Morgunblaðið - 11.07.1999, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 11.07.1999, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR Nick Wright, leikmaður Watford, um afmælisleikinn gegn KR í kvöld á Laugardalsvellinum Enski knattspyrnu- maðurinn Nick Wright varð samstundis hetja í borginni Watford er hann skoraði glæsilegt mark fyrir liðið gegn Bolton á Wembley-leik- vanginum 31. maí sl. Björn Ingi Hrafnsson ræddi við kappann á dögunum á Vicarage Road, heimavelli Watford. Mark Wrights á Wembley var raunar sérlega glæsilegt - hnitmiðað bogaskot efst upp í mark- ið við fjærstöngina. Þetta var fyrra mark Watford í 2:0-sigri á Bolton, liðinu sem talið hafði verið sigur- stranglegra svona fyrirfram. En það segir ekki allt og skipulag, barátta og viljinn var meiri meðal lærisveina Grahams Taylors í Watford og öll- um að óvörum var úrvalsdeildarsæt- ið því þeirra. „Eg verð að viðurkenna að það er einstök tilfinning að skora á Wembley," sagði Wright. „Þetta er eitthvað sem ungir drengir láta sig dreyma um og í mínu tilfelli held ég að mér hafi tekist að láta þann draum rætast og kannski rúmlega það. Ég man gjörla eftir markinu en sá knöttinn aldrei fara inn, vissi að- eins að ég hitti knöttinn einstaklega vel og að hann stefndi upp í vinkil- inn. Síðan þyrptust félagarnir allt í einu að mér - brjálaðir af fögnuði og þá vissi ég það.“ Leikmenn Bolton þurftu að bíta í það súra epli að sitja áfram í 1. deildinni, en leikmenn Watford héldu ævintýrinu áfram. Þeir voru nýliðarnir í 1. deild, með þokkalegan leikmannahóp, frábæran knatt- spymustjóra og stjórnarformann (Elton John) sem lét sér annt um gamla félagið og reyndi að styrkja það með einhverjum hætti. A ríflega einu ári hafði þeim tekist að komast upp um tvær deildir og það er ekki lítill árangur í Englandi þar sem mjög sterk lið þurfa að bíða lengi í 1. deildinni eftir sínu tækifæri. Dæmi um það er Ipswich, það fornfræga lið, sem lengst af var í toppbaráttu deildarinnar á síðustu leiktíð, gaf svo eftir undir lokin og missti - enn einu sinni - af sætinu í úrvalsdeild- inni. Ekki aðeins heiðrinum sem því fylgir, heldur og þeim geysilegu fjármunum sem fylgja í kjölfarið. „Nú er tímabilið að hefjast að nýju - við hlökkum allir til,“ sagði Wright við Morgunblaðið á miðviku- dag eftir þriðju æfingu liðsins á nýrri leiktíð. „Raunai- held ég að all- ir íbúar Watford hljóti að vera yfír sig spenntir, lið þeirra hefur aldrei leikið í úrvalsdeildinni eftir að hún var tekin upp og fólk er smám sam- an að gera sér grein fyrir breyting- unni sem verður á umfjöllun um litla liðið þeirra. Við leikmenn munum líka fara að finna fyrir þessu; sviðs- ljósið á okkur verður meira og þótt það verði aldrei eins og á leikmönn- um stærstu liðanna verður þetta mikil breyting fyrir okkur,“ segir hann. Wright segir að aukinn áhuga megi merkja á ýmsan hátt, t.d. hafi ársmiðar selst eins og heitar lumm- ur og allir hlakka til fyrsta leiksins. Það breytir því þó ekki að Watford LEIKMENN Watford á æfingu á KR-vellinum í gærmorgun. Eflaust mikið fiör um af hliðarlínunni, m.a. í úrslita- leiknum eftirminnilega á Wembley. „Þarna hafa helstu eiginleikar Jó- hanns komið í ljós,“ bendir Wright á. „Samkeppni okkai- um stöðu hef- ur ekki komið niður á samskiptum okkar og menn hafa tekið eftir því að Jóhann hefur komið að máli við mig og hvatt mig til dáða og sam- fagnað er vel hefur gengið. Þetta segir mjög mikið, þarna er kominn leikmaður sem hugsar lengra fram á veginn en flestir og ber hag liðsins fyrir brjósti. Hann veit líka að Ta- ylor ætlar honum stórt hlutverk í þessu liði og bíður þess vegna þolin- móður. Hans tími mun koma,“ segir Wright um þennan íslenska félaga sinn. Hann bætir því við að Jóhann sé eiginlega sígilt dæmi um leik- mannasmiðju Grahams Taylors. „Hann er keyptur ungur og nánast óþekktur fyrir lítinn pening. Síðan tekur hann miklum framförum og mun innan tíðar spila sig inn í liðið og verða einn af lykilmönnum þess. Svona ferli tekur yfirleitt tvö til þrjú ár.“ KR-ingarnir sterkir Wright segist hlakka til leiksins gegn KR, enda verði þetta fyrsti leikur Watford síðan maídaginn góða á Wembley. „Nú kitlar alla í tæmar að byrja aftur og kannski hefðum við getað fengið léttara verkefni svona í byrjun, en leik gegn liði sem er í toppsæti deildarinnar í sínu heimalandi og í Evrópukeppn- inni. En það er kannski eins gott að við förum strax að hafa fyrir hlutun- um, ekki veitir af, því stutt er í átök- in í úrvalsdeildinni. Leikurinn gegn KR verður því eflaust mjög erfíður, en við ætlum okkur þó að vinna hann og sýna íslenskum knatt- spyrnuáhugamönnum styrk okkar. Það er skemmtilegt að tveir leik- menn liðsins æfðu með okkur í vetur [Bjarni Þorsteinsson og Sigurður Örn Jónsson] og svo veit ég að tví- burabróðir Arnars Gunnlaugssonar [Bjarki] er í liðinu. Þetta verður því eflaust mikið fjör.“ er lítill klúbbur á enskan mæli- kvarða en þó frægur. „Það er ekki spurning,“ samsinnir Wright. „Við erum taldir líklegir að falla aftur niður í 1. deildina, rétt eins og verið hefur um önnur lið undanfarin ár. Lið eins og Bolton og Nottingham Forest hafa komist upp í úrvals- deildina með glæsilegum hætti - miklum yfirburðum - og samt fallið aftur næsta vor. Við erum hins veg- ar ákveðnir í að sanna tilverurétt okkar, vitum að engar stjörnur eru í liði okkar. Sumir segja að það sé galli, en á móti kemur að það getur einnig verið okkar mesti kostur. I liði okkar vilja allir leika fyrir félag- ið; hugsa fyrst um það og svo um sig sjálfa. Þannig eru allir tilbúnir að leggja á sig mikla vinnu fyrir stjórann og liðið og meiðist einhver eru menn tilbúnir að koma inn í staðinn. Það er mikil samkeppni um stöður í liðinu, en hún eyðileggur alls ekki liðsandann og það er í sjálfu sér merkilegt. Við erum með- vitaðir um að titilinn verður ekki okkar í vor, en við erum jafnframt staðráðnir í að falla ekki og ætlum okkur raunar ekki að vera í fallbar- áttu.“ Spenntur fyrir íslandsferðinni Wright segist spenntur fyrir ís- landsferðinni, enda hafi Jóhann B. Guðmundsson, leikmaður liðsins, sagt sér frá landi og þjóð. „Ferðin verður eflaust mjög skemmtileg, enda leggur stjórinn [Graham Ta- ylor] mikið upp úr ferðum á undir- búninstímabilinu svo leikmenn kynnist og nái að þjappa sér saman. Við höfum áður farið slíkar ferðir, t.d. til ísraels og Japans. Nú förum við til íslands, en einnig írlands og eyjarinnar Manar. Á íslandi hittum við Jóhann fyrir og það verður mjög gaman,“ segir hann. Jóhann er geysilega góður dreng- ur, að mati félaga síns Wrights. „Þetta segi ég ekki um alla, en í til- felli Jóhanns á þetta svo sannarlega við. Hann er frábær knattspyrnu- Morgunblaðið/Jim Smart JÓHANN B. Guðmundsson og Nick Wright. maður, geysilegt efni og er bæði leikinn með knöttinn og getur leikið á menn. Stjórinn hefur ekki leynt því að Jóhann er einn af framtíðar- mönnum liðsins og raunar fékk hann tækifærið í nokkrum leikjum á síð- ustu leiktíð. Hann nýtti tækifærið sérstaklega vel í fyrsta leik; skoraði þá tvö mörk gegn Port Vale. Það er varla hægt að óska sér betri byrjun- ar.“ Þeir Jóhann og Wright hafa að nokkru leyti átt í samkeppni um stöður í liðinu og er Jóhann fékk tækifæri þurfti Wright stundum að bíða fyrir utan. Á seinni hluta tíma- bilsins breyttist það og Jóhann þurfti að fylgjast með félögum sín- Elton John gekkst undir skurðaðgerð ELTON John, popptónlistarmað- urinn frægi og stjórnarformaður Watford, hefur gengist undir skurðaðgerð þar sem gangráði var komið fyrir. Hann segist þjást af minniháttar hj artsl áttartru 11 - unum. Ennfremur segist hann miður sín yfir að hafa þurft að af- lýsa tónleikahaldi vegna þessarar aðgerðar. Elton John, sem er 52 ára, var út- skrifaður af Wellington sjúkra- húsinu í London í gær. „Þetta breytir engu nema því að ég mun fá sérstaka meðhöndlun á flug- völlum“, sagði Elton við blaða- og fréttamenn. „Þetta varð mér hálfgert áfall“, sagði hann enn- fremur áður en hann yfírgaf sjúkrahúsið í glæsivagninum súi- um. „En aðgerðin var einföld og það eina sem mig tekur sárt er að hafa þurft að aflýsa tónleikum." Elton segir aðdáendur sína hafa sýnt sér mikinn stuðning og hann lofar því að allir þeir tón- leikar sem hann þurfti að aflýsa verði haldnir síðar. Sögusagnir voru á kreiki um hugsanlega fs- landsferð söngvarans vegna komu Watford, en umrædd veik- indi komu alveg í veg fyrir það og raunar gat hann heldur ekki verið viðstaddur hinn árlega kynningarfund liðs síns í Watford á miðvikudag. Forsala FORSALA á leik KR og Wat- ford fer fram í KR-heimilinu og Shell-stöðvunum við Birkimel og Suðurströnd. Miðaverð er 1000 kr., 300 kr. fyrir börn 12- 16 ára og frítt fyrir böm yngri en 12 ára.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.