Morgunblaðið - 20.08.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
186. TBL. 87. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
150.000 manna samkoma krafðist
afsagnar Júgóslavíuforseta
Milosevic hverfí
frá völdum
innan 15 dag*a
Belgrad. Reuters, AFP.
150.000 manns a.m.k. söfnuðust
saman fyrir framan júgóslavneska
þinghúsið í miðborg Belgrad síð-
degis í gær í fjölmennustu mót-
mælaaðgerðum sem haldnar hafa
verið í höfuðborginni í þrjú ár og
kröfðust afsagnar Slobodans
Milosevics Júgóslavíuforseta. Safn-
aðist mannfjöldinn saman þrátt
fyrir að óttast hefði verið að inn-
byrðis deilur stjórnarandstöðuafl-
anna í landinu, sem stóðu fyrir
fundinum, myndu fæla fólk frá því
að mæta. Tók mannfjöldinn undir
þær kröfur stjórnarandstæðinga
að Milosevic hverfi af valdastóli
innan 15 daga ellegar fari fólk á
götur út og hverfi ekki þaðan fyrr
en Milosevic sé frá.
Með mótmælafundinum, sem
haldinn var að undirlagi G-17-hóps-
ins, hóps óháðra hagfræðinga í Júg-
óslavíu, var tveimur meginmark-
miðum skipuleggjendanna náð; að
ná fleiri en 100.000 manns út á göt-
ur höfuðborgarinnar og að fá tvo af
sterkustu leiðtogum stjómarand-
stöðuaflanna í Serbíu til að ávarpa
samkomuna.
Zoran Djindjic, leiðtogi Lýðræð-
isflokksins, fór fram á það í ræðu
sinni að Miloscvic hyrfi frá völdum
innan 15 daga. „Ef þeir eru enn við
völd eftir [þann tíma] mun Serbía
fara út á götumar, ekki aðeins í
Belgrad, heldur í öllum bæjum. All-
ir munu flykkjast út á götur með ein
skilaboð á lofti: Við munum vera
hér uns þú ferð frá. Annaðhvort
Milosevic eða Serbía, þriðja leiðin
er ekki til,“ sagði Djindjic í tilfinn-
ingaþmnginni ræðu.
Draskovic lætur
undan þrýstingi
Hinn umdeildi leiðtogi Endur-
reisnarbandalagsins, Vuk Dra-
skovic, mætti til fundarins þrátt
fjrir að hafa hafnað því áður vegna
missættis við aðra stjómarandstæð-
inga. Lét hann þó undan þrýstingi
hluta mannfjöldans sem safnast
hafði saman og ávarpaði samkom-
una. „Við eram í fangelsi vegna þess
Reuters
Um 150.000 manns mættu til miðborgar Belgrad síðdegis í gær og hvöttu til afsagnar Slobodans Milosevics
Júgóslavíuforseta. Helstu talsmenn stjómarandstöðuaflanna tóku til máls á mótmælafundinum.
að einstaklingar sem era við stjóm-
völinn í sambandsríkinu og Serbíu
era einangraðir frá umheiminum."
Nokkrir fundargesta veittust að líf-
vörðum Draskovics eftir ræðuna og
hrópuðu ókvæðisorð að Draskovic.
Kom tii lítilsháttar ryskinga.
Stjómvöld í Júgóslavíu höfðu
reynt að beita áhrifum sínum svo að
af fundinum yrði ekki og sögðust á
miðvikudag reiðubúin til að ganga til
kosninga á þessu ári. Þá breyttu þau
í gær umdeildum reglum um þjóðar-
happdrætti í landinu og greiddu út
ellilífeyri, en greiðslur til eldri borg-
ara hafa ekki borist síðan í apríl sl.
Skipuleggjendur fundarins sögðu
að lögreglusveitir hefðu ekki amast
við komu langferðabifreiða er fluttu
fólk, oft um langan veg, til höfuð-
borgarinnar og fámennt lið lögreglu
var nærri fundarstaðnum. Pó er
talið víst að öflugar sveitir hafi verið
tO taks í þinghúsinu.
Landsbyggðin
Sápuóper-
ur seiða
burt fólkið
MIKIL ástæða fyrir brott-
flutningi ungs fólks af lands-
byggðinni er sjónvarpsþættir á
borð við „Seinfeld" og „Vini“.
Pað er sænskur fræðimaður,
sem heldur þessu fram, en
hann segir, að í þáttunum sé
borgarlífinu lýst sem eins kon-
ar paradís unga fólksins.
Myndir af landsbyggðinni
gangi hins vegar margar út á
einhver undarlegheit í fólki.
„I sænskum kvikmyndum
og sjónvarpsþáttum er lands-
byggðinni yfirleitt lýst á mjög
neikvæðan hátt. Þar er fólkið
uppfullt af fordómum og af-
skaplega fáfrótt í samanburði
við borgarbúana," segir Hans
Westlund, sem starfar við
byggðarannsóknastofnun í
Ostersund, í viðtali við norska
blaðið Verdens Gang.
Unga fólkið vill
sápuóperulíf
Westlund leggur áherslu á,
að þessi kenning sín hafi ekki
verið vísindalega sönnuð en
hann segir, að unga fólkið flytj-
ist ekki bara til bæjanna vegna
náms eða í leit að góðu starfi.
Það vilji eiga hlut í því kunn-
ingja- og kaffihúsalífi, sem lýst
sé í sápuóperanum. „Fucking
Ámál“ sé hins vegar gott dæmi
um þá mynd, sem dregin sé
upp af landsbyggðinni.
Jarðfræðingar óttast öfluga eftirskjálfta í Norðvestur-Tyrklandi
Átökin í Dagestan
Milljónir manna
flýja heimili sín
Golcuk, Istanbúl, Ankara. Reuters, AP, AFP.
MILLJÓNIR Tyrkja flýðu heimili
sín í gærkvöldi eftir að jarðfræðing-
ar höfðu varað við öflugum eftir-
skjálftum tveimur dögum eftir að
hinn gríðarlegi jarðskjálfti, sem
mældist 7,4 á Richter, reið yfir
norðvesturhluta Tyrklands með
þeim afleiðingum að þúsundir
manna fórast og tugþúsundir særð-
ust. í gærkvöldi höfðu yfir 7.000 lík
fundist í húsarústum víðs vegar um
jarðskjálftasvæðið og talið var að
alls hefðu 33.000 manns slasast.
Hundrað dvelja nú úti undir bera
lofti þar eð híbýli þeirra era illa
leikin eða ónýt og vegna ótta um
eftirskjálfta hvöttu yfirvöld almenn-
ing í borginni Bursa, þar sem tvær
milljónir manna búa, til að yfirgefa
heimili sín. Seint í gærkvöldi var
borgin nánast mannlaus.
Borgin Golcuk varð einna verst
úti í skjálftanum og er aðstæðum
þar lýst sem hrikalegum. Hundrað
og jafnvel þúsundir manna era tald-
ar hvfla enn í rústunum lífs eða liðn-
ar og taldi borgarstjórinn í Golcuk
að um 10.000 manns væru fastir í
rústunum. Hjálparstarfsmenn í
Golcuk og öðram þéttbýliskjömum
á jarðskjálftasvæðinu reyna nú
linnulaust að finna eftirlifendur
skjálftans sem og að koma hinum
slösuðu og aðframkomnu til hjálpar.
Borgarar grátbændu hjálparstarfs-
menn um að leita að ástvinum sín-
um í rústum húsa en líkumar á því
að finna fólk á lífi í sumarhitanum á
svæðinu fara nú minnkandi.
Ört minnkandi matarbirgðir víða
á skjálftasvæðum jók enn á geðs-
hræringu fólks en undanfarna tvo
daga hefur gagnrýni almennings á
stjómvöld magnast vegna þess sem
talin era slök viðbrögð við hamför-
unum. Sögðust margir borgarar
ekki hafa fengið neina aðstoð,
hvorki mat né verkfæri til að grafa
ástvini sína úr rústunum. Vatns-
birgðir eru víða á þrotum og í gær
réðst æstur múgur á bílalest sem
flutti mat inn í borgina Izmit.
Bulent Ecevit, forsætisráðherra
Tyrklands, varði aðgerðir stjóm-
valda og lagði áherslu á að hjálpar-
starf væri á afar viðkvæmu stigi og
ef fyllstu varúðar væri ekki gætt
gætu tíu dáið á meðan aðeins einum
væri bjargað lifandi.
Óvenju mikil virkni
Tveir litlir eftirskjálftar riðu yfir
vesturhluta Tyrklands með tveggja
klukkustunda millibili í gær og
vöktu strax ótta um endurteknar
hamfarir. Mehmet Ali Isikara, yfir-
maður helstu jarðskjálftastofnunar
Tyrklands, sagði í gær að nauðsyn
væri á því að vera vel á varðbergi
gagnvart eftirskjálftum. Skjálftam-
ir í gær gætu e.t.v. verið fyrirboði
öflugs skjálfta. „Sannleikurinn er sá
að ég er afar uggandi," sagði Isik-
ara og hvatti til aðgæslu vegna
Reuters
Þýskir hjálparsveitarmenn
bera aldraðan Tyrkja úr rúst-
um híbýlis síns í borginni
Golcuk í gær. Hafði maðurinn
verið fastur í rústunum í 60
klst. áður en hjálp barst.
„óvenju mikillar jarðskjálftavirkni“
í Norðvestur-Tyrklandi. Seint í
gærkvöldi dró hann þó úr aðvöran-
arorðum sínum.
Tyrkneska viðskiptadagblaðið
Finansial Fomm sagði í gær að
skjálftinn myndi kosta tyrkneska
ríkið andvirði a.m.k. 1.825 milljarða
íslenskra króna en sumir telja
kostnað við uppbyggingu og hjálp-
arstarf geta orðið enn meiri.
Hernum
beitt víða
um landið
Moskvu, Makhachkala. Reuters, AFP.
RÚSSNESK stjómvöld sögðu í gær
að þau yrðu að endurskipuleggja
herfræði sína í átökunum við upp-
reisnarmenn í Kákasuslýðveldinu
Dagestan sem hafa lagt undir sig
svæði í fjallahéraðum sjálfsstjórnar-
lýðveldisins. Talsmenn stjórnarinn-
ar í Moskvu sögðu að undanfarnar
tvær vikur hefðu fjöratíu rússneskir
hermenn fallið en á milli 400 og 500
skæraliðar verið vegnir.
Rússneskar orrastuvélar hafa
varpað sprengjum á svæðið um-
hverfis þorpið Tando þar sem
skæraliðar era taldir halda sig og
sögðu rússnesk hermálayfirvöld að
hert yrði á sókninni gegn tsjetsj-
neskum uppreisnarmönnum í hérað-
inu. Sagði Igor Zubov, aðstoðarinn-
anríkisráðherra Rússlands, að hem-
um væri nú beitt viðs vegar um Dag-
estan til að uppræta skæraliðana er
vilja stofna íslamskt ríld í landinu.
ísraelar bjóða aðstoð sína
Rússneska dagblaðið Vremya
sagði í frétt sinni í gær að Mossad,
ísraelska leyniþjónustan, hefði boð-
ið Rússum aðstoð sína við að brjóta
uppreisnaröflin í Dagestan á bak
aftur. Þeim hefur borist liðsstyrkur
frá Jórdaníu og Palestínu. Sagði
blaðið að David Levy, utanríkisráð-
herra ísraels, hefði boðið Mikhail
Bogdanov, sendiherra Rússa í ísra-
el, aðstoð Mossad, sem gæti veitt
Rússum mikilvægar upplýsingar
um skæraliðasveitimar.