Morgunblaðið - 12.08.1999, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 12.08.1999, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR Nýtt Festir knatt- spyrnumörk ÞORBJÖRN Ásgeirsson hefur hannað búnað sem hann nefnir jarð- ankeri og festir tímabundið niður knattspyrnumörk. Búnaðurinn á að tryggja að mörkin falli ekki fram yf- ir sig og valdi slysum. Þorbjörn seg- ir að jarðankerin eigi líka að tryggja að samkomu- og veitinga- tjöld standi af sér óveður og síðan megi tjóðra hesta við ankerin. Nota- gildi búnaðarins á einnig við um aðra hluti sem þarf að festa niður. Jarðankerið er úr heit-galvaniser- uðu stáli. Pinninn er úr hertu stáli og uggamir úr bílfjöður. Morgunblaðið/Golli ÞORBJORN Ásgeirsson sem hannaði jarðankeri. HELLUSTEYPA JVJ Vagnhöfða 17 112 Reykjavfk Sfmi: 587 2222 Fax: 587 2223 Gerið verðsamanburð Tölvupústur: sala@hellusteypa.is Nýkaup í Kringlunni tekur stakkaskiptum á næstu mánuðum Italskt kaffíhús og aukin áhersla á tilbúna rétti VIÐSKIPTAVINIR Nýkaups í Kringlunni geta með haustinu tyllt sér niður á ítölsku kaffihúsi í Ný- kaupi, fengið sér ítalskt kaffi og sér- pantaðar kökur frá Ítalíu. Segi svengdin til sín verður hægt að kaupa sér pítsu á Pítsa Hut sem verður inni í versluninni, fá sér smurt brauð eða sushi og tylla sér niður eða taka með heim. Alls mun ný veitingaaðstaða í Nýkaupi rúma um 50 manns í sæti. Þetta kemur í ljós þegar teikningar bandaríska fyrirtækisins Charles Sparks & Company eru skoðaðar en það fyr- irtæki var fengið til að endurhanna verslunina í Kringlunni. Innlendu fyrirtækin Frostverk, Smíðagallerí og Nota Bene sjá síðan um að sér- smíða innréttingar, gera skilti og svo framvegis. Sömu fyrirtæki komu að vinnu við Nýkaupsverslunina á Eiðistorgi sem þegar er búið er að taka í gegn og verður útlit verslunarinnar í Kringlunni svipað og þar. Inngangurinn stækkaður Inngangurinn í verslunina verður stækkaður um helming og gengið verður beint inn í deild þar sem að- aláhersla er lögð á ferskar matvör- ur og tilbúna rétti. Strax við inn- Morgunb]aðið/Árni Sæberg INNGANGURINN verður stækkaður um helming og strax og komið er inn munu blasa við ferskar vörur og tilbúinn matur. STOR HUMAR Glæný laxaflök 790 kr. kg. Vestfirskur harðfiskur Stórlúða - Skötuselur - Stórar rækjur Höfðabakka 1 sími 587 5070 - Gæðanna vegna - ganginn verður myndarlegt blóma- torg en til stendur að auka úrvalið af ferskum blómum til muna. Þar verður einnig hægt að kaupa ferska ávexti og grænmeti. Aukin áhersla er lögð á tilbúinn mat tO að borða á staðnum eða grípa með sér heim. Meðal nýjunga er heitur kín- verskur matur en áfram verður líka seldur venjulegur heimilismatur eins og boðið hefur verið upp á og úrval tilbúinna kjúklingarétta. Finnur Árnason framkvæmdastjóri Nýkaups segir að þessar breytingar séu í takt við tíðarandann. „Við finnum að viðskiptavinir okkar kaupa í auknum mæli tilbúna eða hálftilbúna rétti. Skyndibitar hafa undanfarin ár lækkað mjög mikið í verði og við ætlum okkur að mæta þessari þörf viðskiptavina okkar, fjölga réttum og auka úrvalið en jafnframt bjóða áfram upp á fjöl- breytileika í ferskri matvöru. Ný- kaup í Kringlunni er ein stærsta matvöruverslun landsins og gefur okkur færi á að vera með mjög breitt vöruúrval." Alþjóðleg matargerð I miðri versluninni verður komið fyrir svæði þar sem alþjóðleg mat- argerð verður í hávegum höfð. „Al- þjóðleg matargerð hefur vaxið mjög ört og við finnum fyrir miklum áhuga á hráefni sem tengist henni. Við höfum því ákveðið að bæta við ýmsum vörum sem tengjast t.d. mexíkóskri, ítalskri, kínverskri og indverskri matargerð." Gleraugnaverslun og apótek Breytingar á Nýkaupi í Kringl- unni eru þegar hafnar og þar sem sérvörudeild Nýkaups hefur verið fram til þessa er nú verið að reisa apótek og gleraugnaverslun. „Við gerum ráð fyrir að þær deildir verði opnaðar seinni hluta september- mánaðar. Við fylgjum þeirri þróun sem hef- ur átt sér stað í Bretlandi og þó sér- staklega í Bandaríkjunum. Þar er ýmis þjónusta tengd matvöruversl- unum eins og t.d. lyfjaverslanir." Finnur telur að með þessari fram- kvæmd sé verið að koma tO móts við óskir viðskiptavina og gera þeim verslunarferðina þægilegri. Hann segir að Vífilfell komi einnig til með að setja upp Coca-Cola verslun sem mun selja aðrar sérvörur en drykkj- arvörur. Þegar hefur Coca-Cola fyr- irtækið sett á stofn slíkar verslanir m.a. í New York og Atlanta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.