Morgunblaðið - 12.08.1999, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1999 15
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
ífinulit!
MARGIR leggja leið sína á Austurvöll þrátt fyrir framkvæmdirnar sem setja sterkan svip á umhverfið.
LARS Larsen og Dawn Larsen. í baksýn má sjá að unnið
er að viðhaldi Alþingishússins.
Austurvöllur
undirlag-ður
Midbær
ÁSÝND Austurvallar hefur
borið þess merki í sumar að
framkvæmdir við byggingar
og gatnagerð í miðbænum
eru óvenjumiklar. Ema
Hauksdóttir, framkvæmda-
stjóri Samtaka ferðaþjónust-
unnar, segir veitingamenn
við Austurvöll merkja fækk-
un viðskiptavina, ekki síst er-
lendra ferðamanna, vegna
framkvæmdanna. Ernu
fínnst brýnt að framkvæmdir
sem valdi raski af þessum
toga gangi hratt fyrir sig til
að takmarka það tjón sem
þær valda. „Það verður að
gæta þess að þetta taki eins
stuttan tíma og hægt er,“
sagði hún.
„Útlendingar sem eru að
labba um bæinn og leita sér
að veitingahúsi fara ekki að
finna sér neinar krókaleiðir,"
að sögn Ernu. Hún segist þó
ekki hafa orðið vör við að
ferðamennirnir kvarti yfir
framkvæmdunum sem slík-
um.
Að sögn Snorra Kristjáns-
sonar hjá Kynnisferðum hafa
framkvæmdimar valdið því
að breyta þurfti sýnisferð um
borgina. Ekki sé hægt að
keyra framhjá Alþingishús-
inu eins og fym var gert. Þá
hafi framkvæmdimar tafið
fyrir brottför í ferðir á veg-
um fyrirtækisins vegna vand-
kvæða við að sækja farþega á
ákveðna gististaði. Starfs-
maður Kynnisferða kvaðst
ekki hafa orðið var við óá-
nægju meðal ferðamanna
vegna þessa.
Byggt og bætt
Verið er að endurnýja göt-
ur í Kvosinni og fyrr í sumar
var hellulagt á Austurvelli.
Umfangsmiklar byggingar-
framkvæmdir eiga sér stað
umhverfis Austurvöll. Unnið
hefur verið að viðgerð á
Dómkirkjunni og byggingu
nýs þjónustuskála við Alþing-
ishúsið. Þá á sér stað gagn-
gert viðhald á húsi Alþingis.
Verið er að reisa nýja bygg-
ingu þar sem gamla ísafold-
arhúsið var áður. Hún á að
hýsa skrifstofur, verslanir og
veitingahús.
,Á heildina litið era fram-
kvæmdirnar á áætlun,“ sagði
Harald B. Alfreðsson, verk-
fræðingur hjá Gatnamála-
stjóra, um gatnagerð og
hellulagningu á Austurvelli.
Hann segir gert ráð fyrir að
verkinu ljúki í október. Verk-
lok era þó að vissu leyti háð
framkvæmdum við Dóm-
kirkjuna. „Það era vinnupall-
ar við kirkjuna sem við bíðum
eftir að verði teknir niður.
Við erum í raun komnir eins
nálægt kirkjunni og hægt
er,“ sagði Harald.
Hluti Austurvallar er nú
lagður undir vinnuaðstöðu
fyrir Armannsfell sem er
verktaki við byggingu húss-
ins sem rís þar sem Isafold-
arhúsið stóð áður. Að bygg-
ingarframkvæmdunum lokn-
um verður svæðinu líklega
komið í fyrra horf, að sögn
Haralds.
Ólafur St. Hauksson, verk-
efnisstjóri hjá Ármannsfelli,
segir áætlað að lokið verði við
að steypa hið nýja hús í sept-
ember eða október og frá-
gangi utanhúss verði lokið
um áramót, húsið verði þá til-
búið til innréttinga í byrjun
næsta árs. Hann segir verkið
ganga vel og ekki ástæðu til
annars en að ætla að áætlun
standist. Svæðinu á Austur-
velli sem lagt hefur verið
undir vinnuaðstöðu verktak-
ans verður skilað í samráði
við gatnamálastjóra, að sögn
Ólafs.
Alþingi sett í Dómkirkj-
unni í haust
Verkfræðistofan Línu-
hönnun hefur umsjón með
endurbótum á Dómkirkjunni.
„Við stefnum að því að ljúka
framkvæmdum utanhúss í
október. Innanhúss verður
alla vega stefnt að því að
hægt verði að setja Alþingi á
réttum tíma. Einhver frá-
gangur verður þá eftir eins
og gengur,“ sagði Flosi
Ólafsson hjá Línuhönnun.
„Við vonum að það verði ekki
tafir á framkvæmdunum og
þetta gangi allt eftir,“ sagði
Flosi. Hann segir verkið
ganga vel en það sé erfitt að
ýmsu leyti, meðal annars
vegna framkvæmda gatna-
málastjóra umhverfis kirkj-
una.
Nýr þjónustuskáli og
viðhald á Alþingi
Unnið er að gerð þjónustu-
skála og bflastæðakjallara við
Alþingishúsið. í fyrsta
áfanga sem áætlað er að
ljúka um mánaðamót septem-
ber/október verður kjallarinn
steyptur, að sögn Karls M.
Kristjánssonar, rekstrar- og
fjármálastjóra Alþingis.
Hann segist vonast til að
unnt verði að hefjast handa
við uppsteypu á skálanum
sjálfum í október. „Nú er
verið að undirbúa af fullum
krafti útboð á þeim áfanga,"
sagði Karl.
Unnið er við gagngert ut-
anhússviðhald á Alþingishús-
inu sjálfu. „Þetta er senni-
lega mesta viðhald á húsinu
frá upphafi," sagði Karl. Að
hans sögn er verið að gera
við alla glugga hússins og
skipta um gler. „Eins konar
öryggisgler er sett í húsið,“
sagði Karl. Að auki er verið
að endurnýja rennur og nið-
urföll svo fátt eitt sé nefnt.
Gert er ráð fyrir að þessu
verki ljúki í lok september.
Múrfúguviðgerðir utan á
húsinu fara fram á næsta ári
en ekki er talið hentugt að
vinna að þeim á meðan fram-
kvæmdir sem titringur stafar
af eiga sér stað í nágrenninu.
Ánægðir ferðamenn þrátt
fyrir framkvæmdir
Þrátt fyrir raskið á um-
hverfinu voru fjölmargir er-
lendir ferðamenn á Austur-
velli í gær. Framkvæmdirnar
virtust lítið fara fyrir brjóstið
á þeim ferðamönnum sem
blaðamaður Morgunblaðsins
ræddi við. Sumir vildu þó
gjarna koma aftur síðar og
sjá þá umhverfið í sinni eðli-
legu mynd.
Robert Ferguson frá
Kanada sat á bekk og skrif-
aði póstkort þegar blaðamað-
ur Morgunblaðsins tók hann
tali. Hann er hingað kominn
með konu sinni sem situr
ráðstefnu í Reykjavík. Hann
hafði dvalið í borginni í tvo
daga og var ánægður með
kynnin af henni. Robert
kippti sér ekki mikið upp við
framkvæmdirnar. „Þær era
nauðsynlegar og tíðkast alls
. staðar,“ sagði Robert. Hann
sagði að sér þætti Reykjavík
falleg borg og var sérstak-
lega hrifinn af íslenskri
byggingarlist. „Það er ef-
laust óvenjumikið um að vera
vegna þess að Reykjavík
verður ein menningarborga
Evrópu á næsta ári,“ sagði
hann um framkvæmdirnar.
Hann sagðist vonast til að
geta komið aftur hingað á
næsta ári og séð Austurvöll
eins og hann á að sér að
vera.
Lars Larsen og Dawn Lar-
sen frá Wales era hér í viku-
langri brúðkaupsferð. „Það
verður fallegt hér þegar
framkvæmdunum lýkur,“
sagði Lars um Austurvöll.
Hjónin segja ekki loku fyrir
það skotið að þau komi aftur
til landsins seinna „Ég er að
reyna að sannfæra hann um
að koma aftur hingað að vetr-
arlagi," sagði Dawn. Hún
skipulagði Islandsferð þeirra
hjóna að þessu sinni. Þau
segjast ætla að fara til Vest-
mannaeyja, Gullna hringinn
og baða sig í Bláa lóninu auk
þess að skoða sig um í höfuð-
borginni.
David og Louise Catherall
era frá Kanada. í gær var
fjórði dagurinn á sex daga
ferðalagi þeirra hjóna til Is-
lands. Þau voru þegar búin
að skoða Gullfoss og Geysi og
vörðu deginum til að skoða
sig um í höfuðborginni. Þau
sögðust afar hrifin af landinu
og framkvæmdagleðin við
Austurvöll angraði þau lítið.
„Þetta er hluti af vexti hvers
lands,“ sagði David.