðamaður og Jim Smart ljósmyndari sáu vistmenningu í verki á Sólheimum í Grímsnesi. Sá varkárasti ráði för Umhverfisverndarsinnar hafa þroskast, umhverf- isstefna sem lýtur sömu lögmálum og góðgerða- starfsemi getur ekki gengið til lengdar,“ segir Graham Bell kennari í vistmenningu og ráð- gjafi um sjálfbæra þróun. Bell er staddur hér á landi í þriðja sinn til þess að kenna áhugafólki um umhverfismál vistmenningu og kemur, sem fyrr, á vegum Fræðslumiðstöðvar sjálfseignar- samfélagsins Sólheima. Graham Bell rekur ráðgjafar- fyrirtæki um sjálfbæra þróun og vinnur að rannsóknum og tilraun- um í samvinnu við yfirvöld í Skotlandi, Englandi og innan Evrópusambandsins. Fyrirtæki hans hefur aðstöðu í Tweed Horizon, sem er þróunarmiðstöð þar sem stuðlað er að sjálfbærri tækni í smáfyrirtækjum og iðnaði. Hann heldur hádegisfyrirlestur um vistmenningu í Kornhlöðunni þriðjudaginn 22. júní, þar sem hann mun meðal annars fjalla um fólksflótta af landsbyggðinni. Þátttakendur á námskeiðinu í ár enj 12 og koma úr ýmsum starfsgreinum og mismunandi átt- um. Og þegar innt er eftir náms- efninu, segist Graham Bell ekki vita hvað hann er að kenna nem- endum sínum. Síðan segist hann hjálpa þeim til þess að átta sig á því sem þeir sjálfir vita. Raðar hann þeirri vitneskju svo saman upp á nýtt og lætur þeim aftur í té. „Ég held ekki fyrirlestra held- ur reyni að draga fram þekkingu nemendanna, skilning þeirra og hæfni með tilteknum spumingum um þá sjálfa, fjölskyldur þeirra, samfélag og samastað. Að því búnu get ég sýnt þeim fram á hvemig þeir fara að því að ná markmiðum sem þeir setja sér sjálfir. Að mínu viti er betra að varpa orðfæri eins og að „maður eigi“ eða „maður verði“ út fyrir borðstokkinn. Allt er þetta spurn- ing um val og forræðishyggjan er í raun besta leiðin til þess að að koma í veg fyrir árangur," segir hann. Yfirskrift námskeiðsins er vist- menning, permaculture, hugtak sem til er orðið úr permanent culture og permanent agriculture og vísar til hringrásar náttúrann- ar í samfélagsháttum og ræktun. Vistmenning kallar á nýja lífs- hætti og Bell líkir henni við end- urnýjun þar sem umhverfið er skoðað í nýju ljósi og menn hall- ast á sveif með náttúranni. Vist- menning og sjálfbær þróun era af sama meiði, þar sem í báðum til- vikum er miðað við að sýna nán- asta umhverfi sínu og samferða- fólki virðingu. „Hugmyndin er sú að bæta umhverfið og skila jörð- inni tilbaka í jafngóðu, ef ekki betra ástandi fyrir næstu kyn- slóðir. Fyrir 20 árum var aðalá- herslan á umhverfið á kostnað hins félagslega, í dag er komið til móts við hvorttveggja. Þá fóra milljónir í göngur til þess að mót- mæla umhverfisógnum, án þess að leggja annað til málanna. Nú er unnið að því að bæta lífsskil- yrði og ná hámarks árangri með aðstoð nútímatækni en án þess að tortíma náttúranni. Það er enginn að leggja til að við hverfum aftur til fortíðar, hestsins og kerrann- ar. Hér era heldur engar öfgar á ferðinni. Vistmenning er ferli ekki endanleg niðurstaða þar sem allir hafa eitthvað til málanna að leggja,“ segir hann. Raunveruleg fyrirtæki sem skila hagnaði Sólheimar í Grímsnesi urðu til árið 1930 þegar Sesselja H. Sig- mundsdóttir opnaði heimilið fyrir börn og fatlaða. Fyrir þremur ár- um útnefndu alþjóðasamtökin Global Eco Village Sólheima opin- berlega sem fyrsta sjálfbæra byggðarkjarnann á Islandi og í dag era Sólheimar ekki stofnun heldur sjálfseignarsamfélag 100 íbúa, segir Óðinn Helgi Jónsson forstöðumaður. Starfsemi heimil- isins hefur breyst mjög í áranna rás og tekur Graham Bell það sem dæmi um vistmenningu í verki. „Sólheimar era reistir á mjög sterkri undirstöðu. Hlutverk þess hefur breyst eftir því sem skiln- ingur á veraleika fólks með sér- þarfir hefur aukist úti í samfélag- ÞÁTTTAKENDUR á námskeiði Fræðslumiðstöðvar Sólheima koma víða að. „Lykilorðið hvað þetta varðar er jafnvægi. Ekki ætla ég að standa fyrir því að fólk hætti að VISTMENNINGARSINNAR eru ekki handhafar stóra sannleikans f umhverfismálum. Graham Bell, ráðgjafi og kennari í vistmenningu. ÓÐINN Helgi Jónsson, forstöðumaður Sólheima, og Graham Bell. inu. Hér ríkir jafnvægi milli fatl- aðra og ófatlaðra og nú er svo komið að hér era rekin raunveru- leg arðbær fyrirtæki sem senda vörar á markað, svo sem kerti og lífrænt ræktað grænmeti. Ef markaðurinn fyrir þessa vöru mettast á íslandi er ekkert því til fyrirstöðu að selja hana til Evr- ópu. Eftirspurnin þar er mjög mikil því hér er um að ræða gæðaframleiðslu sem til verður án þess að umhverfinu stafi hætta af,“ segir hann. A döfinni er að byggja fyrsta lífræna fráveitukerfið á íslandi á Sólheimum innan tíðar segir Óð- inn Helgi. „Verkefnið er á hönn- unarstigi en framkvæmdir hefjast vonandi árið 2000. Þá er miðað við að kerfið verði tekið í notkun árið 2001. Um er að ræða tilrauna- verkefni hérlendis um nýtanlegar lausnir fyrir fráveitu í þorpum og smáum sveitarfélögum og stofn- kostnaður kemur til með að verða lítill, sem og viðhaldskostnaður þegar upp er staðið,“ segir hann. Þegar vistmenning er annars vegar er leikur einn að bæta lífs- skilyrði fólks þar sem vandamálin eru stór og mörg. Erfíðara reynist hins vegar að sýna fram áþreifan- legar úrbætur þar sem þegnarnir lifa almennt góðu lífi og umhverfið er hreint. Ekki svo að skilja að ís- lendingar standi ekki frammi fyrir erfiðum valkostum þar sem óspillt náttúra landsins er í húfi. Graham Bell er inntur eftir áliti sínu á fyr- irhuguðum virkjunarframkvæmd- um og fleiri álverksmiðjum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.