Morgunblaðið - 20.08.1999, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 20.08.1999, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 20. ÁGIJST 1999 39 Elsku Lára, ég veit ekki hvernig lífíð verður án þín, þín sem ávallt varst eins og stóra systir mín. Manstu þegar þú horfðir á eftir mér þegar við vorum um fermingu og vorum úti á kvöldin? Yið gátum að- eins fylgst að hálfa leiðina heim, þá stóðst þú við stíginn þar sem við urð- um að skiljast að því ég var svo sjúk- lega myrkfælin að ég þurfti að snúa mér hundrað sinnum við til að full- vissa mig um að þú værir örugglega að horfa á mig. Það brást aldrei, alltaf beiðst þú. í dag veit ég að þú varst líka myrkfælin, það upplifðum við saman seinna. Þú varst bara svo skynsöm strax þá eins og alltaf og varst ekkert að bera tilfinningar þín- ar á torg. Þú varst svo sterk, trygg og trú og harkaðir bara af þér. Þú varst svo dugleg, svo ógleymanleg öllum sem þér kynntust, en þú varst heldur ekki allra. Það vita þeir sem þig þekktu. Þú hafðir stórt og fallegt hjarta, þú varst falleg að utan sem innan. Við sem eftir stöndum vitum að þú ert með okkur og verður alltaf. Við hittum þig í draumum okkar. Haltu áfram að koma til mín í draumi, þá líður mér betur þegar ég vakna. Ég veit að þú ert á góðum og fallegum stað núna. Þegar ég sagði Svandísi, litlu dóttur minni, að nú værir þú farin frá okkur þá klökkn- aði hún en svo harkaði hún af sér þegai- hún sá mömmu sína gráta rétt eins og þú hefðir gert og sagði: „Mamma mín, við þurfum ekkert að kvíða því þegar við deyjum, Lára tekur örugglega vel á móti okkur.“ Það veit ég líka. Ég veit líka að vegir Guðs eru órannsakanlegir ég skil ekki af hverju Lára er tekin í blóma lífsins frá öllum sem elskuðu hana og hún elskaði. Kannski kemst ég að því þegar við hittumst aftur. Eg kveð þig, elsku Lára mín, með sárum söknuði þess fullviss að við hittumst síðar. Sem betur fer átt þú samhenta og yndislega fjölskyldu, það er ekki sjálfgefið, og það kunnir þú svo sannarlega að meta. Elsku Jón, Guðný, Björgvin, Palli litli, Áslaug Birna, Björgvin, Bjössi, Fanný, Áslaug Hafdís, Sigurður, systkinabörn og aðrir aðstandendur, ykkur votta ég mína dýpstu samúð. í>ó að kali heitur hver hylji dali jökull ber, steinar tali og allt hvað er, aldrei skal ég gleyma þér Augað mitt og augað þitt, ó, þá fógru steina, mitt er þitt og þitt er mitt, þú veist hvað ég meina. (Vatnsenda-Rósa) Þín vinkona, Hólmfríður Sigurðardóttir (Hófý). Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) í dag kveðjum við góða vinkonu okkar, Láru Björgvinsdóttur, sem lést langt um aldur fram eftir stutta en erfiða sjúkdómslegu. Það er alltaf erfitt að standa andspænis dauðan- um og sjá á bak þeim sem manni þykir vænt um. Sárast er það þó þeg- ar lífsglatt fólk er hrifið burt frá okk- ur í blóma lífsins og þá á maður oft erfitt með ap sætta sig við dóm al- mættisins. Á slíkum stundum geta fátækleg orð ekki túlkað þær tilfinn- ingar sem bærast í brjóstinu og það eina sem maður getur gert er að drúpa höfði og leita huggunar í minn- ingunni um góða og lífsglaða konu, sem ávallt varpaði birtu á tilveruna hvar sem hún kom í lifanda lífi. Elsku Jón, Guðný, Björgvin og Palli litli. Með sorg í hjarta kveðjið þið nú ástríka eiginkonu og móður, sem allt of fljótt var tekin frá ykkur. Söknuðurinn er sár en minningin um góða konu lifir um ókomin ár og þessa fallegu minningu getur enginn tekið frá ykkur. Megi Guð blessa ykkur og styrkja í sorginni. Sigrún Magnúsdóttir og Halldór Olgeirsson. • Fleiri minningargreinar um Láru Björgvinsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐLAUG RAGNARSDÓTTIR, Safamýri 77, Reykjavík, andaðist á heimili sínu miðvikudaginn 18. ágúst. Útförin auglýst síðar. Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir, Lárus S. Marinusson, Steinunn Ásgeirsdóttir, Tommy Hákansson, Ragnhildur Ásgeirsdóttir, Andrés Jónsson, Reynir H. Jónsson og barnabörn. t Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, DAGBJÖRT FINNBOGADÓTTIR, Selbraut 9, Seltjarnarnesi, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur þriðjudaginn 17. ágúst. Hrafnkell Eiríksson, Valgerður Franklínsdóttir, Eiríkur Kristinn Hrafnkelsson, Patrick Hrafnkelsson, Ragnar Ingi Hrafnkelsson, Ingunn Gyða Hrafnkelsdóttir. Elísabet F. Eiríksdóttir, Þórleifur Jónsson, Dagbjört Þórleifsdóttir, Eiríkur Þórleifsson, Unnur Þórleifsdóttir, + Ástkær frændi okkar, GUÐMUNDUR MARGEIR GUÐMUNDSSON, Miðtúni 50, Reykjavík, er látinn. útför hans verður gerð frá Fossvogs- kirkju miðvikudaginn 25. ágúst kl. 15.00. Guðmundur Elías Níelsson, Karólína Guðmundsdóttir, Elsa Margrét Níelsdóttir, Jacob A. de Ridder, Guðmundur Margeir Skúlason, Skúlí Lárus Skúlason, Sigrún Ólafsdóttir, Ingi Þór Skúlason, Björk Gísladóttir. + Sonur okkar, bróðir, mágur og frændi, PÁLL HERMANN HARÐARSON, Böðmóðsstöðum, sem lést föstudaginn 13. ágúst, verður jarð- sunginn frá Skálholtskirkju þriðjudaginn 24. ágústkl. 13.30. María Pálsdóttir, Hörður Guðmundsson, Elfar Harðarson, Snjólaug Óskarsdóttir, Hulda Karólína Harðardóttir, Jón Þormar Pálsson, Guðmundur Harðarson, Óskar Páll Elfarsson, Hulda Björg Elfarsdóttir. + Þökkum vinsemd og samúð vegna andiáts föður okkar, tengdaföður, bróður, afa og langafa, KRISTJÁNS GÍSLASONAR, Lambastekk 7, Reykjavík. Gylfi Kristjánsson, Birna Blöndai, Gerður Jóna Kristjánsdóttir, Jens Magnússon, Stefán Kristjánsson, Sólveig Jóna Ögmundsdóttir, Þórey Gísladóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað AB varahlutir ehf. verður lokað frá kl. 13 í dag, föstudaginn 20. ágúst, vegna jarðarfarar LÁRU BJÖRGVINSDÓTTUR. AB varahlutir ehf. + Okkar ástkæri EÐVARÐ SIGURGEIRSSON Ijósmyndari, Möðruvallastræti 4, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju þriðju- daginn 24. ágúst kl. 13.30. Marta Jónsdóttir, Egill Eðvarðsson, Sigríður Guðlaugsdóttir, Elsa Friðrika Eðvarðsdóttir, Bjarni Torfason, Anna Dóra Harðardóttir, Hjörleifur Einarsson, Kristín Huld Harðardóttir, Jón Guðlaugsson, Hanna Stefánsdóttir og barnabörn. + Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, fóstri og afi, ÓLAFUR SIGURÐSSON fyrrverandi yfirlæknir, Ásabyggð 12, Akureyri, sem lést föstudaginn 13. ágúst, verður jarð- sunginn frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 25. ágúst kl. 13.30. Anna Björnsdóttir, Halldóra Ólafsdóttir, Kjartan Mogensen, Sigurður Ólafsson, Klara S. Sigurðardóttir, Ragnheiður Ólafsdóttir, Paul M. Smith, Anna Ingeborg Pétursdóttir og barnabörn. + JAKOB S. ÞÓRÐARSON frá Fossi, Hafnarbyggð 33, Vopnafirði, sem lést mánudaginn 9. ágúst, verður jarðsunginn frá Vopnafjarðarkirkju laugardaginn 21. ágúst kl. 11.00. Jarðsett verður í Hofskirkjugarði. Aðstandendur. + Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlý- hug og samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SOFFÍU LÁRUSDÓTTUR, Egilsbraut 23, Þorlákshöfn. Guð blessi ykkur öll. Aðstandendur. * + Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ást- kæra eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, VILHELMS KARLS JENSEN, Vallargerði 2d, Akureyri. Jakobína Gunnarsdóttir, Þórey Marta Vilhelmsdóttir, fvar Sigurharðarson, Edda Kristrún Vilhelmsdóttir, Ólafur Jónsson og barnabörn. + Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu, GUÐRÚNAR JÓELSDÓTTUR, Sunnubraut 2, Grindavík. Halldór Ingvason, Helga Emilsdóttir, Bragi Ingvason, Bylgja Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnaböm. *
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.