Morgunblaðið - 12.08.1999, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 12.08.1999, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR DEILDARMYRKVI SÓLAR Morgunblaðið/Júlíus 9:45. ÞRJÁTÍU og sjö mínútur liðnar síðan tunglið byrjaði að narta í sólina. 10:00. STUNDUM rann skýjahul- an alveg frá og deildar- myrkvinn varð greinilegur. 10:10. TUNGLIÐ færðist hratt yfir eða um kflómetra á sekúndu. 10:30. SOLIN minnir einna helst á geislabaug af rússneskri helgimynd. 10:40. ÞRJÁTÍU og þrjár mínút- ur þangað til deildar- myrlwa lýkur. Fjöldi manna skoðaði deildarmyrkvann Víða rættist úr tvísýnni veðurspá FYLGST var með deildarmyrkva sólar af miklum áhuga í gærmorgun víða um land. Ekki voru þó skilyrðin alls staðar upp á það besta og herma fregnir að sólin hafí gefíð lítil færi á sér á Austfjörðum og Vestfjörðum. í Reykjavík rættist úr heldur tvísýnni spá og var hægt að fylgjast með deildarmyrkvanum nær allan tímann meðan hann stóð, frá kl. 9:08 til 11:13, þótt stundum drægi fyrir sólu í stutta stund. Þótt tilstandið hafí verið heldur minna í sniðum en erlendis, þar sem milljónir manna fylgdust með al- myrkva sólar, var ekki laust við eft- irvæntingu í loftinu meðal þeirra sem söfnuðust saman fyrir framan Raunvísindastofnun háskólans þar sem þeir Þorsteinn Sæmundsson stjörnufræðingur og Jón Sveinsson rafmagnsfræðingur höfðu komið sér fyrir með stjörnukíki, pappa, blöð og dökkar filmur til að fylgjast með myrkvanum. Auk þeirra Þorsteins og Jóns, sem hélt á pappírnum fyrir framan kíkinn í ríflega tvær klukkustundir svo að aðrir gætu notið myrkvans, voru inn- an við tíu manns sem íylgdust með frá fyrstu stund en fieiri dreif að úr nálægum byggingum þegar dró að hámarki deildarmyrkvans, kl. 10:10, og voru á milli fjörutíu og fimmtíu manns á staðnum þegar mest var. Sólmyrkvi mögnuð tilviljun Dökkar fílmur og sjónaukar gengu á milli manna en stjömusjónaukinn gaf góða mynd af deildarmyrkvanum og ekki sakaði að hafa sérfræðing á staðnum til að lýsa fyrirbærinu. Benti Þorsteinn viðstöddum t.d. á sólbletti sem komu fram á myndinni en hurfu síðan undir skugga mánans. Ekki gafst honum færi á að stað- reyna útreikninga sína um upphaf deildarmyrkvans nákvæmlega þar sem ský huldi sólina fyrstu tíu sek- úndurnar eða svo. Menn slógu á létta strengi, milli þess sem þeir létu fróðieiksmola falla um sólmyrkva og önnur nátt- úrufyrirbæri. „Það er annars mögn- uð tilviljun," sagði Þorsteinn um sól- myrkva, „að tungl og sól skuli vera jafn stór á himni. En ef það væri ekki, sæist ekki það áhugaverðasta við fyrirbærið, sem er rauða lithvolf- ið í kringum tunglið." Stjörnufræð- ingnum fannst „furðu lítið um sól- bletti“ þar sem búið var að spá að þeir næðu hámarki um aldamót. Fuglar þögnuðu Ýmsir rifjuðu upp reynslu sína af sólmyrkvum og kvaðst Hörður Fil- ippusson lífefnafræðingur hafa orðið vitni að myrkvanum 1954 þar sem hann var staddur á bæ undir Eyja- fjöllum. „Ég var niu ára þegar þetta var en man þetta enn mjög skýrt. Fugiarnir þögnuðu og dýrin höguðu sér eins og það væri fallin á nótt.“ Á sama tíma sagðist Þorsteinn hafa verið staddur á Reynisfjalli, við Vík í Mýrdal, til að fyigjast með myrkvanum og Ingvar Árnason var þá ungur staddur á Skógum. Næsti sólmyrkvi verður að sögn Morgunblaðið/Árni Sæberg TALSVERT var um að fólk rýndi í gegnum filmubúta á deildarmyrkva sólu í gærmorgun. Víða mátti sjá fólk við þessa iðju og gengu sjónauk- ar og dökkar filmur á milli manna. Þorsteins árið 2003 en þá verður „hringmyrkvi", þ.e. tunglið verður minna á himni en sól og sést þá allt innan sólarkringlunnar. „Þessi sól- myrkvi verður sérstaklega fyrir ís- lendinga en hann sést hvergi annars staðar,“ segir Þorsteinn. Sást ekki til sólar Kennari og tveir nemendur við Verkmenntaskóla Austurlands á Neskaupstað ætluðu að taka myndir af deildarmyrkvanum með sérstakri myndavél í gærmorgun og setja á heimasíðu sína, í samstarfí við þrjá skóla í öðrum löndum. „Við gátum ekki sent annað en fallega mynd af bænum, því það sást ekki votta fyrir sólinni á þessum tíma,“ segir Jóhann Zoega, kennari við Verkmenntaskól- ann. Hann segir að skýjað hafí verið allan daginn, en öðru hverju sést til sólar. Meðan deildarmyrkvinn stóð var þó alskýjað, og næst sást í sólina hálftíma síðar. Formaður skipulagsnefndar um niðurfellingu byggingarleyfís Akveðinn dómur yfír málsmeðferðinni ARNI Þór Sigurðsson, formaður skipulagsnefndar Reykjavíkurborg- ar, segir að þeim finnist mjög baga- legt að byggingarleyfí vegna Lauga- vegar 53b skuli hafa verið fellt úr gildi Öðru sinni. Farið verði mjög ít- arlega yfír niðurstöðu Úrskurðar- nefndar skipulags- og byggingar- mála í þessum efnum og eftir það metið hvernig staðið verði að fram- haldi málsins. Sömuleiðis verði á nýj- an leik farið yfir deiliskipulagstillög- una sem nú sé í auglýsingu, meðal annars í ljósi þessa úrskurðar. „Okkur þykir auðvitað mjög miður að byggingarleyfið skuli aftur felit úr gildi og í því felst vitaskuid ákveð- inn dómur um að ekki hafi verið staðið að málum af hálfu borgaryfir- valda með fullkomlega réttum hætti. Það er auðvitað hlutur sem við verð- um líka að fara yfir hér innanhúss hjá okkur hvar veilurnar í málsmeð- ferðinni liggja. Það er þá væntanlega eitthvað sem við getum dregið lær- dóm af,“ sagði Árni Þór. Hann sagði að rétt væri að taka fram, vegna fullyrðinga í ijölmiðlum um að það felist breyting á landnotk- un í þessari deiliskipulagstillögu, að það væri ekki rétt. Deiliskipulagstil- lagan gerði ekki ráð íyrir neinni breytingu á landnotkun, enda gæti hún það ekki. Aðalskipulagið kvæði á um land- notkun á þessu svæði. í því væri allt þetta svæði skilgreint sem miðborg- arsvæði en ekki sem íbúðasvæði. Þannig væri íbúðarhús Jóns Kjell Seljeseth að Laugavegi 53a ekki á íbúðarsvæði. Það væri hins vegar íbúðarhús á miðborgarsvæði og menn yrðu að gera sér grein fyrir að það væri líklegt að íbúðarbyggð á miðborgarsvæði verði alltaf víkjandi í skipulagi frekar en ríkjandi. Kann að eiga rétt á einhverjum bótum í Morgunblaðinu í gær kom fram að byggingaraðili hússins að Lauga- vegi 53b íhugar að krefjast bóta. Árni sagði aðspurður um þetta að það kynni auðvitað vel að vera að hann ætti rétt á einhverjum bótum vegna þeirra tafa sem hann hefði orðið fyrir vegna þess að hann hefði fengið byggingarleyfi sem ekki hefðu síðan staðist. Þetta væri vænt- anlega eitthvað sem hann myndi ræða við lögfræðinga borgarinnar. Auk þess hefði byggingaraðilinn óskað eftir að fá að funda með borg- arstjóra þegar hún kæmi úr sumar- leyfi og hann reiknaði með að það yrði fyrsta stig þess máls.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.