Morgunblaðið - 20.06.1999, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ 1999 37
+ Friðbjörn
Jósafatsson
fæddist 12. mars
1921 á Efra Vatns-
homi í Vest-
ur-Húnavatnssýslu.
Hann lést 14. júní
síðastliðinn.
Foreldrar hans
vom Guðrún
Ebenesardóttir og
Jósafat Hansson.
Systkini Frið-
björns era: Ingi-
björg Ebba, f. 1919;
Seselía, f. 1923, lát-
in; Grímur, f. 1924;
Hannes, f. 1925; Náttfríður, f.
1927; Ragnhildur, f. 1928, látin
og Jósafat, f. 1930.
Tveggja ára gamall fór Frið-
björn í fóstur til frænku sinnar
Ingibjargar Sigurbjörasdóttur
og manns hennar Ingvars
Sveinssonar sem bjuggu á
Grund í Vestur-Hópi. Dætur
þeirra og fóstursystur Frið-
björns eru: Ragnhildur, f. 1913
og Ingibjörg, f. 1918, látin.
Eftirlifandi eiginkona Frið-
björns er Sigríður S. Bergmann,
dóttir hjónanna Vigdísar Sig-
urðardóttur og Sigurðar M.
Bergmann sem bjuggu í Fugla-
Erfiðar reynast kveðjustundir
og hinsta kveðjan svo sár, svo
erfítt að fá ekki að sjá þig einu
sinni enn.
Þú varst svo ljúfur og hlýr. Svo
traustur og lífið allt varð léttara
með þér. Alltaf varstu boðinn og
búinn að hjálpa til ef þú mögulega
gast og ófáar ferðirnar sem þú
fórst með strákana. Heimili ykkar
mömmu var þeim sem annað heim-
ili og umvafði þá og okkur öll inni-
leika og væntumþykju.
Elsku mamma, guð gefi þér
styrk í sorginni.
Elsku pabbi, með þakklæti í
hjarta og góðar minningar kveðj-
um við þig. Guð geymi þig.
Vort líf er svo ríkt af ljóssins þrá,
að lokkar oss himins sólarbrá,
og húmið hlýtur að dvína,
er hrynjandi geislar skína.
Vor sál er svo rík af trausti og trú
að trauðla mun bregðast huggun sú.
Þó ævin sem elding þjóti,
guðs eilífð blasir oss móti.
Vort hjarta er svo ríkt af hreinni ást,
að hugir í gegnum dauðann sjást.
vík á Miðnesi.
Börn Sigríðar og
Friðbjöras eru: 1)
Sverrir Bergmann,
f. 1951, kvæntur
Steinunni M. Bene-
diktsdóttur. Þeirra
dóttir er Þórdís,
sambýlismaður
hennar er Magnús
Hafliðason, þeirra
sonur er Atli Freyr.
Sonur Sverris og
Guðbjargar Þór-
hallsdóttur er Þór-
hallur, unnusta hans
er Hildur Hjálmars-
dóttir. 2) Ingibjörg Vigdís, f.
1954, sambýlismaður hennar er
Niels Davidsen. Þeirra synir eru
Friðbjöra Naman og Sigurður
Samik, unnusta hans er Kristín
Birta Jónsdóttir og þeirra dóttir
er Sesselja Sól.
Árið 1950 hóf Friðbjörn leigu-
bílaakstur á Hreyfli og vann við
það meðan heilsa og aldur
leyfði, að undanskildum
nokkrum árum sem hann var
vélstjóri á fiskibátum.
títför Friðbjöms verður gerð
frá Digraneskirlgu í Kópavogi á
morgun, mánudaginn 21. júní,
og hefst athöfnin klukkan 15.
- Vér hverfum og höldum víðar,
en hittumst þó aftur síðar.
(Jóhannes úr Kötlum).
Ingibjörg, Niels, Sigurður
og Friðbjörn
Síminn hringdi hér úti í Kaup-
mannahöfn á mánudagskvöldið.
„Hæ, Dísa mín, þetta er pabbi
þinn.“ Um leið og ég heyrði þessi
orð þá vissi ég að eitthvað hafði
komið fyrir, og það passaði, pabbi
var að segja mér að afi væri dáinn.
Eftir símtalið fór ég að rifja upp
minningar um afa. Mínar íyrstu
minningar um afa eru frá því þegar
ég var lítil stelpa og var í heimsókn í
Hlíðai-hvamminum og afi var að
spila á harmonikuna og ég syngj-
andi hástöfum með. Hann vildi allt
fyrir mann gera. Þegar ég gisti hjá
ömmu og afa og vildi ekki sofa alein
þá færði afi sig svo ég gæti sofið hjá
ömmu, og maður fór aldrei tóm-
hentur eftir heimsókn hjá ömmu og
afa, hvort sem var í Hlíðarhvamm-
inn eða Fuglavík. Þegar ég var í
ballet og vantaði far inn í Reykjavík
þá kom afi suður í Hafnarfjörð til að
keyra mig inn í Reykjavík. Ég gæti
haldið endalaust áfram því alltaf var
afi boðinn og búinn að aðstoða. Eft-
ir að Atli Freyr fæddist og ég þurfti
að fara að vinna þá komu amma og
afi enn og aftur til hjálpar og
pössuðu Atla Frey alveg þangað til
við fluttum til Danmerkur. Ekki er
nema mánuður síðan Atli Freyr var
í heimsókn á Islandi og afi snerist í
kringum hann og passaði eins og
heilsa hans leyfði.
Elsku amma, þó missir okkar sé
mikill er missir þinn mestur og ég
bið Guð að styrkja þig í sorginni.
Elsku afi, nú þegar ég kveð þig í
síðasta sinn þakka ég þér allar góðu
stimdimar og hjálpsemi þína. Minn-
ingin um þig mun alltaf lifa. Guð
blessi þig.
Þórdís.
Kæri tengdapabbi, þú varst
aldrei gefinn fyrir skrúðmælgi. Því
verður kveðja mín til þín laus við
allt slíkt.
Dulur og fámáll varstu en trúr og
traustur þínum. Kletturinn í hafinu.
Þrjátíu ár eru liðin síðan ég kom
iyrst inn á heimili ykkar hjónanna,
17 ára unglingur, kærastan hans
Sverris. Vel var tekið á móti mér,
eins og öllum vinum systkinanna.
Því var oft glatt á hjalla þegar stórir
vinahópamir mættust á heimilinu.
Ég gerði mér ekki grein íyrir því
fyrr en mörgum ámm seinna hvaða
sérstöðu ég hafði í þínum huga en
það sýndi sig best í að einu skiptin
sem þú lánaðir Sverri bílinn þinn,
atvinnutækið sem þú notaðir tii að
sjá fjölskyldunni farborða, var ein-
göngu svo hann gæti keyrt suður í
Hafnarfjörð og heimsótt mig og það
löngu áður en ljóst var að ég var
komin til að vera í þessari fjöl-
skyldu.
Þú sinntir fjölskyldunni á þinn
hljóðláta hátt og bamabömin og
bamabamabömin undu hag sínum
vel hjá ykkur enda eftirsótt að
heimsækja Siggu ömmu og Bjössa
afa í Hlíðarhvamminn eða í Fugla-
vík og þig munaði ekki um að bæta
systurdóttur minni í hópinn þegar
hún vildi fá að eiga þig að sem
Bjössa afa.
Kallið kom stutt og snöggt í
Fuglavík þar sem þú undir þér best.
Farþúífriði,
friður guðs þig blessi
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með guði,
Guð þér nú fylgi,
Hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V.Briem)
Blessuð sé minning þín, Bjössi
minn.
Þín tengdadóttir,
Steinunn.
FRIÐBJORN
JÓSAFA TSSON
SVANHVÍT
PÁLSDÓTTIR
+ Svanhvít Páls-
dóttir fæddist í
Reykjavfk 20. júní
1936. Hún lést á
Sjúkrahúsinu á
Akranesi 26. októ-
ber síðastliðinn og
fór útför hennar
fram frá Akranes-
kirkju 3. nóvember.
Ég vildi heldur óska
vinkonu minni til ham-
ingju með afmælið í
gegnum síma en skrifa
minningargrein.
Svana var mamman í götunni
fyrir okkur sem áttum okkar
mömmur fyrir sunnan. Hún hafði
alltaf tíma og ráð í handraðanum og
stappaði í mann stálinu ef allt gekk
ekki eins og maður vildi.
Hún var alltaf glöð og sá björtu
hliðarnar á öllum málum. Hún var
mjög trúuð og taldi víst að vera
okkar hér á jörð væri ákveðið verk-
efni sem okkur væri ætlað að vinna.
Henni verður örugglega umbunað
iyrir vei unnin störf. Svana var
ákaflega lífsreynd
kona og átti oftsinnis
erfitt á sinni ævi, s.s.
að missa bam og svo
margt fleira sem ekki
verður talið upp hér.
Samt gat hún alltaf
hlustað og gert að
gamni sínu. Hún hló
oft og sagðist ekld
skilja af hveiju hún
væri að biðja mig að
hjálpa sér í búðinni því
ég væri alveg eins og
fíll í glerhúsi, ég setti
jafn mikið niður eins
og ég setti upp, en samt bað hún
mig því hún mat viljann íyrir verk-
ið.
Sonur minn yngsti spurði mig á
dögunum hvort Svana væri ekki hjá
okkur fyrst hún væri engill núna.
Ég jánkaði því, þá sagðist hann
geta sofnað sjálfur því hún myndi
passa hann. Svönu er sárt saknað,
ég við biðja Guð að styrkja Ragga
og alla aðstandendur í sorginni um
leið og ég votta þeim samúð mína.
Díana Ólafsdóttir.
Skila-
frestur
minning-
argreina
EIGI minningargrein að
birtast á útfarardegi (eða í
sunnudagsblaði ef útför er
á mánudegi), er skilafrest-
ur sem hér segir: í sunnu-
dags- og þriðjudagsblað
þarf grein að berast fyrir
hádegi á föstudag. í mið-
vikudags-, fímmtudags-,
föstudags- og laugardags-
blað þarf greinin að berast
fyrir hádegi tveimur virk-
um dögum fyrir birtingar-
dag. Berist grein eftir að
skilafrestur er útrunninn
eða eftir að útfór hefur
farið fram, er ekki unnt að
lofa ákveðnum birtingar-
degi. Þar sem pláss er
takmarkað getur þurft að
fresta birtingu greina,
enda þótt þær berist innan
hins tiltekna skilafrests.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og iangafi,
GUÐJÓN BÁRÐARSON
frá Hemru,
Fossheiði 48,
Selfossi,
lést á heimili sínu fimmtudaginn 17. júní.
Björg Jónína Kristjánsdóttir,
Brynrún Bára Guðjónsdóttir,
Katrín Sigrún Guðjónsdóttir,
Kristín Guðjónsdóttir, Rúnar Viktorsson,
Þórir Páll Guðjónsson, Helga Karlsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
JÓN SIGURÐSSON,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánu-
daginn 21. júní kl. 13.30.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem
vildu minnast hans, er bent á að láta Hjarta-
vernd njóta þess. Sími 581 3755.
Ólöf Jóna Sigurgeirsdóttir,
Óiafur Jón Jónsson, Gerður Petrea Guðlaugsdóttir,
Ásgeir Jónsson,
Elísa Guðlaug Jónsdóttir,
Guðjón Bjarki Ólafsson,
Ásgeir Ingi Valtýsson,
Valtýr Þórisson,
Jón Axel Ólafsson,
Vignir Daði Valtýsson.
+
Hjartanlegar þakkir fyrir hlýhug og vináttu við
andiát og jarðarför elskulegrar móður, systur
og mágkonu,
GUÐRÚNAR ÁRNADÓTTUR,
sem lést mánudaginn 7. júní.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki elli- og
hjúkrunarheimilisins Grundar og Landspítalans
fyrir frábæra umönnun og alúð undanfarin ár.
Guðmundur S. Alfreðsson,
Guðfinna Árnadóttir, Atli Örn Jensen,
Guðmundur Árnason, Elín Sæbjörnsdóttir,
Ágústa Birna Árnadóttir, Þorsteinn Eggertsson,
Adda Gerður Árnadóttir, Börkur Thoroddsen.
+
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN THORLACIUS
fyrrv. prentsmiðjustjóri,
áður til heimilis
á Kvisthaga 21,
Reykjavík,
er iést mánudaginn 14. júní, verður jarðsung-
inn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 22. júní
kl. 10.30.
Edda Thorlacius,
Árni Ólafur Thorlacius, Magnþóra Magnúsdóttir,
Anna Thorlacius, Guðmundur G. Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
INGIBJÖRG BRYNDÍS EIRÍKSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir sunnudaginn
6. júní sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þórdís Jóhannesdóttir, Hilmar Steingrímsson
og fjölskylda.