Morgunblaðið - 12.08.1999, Síða 4

Morgunblaðið - 12.08.1999, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sala FBA- bréfanna rædd á sljórnar- fundi í dag SALA Seandinavian Holding á hlutabréfum í FBA til Orca S.A. verður til umræðu á stjómarfundi félagsins sem haldinn verður í dag. Guðmundur Hauksson, stjórnarfor- maður félagsins, segir eðlilegt að sem mest af upplýsingum sé uppi á borði þegar viðskipti eiga sér stað með hlutabréf en það sé ekki á valdi seljenda að upplýsa hverjir kaup- endur eru. Stjórnarfundurinn verður í húsa- kynnum Kaupþings hf. Guðmundur sagði að atburðir síðustu daga yrðu • ofarlega á dagskrá stjórnarfundar- ins en vildi þó ekki tjá sig nánar um dagskrá fundarins. Hann segir að félagið hafi unnið að þessu máli á hreinum viðskiptalegum grundvelli og farið að fullu og öllu eftir lögum og reglum. Félagið hafi keypt hluta- bréfin með ákveðin markmið í huga. Forsendur fyrir kaupunum virtust ekki ætla að ganga eftir jafngreið- lega og ætlað hefði verið og því hefðu bréfin verið seld aftur. Varðandi nafnleynd sem enn er yfir eignarhaldi á Orca S.A. segir Guðmundur að forsvarsmenn þess félags verði sjálfir að taka ákvörðun um að aflétta leyndinni. „Það er í eðli hlutabréfamarkaða, sem eru opnir og með skráð verðbréf, að hafa sem mest af upplýsingum uppi á borði þannig að menn átti sig á því hver staða fyrirtækja er, hvemig reksturinn gengur og hvaða hags- munir geta verið í húfi. Við erum hliðhollir þessari hugsun sem verð- bréfamarkaðurinn gerh- tilkall til. En það er ekki á okkar valdi að upplýsa hverjum við seljum. Við er- um bundnir bankaleynd um þau mál. Það er í höndum kaupanda að tjá sig. Ef það er eitthvað sem tefur þá, hvort sem það er tæknileg út- færsla eða framkvæmd, er það þeirra að upplýsa um það en ekki okkar,“ segir Guðmundur. Engin viðbrögð frá stjórnvöldum Hann segir að hvorki Scandinavi- an Holding né sparisjóðimir hafi átt viðræður við stjóravöld út af þeirri stöðu sem komin er upp í þessu máli. „Við höfum alla tíð spilað þetta mál mjög opið. Við gerðum öllum grein fyrir því á hvaða grand- velli við höfum unnið þetta mál og að hverju við stefndum. Við gerðum það vísvitandi í því skyni að það lægi ljóst fyrir hvað við ætluðumst fyrir. En það hafa engin viðbrögð komið frá stjómvöldum eða öðrum í þá vera að vinna að framgangi þess- ara mála með okkur og því er nú þessi staða komin upp,“ segir Guð- mundur. Stjórn Scandinavian Holding skipa Guðmundur Hauksson, spari- sjóðsstjóri Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis, sem er formaður stjómar, Hallgrímur Jónsson, sparisjóðsstjóri í Sparisjóði vél- stjóra, Sigurður Einarsson, for- stjóri Kaupþings, Sigurður Haf- stein, framkvæmdastjóri Spari- sjóðabanka Islands, og Þór Gunn- arsson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Hafnarfjarðar. Frystitogarinn Ýmir komst á flot um klukkan 14 í gær „ Morgunblaðið/Arnaldur TALSVERÐUR halli var á Ymi eftir að hann náðist á flot í gær og var hann ataður olíu sem lekið hafði úr tönkum skipsins. Unnið var fram eftir kvöldi við að dæla úr honum sjó. Búist er við að viðgerð taki 2-3 mánuði. ón áætlað um eða yfir 100 millj. FRYSTITOGARINN Ýmir komst á flot um klukkan 14 í gær eftir um sólarhringslangt björgunarstarf. Ljóst er að skemmdir eru miklar af völdum sjávar og olíu. Að sögn Ágústs Sigurðssonar, útgerðar- manns hjá Stálskipum sem gera skipið út, gæti tjónið numið um eða yfir eitt hundrað milljónum króna. Hátt í fimmtíu manns unnu í gær og fyrrinótt við að reyna að lyfta skipinu, þar af um tíu kafarar. Not- ast var við fjóra krana til að styðja skipið og hjálpa til við að koma því á flot, auk þess sem bakborðstank- arnir vora fylltir til að auka jafn- vægi skipsins. Um tíu kraftmiklar dælur vora notaðar til að tæma sjó úr skipinu. Betur undirbúnir í seinni tilraun Tilraunir í fyrrinótt til að lyfta skipinu reyndust árangurslausar en áfram var haldið og á fjöra í há- degi í gær var ljóst að takast myndi að ná skipinu af botni Hafnarfjarð- arhafnar. Eftir að skipið náðist upp hallaðist það talsvert en halli þess í gærkvöldi var ekki talinn meiri en á milli 5 og 10 gráður. „Við undirbjuggum okkur betur fyrir tilraunina í dag [gær] en í nótt sem leið, og það skilaði þeim ár- angri að Ýmir náðist loks á flot. Við þéttum m.a. göt á síðu hans, Ioft- stokk, ventilgöt, ristar og annað, því að í fyrri tilrauninni gekk sjór inn í hann aftur og hann lyftist ekki, og við gátum dælt nægjan- lega miklu af sjó út,“ segir Ágúst. Hann segir að tryggingafélag skipsins, Tryggingamiðstöðin, beri mestan kostnað við björgunina en annan kostnað beri útgerðin. Ekki sé ljóst nákvæmlega hversu mikið tjón hafi hlotist af þessu óhappi, en hann eigi ekki von á að það verði undir hundrað milljónum króna. Um tvo til þrjá mánuði muni taka að gera við skipið og á meðan verði það frá veiðum. „Allt sem sjórinn skemmir er ónýtt, þ.e. vélar og tæki, auk inn- réttinga og lestarrýmis. Það þarf að endurnýja mjög margt í skipinu. Tryggingafélagið mun hins vegar ekki greiða veiðitap eða annað sem því tengist, þannig að fjárhags- skaði okkar er umtalsverður,“ seg- ir Ágúst. I áhöfn skipsins eru 26 manns og segir Ágúst að 6 þeirra, allt yfir- menn, séu fastráðnir, en hinir séu lausráðnir og hafi eins til þriggja vikna uppsagnarfrest eftir starfs- aldri. Einhverjir þeirra muni missa störf sín meðan á viðgerð skipsins standi, en hann geri sér vonir um að hægt verði að ráða stóran hluta áhafnarinnar í vinnu við endurnýj- un skipsins eða setja þá á önnur skip útgerðarinnar. Tilraun til að lyfta skipinu í fyrr- inótt var árangurslaus. Dælt var úr skipinu til klukkan tvö aðfaranótt , _ Morgunblaðið/Ásdís Á FIMMTA tug manns vann við að ná Ými á flot, þar á meðal kafarar sem þéttu skipið til að hægt væri að dæla úr því sjó. miðvikudags en hætta varð þegar flæða tók að skipinu að nýju. Stein- dór Ögmundsson, hafnarvörður í Hafnarfjarðarhöfn, segir að reynsl- an af þeirri tilraun hafi kennt mönnum ýmislegt og hafi m.a. ver- ið fengnar fleiri dælur í gærmorg- un, auk þess að unnið var betur að þéttingu opa á skipinu. „Við unnum við erfiðar aðstæður og ég tel það ótrúlega gott að þetta skyldi takast í dag [gær], það jaðr- ar við kraftaverk,“ segir Steindór. „Við ráðumst ekki í verk af þessu tagi á hverjum degi og sjálfsagt hefði margt getað farið betur. En við erum alltaf að læra og gerðum það sem við gátum. Þetta hafðist alla vega. Ég bið bara til guðs að óhapp á borð við þetta gerist ekki í Hafnarfjarðarhöfn." Tæki og búnaður úr brú Ýmis, stjómborðsmegin, var fjarlægður í íyrradag og tókst að halda brúnni að mestu þurri, en hins vegar komst sjór undir falskt gólf í henni þar sem ýmis búnaður tengdur stjórntækjum í brú var og varð hann fyrir einhverjum skemmdum. Ekki urðu meiðsli á þeim sem unnu við verkið, fyrir utan smá- vægilega áverka sem slökkviliðs- maður hlaut. Sjúkrabifreið kom á vettvang en ekki þótti ástæða til að flytja manninn á brott í henni, að sögn Steindórs. heimilisbankinn www.bi.is ahyggjuLausifrn Þú velur greiðsludaginn - Heimilisbankinn borgar reikninginn ®BÚNAÐARBANKINN Traustur banki s k í m » mánaða internettenging fylgir Enn á gjör- gæslu eftir fall PILTURINN, sem féll fjóra metra af þaki húss á Kirkjubæjarklaustri, er enn á gjörgæslu, en að sögn vakthafandi læknis blæddi inn í kviðarhol og er líðan hans eftir at- vikum góð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.