Morgunblaðið - 12.08.1999, Qupperneq 69
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1999 69
frumsýningargestir
FOLK I
Föngulegir
rífumst eins og gengur og gerist
hjá pörum sem vinna náið sam-
an,“ sagði hann. „En það er líka
róandi ef þú ert taugaveiklaður
leikari eins og ég að hafa ein-
hvern sem þekkir galla þína,“
bætti hann við.
í myndinni leikur Grant upp-
boðshaldara sem verður ástfang-
inn af dóttur mafíuforingja sem
Jeanne Tripplehorn leikur. „Eg
hef alltaf verið hrifinn af mafí-
unni og mig hefur lengi langað
til að leika í mafíumynd,“ sagði
Grant um myndina.
Hjónakomin Liam Gallagher
úr rokksveitinni Oasis og hin
ófríska Patsy Kensit mættu með-
al annarra stórsljarna til frum- T
sýningarinnar en Liz Hurley
mun verða guðmóðir barnsins
sem Kensit ber undir belti.
<*r
Á ÞRIÐJUDAG var nýjasta
mynd Hughs Grants, Micky Blue
Eyes eða Bláeygði Mikki, frum-
sýnd í London og mætti fjöldi
stórstjarna til sýningarinnar.
Unnusta Grants, leikkonan
glæsilega Liz Hurley, stal sen-
unni við komuna til sýningarinn-
ar og vakti kjóllinn sem hún
klæddist meiri athygli ljósmynd-
ara og blaðamanna en Grant
sem leikur aðalhlutverk mynd-
arinnar. Kjóllinn hennar var al-
settur litlum speglum og fleginn
í bakið. „Það tekur mig ekki
langan tíma að taka mig tfl,“
sagði leikkonan brosandi. „En
það tekur Hugh heila eilífð.
Hann á fullt af skyrtum sem
hann þarf að velja úr en þær eru
allar eins,“ bætti hún við hlæj-
andi.
Kjólar Hurley hafa oft vakið
mikla athygli við frumsýningar
Grants enda oftast glæsilegir og
frumlegir. Hún er hrifin af
hönnun Versace og er oft í kjól-
um sem hún hannar. „Donatella
er vinkona mín og hún sendir
mér kjóla annað veifið,“ sagði
Hurley. „Ég geng í gallabuxum
allt árið en það er ágætt að fara
í eitthvað annað stöku sinnum."
Taugaveiklaður leikari
Hurley er framleiðandi mynd-
arinnar og er þetta í fyrsta sinn
sem hún framleiðir mynd
unnusta síns. Grant sagði það
hafa verið óvænta reynslu. „Við
FÁÐU ÞÉR PIZZU
FYRIR ÞÚSUNDKALL
ANANAUSTUM 15 • GRENSÁSVEGI 11 • HÖFÐABAKKA 1 • GARÐATORGI 7 • FJARÐARGÖTU 11 • SlMI 58-12345
[ tilefni af sex ára afmæli Domino’s
Pizza á (slandi þann 15. ágúst
býðst öllum pizzuunnendum einstakt
afmælistilboö þessa viku. Þú hringir eða kemur,
pantar draumapizzuna þlna með allt að fjórum
áleggstegundum og borgar
aðeins þúsund krónur fyrir. Njóttu
afmælisveislunnar með Domino’s
og fáðu þér pizzu fyrir þúsundkail.
Afmælisveislan stendur nú sem hæst og lýkur
aö kvöldi afmælisdagsins þann 15. ágúst. Tilboðið
gildir ekki (Kringlunni.