Morgunblaðið - 20.06.1999, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ 1999 47
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Sumarkveðja
frá Hallgríms-
kirkju
Hvað þú, minn Guð, ert góður,
þú gafst mér líf og skyn
og fóður minn og móður
og margan góðan vin,
og líka ljós og yl
og skjól og fót og fæði
og fleiri dýrmæt gæði,
já, allt sem á ég til.
(Valdimar Briem.)
ÞEGAR sól hækkar á lofti og við
fögnum sumri er gott að taka undir
orð Valdimars Briem í þakklæti til
Guðs sem allt gefur. Þakkargjörð
er orð sem kannski best lýsir því
sem framundan er í Hallgríms-
kirkju í sumar, og það er sannar-
lega ástæða til að þakka og gleðjast
yfír þeim fjölmörgu sem á liðnum
vetri hafa lagt safnaðarstarfinu lið
með einum eða öðrum hætti. Gleðj-
ast yfír blessun Guðs sem hvilt hef-
ur yfír því fjölbreytta starfi sem
fyllir hús hans í viku hverri. Og enn
er hátíð.
A Jónsmessunótt, 23. júní, verður
miðnæturmessa sem hefst klukkan
23. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson
mun þjóna fyrir altari og flytja hug-
leiðingu, Mótettukórinn leiðir safn-
aðarsönginn undir stjórn Harðar
Áskelssonar organista og Kanga-
kvartettinn flytur tvö lög auk þess
sem Gaile Sokka, ung kona frá Kon-
só í Eþíópíu, les 23. Davíðssálm sem
kveðju frá söfnuði íslenska kristni-
boðsins í Konsó.
Fastir liðir safnaðarstarfsins í
sumar eru messur alla sunnudaga
klukkan 11, fyrirbænastundir á
þriðjudögum klukkan 10.30 og org-
eltónlist í hádeginu á fimmtudögum
og laugardögum frá 12-12.30 í
tengslum við Kirkjulistahátíð 1999.
Kirkjulistahátíð var sett í Hall-
grímskirkju sunnudaginn 6. júni og
stendur hún yfir til 29. ágúst, en á
hverju sunnudagskvöldi eru tónleik-
ar og í forkirkjunni er myndlistar-
sýning Georgs Guðna.
Sumarið er tími vaxtar og þroska,
þann tíma viljum við nota vel í Hall-
grímskirkju og opna dyr helgidóms-
ins fyrir þeim sem vilja leita hans.
Ollum er velkomið að taka þátt í
safnaðarstarfi Hallgrímskirkju og
kirkjan er opin til bæna eða kyrrð-
arstunda alla daga frá 9-18.
Frekari upplýsingar um dagskrá
sumarsins eða starfsfólk má finna á
heimasíðu Hallgrímskirkju, en slóð-
in er: http:/Avww.hallgrimskirkja.is
Gleðilegt sumar.
Jóhann Hjaltdal Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri
Hallgrímskirkju.
Friðrikskapella. Kyi'rðarstund í há-
degi á morgun, mánudag. Léttur
málsverður í gamla félagsheimilinu
að stundinni lokinni.
Fella- og Hólakirkja. Bænastund
og fyrirbænir mánudaga kl. 18.
Tekið á móti bænaefnum í kirkj-
unni.
Grafarvogskirkja. Bænahópur kl.
20. Tekið er við bænarefnum í kirkj-
unni alla daga frá kl. 9-17 í síma
587 9070.
Hal'narfjarðarkirkja. Æskulýðs-
starf, yngri deild, kl. 20.30-22 í Há-
sölum.
Krossinn. Almenn samkoma að
Hlíðasmára 5 kl. 16.30. Allir vel-
komnir.
Hvammstangakirkja. TTT-starf
(10-12 ára) mánudag kl. 18. Æsku-
lýðsfundur á prestssetrinu mánu-
dagskvöld kl. 20.30.
Fríkirkjan Vegurinn. Samkoma kl.
20. Lofgjörð, prédikun og fyrirbæn.
Komum saman í húsi drottins. Allir
velkomnir.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía.
Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður
Hreinn Bernharðsson. Almenn
samkoma kl. 20. Lofgjörðarhópur-
inn syngur. Vitnisburðir frá ungu
fólki sem er að koma af unglinga-
móti. Ath. breyttan samkomutíma.
Til leigu á Skúlagötu
Nýtt verslunarhúsnæði við miðbæinn. Um er að ræða tvö aðskilin
rými á jarðhæð, 260 m2 og 200 m2 sem leigjast hvort í sínu lagi.
Rýmin eru laus til afhendingar nú þegar, tilbúin til innréttinga með
gólfefnum að vali leigjanda. Húsnæðinu verður skilað með
fullfrágenginni sameign og lóð. Frábært húsnæði fyrir þá sem vilja
nýtt húsnæði í hjarta bæjarins. Leiguverð tilboð.
IP
Sbeigi
SKIPHOLTI 50B,
EIGULISTINN SÍMI511 1600.’
Guðmundur Bjöm Steinþórsson
lögg. fiisteignasali
Pálmi B. Almarsson
lögg. fásteignasali
Andrés Pétur Rúnarsson
sölumaður
igústaHauksdóttir
ritaii
h r u m i / / i h a u n e n tl a o
MRRRWÍHIb
Vegmúla 2 • Sími 533-3344 -Fax 533-3345
OPIÐ HÚS I DAG, SUNNUDAG. MILLl KL. 14 OG 16
Á EFTIRTÖLDUM EIGNUM:
Maríubakki 8,
3. hæð t.v.
Falleg 100 fm 4ra herb. íbúð með
parketi, 3 svherb. í góðu fjöleigna-
húsi. íbúðin er öll í toppstandi og
með óviðjafnanlegu útsýni. María
og Friðrik taka vel á móti ykkur.
Veghús 27A 2. hæð t.v.
Rúmgóð 3ja herb. 90 fm íbúð ásamt
bílskúr í góðu húsi. Parket og flísar á
öllu. George tekur á móti ykkur. Verð
10,2 millj.
Engihjalli 25, 6. hæð
(efsta)
Virkilega falleg 4ra herb. 97,4 fm íbúð
í góðu fjöibýli. 3 svherb., góð stofa,
parket, frábært útsýni til 3ja átta.
Þvottahús á hæð. Verð tilboð. Heimir
og Stefanía taka á móti ykkur.
.....—....... "
Sunnudaginn 20. júní frá kl.
að Skipholti 9
Eigum eftir örfáar nýjar glæsilegar íbúðir á besta stað í Reykjavík.
/
Ibúðirnar afhendast fullbúnar með fallegum innréttingum,
og vönduðum heimilistækjum, án gólfefna. Lokaður inngarður.
Til afhendingar nú þegar.
Allt frá stúdíóíbúðum
til 4ra herbergja lúxusíbúða
If
Byggingaraðili:
HARRI ehf
Suðurlandsbraut 16*3. hæð • 108 Reykjavík
sími 588 8787 • fax 588 8780