Morgunblaðið - 11.07.1999, Síða 50
MORGUNBLAÐIÐ
; 50 SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ1999
FÓLK í FRÉTTUM
LIFANDI
MIÐBÆR
MENNINGARNÓTT í Reykjavfk
verður haldin í Qórða sinn 21.
ágúst og hefur hún á skömmum
tima náð að festast í sessi sem
spennandi og áhugaverður við-
burður í borgarlífinu. Það er
Reykjavíkurborg sem stendur
fyrir Menningarnóttinni en dag-
skráin byggir á framlagi fjöl-
margra aðila, þar á meðal ýmissa
menningarstofnanna, verslana,
fyrirtækja, veitingahúsa og ein-
staklinga. Sérstök verkefna-
stjórn heldur utan um dagskrána
en verkefnastjóri Menningarnæt-
ur er Hrefna Haraldsdóttir.
„Menningarnóttin skapar
skemmtilegt andrúmsloft, setur
mikinn svip á borgina og sýnir á
henni óvæntar hliðar,“ segir Hr-
efna. „Veitingastaðir og verslan-
ir ráða margar til sín listamenn
af ýmsu tagi og eru verslanir
opnar fram eftir og standa jafn-
vel sumar fyrir heilmikilli menn-
ingardagskrá.
Hugmyndin er í raun sú að
fólk komi í bæinn og svo verður
allt mögulegt á vegi þess, bæði
innan húss og utan. Ef farið er
inn á kaffihús þá er kannski eitt-
hvað að gerast þar og ef gengið
Hrefna Haraldsdóttir, verkefnastjóri Menningarnætur í Reykjavík.
Morgunblaðið/Þorkell
Rýmum til fyrir nýjum vörum!
25 - 50%
afslAttur
Kommóða
H. 150 x L.80 xD. 45
verð áður 46.900.-
verð nú kr. 29.500.-
Bekkur, 3ja sæta
H. 90 x L.l 30 x D. 56
verð áður 18.800.-
verð nú kr. 14.950.-
Olíumálverk
frá Mexíkó 80 x 60
Örfá eintök
tilb.verð kr. 12.500.-
Stólar
verð áður 8.600.-
verð nú kr. 5.900.-
Borð
H. 80xL.132xD.43
verð áður 33.500,-
verð nú kr. 25.125.-
Skápur
H. 190xL.133xD.45
verð áður 69.950,-
verð nú kr. 48.965.-
Kista
H. 35 x L.120 x 45
verð áður 23.800.-
verð nú kr. 16.660.-
Vegghilluskápur
H. 122 x 135 x 33
verð áður 39.800.-
verð núkr. 29.850.-
Veggsamstæða
H. 200 x 122x44
Heildsöluverð kr. 49.950.-
...og margt fíeira!
^éHsTALL
i
Faxafeni sími: 568 4020 HUSGAGNADEILD
er eftir Laugaveginum eða
Hverfisgötunni þá gætu þar ver-
ið einhverjar uppákomur. Þannig
sjáum við þetta fyrir okkur,
svona lifandi miðbæ.
Menningarnóttin er alltaf ná-
Iægt afmæli Reykjavíkurborgar,
18. ágúst. Hugmyndin er sú að
þetta sé tækifæri fyrir alla að
lyóta þess að vera í miðbænum
og þá ekki síst fjölskyldufólk,"
segir Hrefna.
Fyrir börn og fullorðna
Þetta heitir Menningarnótt, fer
dagskráin fram í einhverjum
skúmaskotum að næturlagi?
„Já, þetta heitir Menning-
arnótt og stendur í raun fram á
nótt, en setningin fer fram
klukkan fjögur sidegis og form-
leg dagskrá fer fram seinni part
dagsins og um kvöldið. Svo held-
ur skemmtunin auðvitað áfram
fram eftir nóttu á veitingastöð-
um til dæmis og er það í raun
undir fólki sjálfu komið hvenær
henni lýkur.“
Hvað er á dagskránni?
„Dagskráin er í mótun þessa
dagana en þó er búið að ákveða
ýmislegt. A opnunarhátíðinni
kemur meðal annars fram hópur
ungmcnna frá Túnis, Marrokkó,
Finnlandi og íslandi og flytja
þau tónlist og dansa. Opnunin
fer fram í Lýðveldisgarðinum,
sem er á Hverfisgötunni við
hliðina á Þjóðleikhúsinu, en hug-
myndin er að vera á áhugaverð-
um stöðum í borginni, líka stöð-
um sem fá kannski ekki venju-
lega mjög mikla athygli." Hr-
efna segir borgina hafa upp á
marga fjölbreytta möguleika að
bjóða sem sé um að gera að
nýta. Á Menningarnótt verði
uppákomur á margvíslegum og
jafnvel ólíklegum stöðum í borg-
inni.
Verður gert eitthvað sérstakt
fyrir börn?
„Já, það stendur til að hafa mjög
metnaðarfulla barnadagskrá í
Iðnó, þar sem verður alltaf eitt-
hvað nýtt að gerast á hverjum
klukkutima. Það eru þau Ándri
Snær Magnason og Harpa Arn-
ardóttir sem skipuleggja dag-
skrána sem verður mjög fjöl-
breytt. Þarna verða rímur
kveðnar, þjóðsögur og drauga-
sögur sagðar, fluttir verða leik-
þættir og tónlist og margt fleira
bæði fyrir börn og fuliorðna, en
það verður reynt að sjá til þess
að foreldrunum eigi alls ekki
eftir að leiðast.“
Því fleiri, því betra
Fer dagskráin eingöngu fram í
miðbænum?
„Hún fer að mestu leyti fram
innan svæðis 101 og má búast við
uppákomum hvar sem er í raun-
inni bæði innan dyra og utan.“
Hrefna segir að það verði ýmsir
hópar á flakki um miðbæinn, þar
á meðal hópur dansara undir
stjórn Láru Stefánsdóttur, sem
muni stoppa hér og þar og leika
listir sínar. „Svo standa Kjarvals-
staðir líka fyrir mikilli dagskrá
og má segja að þeir verði nokk-
urskonar útvörður í austri.
Kirkjurnar í miðbænum standa
Iíka fyrir dagskrá og einnig er
heilmikill undirbúningur í gangi
hjá Islensku óperunni og einnig
hjá Félagi eldri borgara, það er
því óhætt að segja að dagskráin
verði mjög íjölskrúðug."
Hrefna segpr að þeir sem hafi
skemmtilegar hugmyndir megi
endilega koma þeim á framfæri
og að öllum sé velkomið að leggja
hönd á plóginn við framkvæmd-
ina. Því stærri og fjölbreyttari
hópur sem taki þátt, því betri
verði Menningarnóttin.
Hinn eini sanni
Big Ma
rðil
á ótrúle
sumarver
/v\
Mcponaids
Austurstræti 20 AðeÍOS^ í
Suðurlandsbraut 56 Sjáumst Sem íyrst!