Morgunblaðið - 11.07.1999, Qupperneq 48
MORGUNBLAÐIÐ
j
' 48 SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ 1999
FÓLK f FRÉTTUM
MYNDBÖND
Góð myndbönd
Franskur vestri
Vestri
(Westem)_________________________
G u iii «1 ii in y n (I
★ ★'/2
Framlciðandi: Maurice Bernart og
Michel Saint-Jean. Leikstjóri: Manuel
Poirier. Handrit: Jean Francois-
Goyet og M. Poirier. Kvikmyndataka:
Nara Keo Kosal. Tónlist: Bernardo
Sandoval. Aðalhlutverk: Sergi Lopez
og Sacha Burdo. (199 mín.) Frakk-
land. Skífan, júní 1999. Öllum leyfð.
VESTRI, sem vann til dómnefnd-
arverðlaunanna á Cannes-hátíðinni
fyrir tveimur árum, er eins konar
franskur nútímavestri þar sem
myndin lýsir flakki tveggja ferða-
langa af ólíkum uppruna um vestur-
hluta Frakklands.
I’essi kvikmynd er þeim kostum
gædd að búa yfír óvenjuiegri og upp-
átækjasamri frásögn. Persónumar
rekur milli fólks og staða og atburða-
rásin líkt og fylgir
þeim letilega eftir.
Andrúmsloftið er
sposkt og afslapp-
að og allt gefur
þetta myndinni
raunveruleikablæ.
Falleg kvikmynda-
takan miðlar áhorf-
andanum heillandi
mynd af sveitum
Bretagne-héraðs. En þegar nánar er
að gætt reynist takmarkað í söguna
spunnið, en hana mætti ef til vill skil-
greina sem kvennafar í tilvistarleg-
um dulbúningi. Þá er fremur grunnt
á persónunum, ekki síst kvenpersón-
unum sem fyrst og fremst eru skap-
aðar á forsendum karlpersónanna og
virka því óraunverulegar. En Vestri
þessi hefur hins vegar yfír sér ein-
hvem dumbungslegan sjarma sem
gerir myndina eftirminnilega.
í hundakofanum
(In the Doghouse) *★%
Skemmtileg fjölskyldumynd sem tek-
ur sig mátulega alvarlega. Kímnin lyft-
ir frásögninni og gerir að verkum að
flestir ættu að geta notið góðrar
stundar við skjáinn.
Innbrotsmenn
(Safe Men) k-k'A
Mjög skrítin og alveg sérstaklega vit-
laus mynd en skemmtileg á köflum og
sprenghlægileg inn á milli, og óhætt að
mæla með við flesta sem leita sér að
stundarafþreyingu.
Fjárhættuspilarinn
(The Gambler) ★★★!/2
Skemmtileg saga sem fléttar saman
skáldskap og raunveruleika á marg-
slunginn hátt. Handritið er í sérflokki
og leikurinn frábær.
Hershöfðínginn
(The General) -k-k'A
Vel gerð og ágætlega leikin írsk mynd
um glæpamanninn Martin CahiII sem
ólst upp í fátækrahverfum Dyflinnar
og varð eins konar goðsögn á sínum
heimaslóðum.
Tökum sporið
(Dance With Me) kk'Á
Pessari dansmynd er óhætt að mæla
með fyrir þá sem kunna að meta suð-
ræna sveiflu, notalega rómantík og
sykursæta leikara.
Dansinn kkkV.í
Dansinn er besta íslenska kvikmynd
síðustu ára og vekur vonir um bjartari
framtíð greininni til handa.
Evuvík
(Eve’s Bayou) ★★★★
Óvenjulegt samræmi er í myndinni
sem stöðugt minnir á hita, ástríður og
galdur. Evuvík er án efa eitt besta,
djarfasta og metnaðarJyllsta fjöl-
skyldudrama sem fest hefur verið á
Slmu lengi lengi.
Hin eina sanna Ijóska
(The Real Blond) ★★★
Verulega góð og þaulhugsuð mynd
sem vekur upp þarfar og áhugaverðar
spurningar um sambönd kynjanna frá
ólíkum sjónarhomum.
Heiða Jóhannsdóttir
...að það þarf 2,5 kg af
...að bollinn af Nescafé
, rr-i .-tt x ...uw ui ivcjíuic
kaffibaunum til þess að , . . . ,
... „ . , _y kostar aðems um 10 kr.
bua ti 1 kg. af Nescafe.
Utsalan
hefst
mánudag
NASTASHA Richardson og Dennis Quaid með leikkonunni ungu
Lindsay Lohan en þau eru í aðalhlutverkum í Foreldragildrunni. Hún
er endurgerð á mynd Disney sem var með Hayley Mills í aðalhlutverki.
Kossinn (Kissed) ★★★
Vel leikin og skrifuð mynd, fáguð í út-
liti og framsetningu ogí Ijósrí mótsögn
við óhugnarlegan efniviðinn. Ótrúlega
djörf og eftírminnileg á sinn sérstaka
hátt. Vel þess virði að skoða, fyrir þá
sem treysta sér.
Skuggamyndir
(Portraits Chinois) kk'Æ
Skuggamyndir er ágæt skemmtun
ogkrefjandi tilbreyting frá bandarísku
síbyljunni. Persónur eru margar og
myndin kallar á vakandi athygli áhorf-
andans allan tímann.
Truman þátturinn.
(The Truman Show) ★★★★
Stór, „sönn“ og frábærlega uppbyggð
samsæriskenning sem lítur gagnrýnið
á menningu samtímans. Handrítið er
afburðagott og myndin óaðfínnanleg
frá tæknilegu sjónarhorni. Mynd sem
allir ættu að sjá.
Gildir einu (Whatever) ★★★
Raunsæisleg kvikmynd um umstang
uppvaxtaráranna á fyrrí hluta níunda
áratugarins. Jarðbundin og þroskuð
nálgunin gerir myndina áhrifaríka.
Handan við horníð
(Next Stop Wonderiand) kkk'Æ
Nýstárleg og vel gerð rómantísk gam-
anmynd sem skartar margbreytilegri
persónusköpum og skondnum húmor.
Góð mynd sem skilur eftir sig notalega
sumartilfínningu.
Risinn minn (My Giant) kk'A
„Risinn minn“ er góðlátleg h'til mynd
sem ætti að geta verið ágæt skemmtun
fyrir alla fjölskylduna.
Kennslustund í tangó
(The Tango Lesson) ★★★
Margslungin mynd sem einkennist af
mótsögnum. Sjálfhverf, tilgerðarleg og
vond, en um leið einlæg, djörf og kím-
in. Hún stendur og fellur með viðtök-
um hvers og eins.
Samningamaðurinn
(The Negotiator) kkk'A
Tæknilega fullkomin, áferðarfalleg og
mjög vel unnin kvikmynd og án efa í
flokki bestu hasarmynda síðustu ára.
Jackson og Spacey eru alvöru töffarar.
Dauði á vistinni
(Dead Man on Campus) kk'A
Þokkalega skemmtileg vitleysa og fin
gamanmynd. Handritið er sæmilega
unnið, helstu sögupersónur vel heppn-
aðar og myndin ágæt skemmtun.
Með húð og hári (Lock, Stock
and Two Smoking Barrels) ★★★
Eiginlega blanda af „Pulp Fiction" og
„Trainspotting“, fyrirtaks afþreying
sem hefði getað verið þó nokkuð meira
með þó nokkuð minni áhrífagirni.
Get ekki varla beðið
(Can’t Hardly Wait) ★★★
Gaggó-gelgjumynd sem kemur á
óvart. Leikið er skemmtilega með
staðlaðar týpur, snúið upp á þær og
flett ofan af þeim. Öruggt lið ungra
leikara heldur uppi fjörinu.
Fánalitirnir
(Primary Colors) kkk'A
Pólitísk en um leið litrík og bráðfyndin
mynd um persónur og atburði sem
byggðar eru á sjálfum Clinton og hans
fólki. Travolta sýnir ógleymaleg Clint-
on-tilþrif innan um einvalalið leikara.
Mikilmennið (The Mighty) kkk'A
Óvenju vönduð bandarísk fjölskyldu-
mynd sem fjallar á hjartnæman hátt
um Ijósar og dökkar hliðar hvers-
dagstilverunnar og á eríndi við börn
jafnt sem fullorðna.
Spilamenn (Rounders) kk'A
Lipur og hnyttin pókermynd sem fer
með áhorfandann í skemmtiferð um
undirheima fjárhættuspilamennskunn-
ar. Um leið er um óraunsæislega upp-
hafningu á spilafíkninni að ræða.
Foreldragildran
(The Parent Trap) ★★1/z
Fín afþreying og skemmtun fyrir alla
fjölskylduna sem ekki ætti að skilja of
mikið eftir sig. Ekta Disney mynd.
Óvinur ríkisins
(Enemy of the State) *★★
Dæmigerð stórhasarmynd, framleidd
og leikin af sönnum atvinnumönnum í
bransanum. Ekkert sem kemur á
óvart, sem kemur ekki á óvart.
Baðhúsið (Hamam) kk'A
Ahugaverð og óvenjuleg tyrknesk
mynd um framandi menningarheima
og töfra þeirra.
Sjálfsvígskóngamir
(Suicide Kings) kk'A
Leikararnir, einkum Dennis Leary og
Chrístopher Walken, bjarga myndinni.
Hún hefði getað verið þó nokkuð betrí
en nær ágætlega að halda afþreying-
ar- og skemmtigildi.
Aftur til draumalandsíns
(Return to Paradise) kkk'A
Dramatísk spennumynd sem sækir
kraft í huglæga þætti og varpar sið-
ferðilegum vanda yfir á áhorfandann.
Eftirminnileg og framúrskarandi vel
leikin mynd sem fær úrvals meðmæli.
Guðmundur Ásgeirsson/
Heiða Jóhannsdóttir/Ottó Geir
Borg