Morgunblaðið - 12.08.1999, Side 2

Morgunblaðið - 12.08.1999, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Undirbúningur að stofnun nýrra samtaka atvinnulífsins Samstaða um val á forystumönnum BÁTUR Keikósamtakanna er illa farinn ef ekki ónýtur eftir að það kviknaði í honum í gær þar sem hann stóð uppi á bryggju í höfn- inni í Vestmannaeyjum, að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum. Að sögn lögreglu voru tveir 11 ára drengir að leika sér með eld- færi um borð í bátnum, sem er um 20 feta álbátur, og endaði leikurinn með því að það kvikn- aði í honum. Drengirnir náðu að forða sér áður en eldurinn breiddist út en er lögregla kom á staðinn sprakk bensíntankur og báturinn varð aielda. Slökkvilið- inu gekk vel að slökkva eldinn en báturinn er líklega ónýtur að sögn lögreglu sem telur mikla mildi að ekki skyldi hafa komist. eldur í stærri bensintank sem var um borð í bátnum. Hallur Hallsson, talsmaður samtakanna, sagðist í viðtali við Morgunblaðið harma þetta mjög og bætti því við að farið yrði yfir málið á næstunni, m.a. trygg- ingamálin þar sem ekki Iiggur Ijóst fyrir hvort báturinn var tryggður. Morgunblaðið/Sigurgeir Bátur Keikósamtakanna brann Morgunblaðið/Árni Sæberg Misstu niður 30 tonn af fljótandi áli UM 30 tonn af fljótandi áli runnu úr einum af ofnum álversins í Straumsvík í gær og ofan í gryfju eftir að spóla neðst í ofninum gaf sig. Að sögn Hrannars Péturssonar, upplýsingafulltrúa ÍSAL, var álið kælt niður með súráli, sem sprautað er yfír, og þá myndaðist mikil gufa og héldu menn um tíma að kviknað hefði í skálanum en svo var ekki. Enginn slasaðist en Ijón er talið vera á bilinu fimm til tíu millj- ónir. Til að ná upp fijótandi áli eru járnfieygar reknir í það áður en það storknar til fulls og þegar það harðnar er auðvelt að lyfta því upp. Tillaga um að Finnur Geirsson verði formaður og Ari Edwald framkvæmdastj ór i SAMÞYKKT var samhljóða á fundi stýrihóps um stofnun Samtaka at- vinnulífsins í gær tillaga um að Finnur Geirsson verði formaður samtakanna og Ari Edwald verði ráðinn framkvæmdastjóri þeirra. Samtök atvinnulífsins, sem mynduð eru af Vinnuveitendasambandi Is- lands og Vinnumálasambandinu, á að stofna með formlegum hætti 15. september næstkomandi og eiga þau að taka til starfa 1. október nk. Ólafur B. Ólafsson, formaður stýrihópsins, lagði fram tillögu um að skipa Finn formann og Ara fram- kvæmdastjóra og komu ekki fram tillögur um aðra ein- staklinga í stöður þeirra. Ólafur segir að almenn ánægja hafi ríkt um valið og sé mikil tilhlökkun í mönnum að stíga næstu skref í samein- ingu samtakanna. „Finnur fær það mikilvæga hlutverk að vera í for- svari fyrir þessum samtökum og Ara er falið að stýra daglegum rekstri þeirra. Tíu manna stýrihóp- urinn undirbýr nú stofnfundinn í september og m.a. verður efnt til samkeppni um merki samtakanna fyrir þann tíma, ásamt því að setja saman upplýsingakerfi fyrir sam- tökin, leita að sameiginlegu hús- næði fyrir Samtök atvinnulífsins og aðildarsamtökin og sinna öðrum þeim verkum sem fyrir liggja,“ seg- ir Ólafur. Hann segir fyrirsjáanlegt að starfsmenn samtakanna muni fylgja þeim úr hlaði að frátöldum fram- kvæmdastjóra þeirra, Þórami V. Þórarinssyni, sem er nú í forsvari íyrir Landssímann, og Jóni Sigurðs- syni, en þegar hefur verið gengið frá starfslokasamningi við hann. Mjög öflug samtök fæðast Finnur Geirsson er fram- kvæmdastjóri sælgætisverksmiðj- unnar Nóa-Síríusar. Hann kveðst líta björtum augum til þess að gegna stöðu fyrsta formanns Sam- taka atvinnulífsins. í framhaldi af stofnun samtakanna hefst, að sögn Finns, vinna við stefnumótun og er eðlilegt að bíða þess að hún liggi fyrir áður en talað er um einstök at- riði í því sambandi. „Eg mun væntanlega stjórna vinnu við stefnumótun en hvernig hlutimir mótast nákvæmlega er ég ekki reiðubúinn til að svara strax. Þessi mál skýrast frekar á næstu mánuðum. Það er hins vegar ljóst að með Samtökum atvinnulífsins fæðast mjög öflug samtök sem hafa að markmiði að hafa áhrif á starfs- umhverfið hérlendis og láta gott af sér leiða í þeim efnum. Ég held að sameining þessara samtaka sé heillavænleg og sameinuð muni þau vera sterkari en áður og færari um að takast á við stærri verkefni en hvort í sínu lagi.“ Ótímabært að ræða framtíðarskipan Ari Edwald gegnir stöðu ritstjóra á Viðskiptablaðinu og kveðst í sam- tali við Morgunblaðið búast við að hætta þar störfum um næstu mán- aðamót. „Starf framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins leggst vel í mig og ég hlakka mjög til starfans. Fyrir liggur að setja sig inn í þau mál sem verða á mínu verksviði og búa sig undir það sem við tekur þegar samtökin taka formlega til starfa," segir Ari. „Eðli þessara samtaka og við- fangsefni breytast ekki þó svo að ég komi að þeim, starf að kjaramálum er eitt meginverkefni þeirra og stefnumótun um efnahagsmál og kjaraþróun. Stjórn og formaður munu leggja línurnar um afstöðu í þessum málum en framkvæmda- stjóri sinnir verklegri hlið mála, ef svo má segja. Það er hins vegar ótímabært að ræða framtíðarskipan mála hjá Samtökum atvinnulífísns fyrr en þau hafa verið stofnuð og eru tekin til starfa,“ segir Ari. Samkeppni um merki Finnur Geirsson Ari Edwald Eldur á Eskifírði Eskifirði. Morgunblaðið. RÉTT viðbrögð starfsfólks komu í veg fyrir eldsvoða þegar eldur kom upp í djúpsteikingar- potti á veitingastaðnum Pizza 67 á Eskifirði í gærkvöldi. Starfsfólkið hélt eldinum í skefjum með eldvarnarteppi meðan beðið var komu slökkvi- liðs sem slökkti eldinn á skammri stundu. Nokkur reykur barst um húsið en tjón varð ekki nema á pottinum og því sem í honum var. Fáir gestir voru á veitinga- staðnum þegar eldurinn kom upp en skamma stund tók að loftræsta veitingastaðinn. Hann er í gömlu timburhúsi og hefði getað farið illa ef eldur hefði komist í innréttingar. j Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is 12SÉMIR Skagamenn mæta KR í úrslit um bikarkeppni karla / B1 Óbreytt staða í keppninni um gullpottinn / B8 ViðskÍDtablað Sérblab um viðskipti/atvinnulíf

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.