Morgunblaðið - 12.08.1999, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1999 23
FERÐALÖG
Morgunblaðið/Ólafur Jens Sigurðsson
FRÁ DJÚPALÓNI. í baksýn Stapafell, Malarrif og Einarslón.
Vinsælar gönguferð-
ir um sögiislóðir
Hellissandi. Morgunblaðið.
í SUMAR hefur Sæmundur Krist-
jánsson í Rifi haldið uppi göngu-
ferðum um söguslóðir á utanverðu
Snæfellsnesi. Dagana 14. og 15.
ágúst nk. hyggst Sæmundur ganga
um söguslóðir Bárðar sögu Snæ-
fellsáss. Lagt verður upp í göng-
una 14. ágúst frá vegamótum Ut-
nesvegar og Djúpalónsvegar og
gengið í Djúpalón. Þaðan fomar
götur til Dritvíkur þar sem Bárður
og félagar eiga að hafa tekið land.
Farið verður fram í Tröllakirkju. Á
þessum slóðum eru fjölmargar
áhugaverðar minjar frá fyrri tím-
um.
Seinni daginn, 15. ágúst, verður
gengið um Laugarbrekku, þar sem
Bárður tók sér bólfestu, rifjuð upp
saga Helgu Bárðardóttur og Guð-
ríðar Þorbjamardóttur. Þá verður
svipast um á hinum forna þingstað
og gengið fram á þinghamarinn,
skoðuð dys Axlar-Bjamar sem líf-
látinn var á Laugarbrekkuþingi ár-
ið 1596. Þaðan verður haldið fram á
Sölvahamar og farið í Rauðfeldsgjá
og Sönghelli.
Ekki er að efa að margir hafa
gaman af að ganga um þessar slóð-
ir með sagnaþulnum Sæmundi.
Lagt verður upp báða dagana kl.
12.30. Upplýsingar um ferðirnar
má fá hjá Sæmundi sjálfum í síma
436 6767 og í Brekkubæ á Hellnum
í síma 435 6754 og hjá Upplýsinga-
miðstöð ferðamála í Pakkhúsinu í
Ólafsvík en sími þar er 436 1543.
samkeppni
um
merki SA
skilafrestur til
mánudags
1. verðiaun 500.000 kr.
2. verðíaun 100.000 kr.
3. verðlaun 100.000 kr.
Munið samkeppnina. Skilafrestur er til mánudagsins
16. ágúst 1999 kl. 17:00.
UndirbúningshópUr að stofnun Samtaka
atvinnulífsins gengst fyrir opinni samkeppni
í samráði við FÍT, Félag íslenskra teiknara
og samkvæmt keppnisreglum þess, um
hönnun merkis fyrir Samtök atvinnulífsins
sem stofnuð verða 15. september næst-
komandi. Öllum er heimil þátttaka, jafnt
félögum innan FÍT sem öðrum.
Vinnuveitendasamband íslands (VSÍ),
Vinnumálasambandið (VMS), Samband
íslenskra viðskiptabanka og öll aðildarfélög
VSÍ hafa að undanförnu unnið að áætlunum
um nýskipan hagsmunasamtaka atvinnu-
rekenda. Samkvæmt þeim munu VSÍ og VMS
renna saman og ný samtök - Samtök atvinnu-
lífsins (skammstafað SA) - munu líta dagsins
Ijós 15. september næstkomandi.
Félög, sjálfseignarstofnanir og einstaklingar
sem stunda atvinnurekstur öðlast aðild að
Samtökum atvinnulífsins með inngöngu í
aðildarfélag innan SA.
Þau verða: Samtök atvinnurekenda í raf- og
tölvuiðnaði; Landssamband íslenskra útvegs-
manna; Samtök ferðaþjónustunnar; Samtök
fiskvinnslustöðva; Samtök fjármálafyrirtækja;
Samtök iðnaðarins; og Samtök verslunar og
þjónustu.
Samtök atvinnulífsins eiga sem sterk heildar-
samtök íslenskra atvinnurekenda að þjóna
fyrirtækjunum og gæta almennra hagsmuna
þeirra á innlendum og erlendum vettvangi.
SA á að styrkja starfsumhverfi frjáls athafna-
iífs og stuðla að samkeppnishæfum og
arðsömum atvinnurekstri. SA mun annast
samskipti við stéttarfélög og gera kjarasamn-
inga fyrir hönd aðildarfyrirtækja sem falið
hafa samtökunum umboð til þess.
Allar nánari upplýsingar veitir Davíð
Stefánsson, stjómsýslufræðingur VSÍ, í síma
511 5000. Æskilegt er að senda fyrirspurnir
á netfangið David.Stefansson@vsi.is.
' " “ '
Við mælum með
fjölskylduferð um helgina þar sem mætti skoða sig um í Þjórsárdal, t.d. Stöng, Sögualdarbæinn eða
Hjálparfoss og aka áfram að Hrauneyjafossstöð framhjá framkvæmdasvæðinu við Sultartanga. Þá er
kjörið að heimsækja fjölskylduhátíðina Töðugjöld við Hellu.
Landsvirkjun
www.lv.is
Ratar þú?
Ekið er eftir þjóðvegi nr. 1 í gegnum Selfoss
og beygt til norðurs upp veg nr. 30 í átt
að Flúðum. Þá er farið veg nr. 32, Árnes,
upp í Þjórsárdal og áfram inn á hálendið
Sprengisandsleið.
Opið hús í Hrauneyjafossstöð
laugardag og sunnudag, 14. og 15. ágúst, kl. 12 -18
Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, Ragnheiður Ólafsdóttir,
umhverfisstjóri, og Edvard G. Guðnason, deildarstjóri, ræða við gesti um
virkjanir og umhverfismál. Björn Sverrisson, yfirvélfræðingur, og hans fólk
sýnir stöðina.
Hefur þú komið inn á hálendi íslands?
Hrauneyjafossstöð stendur á fallegum stað í jaðri hálendisins og er annað stærsta orkuver landsins. Nú
er komið bundið slitlag alla leið frá Reykjavík í Hrauneyjar og þangað er einungis um tveggja tíma
akstur.