Morgunblaðið - 12.08.1999, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 12.08.1999, Blaðsíða 76
Tölvueftirlitskerfi y sem skilar arangn <33)nýHERJI S: 569 7700 ffgtmMiitoifr MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 12. AGUST 1999 VERÐ I LAUSASOLU 150 KR. MEÐ VSK Nýjar sprungur við Kötlu SPRUNGUR hafa myndast í Mýr- dalsjökli við Kötlu og ganga þær þvert á hringlaga sprungur sem eru við sigkatlana sem þar eru. Petta kom í ljós þegar Reynir Ragnarsson, lögreglumaður í Vík, og Jónas Erlendsson, bóndi í Fagradal, flugu yfir jökulinn í gær, en ekki hefur gefið til flugs yfir hann síðan 5. ágúst. Reynir segir að ekki hafi orðið miklai’ breytingar á yfirborði jök- ulsins síðan 5. ágúst. Engir nýir sigkatlar hafi myndast, en þeir sem fyrir eru hafi þó eitthvað dýpkað og sprungur stækkað. Hann segir þó athyglisvert að sjá nýjar sprungui1 sem liggja frá norðri til suðurs. Jónas segir að þessar sprungur liggi frá þeim þremur sigkötlum, sem eru nálægt þeim stað þar sem Katla gaus 1918, og inn í sjálfa öskjuna. Sprungumar, sem em nokkrir kílómetrar að lengd, liggi langsum en séu ekki hringlaga eins og sprungurnar við sigkatlana. Má rekja til jarðhita Helgi Bjömsson jöklafræðingur á Raunvísindastofnun segir að ástæðuna fyrir því að þessar nýju sprungur hafi opnast megi að öllum líkindum rekja til jarðhitans. Þegar sigkatlar myndast opnist hringlaga reglulegar sprangur umhverfis ket- ilinn. Þegar frá liði yrðu sprang- umar ekki eins reglulegar og eins færi landið á botni jökulsins að hafa áhrif á hvernig jökullinn spryngi. Þetta væri að öllum líkindum að gerast núna. Jónas segir að sprungurnar við sigketillinn, sem er upp af Sól- heimajökli, séu orðnar mjög djúpar og margir metrar á breidd. Lítill skjálfti varð í Mýrdalsjökli í fyi’ra- dag, sem átti upptök nálægt þess- um sigkatli. Einnig hefur orðið vart við skjálftavirkni í Eyjafjallajökli. Heldur hefur minnkað í ám sem falla frá jöklinum, að sögn Reynis, sérstaklega á þetta við um Múla- kvísl. Reynir mun áfram fylgjast reglu- lega með yfirborði jökulsins. ♦ ♦♦------ Landsbanki íslands 722 milljóna hagnaður HAGNAÐUR Landsbanka íslands hf. fyrstu sex mánuði ársins var 722 milljónir króna miðað við 489 millj- ónir króna fyrir sama tímabil í fyrra og hefur því aukist um 233 milljónir eða tæplega 48% frá sama tímabili í fyrra. Þá fór kostnaðar- hlutfall bankans niður í 69,5% á tímabilinu, en á sama tímabili árið áður var þetta hlutfall 74,6%. Halldór J. Kristjánsson, banka- stjóri Landsbankans, er sáttur við uppgjörið og telur að bætta afkomu bankans megi rekja til aukinna um- svifa og hagstæðra ytri skilyrða á fjármagnsmarkaði auk þess sem af- koma dóttur- og hlutdeiidarfélaga hafi verið góð. Einnig bendir hann á að alhliða aðgerðir bankans til að bæta tekjur og lækka kostnað séu að byrja að skila sér. ■ Hagnaður/Cl Gífurleg hækkun hefur orðið á lífeyrisskuldbindingum opinberra starfsmanna _Skuldbindingar hækkuðu um 41,4 milljarða í fyrra ÁFALLNAR lífeyrisskuldbindingar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR) og Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga (LH) hækkuðu um 41,4 milljarða á síðasta ári. Lætur nærri að hækkunin samsvari ölium eignum sjóðsins. Hluthafafundi Skagstrendings frestað Samþykktir stand- ast ekki reglur ÁKVÆÐI samþykkta Skagstrend- ings hf. á Skagaströnd þess efnis að Höfðahreppur skuli eiga tvo menn í stjórn félagsins stenst ekki lengur reglur um skráningu verðbréfa á Verðbréfaþingi Islands hf. Málið verður tekið fyrir á stjómarfundi þingsins í dag en hluthafafundi Skagstrendings, sem vera átti á morgun, var frestað í gær. r Samherji hf. á Akureyri á um 40% hlut í Skagstrendingi, Höfða- hreppur um 21% og Burðarás um 17%. Stjórn skipa fimm manns og miðað við fyrrnefnd ákvæði og eignaraðild liggur fyrir að Höfða- hreppur verður með tvo menn í stjórn, Samherji tvo og Burðarás '^nn mann. Stefán Halldórsson, fram- kvæmdastjóri Verðbréfaþings, seg- ir að umrætt ákvæði samþykkta hafi samrýmst reglum þegar bréfin vora skráð 1992 en geri það ekki lengur því reglunum um skráningu hefur verið breytt. „Bréf með þess- ari tilhögun fengjust ekki skráð nú;“ segir hann. I gær óskaði Samherji eftir frest- un á fyrirhuguðum hluthafafundi Skagstrendings. „Ég óskaði eftir frestun á þessum hluthafafundi þar sem komið hefur í Ijós að sam- þykktir Skagstrendings standast ekki reglur Verðbréfaþings ís- lands,“ sagði Þorsteinn Már Bald- vinsson, framkvæmdastjóri Sam- herja, við Morgunblaðið. ■ Stenst ekki/24 Um 36,7 milljarða hækkun varð vegna launahækkana opinberra starfsmanna, en lífeyrisgreiðslur þorra þeirra taka mið af dagvinnu- launum eftirmanns í starfi. Breyt- ingar á vægi dagvinnulauna í heild- arlaunum hafa einnig leitt til hækk- unar á lífeyrisskuldbindingum. Áfallnar skuldbindingar B-deild- ar LSR miðað við 2% ávöxtun námu í árslok 1997 140,7 milljörð- um, en voru við síðustu áramót 177,9 milljarðar. Hækkunin mOli ára er því 37,2 milljarðar. Skuld- bindingar A-deOdar LSR námu um síðustu áramót tæpum 3 mOljörð- um. Skuldbindingar LH vora í árs- lok 199715,7 milljarðar, en vora um síðustu áramót tæpir 20 mOljarðar. Hækkunin mOli ára er því tæpir 4,3 mOljarðar. Áfallnar skuldbindingar Lífeyrissjóðs alþingismanna námu í árslok rúmum 2,7 milljörðum og skuldbindingar Lífeyrissjóðs ráð- herra námu í árslok 366 milljónum. Heildarskuldbindingar 204 milljarðar Samtals námu áfallnar skuld- bindingar þessara fjögurra lífeyris- sjóða opinberra starfsmanna um 204 milljörðum króna um síðustu áramót. LSR og LH áttu um ára- mót eignir sem samtals námu um 44,4 milljörðum. Lífeyrissjóðir al- þingismanna og ráðherra era hins vegar eignalausir. „Hækkun á skuldbindingum eldri deOda lífeyrissjóðanna kemur forsvarsmönnum sjóðanna ekki á óvart. Launasamsetningin hefur tekið veralegum breytingum á und- anförnum misserum og hefur hlut- ur dagvinnulauna í heOdarlaunum aukist. Skuldbindingar sjóðsins taka mið af dagvinnulaunum og því vora þessar hækkanir fyrirsjáan- legar. Á vegum lífeyrissjóðsins er nú verið að vinna áætlun um inn- og útstreymi á næstu áram tO þess að geta gert sér betur grein fyrir hvernig skuldbindingar launagreið- anda mun falla tO í framtíðinni. Á grandvelli þeirrar vinnu verður reynt að jafna greiðslur til sjóðsins á næstu ánjm. Ég vil hins vegar leggja ríka áherslu á að því lífeyriskerfi sem við eram hér að tala um hefur verið lokað og samið hefur verið um nýtt kerfi fyrir nýja sjóðsfélaga þar sem iðgjöld með ávöxtun þeirra standa algjörlega undir réttindum," sagði Haukur Hafsteinsson, fram- kvæmdastjóri LSR, þegar hann var spurður hvort þessi mikla hækkun skuldbindinga kæmi stjómendum sjóðsins á óvart. ■ A-deildin/12 FYRIR utan Raunvísindastofnun Háskólans fylgdist hópur manna, flestir visindamenn, af áhuga með deildarmyrkvanum í gærmorgun. Jón Sveinsson rafmagnsfræð- ingur heldur á blaðinu sem sýnir deildar- myrkvann en til vinstri fylgist Þorsteinn Sæmundsson stjörnufræðingur ábúðar- fullur með. Víða nýtti fólk dökka filmubúta til að sjá hvernig „tunglið nartaði í sólina“ eins og einhver orðaði það. ■ Fjöldi íslendinga/6 Tunglið nartaði í sólina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.