Morgunblaðið - 11.07.1999, Page 12
12 SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
fyrir að glæpurinn hafí verið framinn
á þremur stöðum,“ sagði Kerr.
Er starfshópur FBI kom á vett-
vang blasti við ófögur sjón. Er þetta
viðtal var tekið hafði Kerr ekki haft
tækifæri til að ræða einslega við
hópinn, en af samtölum hans símleið-
is að dæma sagði hann það hafa tek-
ið mjög á taugarnar að sjá alla þessa
eyðileggingu.
„Erfíðast fannst þeim að hafa ætt-
ingja fórnarlambanna á vettvangi
þar sem þeir ræddu við þá um leið
og þeir unnu við uppgröft og rann-
sóknir á líkum fórnarlambanna."
Starf FBI-hópsins líkt og annarra
sérfræðinga sem rannsaka stríðs-
glæpi í Kosovo felst í grundvallarat-
riðum í því að renna stoðum undir
frásagnir vitna af glæpunum.
„I starfínu fólst meðal annars að
fara vandlega yfir hina ýmsu staði
þar sem talið er að stríðsglæpir hafí
verið framdir. Líkamleg sönnunar-
gögn fundust, þ.á m. blóðsýni og
mikil vinna var unnin með líkams-
hluta. Pá grófum við upp sumar
grafír til að geta skorið úr um hver
dánarorsökin hefði verið og til að sjá
hvort samræmi væri á milli þess sem
vitni sögðu og þess sem við svo fund-
um.
Það kom fyrir að misræmis gætti í
frásögnum fólks, en þó ekki að veru-
legu leyti. Til að mynda voru hlutirn-
ir ekki alltaf nákvæmlega þar sem
fólk hafði talið að þá væri að finna.
En er um var að ræða trúverðuga
aðila, eins og fullorðna sem höfðu
einhverja þekkingu á því hvað hafði
gerst, virtist vitnisburðurinn yfirleitt
í samræmi við það sem fannst,“ sagði
Kerr.
011 sönnunargögn sem finnast,
þ.m.t. skrásetning líka, dánarorsaka
og verksummerkja á vettvangi, eru
send til Stríðsglæpadómstólsins. Þó
var hluti af þeim sönnunargögnum
sem FBI-hópurinn safnaði ekki
sendur beint í hendur dómstólsins.
„Með hverjum hóp starfaði rann-
sóknaraðili á vegum Stríðsglæpa-
dómstólsins. Stórum hluta af starfí
okkar lauk í Kosovo og þær upplýs-
ingar sem fengust með þeirri vinnu
hafa verið látnar dómstólnum í té.
Hins vegar hafa þau sönnunargögn,
sem þurfa frekari rannsókna við,
verið send til rannsóknarstofu okkai’
í Washington. Að þeirri vinnu lokinni
munu niðurstöður þeirrar rannsókn-
arvinnu vera sendar til Stríðsglæpa-
dómstólsins," sagði Kerr.
Öryggi í Kosovo lítið
I vikunni varaði yfirmaður banda-
rísku hersveitanna í Pristina, héraðs-
höfuðborg Kosovo, við því að friðar-
gæsluliðum stafaði ógn af serbnesk-
um hersveitum sem enn væru í hér-
aðinu. Kerr sagði starfsfólk sitt ekki
hafa orðið vart við slíkar hindranir,
hvorki af hálfu Serba né liðsmanna
Frelsishers Kosovo, KLA.
„Einu erfiðleikarnir voru bundnir
við að komast á áfangastað. Við höfð-
um áhyggjur af jarðsprengjum og
þvílíku sem finnast í héraðinu og því
fór hópurinn aðeins á staði sem við
höfðum verið fullvissaðir um að
hefðu verið hreinsaðir af jarð-
sprengjum.
Hins vegar má benda á að fjórir
ítalskir hermenn í Djakovica létust
af völdum jarðsprengna á sama tíma
og okkar hópur var þar að störfum.
Þannig að ástandið er ótryggt og ör-
yggisráðstafanir því mikilvægar."
Kerr sagðist telja ólíklegt að FBI
legði fyrir sig rannsóknir líkar þeim
sem fram fara í Kosovo. Ennfremur
sagði hann óvíst hvort annar hópur
yrði sendur aftur til Kosovo til rann-
sókna á stríðsglæpum. „Á þeim tíma
sem starfsmenn okkar voru í hérað-
inu gengu allar birgðirnar til þurrð-
ar, hlutir eins og líkpokar, sótt-
hreinsunarefni og fleira. Þannig að
við hefðum þurft að kalla stafsfólk
okkar til baka hvort eð var.
Sem stendur fara fram viðræður
við Stríðsglæpadómstólinn og sak-
sóknarann í Haag um það hvort FBI
geti orðið að frekara gagni við rann-
sóknir á stríðsglæpum í Kosovo. Lík-
legt er að tveir til þrír starfsmenn
FBI verði sendir til Haag til við-
ræðna um það starf sem við höfum
unnið, hvað sé næsta skrefið, hvern-
ig FBI getur komið best að liði og
hvort aðrir aðilar séu betri til verks-
ins fallnir."
Kerr sagði rannsóknir FBI í
Kosovo vissulega frábrugðnar þeim
sem teldust til hefðbundinna glæpa-
rannsókna. SJÁ BLS. 14
Islendingar á leið til héraðs-
ins í sömu erindagjörðum
Donald Kerr, aðstoðarframkvæmdastjóri
rannsóknardeildar bandarísku alríkislög-
reglunnar, FBI, sagði Hrund Gunnsteins-
dóttur frá starfí FBI í Kosovo, þar sem
starfsmenn á vegum stofnunarinnar
rannsökuðu meinta stríðsglæpi. Stríðs-
glæpadómstóll Sameinuðu þjóðanna hefur
yfírumsjón með stríðsglæparannsókninni
í Kosovo en meðal þeirra ríkja sem leggja
------------------------7-----------—
munu verkinu lið er Island.
EIN umfangsmesta glæpa-
rannsókn sem gerð hefur
verið frá því að seinni heims-
styrjöldinni lauk er nú hafin
í Kosovo. Tugir sérfræðinga streyma
nú til héraðsins til að safna sönnun-
argögnum um meinta stríðsglæpi
sem framdir hafa verið í Kosovo og
rennt geta stoðum undir frásagnir
vitna af þjóðernishreinsunum Serba
í héraðinu.
Það sem alþjóðlegir friðargæslu-
liðar, blaðamenn og hjálparstarfs-
menn komu að er þeir fóru inn í hér-
aðið um miðjan júní var ófagurt.
Heilu þorpin hafa verið lögð í rúst,
lík finnast á víð og dreif, fjöldagrafir,
líkamshlutar, byssukúluhulstur og
fleiri hlutir sem bera ódæðisverkun-
um glöggt vitni.
Hlutverk friðargæslusveita KFOR,
undir stjóm Atlantshafsbandalagsins
(NATO), er að halda lög og reglu í
héraðinu þar til opinberri stjómsýslu
hefur verið komið á. Einnig fellur það
undir verksvið þeirra að hreinsa
Kosovo af jarðsprengjum áður en
flóttafólkið snýr til baka og uppgröft-
ur og rannsóknarstarf á stríðsglæp-
um hefst.
Stríðsglæpadómstóll Sameinuðu
þjóðanna í málum tengdum fyrrver-
andi Júgóslavíu gaf út ákæm á hend-
ur Slobodan Milosevic, forseta Jú-
góslavíu, og fjómm háttsettum leið-
togum Júgóslavíu 27. maí sl., fyrir
glæpi gegn mannkyni og stríðsglæpi
sem framdir hafa verið í Kosovo. Það
starf sem nú fer fram við rannsóknir
á stríðsglæpum miðast við að finna
haldbærar sannanir fyrir því að leið-
togar Júgóslavíu, með Milosevic í
fararbroddi, hafi gefið hermönnum
skipanir um að fremja ódæðisverkin
í Kosovo, svo að hægt verði að sak-
fella þá.
Upphaflega hafði dómstóllinn
skipulagt rannsóknir á sjö stöðum
þar sem meintir stríðsglæpir vora
framdir en eftir því sem starfinu
vindur fram koma æ fleiri vísbend-
ingar um grimmdarverk í ljós og
vaxandi þörf verður á liðsinni er-
lendra ríkja við rannsóknina.
Ráðgert er að þrír Islendingar
verði sendir til Kosovo á vegum rík-
islögreglustjóra á næstu dögum eða
vikum í þessum sömu erindagjörð-
um. Líklegt er að þeir komi til með
að starfa í samvinnu við hin Norður-
löndin.
Donald Kerr, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri rannsóknardeildar
bandarísku alríkislögreglunnar, FBI,
skipulagði ferð tveggja hópa rann-
sóknarmanna á vegum FBI til
Kosovo til að rannsaka meinta stríðs-
glæpi í héraðinu. Alls voru sendir
þangað 59 starfsmenn 20. júní sl.
Rúmlega þrjátíu þeirra em séríræð-
ingar á borð við réttarlækna, réttar-
meinafræðinga, réttarmannfræðinga
og sérfræðinga sem safna sýnum til
DNA-greiningar. Einnig fóra tækni-
menn lögreglu sem sáu um að safna
sönnunargögnum og varðveita þau til
frekari rannsókna.
Auk þessara manna var með í för
starfsfólk sem sá rannsóknarmönn-
unum fyrir samskiptaleiðum og vann
við tölfræði, auk nokkurra öryggis-
varða.
Flogið var með rannsóknarhópana
í flugvélum á vegum bandaríska
hersins til Makedóníu en þaðan fóru
meðlimir hans ýmist landleiðina eða
með þyrlum með aðföng sín til Dja-
kovica og Pec, í vesturhluta Kosovo,
sem er undir stjórn ítalskra her-
sveita. Eftir að hóparnir komu á
áfangastað vora þeir á eigin ábyrgð
en undir vemd ítölsku hersveitanna.
Verkefninu lauk um síðustu helgi
en þá hélt FBI-hópurinn aftur til
Bandaríkjanna eftir að hafa rann-
sakað átta staði þar sem talið er að
serbneskar hersveitir hafí framið
stríðsglæpi.
Umfangsmikið starf
við sérstakar aðstæður
Kerr var spurður hvort FBI hefði
áður unnið við rannsóknir á stríðs-
glæpum eða hvort þetta væri í fyrsta
sinn sem stofnunin tæki sér slíkt fyr-
ir hendur?
„Starfsfólk á okkar vegum hefur
verið við svipuð störf í Bosníu, en
verkefnið þar var ekki eins um-
fangsmikið og í Kosovo og því vora
mun færri aðilar á vegum FBI
sendir þangað. í Kosovo er starf
FBI að auki einvörðungu bundið við
rannsóknir á meintum stríðsglæp-
um.“
Kerr sagði sérstakar aðstæður
ríkja í Kosovo þar sem opinbert
stjórnkerfi er í lamasessi.
„I Kosovo þurftu starfsmenn okk-
ar að vinna við aðstæður þar sem
engin opinber stjórnsýsla er fyrir
hendi, sem skapar mjög sérstakt
ástand. Löggæslan er öll í höndum
alþjóðlegra hersveita.
Einnig er verkefnið í Kosovo sér-
stakt að því leyti að þar starfa starfs-
menn FBI undir stjórn Stríðsglæpa-
dómstólsins, en ekki yfirstjórnar
FBI eins og venjan er við aðrar
rannsóknir,“ sagði Kerr.
Hóparnir sáu sér sjálfir fyrir mat,
vatni og öðram birgðum meðan á
dvölinni stóð. Samvinna við Atlants-
hafsbandalagið (NATO) og Samein-
uðu þjóðimar vai' af skornum
skammti, að sögn Kerrs, fyrir utan
að ítalskar KFOR-friðargæslusveit-
ir, undir stjórn NATO, sáu til þess
að öryggi þeirra væri tryggt.
í upphafi var starfsmönnum FBI
ætlað að rannsaka tvo staði þar sem
meintir stríðsglæpir hafa verið
framdir. Hins vegar gekk vinna
þeirra mun hraðar fyrir sig en gert
hafði verið ráð fyrir og því fór það
svo að hópurinn rannsakaði alls átta
staði áður en yfir lauk. Sex þessara
staða voru umhverfis Djakovica og
tveir í Pec. Að sögn Kerrs voru það
góðir vitnisburðir Kosovo-Albana
sem dómstóllinn hefur undir hönd-
um sem réð því að starfsmenn FBI
voru sendir til þessara tveggja
bæja.
Kerr sagði sex af þeim átta stöð-
um sem FBI-hópurinn starfaði á
hafa verið svokallaðar margþátta
byggingar (multiple buildings), þar
sem tilteknir stríðsglæpir, s.s.
fjöldamorð, höfðu verið framdir í
fleiri en einni byggingu.
„Til að mynda var einn glæpavett-
vangurinn hús sem hafði m.a. að
geyma biljarðstofu og veitingastað.
Þar höfðu 20 manns verið myrtir en
lík þeirra færð yfir í annað hús hand-
an götunnar þar sem þau voru
brennd. Meðal fórnarlambanna vora
börn.
I húsi við hliðina á byggingunni
voru svo aðrir fjórir drepnir. Þetta
köllum við einn stríðsvettvang, þrátt
BANDARISKUR hermaður stendur vörð um stríðsglæpavettvang í Vlastica í Kosovo þar sem kanadiskir rannsóknarmenn eru að störfum.
Reuters
FBI rannsakar
strlðsglæpi I Kosovo