Morgunblaðið - 20.08.1999, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 20.08.1999, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ ÞETTA ER MÁLIÐ ! LEO Celeron % LEO 400Mhz Celeron 4,3Gb Harður diskur 64Mb Vinnsluminni 15" Skjár 8Mb skjákort 16 bita hljóðkort 40x Geisladrif Hátalarar CSW020 56k modem 4mánaða Internetáskrift M Windows98 hr; Lyklaborð & mús Norton AntiVirus 79.900 400 LEO Celeron % LEO 400Mhz Celeron 8,4Gb Harðurdiskur 64MbVinnsluminni 17" Skjár 8Mb skjákort 16 bita hljóðkort 40x Geisladrif Hátalarar CSW020 56k modem 4 mánaða Internetáskrift fá Windows 98 Lyklaborð & mús Norton AntiVirus 99.900 LEO Plll % LEO 450Mhz Pentium III 8,4Gb Harðurdiskur 128Mb Vinnsluminni 17" Skjár 16Mb TNT Skjákort Sound Blaster Live 5x DVD Geisladrif 4 point hátalarar m/bassaboxi 56kmodem 4 mánaða Internetáskrift ígjP Windows 98 Lyklaborð & mús Norton AntiVirus SoftPC-DVD, Unreal 139.900 aco PC / skipholti 17 sími / 530 1800 www.aco.is ERLENT Ekki verður af kosningabandalagi Jabloko og Stepashíns í Rússlandi Töldu hættu á að Jeltsin beitti Stepashín þrýstingi Moskvu. Reuters, AFP. GRIGORÍ Javlinský, leiðtogi Ja- bloko-flokksins í Rússlandi, sagði í gær að ekki yrði af fyrirhuguðu kosningabandalagi við Sergej Stepashín, sem Borís Jeltsín Rúss- landsforseti rak úr embætti forsæt- isráðherra í síðustu viku, þar sem Stepashín óttaðist að Jeltsín myndi beita sig þrýstingi hæfi hann sam- starf við Jabloko, sem er stærsti flokkur frjálslyndra í dúmunni, neðri deild rússneska þingsins. Miklar þreifingar eru nú í rúss- neskum stjórnmálum vegna væntan- legra þingkosninga í desember og fyrr í vikunni tilkynnti Jevgení Prímakov, forveri Stepashíns í for- sætisráðuneytinu, að hann hefði samþykkt að veita kosningabanda- lagi Júrís Lúzhkovs, borgarstjóra í Moskvu, og héraðsstjóranna for- ystu. Jafnframt fundaði Vladímír Pútín, sem Jeltsín skipaði nýlega forsætisráðherra, á miðvikudag með tveimur fyrrverandi forsætis- ráðherrum, Viktor Tsjernómyrdín og Sergej Kíríjenkó, um að þeir yrðu í samstarfi við stjórnvöld í Kreml í kosningunum. Loks hafa miðhægriflokkar og frjálslyndir einnig haft uppi tilraunir til að mynda kosningabandalag en þær hafa hins vegar ekki gengið þrauta- laust. Getgátur höfðu verið uppi um að Stepashín tæki annað sætið á lista Jabloko, á eftir Javlinský sem verð- ur í fyrsta sætinu, en Javlinský sagði í gær að hann og Stepashín hefðu komist að þeirri niðurstöðu að of áhættusamt væri fyrir þá að hefja slíkt samstarf. „Stepashín er her- maður, hershöfðingi. Ef Jeltsín ákvæði að beita hann þrýstingi myndi hann ekki geta staðist hann,“ sagði Javlinský. Hann sagði ekki hvers konar þrýstingi Jeltsín myndi beita en fréttaskýrendur sögðu að forsetinn gæti t.a.m. gripið til þess ráðs að sverta nafn Stepashíns með því að gera opinber gögn, sem ekki myndu auka veg hans og virðingu. Hefði 'Stepashín ákveðið að taka annað sætið á lista Jabloko og síðan dregið sig í hlé væri framboð Jabloko í heild ólöglegt skv. núgildandi kosn- ingalögum. Engar breytingar á ráðherraskipan Fyrr í gær hafði Jeltsín lagt blessun sína yfir ráðherralista Pútíns for- sætisráðheiTa. Framan af hafði ver- ið óljóst hverjir myndu fara með æðstu embætti í efnahagsmálum í stjórn Pútíns en Jnterfax-fréttastof- an rússneska greindi hins vegar frá því í gær að engar breytingar yrðu gerðar. Skipan Pútíns í forsætisráðherra- embættið var samþykkt í dúmunni á mánudag og hann hefur þegar til- kynnt að sömu menn muni fara með utanríkismál, vamarmál og innan- ríkismál í stjóm sinni og í stjórn Stepashíns. Orðrómar vora hins vegar á kreiki um að efnahagsmálin færa undir nýjar hendur, jafnvel þótt Pútín hafi sagt að stefnan í efnahagsmálum verði óbreytt. Interfax sagði í gær að Nikolaj Aksenenkó og Viktor Kristenkó yrðu áfram aðstoðarforsætisráð- herrar og hefðu yfirumsjón með efnahagsmálum, og að Míkhaíl Kasjanov yrði áfram fjármálaráð- herra. Ekki er hins vegar ljóst hvað verður um Míkhaíl Zadornov en rússneks dagblöð höfðu leitt að því líkur að Alexander Livshits tæki við af honum sem helsti samningamaður Rússlands í við- ræðum við alþjóðlegar fjármála- stofnanir. Norður-Kórea virðist reiðu- búin að semja Seoul, Washington. AFP. STJÓRNVÓLD í Norður-Kóreu segjast reiðubúin að semja við and- stæðinga sína vegna ótta þeirra við tilraunir á langdrægum eldflaugum og létu í veðri vaka að n-kóreskar flaugar gætu dregið til Bandaríkj- anna. Hermálasérfræðingar sögðu í gær að yfirlýsingin kynni að marka „þáttaskil“ í afstöðu N-Kóreu- manna til eldflaugatilrauna. Yfirlýsingar n-kóreska utanríkis- ráðuneytisins eru taldar til marks um að N-Kóreustjóm sé viljug tii að hliðra til í hermálastefnu sinni og njóta í staðinn fyrirgreiðslu þeirra ríkja sem mestar áhyggjur hafa af n-kóreskum eldflaugum og fyrirætlunum stjórnvalda í Pyongyang. „Hvað eldflaugamálið varðar, þá eram við ávallt reiðubúnir til samn- inga ef fjandríki okkar fara fram á það af heilindum,“ sagði talsmaður ráðuneytisins að því er fram kemur í n:kóreskum fjölmiðlum. í yfirlýsingu ráðuneytisins kom fram að N-Kórea hefði hafið smíði langdrægra eldflaugna vegna ógn- arinnar sem stafaði frá bandarísk- um hersveitum í S-Kóreu. Þá sagði að þótt N-Kórea svaraði öllum árásum á landið myndu stjórnvöld í Pyongyang ekki hefja átök með því að gera árás að fyrra bragði. „Það kunna að hafa orðið þátta- skil hjá norðanmönnum þannig að þeir hætti aðgerðum sem auka á spennuna og vilji samningaviðræð- ur um eldflaugamálið,“ sagði Choi Jin-Wook við Kóresku saminging- arstofnunina. Bandaríkjamenn fagna yfirlýsingunni Bandarísk stjórnvöld fögnuðu yf- irlýsingu N-Kóreumanna með var- úð. James Rubin, talsmaður utan- ríkisráðuneytisins, talaði um að „tækifæri gæfist“ til bættri tengsla og sagði Bandaríkjastjóm vona að N-Kóreumenn myndu nota það tækifæri. Ríkisstjórnir Japans, Bandaríkj- anna og S-Kóreu hafa allar lýst yf- ir áhyggjum sínum nýlega um að N-Kóreubúar séu að undirbúa til- raunir með Taepedong-2-eldflaug- ar. Er talið að slíkar flaugar geti hæft skotmörk í Alaska, Havaí eða Gúam. Rignir á Moskvubúa ÍBÚAR Moskvu hafa þurft að taka fram regnhlífarnar að und- anförnu en eftir næstum tveggja mánaða hitabylgju fyrr í sumar hefur rignt nánast daglega síðan íjiilí. Nýjar tölur frá hagstofu ESB, Eurostat Talið að Evrópu- búum muni fækka FÓLKSFJÖLDI í Evrópusam- bandslöndunum 15 óx á síðasta ári um 0,2% og um síðustu áramót var samanlögð íbúatala þeirra 376.329.400. En á hverju ári deyja fleiri ESB-borgarar en fæðast, og því er útlit fyrir að íbúafjöldinn muni dragast saman á næstu áram. 1 norska blaðinu Aftenposten er bent á, að þessi þróun eigi sér skýr- ingar í því, að giftingum fækki, skiln- uðum fjölgi og æ fleira ungt fólk velji að búa í óvígðri sambúð, sem hafi m.a. í för með sér að þau bíða með - eða láta það alveg vera - að eignast börn. Áhrif alls þessa er að fólks- fjölgun stöðvast eða byrjar að drag- ast saman. Reyndar varð lítils háttar lolks- fjölgun í fjórtán af ESB-löndunum fimmtán í fyrra, miðað við árið áð- ur. Aðeins í Þýzkalandi dróst íbúa- fjöldinn beinlínis saman. 70.200 fleiri Þjóðverjar dóu en fæddust á árinu 1998, en aðfluttir minnkuðu nettó-fólksfækkunina í 19.400 manns. Nýjustu tölur hagstofu ESB, Eurostat, sýna að fólksfjöldi heldur áfram að dragast saman í löndum Mið- og Austur-Evrópu. Til dæmis fækkaði íbúum Úkraínu um 394.300 í fyrra; brottfluttir umfram aðflutta voru 93.600, og dánir umfram ný- fædda voru 300.700. Þegar litið er til hins hefðbundna innflytjendalands í vestri, Banda- ríkjanna, fjölgaði íbúum þar í fyrra um 2.369.400, en þeir era nú samtals 271.465.000. Á árinu 1998 fæddust þar í landi 1,5 milljónum fleiri en dóu. Kínverjum fjölgaði hins vegar á að gizka um tíu milljónir, en þeir teljast nú vera 1.242.000.000. Ind- verjum fjölgaði um 17 milljónir og voru um síðustu áramót um 922 milljónir. ESB-löndin öll stóðu samtals að- eins fyrir um 1% af heildarvexti mannkyns í fyrra. Hlutfall Indverja í honum var 21,7% og Kínverja 13,2%, samkvæmt nákvæmri skoðun Eurostat á fólksfjöldaþróun heims- ins á síðasta ári. Bólusett við heila- himnubólgu London. Reuters. BRESK heilbrigðisyfirvöld Stefna að því að öll bresk börn verði bólusett við heilahimnubólgu fyrir næstu páska. Bólusetningar byrjuðu í gær í Norður-Englandi eftir að átta ára drengur lést af völdum veikinnai- í bænum Ironville í Derbyshire-hér- aði. Drengurinn var níunda barnið er deyr af völdum heilahimnubólgu á aðeins þremur árum í Derbyshire. Um þrjú hundruð börn frá héraðinu hafa í kjölfar dauðsfallanna fengið tilkynningu frá heilbrigðisyfirvöld- um um að mæta hið fyrsta til bólu- setningar. Um tólf hundruð manns greinast með heilahimnubólgu og deyja rúmlega hundrað af hennar völdum árlega í Englandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.