Morgunblaðið - 11.07.1999, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ 1999 1S
_____LISTIR__
LÖGFRÆÐ-
INGUR DEYR
ERLEMDAR
BÆKUR
Spennusaga
EINI GÓÐI LÖGFRÆÐ-
INGURINN.THE ONLY
GOOD LAWYER ..."
eftir Hazel Holt. Pan Books 1999.
234 síður.
HAZEL Holt heitir breskur
sákamálahöíundur sem skrifar
ásamt öðru um áhugaspæjarann
Sheilu Malory er býr eídd mjög
langt frá Oxford og lendir stundum
í því að þurfa að leysa úr áhuga-
verðum og flóknum þrautum. Holt
skrifar mjög í hefð Agöthu Christie-
bókanna dæmigerðar sakamálasög-
ur af ensku landsbyggðinni sem
snúast um leit að morðingja og er
ein nýjasta sagan hennar í flokkn-
um engin undantekning. Hún heitir
Eini góði lögfræðingurinn... eða
„The Only Good Lawyer...“ og kom
nýlega út í vasabroti hjá Pan Books.
Hún segir frá morðinu á leiðinda
lögfræðingi sem árum saman hefur
eitrað út frá sér og hlýtur að því er
virðist makleg málagjöld þegar
hann er stunginn til bana á morgun-
göngu sinni. Hann er gestur Sheilu
Malory þegar atburðurinn gerist og
hún telur það skyldu sína að rann-
saka málið.
Áhugaspæjari
Eini góði lögfræðingurinn ... (lík-
lega á heiti bókarinnar að enda
... er dauður lögfræðingur), er átt-
unda bók Hazel Holt um áhuga-
spæjarann Sheilu Morley. Holt
þessi stundaði nám í Cambridge og
skrifaði á sínum tíma ævisögu Bar-
böru Pym, „A Lot to Ask“, en hún
hefur einnig starfað sem sjón-
varpsgagnrýnandi og greinarhöf-
undur auk þess sem hún skrifar
sakamálasögur. Þess má geta að
sonur hennar er rithöfundurinn
Tom Holt.
Áhugaspæjarinn hennar, Sheila
Morley, er nokkuð roskin kona
sem býr ein ásamt uppkomnum
syni sínum. Hún skrifar bókagagn-
rýni og aðrar greinar í blöð og
tímarit og er gamaldags í háttum;
skrifar enn á ritvél og harðneitar
að fá sér tölvu og sakamál virðast
hennar ær og kýr. Þegar hún rekst
á eitthvað kunnuglegt í rannsókn
sinni má eins vel vera að hún hafi
séð það áður í þætti um Columbo.
Og það er svosem margt kunn-
uglegt við rannsóknina á morðinu
á lögfræðingnum Graham Percy
því það er í rauninni ekki miklum
frumleika fyrir að fara í sögum
Holt. Uppbyggingin, verknaður-
inn, rannsóknin og niðurstaðan,
fer eftir mjög troðnum slóðum
enda á ekkert að koma á óvart,
virðist vera, í sögu sem þessari
nema blálokin. Lögfræðingurinn
Graham er altso myrtur á morgun-
göngu og fljótlega taka grunsemd-
ir Sheilu Morley að beinast að
vinahópi hans úr háskólanum.
Enginn þoldi manninn enda hann
með eindæmum leiðinlegur, léleg-
ur lögfræðingur, drjúgur með sig
án þess að eiga fyrir því, uppá-
þrengjandi mjög, kröfuharður
gestur með afbrigðum og átti til
ómældan skepnuskap.
Svigar
Sheila Morley fer á stúfana þeg-
ar lík hans finnst skammt frá heim-
ili hennar og ræðir við vinina einn
af öðrum og lögregluna og alla þá
sem einhver viðskipti áttu við
manninn og smám saman dregur
hún gömul leyndai-mál fram í dags-
ljósið. Sagan er stutt og lipurlega
skrifuð, persónur dregnar skýrum
dráttum og framvindan þægileg.
Ekki er hún átakamikil eða bráð-
spennandi. Kannski má segja að
hér sé á ferðinni dæmigerð ljúf
sumarlesning fyrir þá sem vílja
ekki láta æsa sig of mikið upp und-
ir sólinni.
Stundum fær maður það á til-
finninguna að Hazel Holt sé að
skrifa fyrir lesendahóp sem orðinn
er fullgleyminn því hún er sífellt að
minna á það sem á undan er komið,
persónur og atburði, með setning-
um í svigum. Þegai- nokkuð er liðið
á söguna og hún t.d. nefnir lög-
reglumanninn Roger Eliot, sem
margoft hefur komið íyrir áður,
bætir hún við í sviga að hann sé
lögreglumaður og vinur aðalper-
sónunnar. Hvaða tUgangi þetta
þjónar skal ósagt látið en hvimleitt
er það (ef satt skal segja).
Arnaldur Indriðason
Orgeltónleikar í
Seyðisfjarðarkirkju
NÆSTI flytjandi í tónleikaröð-
inni „Bláa kirkjan", miðviku-
dagskvöldið 14. júlí, kl. 20.30 í
Seyðisfjarðarkirkju, er Christi-
an-Markus Raiser, orgelleikari
frá Karlsruhe í Þýskalandi. Á
efnisskránni er tónlist t.d. eftir
Thiele, C.P.E. Bach, J.S. Bach,
Rinck, Merkel og Mendelssohn-
Bartholdy, „Flöten-Concert fiir
die OrgeI“, op. 55 eftir Johann
Rinck, og „Variationen iiber ein
Thema von Beethoven, F-Dur,
op. 45“ eftir Gustav Merkel.
Christian-Markus fæddist ár-
ið 1962 í Eschental og stundaði
nám í tónlist við tónlistarhá-
skóla í Stuttgart og Trossingen
frá 1982. Kennarar hans í org-
elleik voru Zsigmond Szat-
hmary, Gerd Witte og Jon
Laukvik, í sembalundirleik
Helga Kirwald og Kenneth Gil-
bert; píanókennarar voru Rein-
hard Beeker og Wan Ing Ong
og hljómsveit og kórstjórn
kenndu Dieter Kurz og Man-
fred Schreier. Raiser sótti
einnig námskeið l\já Marie-
Claire Alain, Daniel Roth, Ton
Koopman, Michael Radulescu,
Oliver Latry, Wolfgang Seifen
og Petr Eben.
Hann var frá 1986-1991 kór-
stjóri og organisti við Evang-
elische Stadtkirclie í Renn-
ingen, og árið 1991 er hann
kórsljóri og organisti við Ev.
Stadtkirche í Stuttgart-
Untertiirkheim. í dag starfar
Reiser við Ev. Stadtkirclie í
Karlsruhe. Árið 1990 lauk
hann meistaragráðuprófi í
orgelleik. Hann er stjórnandi
óratoríu- og a cappella-kórs í
Stuttgart, gaf út þrjár geisla-
plötur um orgelleik, hélt org-
eltónleika í Þýskalandi, Nor-
egi, Frakklandi, Danmörku,
Sviss og Italíu og er eftirsóttur
einleikari á bæði orgel og
sembal.
Aðgangseyrir er 500 kr.
Ókeypis er fyrir sex ára og
yngri. Tónleikaröðin „Bláa
kirkjan sumartónleikar“ er öll
miðvikudagskvöld í sumar kl.
20.30 í kirkjunni á Seyðisfírði.
íiMíé
Listaverð kr. 105.242,
MEÐAN BIRGÐIR ENDASTl
Scndístyrkur
eyksi í 15Wmeð
magnara i
FLAGGSKIPIÐ FRÁ BENEFON
Benefon ► Vegur aðeins 240 g
Spica ► Rafhlaðan endist
allt að 5 daga í bið
► Valmyndakerfi á íslensku
► Úrval aukabúnaðar
Benefon
Delta
► Vegur3Sog
► Rafhlaðan endist allt
að 4 daga í bið eða
2,s klst. í notkun
Listaverð kr. 52.611,-
Tilboðsverð kr. 2<}.<)80,-
MEÐAN BIRGÐIR ENDASTI
Listaverð kr. 78.926,-
Tilboðsverð kr. 59980,-
MEÐAN BIRGÐIR ENDASTI
Benefon
Sigma
Vegur2g8g
Rafhlaðan endist allt
að 5 daga í bið eða
2,5 klst. í notkun
► Valmyndakerfi á íslensku
Ldrtgdraegoi
0% öryggi
meö hágæða Benefon
ÍVIIVIT farsímum
EBEMFMI^ yS"
SÍMINN
Ármúli 27 • Kringlan • Landssímahúsið v/Austurvöll • Síminn Internet
ísafjörður • Sauðárkrókur • Akureyri • Egilsstaðir • Selfoss • Reykjanesbær
og á öllum afgreiðslustöðum íslandspósts.