Morgunblaðið - 12.08.1999, Side 10

Morgunblaðið - 12.08.1999, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1999 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Gylliboð frá Nígeríu berast enn ENN er eitthvað um að íslenskum fyrirtækjum eða einstaklingum berist bréf frá nígerískum fyrirtækjum með gylliboðum um skjótfenginn gróða þótt ekki virðist meira um það nú en undanfarin ár. Að sögn Birgis Ár- mannssonar skrifstofustjóra hjá Verslunarráði íslands fær ráðið fjöldamargar fyrirspumir út af bréf- um sem þessum á ári hverju, þar sem menn eru m.a. að velta því fyrir sér hvort eitthvað sé mark á þeim tak- andi. Birgir ráðleggur mönnum að sinna hvorki bréfunum né láta þau raska ró sinni. Bréfin sem um ræðir eru gjarnan merkt Nígeríumanni sem sagður er forstöðumaður opinbers fyrirtækis og fer hann þess á leit við viðtakanda að hann veiti aðgang að bankareikningi sínum fyrir peningaþvætti gegn ríf- legri þóknun. Að sögn Birgis eru bréfasendingar sem þessar þekkt vandamál víða um heim og segir hann að menn séu hvar- vetna varaðir við að taka mark á inni- haldi þeirra. ,Alþjóða verslunarráðið hefur beitt sér töluvert til þess að ráða bót á þessum vanda, enda eru dæmi um að fyrirtæki og einstakling- ar á Vesturlöndum hafi tapað fé vegna svika af þessu tagi,“ segir hann. Morgunblaðið/RAX Slysið við Kotá Á gjörgæslu en fer batnandi LIÐAN mannsins, sem slasaðist á vélhjóli við Kotá í Norðurárdal í Skagafirði sl. mánudag fer batnandi. Hann er enn á gjör- gæsludeild Fjórðungssjúkra- hússins á Akureyri. Að sögn lækna hlaut hann fjöláverka og hefur gengist und- ir aðgerðir vegna þeirra. Líðan hans er nú nokkuð stöðug og virðist ganga í rétta átt til hins betra og er hann ekki lengur tal- inn í lífshættu. SIV Friðleifsdóttir umhverfisráðherra skoðaði ohumengun frá E1 Grillo á Seyðisfírði í gær í fylgd fulltrúa bæjaryfirvalda. Umhverfísráðherra kynnir sér sjónarmið íbúa Austurlands til umhverfísmála Náttúruvernd og atvinnu- sköpun geta farið saman SIV Friðleifsdóttir umhverfisráð- herra kynnti sér umhverfismál á Austurlandi í gær, m.a. viðhorf Austfirðinga til stóriðju- og virkj- anaframkvæmda og fundaði í því til- efni með fulltrúum sveitarfélaga á Austurlandi og náttúruverndarsam- tökum. Þá fundaði ráðherra með hreindýraráði og hreindýraeftirlits- mönnum og skoðaði olíumengun úr flaki E1 Grillo í Seyðisfirði. Siv Friðleifsdóttir sagði í samtali við Morgunblaðið að fundirnir hefðu verið sér gagnlegir og sér þótt mjög Stofnun samtakanna Verndum Laugardalinn Um 350 manns á stofn- fundi samtakanna UM 350 manns mættu á stofnfund samtakanna Vemdum Laugardalinn sem haldinn var í gær. Kosinn var fimmtán manna stjóm og formaður samtakanna, Skúli Víkingsson jarð- fræðingur hjá Orkustofnun. Fundurinn hófst á því að Þorgeir Ástvaldsson bauð gesti velkomna og lýsti ánægju sinni með þann fjölda gesta sem mættur var. Þorgeir sagði í ávarpi sínu fyrirhuguð byggingará- form í austurhluta Laugardals ramm- falskan tón í Laugardalssinfóníunni, Laugardalurinn hefði hingað til vaxið og dafnað í nafni íþrótta, útivistar og fjölskyldunnar og byggingamar féllu ekki að byggðaþróun dalsins. Þorgeir sagði stofnun samtakanna, Verndum Laugardalinn, ekki beint gegn þeim fyrirtækjum sem hlut eiga að máli. Ekki heldur efaðist hann um að rétt hefði verið staðið að málsmeð- ferð í borgarstjóm. Samtökin sprottin úr grasrótinni Þorgeir sagðist viss um að undir- skriftasöfnun gengi vel, þegar hefðu 7.000 manns skrifað undir þá lista sem Stefán Aðalsteinsson hefði dreift upp á sitt eindæmi. Þorgeir lagði að lokum áherslu á að samtökin væm grasrót- arsamtök og ekki stofnuð að undirlagi Sjálfstæðisflokksins eins og einhverjir vildu halda fram. Að loknu máli Þorgeirs tók Ellert B. Schram við fundarstjóm og bar Morgunblaðið/Jim Smart HLUTI fundargesta á stofnfundi samtakanna Vemdum Laugardalinn, en á milli þrjú og fjögur hundruð manns mættu á fundinn. samþykktir fyrir samtökin undir fundargesti sem samþykktu þær ein- róma. Einnig var ályktun um vemdun Laugardalsins samþykkt. Að því loknu var stjóm samtakanna kosin, en hana skipa þau Þorgeir Ástvaldsson, Bergþór Pálsson, Gunnar Jón Ingv- arsson, Öm Andrésson, Skúli Vík- ingsson, Bergdís Una Bjömsdóttir, Stefán Aðalsteinsson, Halldór Guð- mundsson, Þorgrímur Þráinsson, Eg- gert Magnússon, Árdís Þórðardóttir, Sigrún Thorlacius, Andrés Pétur Rúnarsson, Jón Gunnarsson og Ragn- heiður Ásta Pétursdóttir. Skúli Vík- ingsson var síðan kosinn formaður. Skúli tók til máls að lokinni kosn- ingu og hvatti hann fundarmenn til að sinna undirskriftasöfnun þannig að vilji borgarbúa kæmist til skila. í samtali við Morgunblaðið sagðist Skúli handviss um að fjöldi undir- skrifta yrði slíkur að ekki færi á milli mála að borgarbúar væm á móti byggingaráformum. Skúli sagðist vænta þess að borgaryfirvöld yrðu við óskum borgarbúa, en undir- skriftalistar verða afhentir að lokinni söfnun. Skúli benti á að auk hefð- bundinna undirskriftalista sé hægt að skrá sig á heimasíðu Vemdum Laug- ardalinn. mikilvægt að heyra sjónaiTnið heimamanna frá fyrstu hendi, svo sem eins og í „hitamálum" eins og orku- og stóriðjuframkvæmdum þar eystra. Hún sagði að sú skoðun hefði komið skýrt fram meðal fulltrúa sveitarstjóma á Austurlandi að fyr- irhugaðar virkjana- og stóriðjufram- kvæmdir myndu hafa jákvæð áhrif á byggðina í fjórðungnum. Hjá fulltrúum náttúmverndar- samtaka hefði hún orðið vör við þveröfug sjónarmið, þar væm ríkj- andi efasemdir um að stóriðja væri það sem byggðin þarfnaðist. Ráð- herra sagðist styðja stefnu stjórn- valda í málinu og benti á nýlega samþykkt ríkisstjómarinnar um framgang álversframkvæmda á Reyðarfirði og undirritun samkomu- lags þess efnis við Norsk Hydro. Byggðasjónarmið átt erfítt uppdráttar í virkjanaumræðu Spurð að því hvort sér þætti hún knúin til að hlusta á raddir almenn- ings varðandi kröfur um umhverfis- mat á Fljótsdalsvirkjun sem nýskip- aður ráðherra sagði hún að náttúm- vemd og stuðningur við tækifæri til atvinnusköpunar gætu vel farið saman og ekki bæri að stilla þeim möguleikum upp svart á móti hvítu. Meta þyrfti slíka hagsmuni hverju sinni þegar þeir toguðust á. Hins vegar gæti farið svo að lög um virkjunina yrðu tekin upp á Al- þingi í haust þar sem aðilar innan stjórnarandstöðunnar hefðu boðað að þeir myndu leggja fram þá tillögu að virkjunin fari í lögformlegt um- hverfismat. Þorvaldur Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Sambands sveitarfé- laga á Austurlandi, sagði að á fund- inum hefðu heimamenn lagt áherslu á að byggðasjónarmiðum yrði gert hærra undir höfði en hingað til hefði verið gert í umræðu um stóriðju- og virkjanamál á Austurlandi. „60% þjóðarinnar býr á suðvest- urhorninu og byggðasjónarmið okk- ar hafa átt ákaflega erfitt uppdrátt- ar í umræðunni um virkjanir og stóriðju á Austurlandi. Við báðum ráðherra að skoða byggðalegu rökin og leggja þau á vogarskálarnar á móti rökum náttúruverndai'sinna. Hálendið okkar er einstakt en mannlífíð er það líka. Það er spurn- ing um að skoða málið frá báðum hliðum," sagði Þorvaldur eftir fund- inn með ráðherra. Karen Erla Erlingsdóttir, tals- maður Félags um verndun hálendis Austurlands, sagði að fulltrúar fé- lagsins hefðu brýnt fyrir ráðherra þá viðhorfsbreytingu sem hefði átt sér stað í þjóðfélaginu síðan lög um mat á umhverfisáhrifum voru sam- þykkt árið 1993 og bentu á að stjómvöld þyrftu að taka það til at- hugunar. „Félagið vill að Fljótsdals- virkjun verði innifalin í rammaáætl- un um nýtingu vatnsfalls og jarð- hita. Ráðherra sagði að til þess þyrfti lagabreytingu og við sögðum að lagabreyting væri vel möguleg ef vilji væri fyrir hendi,“ sagði Karen Erla. „Olíuflekkirnir stærri en ég hafði gert mér í hugarlund" Auk þess að kynna sér orku- og stóriðjumál og ræða við hreindýra- ráð og eftirlitsmenn, skoðaði ráð- herra olíumengun sem borist hefur undanfarna daga úr flaki E1 Grillo á botni Seyðisfjarðar. Töluvert var af olíubrák í firðinum og tjáðu heima- menn ráðherra að mengunin væri misjafnlega vel sjáanleg eftir veðri. Brákin sást þó greinilega í bátsferð ráðherra. Ólafur Sigurðsson, bæjar- stjóri Seyðisfjarðar, sagði að menn hefðu mestar áhyggjur af æðarfugli í firðinum en töluvert væri þar af honum og væri þar rekið að minnsta kosti eitt æðarbú. Á þessum árs- tíma væru kollurnar með unga sem kæmi sér mjög illa og gæti leitt til alvarlegri afleiðinga olíumengunar- innar. Ráðherra sagði að olíuflekkirnir væru stærri en hann hefði gert sér í hugarlund. „Það er brýnt að fara út í aðgerðir sem fyrst til að núverandi leki dreifi sér ekki frekar út í um- hverfið. Stýrihópur sem ég skipaði fyrir skömmu mun skila mér tillög- um á næstu dögum um hvernig hemja eigi núverandi leka og hef ég lagt áherslu á að þetta mál verði Ipvst ‘ > frrrct u sncrríi vtíríhprTa

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.