Morgunblaðið - 12.08.1999, Síða 68
K58 FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
• I
UTSOLULOK
KR I l\l G LUNNI - S: 5 5 3 5 1 1 1
ELIA Kazan faðmar kollega
sinn Martin Scorsese eftir að
hafa fengið heiðursóskarinn.
MARLON Brando og Eva Marie
Saint f mynd Kazans On the
Wnterfront frá 1954.
Átti óskarinn skilinn
LEIKSTJÓRINN Elia Kazan
fékk sem kunnugt er heið-
ursóskarinn í ár fyrir ævifram-
lag sitt til kvikmynda. Það kom
illa við kaunin á mörgum í
Hollywood og vakti háværar
óánægjuraddir. Kazan segist
hins vegar hafa átt verðlaunin
skilið því „ég hef leikstýrt öðru-
vísi kvikmyndum en allir aðr-
ir“;
I viðtali við Vanity Fair tíma-
ritið talar hinn 89 ára gamli
leikstjóri í fyrsta sinn um verð-
launin, og segist hafa verið illa
við ferðina til Los Angeles þar
sem hann tók við verðlaunun-
um. Það voru leikstjórinn Mart-
in Scorsese og Ieikarinn Robert
De Niro sem afhentu honum
heiðurs-óskarinn á meðan hinir
stjörnum prýddu áhorfendur
neituðu sumir að klappa fyrir
honum vegna þess að á McC-
arthy-tímabilinu kom Kazan
upp um kommúnista sem hann
vann með á íjórða áratugnum,
en á þeim tímum voru meintir
kommúnistar á svarta listanum
í Hollywood.
f viðtalinu segir Kazan að
verðlaunaafhendingin hafi ver-
ið hálfgerður „sirkus“, en segist
jafnframt gleðjast yfir því að
hafa fengið óskarinn, því hann
hafi átt hann skilinn. „Ég hef
leikstýrt mjög sérstökum mynd-
um eins og America, America,
A Streetcar named Desire, On
the Waterfront o.fl. Því meira
sem ég sótti í eigin reynslu og
eigið líf, þeim mun betri voru
myndirnar og því ánægðari var
ég með þær.“
Kazan segir að McCarthy-
tíminn hafi verið mjög erfiður.
„Hann var erfíður fyrir mig og
alla aðra, ekki satt?“
ERLENDA R
Vilhelm Anton Jónsson
fjallar um Surrender, nýjasta
geisladisk hljómsveitarinnar
The Chemical Brothers.
Víðáttunni
engar skorðu
kemur einhver og syngur smá og
þá nær maður örfáum áttum. E.t.v.
mætti líkja honum á köflum við
slökunartónlist Terry Oldfield að
viðbættum danstakti og ögn árás-
argjarnari hljóðum. Þetta er alls
ekki slæmt og gerir dansinn af-
slappaðan og nett þægilegan. Sur-
render er ekki ögrandi diskur.
Hann er líkari hörpuskel en ígul-
keri. Á diskinum er fullt af
skemmtilegum hljóðum sem gera
hann vel breiðan og marglitan.
Ef undirritaður gerist svo djarf-
ur að draga út nokkur lög sem hon-
um falla hvað best í geð má byrja á
lagi númer fimm, sem einhver
syngur mjög vel. Lag númer sjö er
mjög fallegt. Þar er líka sungið vel
og það gerir Hope Sandoval sem er
mjög góð. Lag númer ellefu er
sungið af Jonathan Donahue úr
Mercury Rev, það er líka gott lag.
Sem sé: Þetta er diskur sem
virkar jafnvel í margmenni sem og í
friði og ró. Eins og fram hefur kom-
ið er hann ekki mjög ögrandi enda
er það alls ekkert lykilatriði í góðri
tónlist. Diskurinn hefur eitthvað
sem hreyfír við manni og það skipt-
ir máli. Tónlist er það fallegasta
sem til er af því að hún getur verið
allt sem við viljum.
Surrender með The Chemical
Brothers er mjög fínn diskur.
Leikstjórinn Elia Kazan
settar
HÉR Á eftir fer plötudómur undir-
ritaðs um Surrender, nýjustu plötu
The Chemical Brothers. Það er ætl-
un undirritaðs að fjalla fyrst al-
mennt um tónlist og velta vöngum
yfir því fyrirbæri, þá verður fjallað
betur um plötuna sem slíka og svo
loks verður allt draslið tekið saman
í einhverja fallega klausu, með
^bleikum borða, í lokin. Það er ósk
þess sem þetta ritar að eitthvert
gagn og jafnvel gaman geti hlotist
af þessu öllu saman.
Það verður að segjast að sá sem
þetta ritar hefur ekki langa sögu af
því að hlusta á The Chemical
Brothers. Stöku sinnum hefur hann
þó heyrt í þeim á skemmtistað eða
einhverju vertshúsinu. Segir það
meira um þann sem þetta ritar en
þá bræður. Heilt yfir er tónlistin á
Surrender einkar lifandi og
'^skemmtileg og kveikir hjá manni
alltof sjaldgæfa löngun til að dansa
og/eða að hreyfa sig á seiðandi hátt
í takt við tónlistina og láta dans-
bylgjurnar flæða um danssalinn.
Diskurinn er settur í spilarann:
zzvússzch og búmm ka ka búmm
bræðurnir byrja. Tónlistin tekur
völdin og hrífur mann með sér á þá
staði sem tónlistin ein getur. Raf-
magnslandslag með dölum og tind-
um, trjám og mosa.
Fyrsta lagið þýtur framhjá, svo
annað svo það þriðja, fjórða og svo
koll af kolli þar tU geislaspilarinn
segir: zzvúss og skilar manni aftur
upp í rúm. Hvað gerðist á
ferðalaginu getur sosum eng-
inn sagt til um og það er al-
veg öruggt að ferðalagið
verður aldrei aftur eins og
upplifun hvers og eins sér-
stök.
Þetta er það sem er
skemmtilegt við tónlistina.
Ekki bara tónlist The
Chemical Brothers, heldur alla
góða tónlist. Hún hleypir manni á
staði sem enginn annar kemst á.
Leyfir okkur að hugsa um það sem
við viljum, e.t.v. stingur hún upp á
einhverju til að hugsa um eða ýtir
undir það sem við höfðum ákveðið
og feykir okkur af stað inn í ómæl-
isvíddina sem hugsanir eru.
Skyndilega áttar maður sig á því að
víðáttunni eru engar skorður sett-
ar. Ekkert er rétt og ekkert er
rangt. Málverkið er alveg ómálað.
Við getum flotið um í tónlistinni á
jafnmarga vegu og rafboðin sem
búa hana til eru mörg, milljón-
skrilljón-seintsilljón. Það eru engir
vegir á bílaplaninu eða í túninu
heima. Allir eiga sinn stað í tónlist-
inni sem þeir geta farið á og þangað
ratar enginn annar því engir vegir
eða slóðar eru til að fylgja.
Og þá að hinum EB-staðlaða
plötudómi.
Diskurinn er góð heild, svo góð
að maður veit ekki fyrr en hann er
kominn í fjórða eða fimmta lag, sjö-
unda eða áttunda. Stöku sinnum
Órafmögn-
uð Sál
SÁLIN hans Jóns míns heldur óraf-
magnaða tónleika í Loftkastalanum í
kvöld og marka þeir lok tveggja
vikna tónleikarispu sveitarinnar.
Þetta er í íyrsta skipti sem sveitin
heldur órafmagnaða tónleika og
verður hljóðfæraskipan nokkuð
óhefðbundin og m.a. leikið á
marimbu, víbrafón, tabla, harmoníku,
sítar og kontrabassa. Einnig verða
frumflutt tvö ný lög sem voru samin
sérstaklega með tónleikana í huga.
Tónleikarnir eru haldnir af Síman-
um GSM í tilefni af fimm ára afmæli
þeirra og eru tónleikar Sálarinnar í
kvöld íyrsti liðurinn í fimm daga af-
mælisdagskrá. Engir miðar verða
seldir við innganginn en hægt er að
nálgast þá á vefslóðinni gms.is. Tón-
leikarnir hefjast kl. 22.30.
Bragarbót
í Kaffileik-
húsinu
ÞJÓÐLAGAHÓPURINN Bragar-
bót heldur þriðju tónleika sína í
Kaffileikhúsinu í kvöld en hópurinn
flytur íslensk þjóðlög að hætti for-
feðra okkar. Fimmundarsöngvarnir
íslensku og stemmurnar eru flutt án
undirleiks en önnur lög eru flutt með
hljóðfæraslætti. í Bragarbót eru
Kristín Á. Ólafsdóttir, söng- og leik-
kona, Ólína Þorvarðardóttir, kvæða-
kona og þjóðfræðingur, KK farand-
söngvari og Diddi fiðla tónlistarmað-
ur.
Auk tónleikanna er þjóðlegum
fróðleik skotið inn í dagskrána, bæði
um lögin og tilurð þeirra en ekki síst
um hljóðfærin og þeirra sögu. Tón-
leikamir hefjast kl. 21.
Djass á
Akureyri
JÓEL Pálsson saxófónleikari heldur
tónleika í Deiglunni á Akureyri í kvöld
og flytur haxm efiii af plötu sinni,
Prím. Auk Jóels koma fram þeir Hilm-
ar Jensson á gítar,
Eyþór Gunnarsson
á píanó, Þórður
Högnason á kontra-
bassa og trommar-
amir Einar Schev-
ing og Matthías
Hemstock.
Jóel hefur nýver-
ið gert samning við
hina þekktu útgáfu
Naxos og verður Prím endurútgefin í
október í 40 löndum. Jóel var íyrsti
saxófónleikarinn sem útskrifaðist frá
Tónlistarskóla FÍH árið 1992 og
tveimur ámm síðar útskrifaðist hann
með BM-gráðu frá Berklee-tónlistar-
háskólanum í Boston með hæstu ein-
kunn. Hann hefur verið virkui- í ís-
lensku tónlistarlífi, leikið á fjölda
hljómplatna, haldið fjölda tónleika og
hann var valinn blásturshljóðfæra-
leikari ársins 1998.
Tónleikarnir í kvöld verða endur-
fluttir í Kaffileikhúsinu næstkom-
andi sunnudagskvöld og mun þá Sig-
urður Flosason saxófónleikari verða
sérstakur gestaspilari.