Morgunblaðið - 12.08.1999, Blaðsíða 50
FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
ÞAÐ var mikil stemmning meðal íslensku mótsgestanna þegar íslenska liðið var komið á sigurbraut.
Islendingar einráðir
í tölti og íjórgangi
Það eru stór orð að segja að okkar menn
hafí ráðið lögum og lofum í tölti og fjór-
gangi en sú varð nú raunin í heimsmeistara-
mótinu. Fyrirfram var vitað að íslenska liðið
var sterkt í þessum greinum en að sigrarnir
*yrðu jafn öruggir og glæstir sem raun varð
á var eitthvað sem engan hafði órað fyrir.
JÓHANN Örn Skúlason og Hengur
frá íbishóli voru 0,61 fyrir ofan Walt-
er Feldman frá Þýskalandi á Bjarka
frá Aldengor. í úrslitunum voru þeir
jafnir fyrir hægt tölt með 8,50, sem
var sterkasta hlið Bjarka og Feld-
mans. Eftir það sáu þeir ekki til sól-
ar og áttu aldrei möguleika gegn
glæsisýningu Jóhanns og Fengs.
Bjarki er geysigóður á hægatöltinu
en útlit hestsins er með þeim hætti
að hann á erfitt uppdráttar gegn sér
fallegri hestum eins og Feng.
Olil Amble og Kjarkur voru á
rnikilli siglingu í töltinu, unnu sig
upp úr B-úrslitum og höfnuðu að
endingu í þriðja sæti. Fyrrum
heimsmeistari í tölti, Vignir Sig-
geirsson á Þyrli frá Vatnsleysu,
fékk góða dóma í forkeppni og rétt
slapp inn í A-úrslit. Þar komu þeir
vel fyrir á hægatöltinu en riðu full-
hratt og var greinilega hegnt fyrir
það, voru settir í neðsta sæti og þar
með ljóst að möguleiki þeirra á að
verja titilinn var runninn út í sand-
inn. Á hraðabreytingum festist klár-
inn í brokki hjá Vigni og valdi hann
þann kostinn að hætta keppni. Einn
keppandi í tölti kom verulega á
óvart. Var það hollenska stúlkan
Juliet ten Bokum sem keppti á
Gróttu frá Litlu-Tungu en þau
sýndu feikna yfirferð í úrslitum og
voru næst hæst þar, aðeins Jóhann
og Fengur voru hærri. Þá er það
Reinhard Loidl frá Austurríki sem
enn á ný mætti með hryssuna Auði
frá Eystra-Fíflholti og komst í A-
úrslit en hann varð þriðji eftir for-
keppni en varð að víkja sæti fyrir
Olil og Kjarki í úrslitunum.
Ófeigur sýndi tennurnar
Nokkur uggur greip um sig þegar
ljóst var að Ásgeir Svan Herberts-
son, sem hafði unnið sér rétt til þátt-
töku í B-úrslitum, dró sig út úr
keppni því í 11. sæti var Jolly
Schrenk með Ófeig sinn og kom hon-
um inn í B-úrslitin. Óttuðust margir
að hún gæti unnið án keppni og væri
þar með komin í A-úrslit. Eftir
hægatöltið og hraðabreytingar var
Olil með 7,63 en Jolly með 7,38. Á
þessum tímapunkti var ljóst að ef
allt gengi að óskum með yfirferðina
hjá Jolly fengi hún uppundir átta og
væri þar með komin í A-úrslit. Það
var hins vegar Ófeigur sem tók ráðin
af knapanum og rauk stjórnlaust
nokkra hringi áður en Jolly gat farið
með hann útaf og hætt keppni. Þar
með var sú hætta úr sögunni.
Kjarkur á mikilli siglingxi
Olil Amble gerði góða hluti með
Kjarki á mótinu, sigraði með glæsi-
brag hinn áður ósigraða Ásgeir Sv-
an Herbertsson á Farsæli frá Arn-
arhóli en þetta mun vera í fyrsta
skipti sem þeir félagarnir vinna
ekki keppni í fjórgangi sem þeir
taka þátt í. Það hafa orðið stórkost-
legar breytingar á Kjarki hjá Olil
og greinilegt að hún hefur unnið
heimavinnuna vel frá því í úrtök-
unni þegar hún varð að lúta í lægra
haldi fyrir Ásgeiri og Farsæli. Þá
voru margir brestir sem berja mátti
í til að allt væri í góðu lagi. Sérstak-
lega var það höfuðburðurinn sem
var góður en bara á köflum en nú
var hann alveg smollinn í réttu stell-
inguna, ekki bara á brokki heldur
einnig á stökki og tölti. Fyrir brokk
fékk hún 8,83 en þar gáfu tveir
dómarar henni 9,0 og fyrir stökkið
fékk hún 8,67. Eftir hægatöltið og
brokkið var ljóst í hvað stefndi því
brokkið, sem hefur verið sterkasta
hlið Farsæls, var heldur lakara en
það hefur verið best og sama gilti
rilboÖ.ídngm* ( C
IÁ. 'M), n
KU.3Í;
Uþííj
XUtíl!-—iuí. 12-1
inu. 14/8 11-1
Mörkinni 3
Sími 588 0640
casa@islandia.is
JÓHANN og Fengur fóru létt í gegnum töltúrslitin og unnu tölthorn-
ið eftirsótta, sem að þessu sinni fer ekki heim til Islands þvi Jóhann
er búsettur í Danmörku.
KJARKUR frá Horni er tvímælalaust sá hesta í íslenska liðinu sem
sýnt hefur mestar framfarir frá úrtöku og fara þau hér mikinn í sig-
urvímu, Olil og Kjarkur.
RÚNU Einarsdóttur og Snerpu frá Dalsmynni gekk ekki sérlega vel
í forkeppni en komust svo í B-úrslit í Qórgangi og þar linntu þær
ekki látum fyrr en þriðja sætið var í höfn í A-úrslitum.
um stökkið þar sem Olil var með
mikla yfirburði.
Á yfirferðinni snerist dæmið við
þar sem Ásgeir og Farsæll voru heil-
um hærri en Olil og Kjarkur en það
dugði ekki til, svo miklir voni yfír-
burðirnir í hinum atriðunum. Eftir
svo glæsilegan sigur eru sjálfsagt
allir tilbúnir að fyrirgefa Olil þau
mistök að skila inn of mörgum æf-
ingum í fímikeppninni og vera dæmd
úr leik fyrir bragðið. En svona eftir á
að hyggja þá skipti það ekki öðru
máli en því að hún tók ekki þátt í
þeirri grein. Ætla má að hún hefði
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Kynning
í dag í
Garðs Apóteki-Sogavegi
kl. 14-18 og
Laugavegs Apóteki kl. 15-18
- Kynningarafsláttur -
GÓLFEFNABÚÐIN
Mikið úrval
fallegra flísa
Borgartún 33 • RVK
Laufásgata 9 • AK
ekki átt möguleika gegn Jolly
Schrenk, sem sigraði með miklum
yfirburðum, og eftir heimsmet Sig-
urbjörns í skeiðinu átti enginn
möguleika gegn honum í keppninni
um samanlagðan sigurvegara.
Fjórgangsveldi Þjóðverja
gjörsamlega hrunið
En áfram með fjórganginn því Is-
lendingar röðuðu sér í þrjú efstu
sætin og þar næst á blaði var Rúna
Einarsdóttir með Snerpu frá Dals-
mynni en þær stöllur unnu gott af-
rek. Voru þær í áttunda sæti eftir
forkeppnina. Unnu í B-úrslitum eft-
ir spennandi keppni, skutu síðan
fjórum keppinautum aftur fyrir sig í
A-úrslitum. Eftir þessa fræknu
framgöngu íslensku keppinautanna
má með réttu segja að hið mikla
veldi Þjóðverja í fjórgöngu sé ger-
samlega hrunið. Hæst Þjóðverja
komst Irene Reper á Kappa frá
Álftagerði, náði fimmta sæti eftir að
hafa verið í fjórða sæti eftir for-
keppni. Unn Krogen, Noregi, mætti
nú á þriðja heimsmeistaramótið
með Hruna frá Snartarstöðum en
þrátt fyrir mikinn glæsileika vantar
alltaf eitthvað uppá til að þau nái
toppnum. Hægatöltið var þeirra
veikasta hlið í A-úrslitum en brokk,
fet og stökk sterkast. Fyrrum
heimsmeistari, Styrmir Árnason,
sigldi nokkuð lygnan sjó í sjötta
sæti. Hann er greinilega ekki búinn
að vera nægilega lengi með hestinn
til að ná fyrri styrk og vafasamt má
telja að það hefði dugað honum
lengra en í fjórða sætið því það virð-
ist nokkuð ljóst að fjórgangurinn
var sterkari nú en á HM fyrir
tveimur árum og líklegast aldrei
eins sterkur og nú.
Valdimar Kristinsson