Morgunblaðið - 20.06.1999, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 20.06.1999, Blaðsíða 24
24 SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ SJALFBÆR ÞROUN VERÐI LEIÐARLJÓSIÐ SIV Friðleifsdóttir umhverfisráðherra: „Hér ríkir hvorki hreinræktuð friðunarstefna né hreinræktuð byggðastefna þannig að allt sé réttlætt í nafni hennar." Morgunblaðið/Kristinn Mikilvægt er að kanna vand- lega öll rök með og á móti þeg- ar framkvæmdir geta spillt náttúrunni, að sögn Sivjar Frið- leifsdóttur umhverfisráðherra. Hún segist í viðtali við Kristján Jónsson telja ólíklegt að breyt- ing verði á þeirri afstöðu ríkis- stjómarinnar að Fljótsdals- virkjun þurfi ekki að fara í lög- formlegt umhverfísmat. EFLA þarf náttúruvemd en jafn- framt verður að láta skynsemina ráða þegar gripið er til aðgerða sem miða að bættu umhverfí, seg- ir nýr umhverfisráðherra, Siv Friðleifsdótt- ir, sem einnig fer með samstarf við Norður- löndin. „Eg er baráttuglöð fyrir hönd um- hverfismála og vO að skynsemin ráði,“ segir Siv. Hún segist ekki telja að fyrirhuguð Fljótsdalsvirkjun fari í lögformlegt um- hverfismat, virkjanaleyfið, sem veitt hafi verið Landsvirkjun á sínum tíma og staðfest enn frekar með lögunum um mat á um- hverfisáhrifum 1993, muni gilda. Ríkis- stjórnin hafi ekki þá stefnu að taka virkjun- arréttinn af Landsvirkjun. En hver er stefna nýja ráðherrans, hver verða helstu áhersluatriðin og forgangsröðin á kjörtíma- bilinu? „Steínan í umhverfismálum gengur út á að skapa jafnvægi milli manns og náttúru þannig að ekki sé gengið um of á hlut annars. Mér finnst mikilvægt að móta öfluga stefnu um sjálfbæra þróun. Ríkisstjómin sam- þykkti á sínum tíma áætlun um slíka þróun og þessa áætlun þarf að endurskoða, því starfi á að vera lokið árið 2000. Þá tekur ný áætlun við og þetta er mjög spennandi verk- efni. Þama togast margt á, hagsmunir mannsins og hagsmunir náttúrannar, hvem- ig hægt sé að finna jafnvægi þannig að ekki sé valdið náttúruspjöllum og fundin sátt sem við getum unað við. Um þetta þarf að vera samstarf milli ríkis- valdsins, sveitarfélaganna, atvinnufyrirtækj- anna og einstaklinganna. Þetta er því um- fangsmikil áætlun og verður ekki hrist fram úr erminni. Umhverfisráðuneytið hefur sam- ræmingarhlutverki að gegna og staða þess í stjómskipuninni er að sumu leyti öðmvísi en hinna fagráðuneytanna. Starfið krefst í mörgum tilvikum samstarfs við önnur ráðu- neyti; sem dæmi má nefna að samgöngu- ráðuneytið og sjávarútvegsráðuneytið verða að koma að ákvörðunum sem snerta losun á gróðurhúsalofttegundum. Loks nefni ég mikilvægi þess að viðhalda ímynd íslands sem hreins lands og kanna sóknarfærin sem gefast á því sviði. Nú er nýbúið að gefa út sérfræðingaskýrslu svo- kaliaðs AMSUM-hóps á vegum ráðuneytis- ins þar sem teknar era saman rannsóknir frá áranum 1989-1998. Þær staðfesta að um- hverfið er hér veralega hreinna en í ná- grannalöndum okkar. Hafið og afurðir þess era hreinar, landbúnaðarafurðir einnig, mengun er hverfandi lítil í gróðri. Þessa sér- stöðu þurfum við að varðveita eins vel og við getum. Það er líka markmið ráðuneytisins að upp- fræða fólk um umhverfismál og stuðla að aukinni umhverfisvitund með átaki á ýmsum sviðum." Langtímahugsun sé grundvöllurinn Er náttúran takmörkuð auðlind sem ber að umgangast sem slíka? Er rétt að taka gjald fyrir nýtinguna? „Við nýtum fískistofnana með sjálfbæra þróun í huga og göngum ekki á þá, sama hugs- un á að gilda um náttúrana alla. Langtíma- hugsun þarf að vera grundvöllurinn þegar við grípum til ráðstafana sem eiga að tiyggja að við getum notið hennar. Þar með er ekki sagt að við megum hvergi hreyfa okkur, ég er ekld að boða hreinræktaða friðunarstefnu. Þá mættum við aldrei draga flsk úr sjó! Ég tel að við þurfum að svara þeirri spumingu hér á landi eins og annars staðar hvort við viljum beita frekari umhverfis- gjöldum. Reynslan sem við höfum lofar góðu. Við tökum nú skilagjald fyrir drykkjaram- búðir og innheimtum líka svonefnt spilliefna- gjald vegna eyðingar rafgeyma og annarra hluta. Gjaldið er lagt á í innflutningi eða framleiðslu vörannar, menn borga fyrirfram fyrir förgunina. Þetta er hagstjórnartæki sem hefur geng- ið vel að nota enn sem komið er. Spumingin er hvort við þurfum ekki að beita því í aukn- um mæli til þess að hafa áhrif á hegðun fyr- irtækja, einstaklinga og opinberra stofnana. Hins vegar er ljóst að við verðum að gera þetta þannig að heildarskattlagning aukist ekki. Það þyrfti því að skoða að lækka skatta og aðrar álögur á móti eins og Danir hafa t.d. gert, þeir lækkuðu sína tekjuskatta um 1% á ári í fimm ár meðan þeir vora að leggja á orkuskatta til að breyta hegðun manna og hvetja fólk til að verða umhverfis- vænna. Það er flókið að breyta áherslum í þessum efnum með hagstjórnartækjum því að ráð- stafanir af þessu tagi geta haft áhrif á sam- keppnisstöðu fyrirtækja. Þess vegna er æskilegt að ná pólitískri samstöðu um svona aðgerðir og sátt við atvinnulífið eins og náð- ist um spilliefnagjaldið.“ Á að láta greiða aðgangseyri þar sem ágangur á viðkvæmum svæðum er talinn of mikill, t.d. í Herðubreiðarlindum? „Mér finnst að fólk eigi að geta notið nátt- úrannar og á erfítt með að sjá fyrir mér að í framtíðinni geti þeir einir notið ákveðinna svæða, Herðubreiðarlinda, Geysis eða ann- arra staða, sem era efnaðir. Lág þjónustu- gjöld finnst mér þó ekkert óeðlileg, þau geta verið notuð til að standa undir nauðsynleg- um framkvæmdum og stýra umferðinni eftir göngustígum. En fari svo, einhvem tíma í fjarlægri framtíð, að takmarka verði fjöld- ann með einhvers konar aðgerðum fyndist mér ótækt ef einungis þeir efnameiri hefðu aðgang að náttúrunni. Þessi staða er sem betur fer ekki komin upp ennþá en ef það gerist getur þurft að endurskoða þessi mál.“ Ýmsir ráðamenn, þ. á m. Halldór Ásgríms- son, hafa sagt að ekki sé tími til að fara út í lögformlegt umhverfismat vegna virkjana á Austurlandi fari svo að hugmyndin um álver á Reyðarfirði verði að veraleika. Ertu sam- mála? „Málið kom til kasta Alþingis í vikunni og ljóst að skiptar skoðanir era um Fljótsdals- virkjun þar. Ég fagna allri málefnalegri um- fjöllun en tek eftir því að þeir sem ákváðu 1993 að Fljótsdalsvirkjun væri undanþegin umhverfismati og bera ábyrgð á því hvemig málið er statt í dag tala nú með allt öðram hætti. Því hefur ranglega verið haldið fram að síðasta ákvörðun um Fljótsdalsvirkjun hafi verið tekin fyrir 16 áram. Hið rétta er að umhverfisnefnd Alþingis lagði árið 1993 fram breytingartillögu um að m.a. Fljóts- dalsvirkjun skyldi undanþegin umhverfis- mati. I atkvæðagreiðslu Alþingis samþykktu menn eins og Steingrímur J. Sigfússon, Hjörleifur Guttormsson og Össur Skarphéð- insson að virkjunin skyldi undanþegin um- hverfismati. Þessi breytingartillaga var sam- þykkt án mótaatkvæða. Nú talar Samfylkingin í Reykjavík um lögformlegt umhverfismat og þar fara fremstir í flokki þeir sem vora á öndverðri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.