Morgunblaðið - 12.08.1999, Blaðsíða 64
3 64 FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1999
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
>
*
>
Heimsmeistaramótið í Las Vegas
Shirov
sigrar Short
SKAK
Las Vegas
HEIMSMEISTARAMÓTIÐ
í SKÁK
30. júlí - 29. ágúst
ALEXEI Shirov er kominn í
fimmtu umferð heimsmeistara-
mótsins í skák eftir sögulega
viðureign við Englendinginn
Nigel Short. Báðar skákimar í
einvígi ]>eirra voru mjög spenn-
andi. I fyrri skákinni hafði
Shirov hvítt. Short tefldi sjald-
gæft afbrigði af franskri vöm og
upp komu miklar flækjur.
Shirov fómaði manni í 15. leik,
en erfitt var að sjá
að hann fengi nægar
bætur fyrir mann-
inn. Staðan var hins
vegar svo flókin að
erfitt var að rata
rétta leið. Þegar fór
að saxast á tíma
Shorts lék hann
nokkmm ónákvæm-
um leikjum og varð
að játa sig sigraðan
eftir 46 leiki. Þessi
ósigur hlýtur að hafa
verið mikið áfall íyr-
ir Short. I seinni
skákinni hafði Short
allt að vinna og engu
að tapa. Hann ákvað
að beita kóngsbragði, en það er
reyndar ekki í fyrsta skipti sem
þeirri hvössu byrjun er beitt á
heimsmeistaramótinu. Short
náði aldrei að skapa sér færi í
skákinni og henni lauk með jafn-
tefli sem dugði Shirov til að
komast áfram í næstu umferð.
Flestum kappskákunum í
fjórðu umferð lauk með jafntefli,
nema hvað Akopian sigraði Ge-
orgiev.
VISA-Iokamótið
Eftir prýðilegan árangur í
fyrstu fjórum umferðunum töp-
uðu allir íslendingamir skákum
sínum í fímmtu umferð á loka-
móti VISA-stórbikarkeppninn-
ar. Helgi Áss tapaði íyrir Lars
Schandorff, Jón Viktor tapaði
fyrir Tiger Hillarp Persson, og
Helgi Olafsson tapaði fyrir Si-
men Agdestein.
Staðan á mótinu er þessi að
fimm umferðum loknum:
1.-2. Sune Berg Hansen 4 v.
1.-2. Tiger Hillarp Persson 4 v.
3. Simen Agdestein 3'/2 v.
4. -5. Helgi Ass Grétarsson 3 v.
4.-5. Jonny Hector 3 v.
6.-8. Jón V. Gunnarsson 214 v.
6.-8. Heikki Westerinen 2Vz v.
6.-8. Lars Schandorff 2/2 v.
9. Ralf Akesson 2 v.-l-
10. Einar Gausel 2 v.
11. Helgi Ólafsson lVz v.+
12. Nikolaj Borge lVz v.
13. -14. Torbjom R. Hansen 1 v.
13.-14. Heini Olsen 1 v.
Sigurður Daði sigrar
á atkvöldi Hellis
Sigurður Daði Sigfússon sigr-
aði á atkvöldi Hellis sem haldið
var mánudaginn 9. ágúst. Sig-
urður Daði fékk 5‘/2 vinning úr 6
skákum. Hann gerði eitt jafn-
tefli við Bjöm Frey Björnsson
sem varð annar
með 4% vinning. í
3.-5. sæti urðu Da-
víð Kjartansson,
Jónas Jónasson og
Kristján Eðvarðs-
son með 4 vinninga.
Lokastaðan varð
annars sem hér
segir:
1. Sigurður Daði Sig-
fússon 514 v.
2. Björn Freyr
Björnsson 4Vz v.
3. Davíð Kjartansson
4 v.
4. Jónas Jónasson 4
v.
5. Kristján Eðvarðs-
son 4 v.
6. Andri Áss Grétarsson 314 v.
7. Matthías Kjeld 3 v.
8. Hjörtur Daðason 3 v.
9. Gunnar Björnsson 3 v.
10. Gunnar Finnsson 3 v.
11. Jóhann Ingvason 3 v.
12. Andrés Kolbeinsson 3 v.
13. Ingóifur Gíslason 3 v.
o.s.frv.
Skákstjórar vom Gunnar
Bjömsson og Andri Áss Grét-
arsson.
Skákmót
á næstunni
Tilkynningar um skákmót og
aðra skákviðburði sendist til
skákþáttar Morgunblaðsins.
Tölvupóstfangið er dadi@vks.is.
Einnig má senda athugasemdir
við skákþættina á sama póst-
fang.
13.8. TR. Helgarskákmót.
18.8. Borgarskákmótið kl. 16.
21.8. SH. Útimót í Firði kl. 14.
27.8. Skákþing Kópavogs.
31.8. SÍ. Landsliðsflokkur.
31.8. SÍ. Kvennaflokkur.
Daði Örn Jónsson
Sigurður Daði
Sigfússon
He msme staramótið — Fjórða umferð
V. Topalov 2690 V. Kramnik 2760 i/2.y2 i/2.y2
M. Adams 2708 A. Dreev 2679 y2.y2 y2.y2
S. Movsesian 2659 A. Fedorov 2659 y2.y2 y2.y2
K. Georgiev 2650 V. Akopian 2646 y2.y2 0-1
J. Polgar 2671 V. Zvjaginsev 2652 i/2.y2 y2-i/2
A. Khalifman 2628 B. Gelfand 2713 y2.y2 i/2.y2
L. Nisipeanu 2584 V. Ivanchuk 2702 y2.y2 i/2.y2
A. Shirov 2734 N. Short 2675 1-0 y2.y2
Byggingaplatan WDK@(S®
sem allir hafa bedið eftir
VIROC®byggingaplatan er fyrir
veggi, loft og gólf
VJROC®byggingaplatan er eldþolin,
vatnsþolin, höggþolin, frostþolin og
hljóðeinangrandi
VIRQObyggingaplötuna er hægt
að nota úti sem inni
VIRQC byggingaplatan
er umhverfisvæn
VIROCbyggingaplatan er platan
sem verkfræðingurinn getur
fyrirskrifað blint.
ÞÞ
&CO
LeitiS fiekari upplýsinga
Þ.ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚU29 S: 553 86401 568 6100
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Gras eða
steinsteypa
ÞEGAR ég var að rölta
um bæinn í góða veðrinu
um daginn var mér hugsað
til þess hversu grasblettir
eru óðum að hverfa. Mér
hryllir við þessu. Framhjá
mér þusti fjöldinn allur af
bílum og mengunin var
kæfandi fyrir utan hávaða-
mengunina og yfirleitt var
bara ein manneskja í
hverjum bfl. Eg keypti
mér ís en áður en ég náði
að borða hann var hann
orðinn grár á litinn. Engin
borg er falleg og mann-
eskjuleg nema að þar séu
grasblettir, blóm, tré og
bekkir, sem mikið vantar
af hér. Það er gott fyrir
þreytta sál að geta sest
niður á svona stað og
slappað af, hlustað á fugla-
sönginn. En ef heldur
fram sem horfir, er ég
hrædd um að sá fagri
söngur þagni, og fuglarnir
flýi borgina og eftir verður
ærandi hávaði umferðar-
innar. Og nú á að eyði-
leggja Laugardalinn,
þessa yndislegu nátt-
úruperlu. Eg vil mótmæla
slíku harðlega. Mig langar
ekki til að sjá borgina fal-
legu verða eins og stór-
borgimar erlendis. For-
sætisráðherra sagði að ef
hann hefði verið borgar-
stjóri hefði hann ekki leyft
byggingu þarna. Eg vil
þakka honum fyrir þessi
ummæli hans. Eg verð að
segja að núna þegar verk
R-listans tala veldur hann
mörgu fólki sem kaus
hann vonbrigðum.
Sigrún.
Göngustígurinn
í Grafarvogi
FYRIR sunnan Gullin-
brúna er göngustígur sem
nær í kringum voginn.
Þessi stígur hefur verið
mjög vinsæll, þar er fólk
að skokka og mæður á
göngu með börn sín. Nú
hefur það skeð í sumar að
verið er að byggja við stíg-
inn fyrir sunnan þar sem
Isiandsbanki er. Þar sem
byggingamar rísa hefur
jarðvegi verið mtt yfir
gangstíginn og er hann
rofinn að hluta. Finnst
mér hart ef byggingaraðii-
ar komast upp með þetta
og vil ég að þeir verði látn-
ir ryðja stíginn þannig að
hann komist í gagnið aft-
ur. Ég er mjög óhress með
þetta því þetta er vinsæll
hringur.
Grafarvogsbúi.
Kalmanstunga
- niðjamót
LAUGARDAGINN 14.
ágúst ætla afkomendur
hjónanna Ólafs Stefáns-
sonar og Sesselju Jóns-
dóttur frá Kalmanstungu
að koma saman til að
treysta böndin eins og
gert hefur verið á 5 ára
fresti. Safnast verður sam-
an að Brúarási kl. 14 og
þaðan farinn hringurinn
að Kalmanstungu og niður
á Gilsbakka og e.t.v. verð-
ur stoppað víðar. Síðan
verður aftur farið niður í
Brúarás þar sem ætlunin
er að njóta saman hlað-
borðs sem sett verður
saman úr framlagi frá
hverri fjölskyldu. Þátttaka
í þessum niðjamótum hef-
ur yfirleitt verið góð og er
vonast til að svo verði
einnig í ár.
Tapað/fundið
Kaffítaska
FÓLKIÐ sem tók kaffi-
tösku af matarborði í
Ólafslundi við Vatnsdals-
hóla 21. júlí sl. láti í sér
heyra í síma 562 8483.
Anna.
Gönguskór týndust
við Flókalund
BRÚNIR leðurgöngu-
skór, Osmotex, týndust á
tjaldstæðinu við Flóka-
lund um síðustu helgi.
Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 431 2351.
Dúkka í óskilum
DÚKKA fannst á bflaplan-
inu við hliðina á Kaffi
Reykjavík sl. föstudag.
Upplýsingar í síma
557 4197.
Bakpoki týndist
við Dimmugljúfur
SUNNUDAGINN 8.
ágúst sl. týndist rauður og
svartur Vaude-bakpoki, að
öllum hkindum við
Dimmugljúfur við Jökulsá
á Dal. I pokanum eru m.a.
vindbuxur og plastkassi
með upplýsingum um
Garmin GPS-tæki. Finn-
andi hafi vinsamlegast
samband við Lúðvig eða
Margréti í síma 588 3122.
Myndavél
í óskilum
MYNDAVÉL fannst á
Austurvelli sl. föstudag.
Upplýsingar í síma
897 9122.
Dúkkuhús týndist
DÚKKUHÚS, bjálkahús
(mahony), hvarf úr landi
Möðruvalla í Kjós (beint á
móti Vindáshlíð). Þeir sem
gætu gefið upplýsingar
um húsið hafi samband í
síma 567 2695.
Ungbarnateppi
týndist
MARGLITT prjónað ung-
barnateppi týndist líklega
á Laugavegi eða Háteigs-
vegi. Teppið er prjónað af
móður fyrir nýfædda dótt-
ur sína. Þeir sem hafa orð-
ið varir við teppið vinsam-
lega hafið samband í síma
551 0332. Fundarlaun.
Dýrahald
Hvítur kettlingur
í óskilum
HVÍTUR kettlingur
með svart skott og gráa
og svarta flekki fannst í
kirkjugarðinum í Graf-
arvogi 30. júlí sl. Þeir
sem kannast við kisa
geta haft samband í
Kattholt.
SKÁK
Umsjún Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp á
heimsmeistaramótinu í
Las Vegas sem nú
stendur yfir. Rússinn
Evgení Barejev (2.695)
hafði hvítt og átti leik
gegn Eistanum Jan
Ehlvest (2.590).
34. Hxf6 - Bxf6 35.
Hc8+ - Dd8 36. Hxd8+
- Kxd8 37. Df2 - Be5
38. Db6+ - Ke8 39.
Dxb7 - Kf8 40. Dxa6 og
svartur gafst upp.
Mótið er með útslátt-
arfyrirkomulagi og að
fjórum umferðum lokn-
um eru eftirtaldir skák-
menn ósigraðir: Khal-
ifman, Ivanchuk, Zvjag-
insev, Judit Polgar,
Nisipeanu, Kiril Georgi-
ev, Fedorov, Dreev, Ad-
ams, Short, Topalov,
Kramnik, Movsesian,
Akopian, Gelfand og
Shirov.
HVÍTUR leikur
og vinnur.
Víkveiji skrifar...
GREINILEGT er á öllu að um-
ræður um skipulagsmál í Laug-
ardal eiga eftir að verða fyrirferðar-
miklar á næstu mánuðum og miss-
erum. Búið er að stofna samtök sem
ætla að berjast fyrir verndun dals-
ins. Vonandi ná þau betri árangri en
samtökin Tjömin lifi, sem á sínum
tíma börðust gegn byggingu ráð-
húss í Tjörninni. Að mati Víkverja
er hér að mörgu leyti um sambæri-
leg mál að ræða. Tjömin er eins og
Laugardalurinn eitt fjölsóttasta úti-
vistarsvæði landsins og óhjákvæmi-
legt var að allar breytingar á um-
gjörð hennar yrðu umdeildar.
Borgaryfirvöld hafa fært þau rök
fyrir úthlutun lóða undir skrifstofu-
byggingu og bíó í Laugardal að lóð-
imar hafi um áratugaskeið verið
ætlaðar undir byggingar sam-
kvæmt aðalskipulagi. Víkverji hefur
áður bent á að þessi rök ein og sér
duga ekki því að breytingar hafa
orðið á viðhorfum til umhverfis- og
skipulagsmála og eðlilegt að horft
sé til þess. Sambærileg viðhorfs-
breyting hefur orðið til umhverfis-
og skipulagsmála á hálendi Islands.
Þess er nú krafist að gamlar
ákvarðanir um virkjanir á hálend-
inu verði teknar til endurskoðunar.
xxx
VÍKVERJI telur hins vegar að
það sé ótvírætt hagsmunamál
fyrir Reykvfldnga að Landssíminn
verði áfram með höfuðstöðvar sínar
í Reykjavik. Ekki hefur verið nægi-
lega upplýst hversu mikil hætta var
á að Landssíminn byggði í einhverju
nágrannasveitarfélagi Reykjavíkur
fengi hann ekki þessa lóð. Það hefur
heldur ekki komið fram hvort full-
reynt hafi verið hvort hægt væri að
finna aðra lóð í Reykjavík sem hent-
aði Landssímanum jafnvel og þessi
tiltekna lóð í Laugardalnum.
Þótt ábyrgðin í þessu máli liggi
fyrst og fremst hjá stjómendum
Reykjavíkurborgar telur Víkverji
að eigandi Landssímans geti ekki
komið sér undan ábyrgð í málinu.
Forsætisráðherra hefur lýst yfir
andstöðu við byggingaráformin í
Laugardal og hann hlýtur að beita
áhrifum sínum til að samgönguráð-
herra, sem fer með hlutabréf ríkis-
ins í Landssímanum, stöðvi þessi
byggingaráform. Þetta mál er þeg-
ar orðið af þeirri stærðargráðu að
ekki er óeðlilegt að samgönguráð-
herra beiti sér í því. A.m.k. hljóta
samtökin sem berjast fyrir vemdun
Laugardalsins að nota öll ráð til að
ná markmiði sínu fram, þar með
talið að þrýsta á ríkisvaldið.
XXX
BJÖRN Bjamason menntamála-
ráðherra bendir réttilega á það
í pistli á heimasíðu sinni að það veki
undrun að Jón Ólafsson, stjómar-
formaður Norðurljósa hf., skuli
þurfa að sækja um lóð í Laugardal
undir bíó þegar haft er í huga að
hann hafi nýlega keypt stórt land í
Garðabæ. Víkverji tekur undir
þetta.
Björn furðar sig jafnframt á því
að fjölmiðlar skuli ekki hafa gengið
á borgarstjóra og R-listann um svör
við grein sem Hannes Hólmsteinn
Gissurarson prófessor ritaði í
Morgunblaðið þar sem dylgjað er
um að Jón hafi lagt fjármuni í kosn-
ingasjóð R-listans, sem hann sé nú
að fá launað með lóðaúthlutun í
Laugardal.
xxx
VÍKVERJI tekur undir það
sjónarmið að stjórnmálaflokk-
amir eigi að upplýsa kjósendur um
fjármál sín, en telur jafnframt að
það eigi að ná jafnt til allra flokka.
Ásakanir af þessum toga hafa áður
komið fram og vörðuðu þá önnur
stjórnmálasamtök. Slíkar ásakanir
eiga efalaust eftir að verða hluti af
pólitískum deilum hér á landi svo
lengi sem flokkarnir neita að verða
við eðlilegum óskum kjósenda um
að upplýst verði hverjir séu stærstu
styrktaraðilar flokkanna. Annars
staðar á Vesturlöndum hefm- lög-
gjafarvaldið víðast hvar orðið við
þessum óskum kjósenda.