Morgunblaðið - 11.07.1999, Page 30

Morgunblaðið - 11.07.1999, Page 30
30 SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ 1999 SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ INNLENT Morgunblaðið/pþ Súlnagöng yfir Flóku Bor^arQöröur. Morgunblaðið. NYLEGA er lokið við brúar- smíð yfir Flókadalsá í Borgar- firði. Svo sem sjá má er nýja brúin miklu hærri en sú gamla og hvílir hún á háum súlum þannig að um eins konar súlna- göng er að ræða því ekki er lokið við að fylla að brúnni. Verklok við hinn nýja veg frá Hnakkatjarnarlæk að Klepp- járnsreykjum eru áætluð í októ- ber nk. Aðalfundur Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða hf. fyrir árið 1998 Aukin áhersla á mannlíf í breið- um skilningi ísafirði. Morgunbiaðið. HJA Atvinnuþróunarfélagi Vest- . fjarða hf. einkenndist starfsárið 1998 af auknum umsvifum. Gerðir voru nýir samningar við Byggða- stofnun um aukin rekstrarframlög samhliða yfirtöku á hluta af starf- semi stofnunarinnar á Vestfjörðum. A síðasta sumri hélt félagið atvinnu- vegasýningu á ísafirði. Félagið skrifaði undir viljayfirlýsingu um leigu á húsnæði í Þróunarsetri Vest- fjarða við Arnagötu á Isafirði og fluttist þar inn fyrir skömmu. Aðalfundur félagsins var haldinn sl. laugardag í hinum nýju húsa- kynnum. I ársskýrslu stjórnar seg- ir, að óhætt sé að fullyrða að At- vinnuþróunarfélag Vestfjarða hf. sé orðið sýnilegt afl í atvinnulífi og ný- sköpun á Vestfjörðum. Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða hf. var stofnað í árslok 1996. Eig- endur þess eru Byggðastofnun (20%), Fjórðungssamband Vestfírð- inga (18%), Atkonur - sjálfseignar- stofnun (15%) og fyrirtæki og ein- staklingar (47%). Hlutafé er sex milljónir króna og eignir alls um tíu milljónir króna. Lítilsháttar rekstr- artap varð á síðasta ári eða rúmlega 42 þúsund króna, en rekstrartekjur ársins voru um tuttugu milljónir. Starfsmenn félagsins hafa verið með fasta viðverutíma utan Isa- fjarðar. Miðað er við að vera einu sinni í mánuði í Strandasýslu og í Vestur-Barðastrandarsýslu og þrisvar á ári á Reykhólum. Það fyr- irkomulag hefur reynst vel og til stendur að koma einnig upp fastri viðveru í Bolungarvík. Einnig verð- ur breyting á viðveru í Vestur- Barðastrandarsýslu með tilkomu starfsmanns með aðsetur þar. Unnið að mörgum verkefnum Fastráðnir starfsmenn eru fimm: Aðalsteinn Oskarsson, fram- kvæmdastjóri og atvinnuráðgjafi; Dagný Sveinbjömsdóttir, landfræð- ingur; Dorothee Lubecki, ferða- málafulltrúi; Einar Snorri Magnús- *tson, markaðsráðgjafi; og Guðberg- ur Þorvaldsson, atvinnuráðgjafí í Vestur-Barðastrandarsýslu. Að auki hefur fólk verið ráðið tíma- bundið í ýmis sérverkefni. A liðnu ári keypti Atvinnuþróun- arfélagið með styrk frá Byggða- stofnun fjarfundabúnað sem settur 'var upp bæði á ísafirði og Patreks- 'firði. Varðandi horfur á starfsárinu 1999 segir m.a. í skýrslu stjómar: „Almennt mun félagið í auknum mæli taka að sér verkefnisstjóm í stærri verkefnum í samvinnu við sveitarfélögin á svæðinu eða samtök íbúa. (...] Onnur verkefni með Isa- fjarðarbæ em m.a. markaðssetning sveitarfélagsins sem viðkomustaðar fyrir skemmtiferðaskip og ráðgjöf í kynningarmálum bæjarins. í Bol- ungarvík hefur Framfarafélag Bol- ungarvíkur gert samning við félagið um leit að nýjum verkefnum hjá starfandi fyrirtækjum í Bolungarvík. Aframhald verður á verkefni félags- ins og Vesturbyggðar og Tálkna- fjarðarhrepps um starf atvinnuráð- gjafa sem staðsettur er á svæðinu. A Reykhólum mun félagið vinna á ár- inu verkefni um stefhumótun í ferða- málum. I Strandasýslu hafa sveitar- félögin við Steingrímsfjörð lýst áhuga á að vinna að stefnumótun í atvinnumálum svæðisins og starfi sérstaks atvinnuráðgjafa." Hreinn Sigmarsson, fram- kvæmdastjóri Fjárfestingarfélags Austurlands, kynnti á aðalfundinum stofnun og starfsemi félags síns vegna fyrirhugaðrar stofnunar Eignarhaldsfélags Vestfjarða. Að erindinu loknu svaraði hann fyrir- spumum fundarmanna. Ný sfjóra Eftir aðalfundinn á laugardag er aðalstjóm þannig skipuð: Haukur Már Sigurðarson, Patreksfirði, Halldór Halldórsson, ísafirði, Guð- rún Stella Gissurardóttir, Hanhóli í Syðridal í Bolungarvík, Aslaug Al- freðsdóttir, Isafirði, Asgeir Þór Jónsson, Bolungarvfk, Bjami Ó. Halldórsson, Reykhólum, og Agúst Gíslason, Isafirði. Á fundinum lét Sigurður Jónsson á Isafírði af stjómarformennsku og tók sæti í varastjóm og vom honum þökkuð störfin. Sigurður ávarpaði fundinn og lýsti m.a. þeirri skoðun sinni, að vestfirskt fjárfestingarfé- lag væri forgangsverkefni og mikil- vægt væri að ná hingað áhættufjár- magni. Einnig taldi hann æskilegt að félagið ætti í fóram sínum lista yftr áhugaverð fjárfestingarverk- efni. Hann ræddi um þá áherslu- breytingu, að félagið hefði í auknum mæli lagt áherslu á mannlíf í breið- um skilningi en ekki aðeins atvinnu- líf, m.a. með endurmenntun. VITIÐ EÐA STRITIÐ? í SÍÐASTA bindi sjálfsævisögu sinnar „Eins og steinn er hafið fág- ar“ mun Guðbergur Bergsson segja að tossarnú fari ungir á sjóinn, en kennarasleikjurnar verði settar til mennta, nái völdum og skatti svo tossana iðjusömu. Dekrið við sjávarútveginn Ef við tökum Guðberg á orðinu (eigum við það?) má undarlegt þykja að hann tali um sjómenn eins og hreinræktaða fúxa. Maður, sem kenndi í Vestmannaeyjum fyrir margt löngu, sagði að þar hefðu dúx- arnú farið á sjóinn, tossarnir í Menntó! Altént er alkunna að í tím- ans rás hefur margur eitursnjallur landinn stigið ölduna. Engu síður skrítin er sú staðhæf- ing Guðbergs að menntaðir dúxar hafi skattað sjómenn og leikið þá grátt. Staðreyndin er sú að sjómenn njóta skattfríðinda og ýmissa hlunn- inda í skjóli ríkisstyrkja. Þegar ríkið gaf byggðarlögum úti á landi togara í massavís jókst eftirspum eftir sjó- mönnum svo að sumir þeirra gátu nánast ákveðið tekjur sínar og heimt- að margháttuð fríðindi (taka ber skýrt fram að þetta gilti aðeins um hluta stéttarinnar, ekki er mulið und- ir trillukarla). Auðvitað era sjómenn flestir harðduglegir og margs góðs maklegir en það er bláköld staðreynd að þeir fengu þessi fríðindi á kostnað skattgreiðenda. Ekki þýðir fyrir sjó- menn að segja að þeir skapi allan auð á íslandi hvort eð er því sú staðhæf- ing er röng. í fyrsta lagi er hlutur fiskveiða í vergri þjóðarframleiðslu aðeins 9%, í öðru lagi þarf að verka fiskinn til að selja hann, í þriðja lagi þurfa vondir menntakarlar að vinna pungsveittir við að finna fisknum markaði, og í fjórða lagi er ekki hægt að stunda sjósókn nema til séu tækni- og vélfræðingar, sem geta gert við dallana, eða læknar sem geta gert við sjómennina! Fimmta og mik- ilvægasta atriðið er að sjávarútvegin- um hefur verið tryggð einokunarað- staða með líkum hætti og landbúnað- inum forðum. Um aldamótin gátu menn sagt með sanni að bú væri landstólpi, bóndi bústólpi. Ástæðan var sú að stórbændur komu í veg fyr- ir að sjósókn yrði „alvöra“ atvinnu- vegur og skópu þannig það ástand þar sem bændur sáu um alla fram- leiðslu. Bændurnir voru því sjálfskip- aðir landstólpar. Seinna beindi ríkið fjármagninu í sjávarútveginn, fé sem nota hefði mátt til að byggja upp aðr- ar. útflutningsgreinar. Dekrið við sjávarútveginn gaf honum einokun á útflutningi, útgerðarmenn urðu sjálf- kjömir landstólpar. Einkavæðing kvótanna hefur ekki breytt miklu, í stað ríkisstyrkja fengu útgerðar- menn fískimiðin gefins með velþekkt- um afleiðingum, góðum og slæmum. Menntahatrið Ummæli Guðbergs eru sorglegt dæmi um það hvernig íslenskir menntamenn kyssa vöndinn, snobba fyrir stétt sem er ekki fræg fyrir ást á þeim. Skemmst er að minnast þess að sjómenn hundsuðu aðvaranir fiskifræðinga um ofveiðar á þorski fyrir rúmum áratug. „þessir djö.... menntamenn pi... sko upp í vindinn og þekkja ekki mun á þorsk og ýsu“ sagði Einsi kaldi úr Eyjunum. En hvað kom á daginn? Þorskstofninn hríðféll eins og fiskifræðingarnir höfðu spáð án þess að Einsi játaði villu síns vegar. Einsi og starfsbræður hans era ekki einir á báti, íslensk alþýða er belgfull af fordómum í garð mennta- manna. Almenningur ímyndar sér að námslán séu gjafir, óendurkræfar. Fólk vill ekki skilja að hér er um að ræða lán sem þarf að endurgreiða eins og önnur. Það skilur ekki heldur að sjómenn væra enn á teinæringum bláfátækir hefðu ljótir menntamenn ekki gert ýmsar uppgötvanir sem leiddu til mikilla framfara í sjávarút- veginum. Gott og vel, segir Einsi kaldi, þessar uppfinningar voru gerðar af tækni- og verkfræðingum, eftir stendur að heim- spekingar og kennarar era afætur. En svo ein- falt er málið ekki. Ef heimspekingnum Gott- lob Frege hefði ekki dottið í hug að búa til sérstakt táknmál fyrir rökfræði þá væra engar tölvur til. Þær „hugsa“ nefnilega á þessu tákn- máli, blessaðar skepn- urnar! Ekki þarf að fara í grafgötur um hlut tölvanna í nútíma út- gerð, án þeirra væri Einsi sjóari varla með milljón á mánuði. Nú svarar Einsi kannski með því að segja að tæpast skapi kennarablókin á plássinu heima auð. Rangt, Einsi minn, það gerir blókar- skrattinn í allra hæsta máta. Rann- sóknir sýna að það er viss fylgni milli menntunar og afkasta, illa læsi ein- staklingurinn er lakari starfskraftur en sá fluglæsi, meira að segja í lík- amlegri vinnu. Þess vegna er líklegt að Thomas L. Friedman hafi nokkuð Menntamannavörn Hingað kom „Kári í jöt- unmóð“ og sýndi Is- lendingum að hægt sé að selja ýmislegt annað en þorsk, segir Stefán Snævarr, sem skrifar þessa grein til varnar menntamönnum. til síns máls er hann segir að fylgni sé milli kennaralauna og þjóðar- tekna. Því stærri sem hlutur „blókanna" sé, því meira sé framleitt á kjaft, segir bandaríski blaðamaður- inn. Fyrir nokkram áram tók danskur forstjóri upp á því að ráða mennta- menn úr húmaníska geiranum til starfa við fyrirtæki sem rambaði á barmi gjaldþrots. Og viti menn, fyrir- tækið blómstraði að nýju! Forstjór- inn þakkaði velgengnina þeirri stað- reynd að heimspekingar, bókmennta- menn og aðrir húmanistar væru oft- ast hugkvæmari og þjálli en við- skipta- og verkfræðingar. Án nýrra hugmynda staðnaði efnahagslífið, við bætum kjör okkar með vitinu, ekki stritinu. Ekki er til nein formúla fyrir því hvaða hugmyndir reynast happa- drýgstar til þess ama, þær geta rétt eins komið úr smiðju heimspekings- ins sem verkfræðingsins. Eins og ég gaf í skyn er líkamspuð ekki leiðin til velsældai- en það vilja menntafjandmenn ekki skilja. þeir telja sér trú um að best sé að sem flestir stundi púlsvinnu, mennta- og námsmenn séu baggar á þjóðarbú- inu. En hvernig má það vera að rík- ustu lönd heimsins era einmitt þau þar sem stærstur hluti ungmenna situr á skólabekk? Japan og Banda- ríkin eru líkast til þau lönd veraldar- innar þar sem hlutfall menntamanna er hæst enda era þau helstu efna- hagsstórveldi jarðarkringlunnar. At- hygli vekjandi er sú staðreynd að 40% af hverjum árgangi í Suður- Kóreu fara í nám á háskólastigi en landið iðnvæddist hraðar en nokkurt annað land í sögunni. Samkvæmt formúlum menntafjandanna ættu Kóreumenn að vera á vergangi í milljónatali. Skýringar Hvers vegna drekkur Jeppi, spyr Ludvig Holberg í frægu leikriti. Hvers vegna verja menntamenn ekki hendur sínar, spyr ég? Ein ástæðan er sú að þeir óttast að verða vændir um menntahroka og alþýðu- fyrirlitningu. Önnur er sú að margir þeirra era ýmist sósíalistar eða frjálshyggjumenn. Þeh’ fyrrnefndu trúa því gjarnan að púlsvinnan skapi allan auð og að sjóarinn með milljón á mánuði sé arðrændur af útvegsmönnunum. Því andæfa frjáls- hyggjumenn(tamenn). En þefr era oft haldnir menntamannahatri (!) og vitna fjálglega í menntamenn (!!) sem telja menntamennsku leiðina til ánauðar. I þriðja lagi hafði Karl Marx lög að mæla þeg- ar hann sagði að fortíð- in hvfldi eins og mara á hugum lifenda. Þjóðfélagið breytist svo hratt að við hyllumst til að skilja það með hætti liðinnar tíðar. Ekki eru nema fjörutíu ár síðan „sjang- hæja“ þurfti menn á togara og vart nema áttatíu ár frá því kúgaðir sjó- menn fengu loksins réttarbót í formi vökulaga. Því er auðvelt að trúa því að sjómannastéttin sé enn undirokuð en því fer fjarri eins og dæmin sanna. Þá vaknar önnur spurning, hvers vegna heldur alþýða manna að menntamenn séu afætur? Ein ástæð- an er fáfræði, önnur minnimáttar- kennd tossans í garð þeirra sem auð- velt eiga með að læra. Berin era súr, sagði refurinn; menntamenn eru vondir, segir tossinn. Tossarnir halda í barnslegri einfeldni sinni að menntamenn séu fjárhagsleg yfir- stétt en það er fjarri lagi (stjórn- mála- og embættismenn era hins vegar oftast háskólagengnir). Rann- sóknir sýna að ekki er fylgni milli mennta og tekna á ísa köldu landi. Ríkasti hluti þjóðarinnar er sem sagt lakar menntaður en meðaljónarnir. Reyndar þarf ekki mikið hugarflug til að sjá að svo er, íslenskir auð- menn era margir hverjir ómenntaðir rastar sem gjarnan era haldnir mikl- um fordómum í garð menntamanna. Við sjáum því að tossanna er máttur- inn og dýrðin, allt tal um mennta- menn sem arðræningja og kúgara er goðsögn sem á sér rætur í minni- máttarkennd hinna lesblindu. Til að bæta gráu ofan á svart gæti menntahatrið ógnað framtíð ís- lenskrar menningar. Bændurnfr máttu eiga að víða í sveitum vora menntir í hávegum hafðar, litlum sögum fer af menningu í sjávarpláss- um. Það er kunnara en frá þurfi að segja að hinn forna bændamenning hélt lífinu í íslenskri tungu um aldaraðir. Eftir að halla tók undan fæti fyrir sveitamenningunni era það helst lista- og menntamenn sem halda merki íslenskrar menningar á lofti. Vilji Islendingar halda áfram að vera Islendingar ættu þefr því að hætta að andskotast í menntafólki, án þess er íslenskri tungu og þjóð- erni bráð hætta búinn. Bæta má við að líklega ollu versnandi kjör menntamanna á síðasta áratug miklu um minnkandi bóksölu. Ekki er hægt að útiloka að andúð almenn- ings á menntamönnum hafi átt þátt í kjarahremmingum þeirra. Ef svo er þá ógnar menntafjandskapurinn bókmenningu bókaþjóðarinnar og þar af leiðandi framtíð hennar. L Hvað sem þessu líður hefur þróun síðustu ára gefið menntafólki mögu- leika á að sýna hvað í því býr. Hing- að kom „Kári í jötunmóð" og sýndi íslendingum að hægt sé að selja ým- islegt annað en þorsk hvað sem segja má um gjörðir hans aðrar. Ekki þar fyrir að hann var ekki fyrsti hugvitssalinn, á öldum áður vora handrit og fræðimenn ein helsta útflutningsvara þjóðarinnar. Bókvitið hefur löngum verið í askana látið. Við skulum alla vega vona að ís- lenskri alþýðu lærist að skilja að án bókvits mun hún lepja dauðann úr skel og án menntamanna er þjóðerni hennar bráð hætta búin. Höfundur er iloktor í heimspeki. Stefán Snævarr

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.