Morgunblaðið - 20.08.1999, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 20.08.1999, Blaðsíða 48
4. 48 FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ í DAG Þessar duglegn stúlkur söfnuðu 1.910 kr.til styrktar Rauða krossi Islands. Þær heita María Rún Daníelsdútt- ir og Hildur Birna Birgisdútt- ir. Á myndina vantar Daða Daníelsson. ÚTSALA Meiri lækkun Allar sumarkápur, stuttar og síðar, kr. 5.900 Ledurlíkísjakkar st. 34-44 kr. 2.000 Opid á laugardögum frá kl. 10—16 30 ára reynsla Hitaþolið gler Hert gler Eldvarnargler GLERVERKSMIÐJAN Sawve<*k Eyjasandur 2 « 850 Hella ® 487 5888 • Fax 487 5907 VELVAKAMII Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Sýnum rúss- nesku sjómönn- unum samstöðu ÁGÆTU íslendingar. Er ekki kominn tími til að sýna rússnesku sjómönn- unum samstöðu? Mætum fyrir utan stjórnarráðið í dag, fóstudaginn 20. ágúst, milli kl. 14 og 16. Þessir menn eiga allir fjölskyldur heima sem þeir hafa ekki séð í 13 mánuði né sent peninga heim. Nú er kom- inn tími til að Islendingar hjálpi þeim til að komast heim því þeir eru ekki hér að eigin ósk. Sýnum stuðn- ing. Stuðningsmenn. Hvar fást undir- skriftarlistarnir? MIKIÐ hefur verið rætt undanfarið um að verið sé að safna undirskriftum til að mótmæla að byggt verði meira í Laugardal. Gott væri ef fólk gæti nálgast þessa lista og fengið aðra til að skrifa undir en ég hef hvergi rekist á þessa lista. Því spyr ég: Hvar er hægt að nálgast þessa lista? Einn áhugasamur. Hávaði í Hafnarstræti ÞAÐ hefur undanfarið verið kvartað mikið í Grjótaþorpi vegna hávaða frá skemmtistöðum. í gærkvöldi gekk ég eftir Hafnarstræti og vakti það athygli mína hversu mikill hávaði barst út á götu frá skemmtistað sem staðsett- ur var þar. Björgvin. Um vísindin ÉG var að horfa á afskap- lega merkilegan vísinda- þátt í sjónvarpi og af því tilefni datt mér í hug þessi staka: A himni orka stjómar sterk stjömum ný telst viska Sem vísindin nú verða merk á visku þá að giska. Áhorfandi. Ljútar aðfarir UNG stúlka hafði sam- band við Velvakanda og sagðist hún hafa verið við vinnu við Hlemm þegar hún sá lítinn þeldökkan strák, u.þ.b. 9 ára gamlan, koma hjólandi framhjá. Mætti hann þar íslenskri konu á miðjum aldri sem bókstaflega hrinti honum niður og hélt hún svo áfram göngu sinni án þess að sinna barninu. Lá drengurinn eftir grátandi í götunni með sár og rispur á handleggjum og lófum og horfðu nærstaddir agn- dofa á. En nærstaddur vegfarandi sá til þess að drengurinn myndi ekki læra af þessu kynþátta- hatur og huggaði hann og þerraði tárin með höndun- um. Ein hneyksluð. Tapað/fundið Björgunarvesti týndist APPELSÍNUGULT björgunarvesti týndist 8. ágúst á leið milli Efra- Breiðholts og Mosfells- bæjar. Vestið var merkt Þorsteinn Gíslason. Skilvís finnandi hafi samband í Dýrahald Rauð Ciahuahua-tík í úskilum RAUÐ Ciahuahua-tík (lít- ill mexíkóskur smáhund- ur) fannst við Reykjanes- braut við Byko. Þeir sem kannast við hundinn geta haft samband í sima 557 3422 eða 893 6431. síma 5571451 eða 861- 6136. Veiðistöng týndist á Þingvöllum SKÆRGUL veiðistöng með hjóli gleymdist í Vatnsvíldnni á Þingvöllum laugardagskvöldið 14. ágúst. Finnandi vinsam- legast hringi í síma 567 8815 eða 897 4649. Gleraugu í úskilum Gleraugu fundust í Stór- holti. Upplýsingar í síma 561-9934. Skuggi er týndur SKUGGI, sem er 5 mán- aða hálfstálpaður svartur högni, týndist við Ásbraut í Kópavogi aðfaranótt fóstudagsins 13. ágúst. Skuggi er ólarlaus og ómerktur. Þeir sem hafa orðið hans varir hafi sam- band í síma 695 9498 eða 587 2068. SKAK Umsjún Margcir Pétursson STAÐAN kom upp á breska meistaramótinu í sumar en það var haldið i Scarborough. Nigel Da- vies (2.515) hafði hvítt og átti leik gegn Christoph- er Duncan (2.295). 27. Re5! - dxe5 28. Dxd7 (Einfaldara var að vinna drottninguna með 28. Rf6+ strax) 28. - Hxd7 29. Rf6+ - Kh8 30. Rxd7 og svartur gafst upp. Julian Hodgson varð breskur meistari, hlaut 9 vinninga af 11 möguleg- um, en þeir Peter Wells og Ziaur Rahman, angla- desh, komu næstir með 8 v. Skákmenn frá öllu breska samveldinu hafa þátttökurétt á mótinu. Hvítur leikur og vinnur Víkverji skrifar... VíKVERJI er mikill áhugamaður um gróður og garða og því var það honum töluvert áfall er sagt var frá því fyrir fáum árum, að upp væri komin sveppasýking í gljávíðinum. Varð hennar fyrst vart á Höfn í Hornafirði og því er helst talið, að sveppurinn hafi komið þangað með fugli eða jafnvel borist með vindum. Á síðasta sumri var hann kominn á Selfoss og óstaðfestar fréttir eru um, að sést hafi til hans á höfuðborgar- svæðinu. Gljávíðirinn, þessi blaðfagri runni og stundum tré, á sér rúmlega aldar- gamla sögu hér á landi og skrifari hefur það fyrir satt, að hann sé allur kominn út af einni plöntu, gljávíðin- um, sem Schierbeck landlæknir gróðursetti í Víkurgarði við Aðal- stræti um 1890. Var hann orðinn níu meti-a hár er hann brotnaði í vondu veðri 1985. Silfurreynirinn hans Schierbecks stendur þó enn, einstak- lega fallegt tré. Ef trúa má garðyrkjufræðingum er fátt til ráða gegn sveppinum. Hægt er að halda honum í skefjum með því úða runnana eða trén tvisvar á sumri en það gefur auga leið, að fá- ir munu verða til að standa í því til lengdar. Ef skrifari hefur skilið um- ræðuna rétt, þá er ekki annað fyrir- sjáanlegt en að gljávíðirinn verði al- dauða í landinu eftir einhvern tíma enda munu gróðurstöðvarnar vera hættar að rækta hann upp. Hafi þessi öriagadómur yfir gljáv- íðinum komið illa við Víkverja er óhætt að segja, að nýleg frétt í Morgunblaðinu um að komin væri upp sveppasýking í Alaskaöspinni hafi skotið honum skelk í bringu. Á síðustu árum og áratugum hefur átt sér stað gróðurfarsleg bylting á mörgum þéttbýlisstöðum hér á landi og það er ekki síst öspinni að þakka. „Bær í skógi“ hét grein í blaðinu um Akureyri og þegar litið er yfir mörg borgar- og bæjahverfin hér í þéttbýl- inu á Suðvesturlandi er ekki erfitt að sjá það fyrir, að eftir einhvern tíma, kannski 10 eða 15 ár, verði þau næst- um horfin inn í grænt laufskrúðið. Það er að segja ef öspin verður ekki sveppinum að bráð. Að mati Víkverja er hér um stór- mál að ræða. Eigi öspin eftir að lúta í lægra haldi fyrir sveppinum, þá yrði ekki aðeins að henni fagurfræðilegur missir eða vegna skjólsins, sem hún veitir, heldur venilegt fjárhagstjón. Það kostar sitt að fjarlægja kannski allt að 15 metra há tré. Kannsld eru þessar áhyggjur Vík- verja ástæðulausar en hann saknar meiri upplýsinga um þennan nýja vá- gest. Hvað segja íslenskir garðyrkju- og skógfræðingar? Komið hefur fram, að sams konar sveppasýking sé algeng í Evrópu og hvernig leikur hún þessar trjátegundir þar? Er lík- legt, að útkoman verði svipuð hér á landi? Það eru áreiðanlega fleiri en Víkverji, sem bíða spenntir eftir að heyra meira. XXX SEM betur fer eru ekki allar fréttir úr náttúrunnar ríki slæmar. Það er til dæmis ástæða til að fagna fréttum um, að arnarvarp- ið hafi tekist vel, annað árið í röð, en á þessu sumri komust 26 ungar á legg í 19 hreiðrum. Virðist varpið hafa misfarist í 15 hreiðrum. Á síð- ustu árum og áratugum hefur örn- inn verið að færa aftur út búsetu- svæði sitt og virðist nú hafa náð góðri fótfestu við Faxaflóa þar sem níu ungar komu úr sjö hreiðrum. Er það haft eftir Kristni Hauki Skarp- héðinssyni fuglafræðingi, að ekki hafi betur tekist til við Flóann frá því fyrir síðustu aldamót. Höfuð- stöðvar arnarins eru eftir sem áður við sunnanverðan Breiðafjörð en það vekur athygli, að við norðan- verðan fjörðinn og á Vestfjörðum fer ástandið versnandi. Fróðlegt væri að fá skýringar á því. Við Islendingar höfum það á sam- viskunni að hafa útrýmt einni dýra- tegund, geirfuglinum, og þótt það hafi kannski verið óviljaverk, þá er heiður okkar og virðing í voða ef það endurtekur sig með örninn. Er ekki full ástæða fyrir hinn nýja um- hverfisráðherra að taka þetta mál föstum tökum og láta kanna hvað unnt er að gera til að tryggja fram- tíð stofnsins. Vitað er, að fuglinn er mjög viðkvæmur fyrir truflun með- an á varpi stendur en getur það ekki verið hugmynd að fela ákveðn- um mönnum að tryggja konungi fuglanna nægan frið á varptíman- um. Víkverji er viss um, að fjármun- um ríkisins hefur stundum verið verr varið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.