Morgunblaðið - 22.06.1999, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Nýtt þjóð-
leikhúsráð
Menntamálaráðherra hefur
skipað þjóðleikhúsráð; formað-
ur er Matthías Johannessen rit-
stjóri, Haraldur Ólafsson pró-
fessor, varaformaður, og Krist-
ín Astgeirsdóttir, fyrrv. alþing-
ismaður, skipuð án tilnefningar,
Jóhann Sigurðarson leikari, til-
nefndur af Félagi íslenskra
leikara, og Þórhallur Sigurðs-
son leikstjóri, tilnefndur af Fé-
lagi leikstjóra á Islandi.
Varamenn eru Sigrún
Hjálmtýsdóttir söngkona, Jón
Karl Helgason bókmenntafræð-
ingur og Hjörtur Pálsson skáld,
skipuð án tilnefningar, Guð-
mundur Ólafsson leikari, til-
nefndur af Félagi íslenskra
leikara, og Viðar Eggertsson
leikstjóri, tilnefndur af Félagi
leikstjóra á Islandi.
Samkvæmt nýju lögum er
þjóðleikhúsráð skipað fímm
mönnum. Félag íslenskra leik-
ara tilnefnir einn fulltrúa og
Félag leikstjóra á Islandi annan
en þrír eru skipaðir án tilnefn-
ingar. Varamenn skulu skipaðir
á sama hátt. Ráðherra skipar
formann og varaformann úr
hópi ráðsmanna. Ráðið er skip-
að til fjögurra ára í senn, þó
þannig að starfstími þeirra full-
trúa sem skipaðir eru án til-
nefningar takmarkast við emb-
ættistíma ráðherrans sitji hann
skemur.
1 i
Fréttir á Netinu /§> mbl.is ALLTAf= GITTHVAÐ A/ÝT7
Vefsýningar
Gallerís
Foldar
GALLERÍ Fold hefur opnað vef-
svæðið sitt, http://www.artgall-
eryfold.com. Þar er að finna upp-
lýsingar um listamenn, sýningar
og uppboð sem galleríið stendur
fyrir.
Listamaður mánaðarins á vefsíð-
um gallerísins er Haraldur Bilson.
Hann er fæddur í Reykjavík 1948
en fluttist snemma til Bretlands.
Hann hefur dvalist í Asíu, Ástraliu
og í Evrópu við listskoðun sína og
frá árinu 1969 hefur hann sýnt
verk sín í fjölmörgum löndum í öll-
um heimsálfum að Afríku undan-
skilinni, segir í fréttatilkynningu.
Haraldur sýnir 31 olíumálverk sem
hann hefur unnið á þessu ári og því
síðasta.
Lýður Sigurðsson sýnir nú í
sameiginlegu sýningarsvæði Gall-
erís Foldar og Kringlunnar mál-
verk, húsgögn og skálar unnar í
steinsteypu. Ennfremur er sýning
hans á vefnum.
Sýningu Lýðs lýkur í dag,
þriðjudag, í Kringlunni en verður
áfram aðgengileg á vefnum.
SUMARFERÐIR '99
Sunnudaginn 4. júlí nk. mun
Morgunblaðið gefa út 52 síðna
ferðahandbók í þægilegu og
handhægu broti, smáformi.
( handbókinni er að finna áhugaverð-
ar upplýsingar fyrir íslenska ferðalanga
og til nánari glöggvunar verður birt
stórt íslandskort þar sem vísað er á
upplýsinga- og þjónustumiðstöðvar
á landsbyggðinni. Einnig verður fjallað
um ýmsar skemmtanir og menningar-
viðburði sem eiga sér stað um land
allt í sumar.
Meðal efnis:
• Ferðir • Gisting • Siglingar • Hestaferðir • Jöklaferðir • Bátaferðir • Gönguferðir • Tjaldsvæði
• Sundstaðir* Fuglaskoðun • Hvalaskoðun • Krossgátur* O.fl.
Skilafrestur auglýsingapantana er til kl. 12 fimmtudaginn 24. júní
Allar nánari upplýsingar veita sölu- og þjónustufulltrúar á auglýsingadeild
í síma 569 1111.
AUGLÝSINGADEILD
Sími 569 1111 • Bréfasími 569 1110 • Netfang: augl@mbl.is
Dreifing í rúmlega 60.000 þúsund eintökum.
Áskrifendur Morgunblaðsins fá ferðahandbókina með Morgunblaðinu en auk þess verður henni dreift á
helstu lausasölustaði og upplýsingamiðstöðvar um land allt þar sem hún mun liggja frammi.
Gallerí Garður
Morgunblaðið/Sig. Fannar.
GRÉTAR Hjaltason sýnir í Gallerí Garði á Selfossi.
Grétar Hjaltason
í sumarskapi
Selfossi. Morgunblaðið.
HINN 11. júní hófst sýning Grét-
ars Hjaltasonar í Gallerí Garði,
Miðgarði, Selfossi. Myndirnar á
sýningunni eru olíumálverk frá
síðustu þremur árum. Grétar er
borinn og barnfæddur Selfyss-
ingur og er að mestu sjálfmennt-
aður í dráttlist. Grétar hefur sýnt
víða, m.a. í Borgarnesi, Hvera-
gerði, ísafirði og á Selfossi.
Það er stefna Gallerís Garðs að
hafa sýningamar fjölbreyttar og
veita sem flestum tækifæri á að
sýna list sína. Sýningar leikskóla-
barna vöktu athygli en sýning á
verkum þeirra fór fram á dögun-
um. Gallerí Garður nýtur æ meiri
vinsælda og er nánast fullbókað
út þetta ár. Afgreiðslutími Galler-
ís Garðs er á virkum dögum frá
kl. 9-18 og laugardaga kl. 10-13.
Sýningu Grétars lýkur 14. júlí.
Nýjar bækur
• „A PIECE ofHorse Liver,
Myth, Ritual and Folklore in Old
Icelandic Sources," er safn rít-
gerða eftir Jón Hnefil Aðalsteins-
son prófessor emerítus í þjóðfræði.
I bókinni eru átta fræðilegar
ritgerðir, þar af hafa sjö upphaf-
lega verið fluttar sem fyrirlestrar
við erlenda háskóla eða á ráðstefn-
um.
Fyrirlestrarnir voru fluttir á síð-
ustu tveimur áratugum og hafa
birst áður í ýmsum vísindatímarit-
um og ráðstefnuritum víðsvegar.
Nú hafa þeir allir verið endurskoð-
aðir og samtengdir og nýjum rann-
sóknum aukið við þar sem um slíkt
var að ræða. I tilefni útgáfunnar
hefur einnig verið ritaður sérstak-
ur inngangur auk formála. Ritgerð-
imar eru á ensku, en hverri þeirra
fylgir ítarlegt
ágrip á íslensku.
í hverri ritgerð
er tekið fyrir sér-
stakt rannsóknar-
verkefni sem heiti
þeirra gefa að
nokkru leyti til
kynna, en þau
eru: Hræsvelgur í
nýju ljósi; Bót og
þing; Biti af hrosslifur og landslög
staðfest; Helgispjöll í hjónarekkju;
Goðsögur og helgisiðir í Glúmu og
Hrafnkötlu; Jötnar og álfar í goð-
sögum og þjóðsögum; Glíman við
drauginn; Draugurinn sem glímdi
við Guðmund.
Útgefandi er Háskólaútgáfan.
Bókin er 187 bls., kilja, og kostar
kr. 2.900.
Voyager LX
kerra m/bakka
02 svuntu
Úrvalid er
hy á okkur
kr. 14
S I M I 5~5 3 3 3 6 6
G L
Æ S I B Æ