Morgunblaðið - 12.08.1999, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1999 57
Helga. Við vorum níu mörkum und-
ir í hálfleik og þá voru allir hættir
að hvetja ísland nema Helgi. Hann
baðaði út öllum öngum og þegar
honum mislíkaði dómgæslan - sem
var í svona annað hvert skipti - þá
sótti hann sér loft langt fram á fló-
ann til að baula á viðeigandi hátt.
Seinna var mér sagt að það hefði
verið tvíátta í Flatey þennan dag.“
Félagi Helgi var ekki bara bar-
áttumaður heldur líka heiðursmað-
ur, við höfum misst hlekk úr þessu
samfélagi sem ekki verður bættur
en minning hans mun lifa um
ókomna tíð. Hann markaði spor í
sína samtíð sem verða ekki afmáð.
Það var mikið gæfuspor fyrir
Helga þegar hann gekk að eiga Jó-
hönnu Aðalsteinsdóttur frá Vað-
brekku í Hrafnkelsdal í júlí 1950.
Jóhanna stóð alla tíð við hlið eigin-
manns síns í öllu því sem hann tók
sér fyrir hendur, enda Jóhanna
mikill kvenskörungur.
Helga Bjarnasyni vil ég þakka
fyrir allt það sem hann hefur lagt af
mörkum í þágu Verkalýðsfélags
Húsavíkur og fyrir þann stuðning
sem hann hefur sýnt mér í gegnum
tíðina um leið og ég votta Jóhönnu
og afkomendum þeirra hjóna mína
innilegustu samúð. _
Aðalsteinn Á. Baidursson,
formaður Verkaiýðsfé-
lags Húsavíkur.
Helgi Bjarnason, vinur minn og
félagi er látinn. Fréttin af ótíma-
bæru andláti hans kom óvænt og
fór eins og gustur um sálina. Henni
fylgdi þessi tilfinning um tómleika
og söknuð. Eitthvað dýrmætt hafði,
án nokkurrar viðvörunar, verið rifið
burt og ég vissi að það kæmi aldrei
aftur. Minni litlu heimsmynd hafði
verið breytt.
En hver var hann þessi Helgi
Bjarnason sem hvarf svo skyndi-
lega út úr lífi okkar sem þekktum
hann?
Einhvers staðar í góðri bók segir
að morgnarnir séu aldrei hvers-
dagslegir. Hver morgunn sé nýr
morgunn. Á hverjum morgni fæðist
nýr heimur. Mér koma þessi orð í
hug, þegar ég minnist Helga
Bjarnasonar. Eins og títt er um
mikla persónuleika var hann ekki
einn maður, heldur margir menn.
Þessi hrjúfi geðmikli maður, var í
senn hörkutól í átökum stjórnmála
og verkalýðsbaráttu um leið og
hann var listræn og viðkvæm sál
sem hafði gaman af ærslum og
stráksskap og afar næmt auga fyrir
skoplegri hliðum tilverunnar.
Þannig birtist Helgi manni í mörg-
um myndum, sem leikarinn, sjó-
sóknarinn, veiðimaðurinn, grínist-
inn, íþróttaáhugamaðurinn, nátt-
úruunnandinn, verkalýðsleiðtoginn,
stórfjölskyldumaðurinn, tónlistar-
maðurinn, safnarinn og sögumaður-
inn, alltaf sami eldhuginn - sem nýr
maður í hverju hlutverki. Það var
ekkert hversdagslegt við þennan
mann. Þar sem hann fór var eftir
honum tekið. Hver morgunn í hans
lífi var nýr morgunn.
Ég minnist Helga fyrst sem föð-
ur leikfélaga minna, þeirra Haffa
og Helga. Þótt við hefðum alltaf
meira af Jóhönnu móður þeirra að
segja fór ekki hjá því að karlinn léti
okkur heyra það annað veifið. Við
vorum hvattir í knattleikjum eða
skammaðir fyi-ir að vera of latir við
æfingar. Ósjaldan var hastað á okk-
ur fyrir strákapör en stundum var
okkur hælt fyrir dugnað og sagt að
við værum orðnir „rosalega stórir
kallar“. í hamaganginum á síld-
arplönunum, þegar við strákarnir
vorum að snúast og reyna að hjálpa
til. Þá hafði Helgi, á sinn glettna
hátt, lag á að hæla okkur strákun-
um þannig að við þóttumst vera
orðnir menn með mönnum. Afrekin
voru ekki stór, en með hólinu komu
mannalætin og þá var karlinum
skemmt. Já, hann gat vissulega
skammað okkur duglega, en hann
kunni líka að tala við okkur krakk-
ana á máli sem við skildum.
En leiðir okkar Helga skUdu og
lágu ekki saman í mörg ár. Ég flutti
fi'á Húsavík, flæktist suður og út í
lönd í nám. Það var síðan á vordög-
MINNINGAR
um 1983 að Helgi kom aftur inn í líf
mitt og eins og endranær kom hann
óvænt, eins og ferskur gustur af
hafi. Á þessum tíma var ég að ljúka
hagfræðinámi út í Lundi í Svíþjóð
og hafði ýmis plön um framtíðina.
Ekkert þeirra var þó í þá veru að
fara aftur til æskustöðvanna - tU
Húsavíkur þar sem ég átti marga
frændur, vini og góðar minningar.
En það var á þessum tíma sem
Helgi hringdi tU mín og vUdi ólmur
að ég kæmi til Húsavíkur og færi
að vinna hjá lífeyrissjóðnum og
verkalýðsfélaginu, þar sem hann
var formaður. I fyrstu fannst mér
þetta fráleitt. Við nánari umhugsun
og hvatningu frá Helga breyttist
afstaða mín, enda höfðu æskustöðv-
arnar alltaf togað í mig. Mér var í
raun boðið á stefnumót við Húsavík
- draumabæ æsku minnar. Ef ég
hafnaði þessu tækifæri væri ekki
víst að annað gæfist. Ég sló því tU
og ætlaði að vera í tvö til þrjú ár á
gömlu vík, þar tU ég færi í frekara
nám eða vinnu sem tengdist meira
minni menntun.
En verkefnin á Húsavík voru
mörg og árin urðu tíu. Allan þann
tíma unnum við Helgi mikið saman
og brölluðum margt. Við tókum
þátt í verkalýðsátökum bæði tU sjós
og lands, beittum okkur fyrir betri
kjörum félagsmanna, jukum og
bættum þjónustu verkalýðsfélags-
ins, byggðum um nýja félagsað-
stöðu stéttarfélaganna, réðumst í
að láta skrifa sögu félagsins, vorum
þátttakendur í fyrirtækjum bæjar-
ins, tókum þátt í að efla atvinnulíf,
vorum þátttakendur í bæjarpólitík-
inni, tókum þátt í að efla heUsu-
gæslu og öldrunarmál, knúðum á
um bætta hafnaraðstöðu og bætt
öryggi sjómanna og svo mætti lengi
telja.
Þetta voru skemmtUegir tímar.
Þú varst, Helgi, alltaf sami eldhug-
inn í öllum málum. Þú lagðir mikið
upp úr því að myndarlega væri
staðið að málum hvarvetna þar sem
verkalýðsfélagið kom nálægt. Ekk-
ert var of gott fyrir okkar fólk.
Ekki vorum við alltaf sammála og
stundum tókum við snerrur, en
ávallt gátum við jafnað ágreining-
inn og aldrei slettist upp á vinskap-
inn - þannig eiga vinir að vera.
Margir fundir á verkalýðs-
kontórnum eru mér minnisstæðir,
en skemmtilegustu minningarnar
eru þó frá samkomunum í félags-
heimilinu Grafarbakka, heimili ykk-
ar Jóhönnu. Þú varst svo heppinn
að vera giftur þessari einstöku
konu. Án hennar varstu bara hálfur
maður, en með henni voru þér allir
vegh' færir. Umræðurnar við eld-
húsborðið í Grafarbakka voru oft
snarpar og alltaf skemmtilegar. Þá
var líka stutt í leikarann og grínist-
ann Helga Bjarnason að ég tali nú
ekki um þegar frændi þinn Sigurð-
ur Hallmarsson kom í heimsókn. Þá
urðu til hjá ykkur frændum ein-
hverjar mögnuðustu sýningar, sem
ég mun nokkru sinni upplifa - þeg-
ar þið gerðuð bæjarlífinu skil með
sögum, eftirhermum, látbragði og
leik. Eða þegar þú tókst „Undra-
hattinn" á einhverri samkomunni
og varst óborganlega skemmtileg-
ur. Þessar sýningar eru og verða
ógleymanlegar.
Á sama hátt verður þú, Helgi
Bjamason, ógleymanlegur öllum
sem kynntust þér. Þú varst aldrei
hversdagslegur. Það var aldrei nein
lognmolla í kringum þig. Þú komst
inn í líf mitt eins og snarpur gustur
og hvarfst út úr því aftur eins og
óvænt vindhviða. Þú kvaddh’ eins
og þér var einum lagið, í faðmi vina,
fyrir neðan Bakkann og minningin
um góðan vin og félaga mun lifa. Að
leiðarlokum er mér þakklæti efst í
huga. Þakklæti fyrir að fá kynnast
þér og ykkur hjónum og verða ykk-
ur samferða þennan spöl á lífsgöng-
unni. Þegar upp er staðið eru það
góðu stundirnar sem skipta máli.
Kæra Jóhanna, ég og Kristjana
kona mín vottum þér, börnum ykk-
ar, Aðalsteini, Kristjönu, Bjai'na
Hafþóri, Helga og Ingibjörgu, mök-
um þeirra, börnum og barnabörn-
um okkar dýpstu samúð á þessari
erfið stundu.
Kári Arnór Kárason.
VIGNIR
GARÐARSSON
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Krossinn !
20 ára i
KROSSINN á tuttugu ára afmæli í ;
dag, fimmtudaginn 12. ágúst. Af-
mælinu verður fagnað með fjöl-
breyttu samkomuhaldi. í dag, á af-
mælisdaginn, mun Mike Riordan i
prédika. Á laugardagskvöldið
verða hljómleikar kl. 20.30 og fram
koma Christ Gospel Band ásamt
fleiri snillingum. Á sunnudags- !
kvöldið kl. 20.30 hefst síðan sam- ]
komuherferð með Curtis Silcox, en !
hann mun einnig prédika á sam- v
komum 17., 18. og 19. ágúst, en
þær hefjast kl. 20.30 öll kvöldin.
Hinn frábæri sönghópur NIV
(New International Version) mun
syngja á samkomunum með Curtis
Silcox. j
Kristilegar
músíktilraunir
UNGLINGATÓNLEIKAR allra
kristinna trúfélaga verða haldnir í
Skautahöllinni sunnudaginn 15.
ágúst. Öllum kristnum trúfélögum
í Reykjavíkurprófastsdæmum hef-
ur verið boðin þátttaka en fram-
kvæmdastjórnin er í höndum "
Æskulýðssambands kirkjunnar í
Reykjavíkurprófastsdæmum
(ÆSKR). Áður en samkoman hefst
formlega verður boðið upp á grill-
máltíð fyrir utan Skautahöllina frá
kl. 20. Hin eiginlega dagskrá hefst
síðan kl. 21 með s.k. kristilegum
músíktilraunum. Fólk úr hinu
kristna samfélagi getur því notað
tækifærið til þess að koma ungu
tónlistarfólki úr söfnuðinum á
framfæri.
Búist er við mikilli þátttöku og ■
verður tónlistarflutningur í há-
marki. Fjórum til fimm trúfélögum
hefur verið úthlutað þremur mín-
útum til þess að segja stuttar
dæmisögur úr Biblíunni. Einnig fá
trúfélögin þrjár mínútur hvert til
þess að tengja söguna við nútím-
ann með stuttri lífsreynslusögu.
„Við leggjum alfarið í hendur trú-
félaganna hvort þeir vilja lesa,
leika eða syngja dæmisögur úr Bi-
blíunni,“ segir Halldór Elías Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
ÆSKR.
Helgistund á
Seyðisfirði
CECIL Haraldsson, sóknarprest-
ur, leiðir helgistund að Þórarins-
stöðum, Seyðisfirði, í dag, 12.
ágúst, kl. 18.
Minjasafn Austurlands hefur
undanfarin 2 sumur staðið að forn-
leifarannsókn að Þórarinsstöðum
undir stjóm Steinunnar Kristjáns-
dóttur fornleifafræðings. I ljós hef-
ur komið að á staðnum hefur staðið
kirkja gerð í svokölluðum staf-
kirkjustíl. Kirkjan hefur verið reist
snemma á kristnitökutímabilinu og
trúlega lögð af á 13. öld.
Helgistundin fer fram undir
beru lofti við hinar uppgröfnu rúst- -
ir og eru allir hjartanlega velkomn-
ir á staðinn.
Hallgrímskirkja. Orgeltónlist kl.
12-12.30.
Háteigskirkja. Taize-messa kl. 21.
Kópavogskirkja. Kyrrðar- og
bænastund í dag kl. 18. Fyrirbæna-
efnum má koma til prests eða
kirkjuvarðar.
Hafnarfjarðarkirkja.
Mömmumorgnar kl. 10-12 í Vonar-
höfn. ÁTN-starf fyrir 8-9 ára kl.
17-18.30 í Vonarhöfn. ,
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 22. Kaffi eftir athöfn. Bi-
blíulestur kl. 21.
Hjálpræðisherinn. Kl. 20.30 sam-
koma í umsjón Majórs Elsabetar
Daníelsdóttur. Allir hjartanlega
velkomnir.
Akraneskirkja. Fyrirbænastund
kl. 18.30. ‘ '
+ Vignir Garðars-
son var fæddur
á fsafirði 26. nóv-
ember 1941. Hann
lést á heimili sínu 1.
ágúst síðastliðinn
Vignir var sonur
hjónanna Huldu
Ingibjargar Páls-
dóttur frá Álftanesi
og hún Iifír son sinn
og Garðars Jóns-
sonar veitinga-
manns sem ættaður
er vestan úr Isa-
firði. Vignir var
yngstur þriggja
bræðra en eldri bræður hanns
eru Borgar Garðarsson, leikari,
f. 1938, kvæntur Ann Sandelin
og em þau búsett í Finnlandi og
Garðar Garðarsson, prentari, f.
1940, kvæntur Caroll Garðars-
son og eru þau búsett í Kanada.
Vignir kvæntist 1. apríl 1962
Guðbjörgu Hlíf Pálsdóttur, f. 9.
nóvember 1944. Guðbjörg og
Vignir eignuðust sex börn: 1)
Garðar Páll, kennari, f. 1962,
sambýliskona hans íris Ólafs-
dóttir og eiga þau íjögur börn
og eru þau búsett í Grindavík.
2) Ingibjörg Ósk, verslunarmað-
ur, f. 1964, gift Jóni
Reyni Sigurðssyni
og eru þau búsett á
Þingeyri og eiga
tvær dætur. 3) Ólaf-
ur Haukur, við-
skiptafræðingur, f.
1968, sambýliskona
hans er Ragnheiður
Birna Björnsdóttir
og eru þau búsett í
Hafnarfirði. 4)
Ágústa Hrönn, hús-
móðir, f. 1971, gift
Árna Kolbeins og
eiga þau þrjú börn
og eru búsett á Sel-
Ijarnarnesi. 5) Vigdís Hulda,
húsmóðir, f. 1974, gift Erlendi
Einarssyni og eiga þau tvö börn
og eru þau búsett í Reykjavík.
6) Vignir Hrannar, nemi, f.
1984.
Vignir flutti barnungur með
foreldrum sínum til Reykjavík-
ur þaðan sem hann lauk hefð-
bundnu barna- og grunnskóla-
námi. Að því loknu hóf hann
nám við Verslunarskóla íslands
og lauk hann Verslunarprófi ár-
ið 1960.
títför Vignis fór fram frá
Fossvogskirkju 9. ágúst.
Við heimkomu mína af danskenn-
araráðstefnu í Danmörku að kvöldi
3. ágúst tjáði kona mín mér að mág-
ur minn Vignir Garðarsson hefði
látist daginn áður.
Mér varð hugsað til þess þegar
við Guðbjörg fyrir um 40 árum fór-
um saman til að kenna dans í Vest-
mannaeyjum í fyrsta sinn. Ég hafði
fengið leyfi fyrir hana úr skóla þar
sem ég gat bent á, að bæði myndum
við stunda nám okkar utan skóla.
Ég fyrir stúdentspróf, hún fyrir
gagnfræðapróf. Þegar námskeiðinu
lauk gátum við tekið gamla Herjólf
um kvöldið. Tólf tíma sigling í ofsa-
veðri. Ég vildi bíða, en Gugga fara.
Ástin er sterk og hún vildi komast
sem fyrst tO Vigga síns, sem hún
hafði kynnst þegar hún 14 ára göm-
ul hafði aðstoðað mig við dans-
kennslu í Verslunarskóla Islands.
Aldrei hef ég lifað erfiðari tólf tíma
en siglinguna frá Eyjum tU Reykja-
víkur, en farsælt hjónaband Guggu
og Vigga hefur gert mér mögulegt
að skilja ákveðni hennar í að bíða
ekki. Eftir langt og hamingjusamt
hjónaband og sex myndarleg böm
er áreiðanlega erfitt að skOja við
jafn geðgóðan, duglegan, bamgóð-
an og ástríkan eiginmann og Vignir
var. Það er vissulega eftirsjá af
Vigni Garðarssyni og við hjónin
biðjum þann sem öUu ræður að
styrkja og blessa Guðbjörgu og öll
hennar börn, tengdaböm og bama-
böm.
Heiðar R. Ástvaldsson,
Hanna Frímannsdóttir.
Birting afmælis- og
minningargreina
MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar tO birtingar
endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjóm blaðsins í Kr-
inglunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1,
Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (569
1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið grein-
ina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Um hvem látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri
lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk,
A-4, miðað við meðallínubO og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um
25 dálksentimetra í blaðinu). TOvitnanir í sálma eða Ijóð takmarkast
við eitt tO þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skímarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein-
ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir
ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
MikO áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskOegt, að disklingur fylgi útprent-
uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverkn-
að. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali
eru nefndar DOS-textaskrár. Þá em ritvinnslukerfín Word og
Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu.
Laugavegi 40, f f y \\>
£