Morgunblaðið - 17.08.1999, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 17.08.1999, Blaðsíða 39
38 ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1999 39 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. FRJALSARI HENDUR? SL. LAUGARDAG birti Morgunblaðið athyglisvert við- tal við Guðmund Hauksson, sparisjóðsstjóra, sem jafn- framt er stjórnarformaður eignarhaldsfélags sparisjóð- anna, sem skráð er í Lúxemborg, Scandinavian Holdings, sem var formlegur söluaðili hlutabréfa sparisjóðanna í Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf. I samtali þessu segir Guðmundur Hauksson m.a. til skýringar á þeirri ákvörðun sparisjóðanna að selja hlutabréfín: „Þegar athygli okkar var vakin á því, að ríkissjóður kynni að hafa frjálsari hendur um sölu á bréfunum heldur en áður var um talað, þ.e.a.s. að dreifð eignaraðild væri ekki eins afdráttarlaust skilyrði og áður var rætt um, varð okkur ljóst, að það var talsverð áhætta fólgin í þessari fjárfestingu okkar. Sparisjóðirnir geta að sjálfsögðu ekki búið við þá áhættu, sem þessar aðstæður skapa. Við kynn- um að hafa setið uppi með þriggja milljarða fjárfestingu án þess að hafa náð markmiði okkar og búið við þá áhættu að geta ekki selt nema eiga það á hættu að þessi hlutur okkur lækkaði í verði. Þess vegna ákváðum við að freista þess að selja hlutabréfin og innbyrða þann hagnað, sem þau gáfu áður en bréfín kynnu að lækka í verði ef að framvinda málsins yrði með öðrum hætti en við hefðum kosið.“ Þessi ummæli Guðmundar Haukssonar eru óneitanlega forvitnileg og þau vekja upp eftirfarandi spurningar: hver vakti athygli forráðamanna sparisjóðanna á því að skilyrð- ið um dreifða eignaraðild væri ekki jafn afdráttarlaust og áður og með hvaða rökum var það sagt? Hvar hefur það komið fram? Það er nauðsynlegt að svar fáist við þessum spurningum vegna þess, að það er augljóst af ummælum sparisjóðs- stjórans, að þarna er að finna meginskýringuna á því, að sparisjóðirnir tóku ákvörðun um að selja hlutabréfin. En sú ákvörðun hefur eins og kunnugt er leitt til þess að áform ríkisstjórnarinnar um einkavæðingu ríkisbankanna eru nú í uppnámi. „ÞAÐ ER VON HINN 19. nóvember á síðasta ári birti Morgunblaðið ít- arlegt samtal við Siv Friðleifsdóttur, núverandi um- hverfisráðherra, sem þá var í framboði til varaformennsku í Framsóknarflokknum. í samtali þessu fjallaði Siv Frið- leifsdóttir m.a. um hálendið, virkjanir og stóriðju og svar- aði spurningu um afstöðu hennar til þessara mála á þenn- an veg: „Okkur er öllum að verða betur ljóst hvað hálendið er dýrmætt. Við erum í hópi útvalinna þjóða hvað óspillta náttúru varðar. Eg tel að við verðum að vernda hálendið, sem og aðrar náttúruperlur landsins. Eg útiloka þó ekki frekari uppbyggingu vatnsaflsvirkjana en við verðum að fara með gát. Það er von mín, að Landsvirkjun taki frum- kvæði í því að láta umhverfisathuganir sínar fara í sama ferli og lögformlegt umhverfismat. Landsvirkjun hefur í dag virkjanaleyfi fyrir Fljótsdalsvirkjun en það leyfi var gefið út áður en lög um umhverfismat voru samþykkt. Það er mitt almenna sjónarmið að náttúran eigi að njóta vafans og nota eigi beztu tæki, s.s. umhverfismat, til að dæma um áhrif framkvæmda.“ Þegar núverandi umhverfisráðherra lét þessi orð falla átti hún í hörðum átökum við Finn Ingólfsson, iðnaðarráð- herra, um varaformannsembætti Framsóknarflokksins og iðnaðarráðherra átti í vök að verjast vegna almennra um- ræðna í þjóðfélaginu um þessi málefni. Ekki er ólíklegt, að Siv Friðleifsdóttir hafi vegna þessarar afstöðu hlotið stuðning umhverfisverndarsinna innan Framsóknar- flokksins við varaformannskjör á flokksþinginu. Hvað hefur breytzt á 10 mánuðum? Hvers vegna hefur umhverfisráðherra ekki sömu afstöðu nú og þá. Hvers vegna beitir ráðherrann sér ekki fyrir því, að notuð verði „beztu tæki“ að hennar mati í nóvember í fyrra til þess að „dæma um áhrif* Fljótsdalsvirkjunar? Til stóð að bjarga skipinu upp af hafsbotni árið 1952 E1 Grillo gengiir aftur Olíuskipið E1 Grillo sem sökkt var í Seyðisfírði árið 1944 hefur fylgt Seyðfirðingum alla tíð ------------------5>—-- síðan. Vilhjálmur Arna- son lögfræðingur kann að segja sögu af tilraun til að kveða drauginn niður. Geir Svansson ræddi við Vilhjálm. Kortið sýnir í réttum hlutfölhim stærð olíubirgðaskipsins og dýpisins, þar sem það hvílir á hafsbotni. Til vinstri á myndinni er togarinn Sjóli HF en hann er 56,5 metra langur en E1 Grillo 147 m langt og 10 þúsund smálestir. Fyrir ofan skipið er sýndur mótorbátur li'kur þeim sem notaður var við köfun niður að skipinu árið 1952. E1 Grillo sekkur í Seyðisfjörð. Myndin er fengin að láni úr Seyðfirskum hernámsþáttum eftir Hjálmar Vilhjálmsson og hún sýnir skut skipsins sem var ofan sjávar í 8-10 klst. eftir að stefni þess sökk. ENN þurfa Seyðfírðingar að bíta úr nálinni vegna olíu- birgðaskipsins E1 Grillo sem þýskar flugvélar sökktu 10. febrúar 1944 með því að varpa á það sprengjum. Mikil olíu- mengun varð þegar skipið sökk og hún hefur síðan látið á sér kræla í gegnum árin, síðast fyrr í þessum mánuði. Ymsum hefur þótt sleifarlag á að- komu stjórnvalda að málinu og kallað það trassaskap að ekki sé fyrir löngu búið að fjar- lægja flakið, tíma- sprengju sem geti leitt til alvarlegrar mengunar eða slysa. Þótt töluverðu magni af olíu hafi verið dælt upp úr skipinu og djúpsprengjur fjarlægð- ar er enn olía eftir á tönkum þess og hugsan- lega sprengiefni líka. Eins og fram hefur komið í fréttum var það árið 1952 sem Olíufélag- ið hf. fékk Vélsmiðjuna Hamar hf. til þess að reyna að dæla olíu úr skipinu og náð- ust upp 4.500 smálestir. Færri vita ef til vill að ætlunin var í upphafi önnur. En þá sögu kann Vilhjálmur Árnason lögfræðingur að segja, en hann var ráðinn af Olíufélaginu til þess að vinna að áætlun um að bjarga E1 Grillo upp af hafsbotni, en Hamar skyldi annast björgunarað- gerðir. Til stóð að koma E1 Grillo á flot Olíufélagið hf. fékk tímabundna eignarheimild á skipinu, frá ríkis- stjóm og leyfi heimamanna, tækist þeim að koma skipinu á flot og í burt yrði eignarheimildin varanleg, að sögn Vilhjálms. „Hugsunin var fyrst og fremst sú að ná skipinu upp. Það átti að gera „business" með skipið. Hreinsa það og koma því í notkun. Það voru svo fá olíuskip í heiminum og þess vegna var verið að spá í að reyna að koma þessum dalli á flot aft- ur. Skipið hafði legið þama og verið mjög til trafala fyrir Seyðfirðinga. Ófá skip hafa til dæmis týnt ankerum sínum í því. Fyrir utan að þama var olía úti um allan fjörð ámm saman og eyðilagði ýmislegt. Þar á meðal fuglavarpið í Loð- mundarfirði og teppin á gólfunum hjá Seyðfirðing- um,“ segir Vilhjálmur. „Olíufélagið átti fram- kvæðið og bar ábyrgð á því hvemig til tækist með björgun og fékk Ham- ar til verksins undir stjórn forstjóra þess, Benedikts Gröndals, þess glæsi- lega manns og góða verkfræðings," segir Vilhjálmur. „Þetta byrjaði á því að við Benedikt fóram út í ársbyrjun 1952. Ég man þetta vel vegna þess að í þessari ferð fórum við líka til London og bjuggum þai- á hótel Park Lane við Piccadilly hinn 25. janúar. Þetta man ég vegna þess að þar sem við sátum við morgunverðar- borðið kom til okkar Ólafur Thors, sem þá var atvinnumálaráðherra í stjóm Steingríms Steinþórssonar, og sagði okkur það að Sveinn Bjömsson, forseti Islands, væri látinn. Þess vegna man ég þessa tímasetningu svona vel,“ segir Vilhjálmur. Leitað til sérfræðings í Skotlandi Helsta erindi ferðarinnar áttu þeir þó í Skotlandi þar sem þeir byrjuðu ferðina. „Þar hittum við að máli mann í Holy Loch sem síðar varð bæki- stöð kjarnorkukafbáta. Sá bar nafnið „comm- odore“ en það mun vera næsta stig fyrir neðan aðmírálstign. Þetta var glæsilegur maður sem hét McKenzie. Hann var meðal annars þekktur fyrir að hafa staðið framarlega í því að ná upp þýska flotan- um úr Scapa Flow á Orkneyjum sem Þjóð- verjar sökktu í lok fyrra stríðsins,“ segir Vil- hjálmur. Ætlun þeirra Bene- dikts var að leita ráða hjá McKenzie varðandi það að lyfta E1 Grillo frá hafsbotni og koma honum á flot. „Og ef mig misminnir ekki illilega þá var það hugsunin að reyna að pumpa lofti í tanka skipsins og láta það fljóta upp. McKenzie sagði okkur hins vegar að þetta væri óframkvæmanlegt. Skipið mundi einfaldlega springa. Það liggur á 44 metra dýpi, undir miklum þrýstingi og þar sem erfitt væri að stjóma hraðaum á því þegar það færi af stað upp þá hefði það sprungið," segir Vilhjálmur. McKenzie var ákaflega elskulegur og vildi allt fyrir okkur gera en vegna tæknilegra örðugleika og kostnaðar var fallið frá því að lyfta E1 Grillo af hafsbotni,“ segir Vilhjálmur. Þess í stað var ákveðið að ná sem mest af ol- íunni upp úr skipinu og snemmsum- ars sama ár dvöldu þeir Benedikt um mánaðartíma á Seyðisfirði. Þar stjórnaði Benedikt köfun og öðrum aðgerðum til að ná upp olíu, eins og fyrr segir. Olían kom í góðar þarfir Þótt fallið hafi verið frá upphafleg- um björgunaraðgerðum segir Vil- hjálmur að heilmikið um- stang hafi þurft til að ná olíunni upp. Hún hafi þó komið í góðar þarfir. „Olí- an var seld og hún notuð,“ segir Vilhjálmur. „Til þess að koma henni frá E1 Grillo á tanka á Seyðisfirði þurftum við að fá að sunn- an lítinn olíuílutningabát sem Olíufé- lagið átti og hét Haskell. Hann liggur nú á botni Hvalfjarðar þar sem hann sökk mörgum árum síðar,“ segir Vil- hjálmur. Björgunaraðgerðin og dæling olí- unnar eru Vilhjálmi minnisstæð. „Þarna var mikill mannskapur sam- ankominn. Það þurfti marga til að manna loftdælurnar, til að snúa þeim til skiptis því ekki máttu þær stoppa. Og það var fenginn línutogarinn Jök- ull úr Hafnarfirði þar sem mannskap- urinn hafði aðstöðu. Skipstjóri var Bessi B. Gíslason stýrimaður Þórhall- ur Vilhjálmsson og vélstjóri Ingvar Jóhannsson, nú hjá Keflavíkurverk- tökum." Vilhjálmur segist ekki komast hjá því að minnast á Grím Eysturoy kaf- ara. „Grímur Eysturoy var alveg frá- bær, hreinn snillingur og mikil hetja, það verður ekki frá honum tekið. Hann fór þama niður allar þessar ferðir á þessu mikla dýpi. Hann fékk einu sinni kafaraveiki. Og þá var farið að athuga bækumar, hvað þær segðu. Ég held ég muni það rétt að hann þurfti. að fara niður á 43 metra dýpi og vera fjóra og hálfan tíma á leiðinni upp. Því við höfðum ekki það sem heitir afþrýstitæki eða „decom- pression chamber" eins og McKenzie hafði bent okkur á að þyrfti," segir Vilhjálmur. Trúlofunarbuxurnar í súginn Þótt umræða um náttúravernd hafi ekki verið jafn ofarlega á baugi þá og nú segir Vilhjálmur að menn hafi einnig haft miklar áhyggjur af meng- un frá E1 GrOlo sem hafi verið mikil. „Þó að maður væri á skóhlífum fór maður jafnvel upp fyrir í fjöranni. Einu sinni var ég með kærustunni minni þarna og fór að eiga við bát og lenti í því að eyðileggja trúlofunar- buxurnar mínar í olíudrullu. Þetta var mjög alvarlegt, skal ég segja þér,“ segir Vilhjálmur og hlær. Mikil olíumengun varð á meðan verið var að dæla upp olíunni og hafði ekki verið jafn mikil síðan skipið sökk átta áram áður. „Það drapst heilmik- ið af fugli því það jókst svo mikið út- streymið á olíu þegar við fórum að eiga við þetta. Það var alveg gríðar- lega mikil mengun og alveg hrikalegt, ekki síst fyrir svona frá- bæra höfn eins og á Seyð- isfirði,“ segir Vilhjálmur. . Hann telur nú að menn hefðu átt að ganga mun harðar fram til þess að hreinsun færi fram og taka hefði átt kvartanir Seyðfn-ðinga betur til greina. En nú sé lag. „Ég held að ís- lendingar, sem þykjast nú vera rík- astir þjóða í heimi, ættu bara að drífa sig í það að hreinsa svona drullu í burt.“ Þá telur Vilhjálmur það sjálfsagt að þjóðréttarleg staða málsins sé könnuð og athugað hvort leita beri eftir kostnaðarþátttöku mengunar- valda, eða þeirra sem áttu skipið þeg- ar að það sökk. „En hvort sem það fæst eða ekki þá finnst mér að þjóð- inni beri skylda til að standa kostnað af því að ná E1 Grillo upp. Það eru hreinar línur,“ segh’ Vilhjálmur að lqkum. -H- Vilhjálmur Árnason Ætluðu að ná skipinu upp af hafsbotni Skipið mjög til trafala fyrir Seyðfirðinga Morgunblaðið/Jón Svavarsson Biskup íslands, sr. Karl Sigurbjörnsson, prédikaði á útiguðsþjónustu á Laugardalsvelli á sunnudag. Altari var reist á leikvanginum miðjum og bak við það sat 60 manna lúðrasveit og tæplega þúsund manna kór. ' " 1 "■ » Upphaf kristnitökuhátíðarinnar í Reykiavík heppnaðist vel FJÖLDI gesta við upphaf kristni- tökuhátíðarinnar í Laugardalnum síðastliðinn sunnudag var framar björtustu vonum aðstandenda, að sögn Bjarna Kr. Grímssonar, framkvæmdastjóra hátíðarinnar. Hann segir á sjötta þúsund manns hafa mætt við guðsþjónustu, sem fram fór á Laugardalsvellinum, og að 2.500 hafi hlýtt á gospeltónleika í Laugardalshöllinni. Um kvöldið komu þúsund manns á unglinga- dagskrá í Skautahöllinni. „Við erum alveg í himnasælu yf- ir þessu og allir dagskrárliðir tók- ust mjög vel,“ segir Bjarni. „Veðr- ið lék við okkur sem hefur mikið að segja þegar dagskrá undir ber- um himni er annars vegar.“ Fyrsta guðsþjónustan á Laugardalsvelli Altari og kross var reistur á miðjum Laugardalsvelli fyrir úti- guðsþjónustuna en hún mun vera sú fyrsta sem haldin er á Laugar- dalsvelli. Biskup íslands, sr. Karl Sigurbjörnsson, hélt stólræðu þar sem hann benti m.a. á að margir hefðu slitið tengslin við arfleið fortíðarinnar í trú og siðgæði. Hann hvatti fólk til þess að taka höndum saman og styrkja það sem greiðir fyrir áhrifum Krists. „Ég vil sérstaklega beina þeirri ósk til forráðamanna skólamála að þáttur kristinfræði verði auk- inn í grunnskólum. Og að fræðsla um siðfræði og trúarbrögð verði komið á í framhaldsskólum lands- ins. fsland hefur þá sérstöðu með- al nágrannalandanna að hér er engin fræðsla um trú og sið á framhaldsskólastigi. Slíkt stuðlar að stórhættulegri fáfræði og greiðir veg þröngsýni og hleypi- dómi,“ sagði biskup einnig í ræðu sinni. Fjölbreytileg tónlist Tæplega þúsund manna kór söng við athöfnina undir sljórn Jóns Stefánssonar. Kórmeðlimir komu úr ýmsum kórum á Reykja- víkursvæðinu og sungu frá áhorf- endapöllum aftan við altarið. Einnig var tekið upp á þeirri ný- breytni að hafa undirspil í höndum lúðrasveitar, en hún var samansett af Lúðrasveit verkalýðsins og Á bilinu fimm til sex þúsund manns voru viðstödd guðsþjónustuna. Táknmálstúlkar frá Samskiptastöð heyrnarlausra túlkuðu það sem fram fór. Lúðrasveitinni Svani. Samkvæmt upplýsingum Bjarna kom það mjög vel út og ómuðu tónarnir um allan Laugardalinn. Krist.inn Sig- mundsson söng einsöng við athöfn- ina. Að guðsþjónustu Iokinni dreifðu gestir sér um Laugardalinn þar sem reist höfðu verið tjöld og kynning á starfsemi ýmissa safn- aða í þjóðkirkjunni og fleiri krist- inna safnaða fór fram. Einnig var kynning á margvíslegri starfsemi kristinna félaga í anddyri Laugar- dalshallarinnar þar sem gospeltón- leikar fóru fram. Á gospeltónleik- unum var mikil stemmning en þar konui fram ýmsir listamenn. Selt. var inn á tónleikana og rennur all- ur ágóði, sem var um ein milljón króna, til málefna geðfatlaðra barna. Allir dagskrárliðir heppnuðust mjög vel að mati framkvæmda- stjóra hátíðarinnar. Hún er þó hvergi nærri búin því hátíðarhöld verða langt fram á næsta ár í til- efni þúsund ára kristnitöku á ís- landi. Góð aðsókn í blíðskaparveðri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.