Morgunblaðið - 20.08.1999, Síða 27

Morgunblaðið - 20.08.1999, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1999 27 LISTIR ið raunar aðeins á undan, en ekki lifði í þeim blossa nema í nokkur ár. Sýningar mynd- höggvarafélagsins lognuðust sömuleiðis útaf og sýningar Grafík- félagsins voru í einhverri ládeyðu. Það sem ekki gengur upp varð- andi úttekt á samtímalist, er að ein- hverjir einangraðir hópar kasti eign sinni á hugtakið og gildir einu hverj- ir eiga í hlut. Við blasir, er svo er komið, að flest það sem kennt hefur verið við frjálsar athafnir á mynd- listarvettvangi í heiminum á undan- gengnum árum er orðið að íhalds- semi, því hér er sem fyrri daginn hjakkað í sama þrönga farinu og allt annað lítilsvirt eins og á blómadög- um „salon“-listarinnar á nítjándu öld. Myndlistin er komin í sjálfheldu og að áliti áhrifamikilla gagn- í-ýnenda á meginlandinu, er kominn tími til að semja grafskriftina yfir póstmódernismann, eins og fyrr hef- ur verið vikið að, hann hafi gengið sér til húðar. Engan veginn er hér verið að leggja mat á stfla eða stefn- ur né kasta rýrð á neitt, einungis miðla upplýsingum, en það sem er endurtekið í sífellu og hafnai- öllu öðru hlýtur fyrr eða síðar að kalla heim kyrrstöðu, og á þann veg skil- greinist hugtakið íhaldssemi. Fáum ef nokkrum framsæknum myndlistarmönnum sem virkir voru um miðbik aldarinnai’ og fórnuðu miklu fyrir hugsjónir sínar, mun hafa komið til hugar að í aldarlok yrðu hinar fyrrum hatrömmu deilur létt- vægar fundnar, og jafnvel metnaðm- og siðgæði í listum úrelt hugtök. Allt fyiir framfarir í hátækni og umrót í mannheimi sem enginn sá fyrir. Er svo er komið veltir hinn opni og for- vitni spyrjandi því fyrir sér; hvemig í ósköpunum hafi verið hægt að af- neita fígúrunni í myndlist þegar mað- urinn er sjálfur hluti hennar. Eða hlutvaktri verundinni í ljósi þess að maðurinn lifu’ og hrærist í henni miðri, hún er snertiflöturinn allt um kring. Hvernig var svo hægt að vera á móti abstrakt þegar sjálft lífið er abstrakt, hver kjami lífsins sértækur líkt og að engin fingraför em eins? Og í beinu framhaldi; hvernig er hægt að vera á móti málverki þegar niðurröðun lita era vísindi sem eng- inn botn er í og athöfnin felur í sér víðtæka rök- og skynræna hug- myndafræði, og hvemig er hægt að afneita hugmyndafræði í listum þeg- ar hugmynd og hugarflug er kjarni allrar sköpunar? Þannig má lengi spyrja, en enga frekari heimspeki hér. Það sem máli skiptir er að sumarsýning Listaka- demíunnar í London er dálítið sem telja verður afar nytsaman lærdóm fyrir íslenzkan myndlistarvettvang. Sem listrýnir til margra ára veit ég flestum betur hve erfitt er að fá skil- virka heildarsýn yfir myndlist dags- ins, vegna skorts á mörkuðum og marktækum athöfnum. Ekki er nóg að sýningaflóran sé ein óskipulögð flækja, heldur er listamarkaðurinn rugl. Skóla sem starfar á hreinum akademískum grandvelli í listum höfum við aldrei átt. Og nú eram við komin að mikilvægum kjarna, sem er að akademískt nám í listum þarf ekki að merkja íhaldssemi af neinu tagi. Byggist öllu öðra fremur á því að gildur og virkur listamaður miðli nemendum sínum af list sinni, reynslu og þekkingu. Og frelsi í list- námi felst í því að nemendur geti valið á milli aðferða og skoðana inn- an skólastofnana, en ekki að þeir fái hantérað pentskúfinn og aðrar græjur eins og þeim hugnast hverju sinni. Á nákvæmlega sama hátt þarf akademísk sýning ekki að vera íhaldssöm, þótt form hennar byggist á gamalli hefð, hér er það framsetn- ingin sem hefur síðasta orðið. Það er einmitt þetta sem sumar- sýningin í London segir okkur, og fyrir þá sem væntanlega snúa upp á sig við þennan lestur er rétt að kynna nokkra af meðlimum aka- demíunnar, á ensku Academicans, og allir sem eitthvað era inni í al- þjóðlegri samtímalist ættu að kann- ast við: Kenneth Armitage, Tony Cragg, Barry Flanagan, Sir Norm- an Foster, David Hockney, Allen Jo- nes, R.B. Kitaj, Sir Eduardo Pa- olozzi, Philp Sutton, Joe Tilson m.m. Meðal heiðursmeðlima, sem era sýnu færri, má nefna; Balthus, Edu- ardo Chillida, Frank 0. Gehry, Ja- sper Johns, Anselm Kiefer, Matta, Ieoh Ming Pei, Richard Serra, Frank Stella, Antoni Taipes, Cy Twombly, Jörn Utzon og Andrew Wyeth. Eins og upptalningin hermir, er hvortveggja um myndlistarmenn og arkitekta að ræða, einstaklinga sem era í fremstu röð í heiminum í dag og allir hafa þeir átt verk á sumar- sýningunum, sumir nær árvissir þátttakendur. Jafnframt er um að ræða stærstu framkvæmd í þessu formi í heiminum. Hver sýning er mikið fyrirtæki, fram fer myndskoðun eftir mörkuð- um reglum og mun hátt í 13.000 verkum hafa verið hafnað að þessu sinni, en alls vora 982 tekin inn á móti 1.202 í fyrra. Málverk, högg- myndir, grafík, vatnslitamyndir, teikningar, blönduð tækni og arki- tektúrmódel. Meðal þeirra sem urðu að bíta í það súra epli að fá ekki inn verk að þessu sinni vora sem jafnan ýmsir fullgildir og nafnkunnir lista- menn. Allstór hópur hefur áunnið sér rétt til þátttöku með að minnsta kosti eitt verk árlega, eða annað hvert ár, en nýta sér það ekki endi- lega að jafnaði. Er það stærsti hóp- urinn hverju sinni, aðrir eiga auðvit- að ekki alltaf jafn frambærileg verk, enn aðrir dala þannig að óvinnandi vegur er að gera sér rétta grein fyr- ir styrk einstakra listamanna nema í sumum tilvikum. Mikilvægast er að samanburðurinn er af hinu góða og leiðir óhjákvæmilega margt óvænt í ljós sem annars færi fram hjá mönn- um líkt og ég hef áður skilgreint. Fram kemur að sumir era mun sterkari listamenn en maður hafði gert sér gi’ein fyrir, aðrir lakari. Þá vekja slíkar framkvæmdir mikla at- hygli almennings, sem flykkist á þær og er jafnan drjúgur hópur í hverjum sal jafnvel rúmhelga daga og því um afar mikilvæga listmiðlun út til fjöldans að ræða. Eins og fyrri daginn varðandi slíka framninga er ekki farið eftir almennri reglu við upphengingu mynda og þröngt um þær, hlið við hlið frá gólfi til lofts, verkin iðulega í þrem röðum og enn fleiri hvað grafíkina áhrærir. Þótt því sé engan veginn mælt bót þá er mun auðveldara að átta sig á hlutun- um en t.d. á hinum risastóru kaup- stefnum, sem ná yfir margfalt stærri gólfflöt. En nauðsynlegt er að fara nokkrar yfirferðir fram og til baka og það varð ég meira en var við að fleiri gerðu en ég. Það sem kom mér mest á óvart í fyrra og aftur í ár er hin mikla sala, einkum á grafík, vatnslitamyndum og teikningum, en hvað grafíkina snerti mátti sjá upp undir hundrað rauða miða undir sumum myndum! I mörgum tilvik- um var um verk að ræða sem ekki myndu hreyfast á samsýningum hér í borg. Jafnframt verður maður undrandi yfir því hve fólk skoðar vel og gaumgæfilega og hvernig það lif- ir sig inn í myndirnar, virðist vera með á nótunum, og njóta viðverann- ar og verkanna út í fingurgóma. Þetta mun líkast fjórða sýningin sem ég ber augum, og sem áður er arkitektúrinn, allur frágangur deild- arinnar og módelsmíðin sem til sýn- is eru eitt hið athyglisverðasta, enda engir aukvisar á ferð. Ástæða fyrir íslenzka arkitekta að fjölmenna á staðinn á næstu áram, því hér eiga þeir margt ólært. I ár eru það þó risastór málverk eftir David Hockn- ey af Miklugljúfram sem athyglin beinist að. Heill salur hefur verið tekinn undir þau og auk þess er stigapallur fyrir miðjum sal og stór- ir speglar í hverju horni, svo hér er einnig um innsetningu að ræða. Drjúg lifun að standa á pallinum og skoða myndirnar í speglunum, sem fá þá á sig meiri svífandi og ævin- týralegri blæ. Hockney er sannar- lega náungi sem getur málað og skapað stemmningu í kringum verk sín, er jafnvígur á hlutvöktum sem huglægum gi’unni, þótt hann hallist meir að hinu hlutlæga og mannin- um, er að auk einn frábærasti teikn- ari enskumælandi heimsins. Hefur hin síðari ár búið í Kaliforníu, en er í góðu sambandi við London, fæddur 1937 í Bradford, Jórvíkurskíri. Þess má geta að Karólína okkar Lárasdóttir á eina litla vatnslita- mynd, akvarellu, á sýningunni, og hangir hún hátt uppi í þriðju röð í einum salnum. Afar fersk, frísklega útfærð og vel upp byggð myndheild, og að sjálfsögðu var rauður miði undir henni. Til að kústa rækilega burt alla getspeki um íhaldssemi Konunglegu listakademíunnar, skal þess getið að á annarri hæð, í svonefndum Sackler-væng, var sýning á teikning- um Josephs Beuys úr einkasafni dr. Erichs Mai-x í Berlín. Kom mér á óvart að einungis slangur af fólki var þar inni, þvi ég er vanur a.m.k. tífalt fleiri á sýningum þar að jafnaði. Og til marks um víðsýni og yfirsýn má geta þess að 11. september til 10. desember verður í aðalsölum sýning á verkum Van Dycks, sem kemur frá Antwerpen, en 400 ár era frá fæð- ingu þessa stórmeistara málaralist- arinnar. Sumarsýningunni lýkur 15. september, en næsta ár verð ég væntanlega mættur á foropnun ... Samsýning þriggja listhúsa ÞRJÚ listhús halda samsýningu í Listhúsi Ofeigs, Skólavörðustíg 5, í tengslum við Menningarnótt í Reykjavíkur á morgun, laugardag, kl. 16. Það era 17 listamenn sem reka listhúsin Listhús Meistari Jakob, Inga Elín gallerí og Listhús Ófeigs sem standa að sýningunni. Öll list- húsin eru á Skólavörðustíg 5 í Reykjavík. Sýnd verður grafík, mál- verk, veflist, leirlist, skúlptúr og skartgripir. Listamennirnir eru Aðalheiður Skarphéðinsdóttir, grafík, Auður Vésteinsdóttir, veflist, Kristín Geirsdóttir, málverk, Þórður Hall, málverk, Þorbjörg Þórðardóttir, veflist, Guðný Hafsteinsdóttir, veflist, Margrét Guðmundsdóttir, grafík, Jean Antoine Posocco, list- málun, Sigríður Ágústdóttir, leirlist, Anna Sigríður Sigurjónsdóttir, skúlptúr, Elísabet Haraldsdóttir, leirlist, Hjördís Frímann, málverk, Ófeigur Björnsson, skúlptúr, Bolli Ófeigssson, skartgripir, Hildur Bolladóttir, skartgripir úr íslensk- um steinum, Anna María Svein- bjömsdóttir, skartgripir og Katrín Didriksen, skartgripir. Sýningin stendur til 4. september og er opin virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 10-14. Lokað sunnudaga. --------------- Sýningum lýkur Nýlistasafnið, Vatnsstíg 3b SÝNINGU á verkum Áslaugar Thorlacius, Kristveigar Halldórs- dóttur og Oliver Comerford lýkur nú á sunnudag. Á menningarnótt verður sýningin opin til kl. 23. Sýningarnar eru opnar daglega nema mánudaga frá kl. 14-18. Stöðlakot, Bókhlöðustíg 6 Sýningu Guðnýjar Svövu Strand- berg lýkur nú á sunnudag. Galleríið er opið daglega frá kl. 14-18. „Norrænt landslag“ Eduardo Santiere, fsland, blýriss. MY]\DLIST Listasafn Árnessýslu VATNSLITIR, BLÝRISS, MYNDBANDSVERK FAITH COPELAND, EDUARDO SANTIERE, ELISABET JARSTÖ Opið fimmtudaga til sunnudaga. Til 22. ágúst. Aðgangur ókeypis. LISTASAFN Ámesinga er við hliðina á Sundlauginni á Selfossi og ætti það að vera alveg öraggur veg- vísir því sennilega vita mun fleirí á staðnum um tilvist laugarinnai’ en safnsins. Þannig er líkast til árang- ursríkara fyrir ókunnuga ef spurt skal til vegar að þykjast vera á leið að þvo af sér skítinn til að fólkið í sjoppustaðnum, eins og einhver nefndi Selfoss í dagblaði á dögunum, fari ekki í forandran að munstra skrítna fólkið á leið til safnsins. Að öllu gamni slepptu er vel greinan- legt skilti er vísar til safnsins við af- leggjarann af þjóðveginum austur og stuttur spölur þaðan, svo enginn þarf að vera hræddur um að villast, en það sem gangsetti þessar hug- leiðingar er hve fáir virðast sækja safnið heim ef marka má gestabók- ina. Hins vegar er góð yfirsýn úr glugga þess til laugarinnar, sem eðlilega nýtur stóram meiri hylli, og þaðan geta menn nær óséðir virt fyrir sér holdafar og blóma Suður- landsins ef vill, og til nánari glöggv- unar skaðar ekki að hafa sjónauka í farteskinu! Valkyrjumar 29, sem áð- ur fylltu alla sali safnsins marg- þættri náttúrasýn á framkvæmd- inni, Land, eru nú horfnar af vett- vengi, en í staðinn kominn mynd- rænn gjömingur þriggja útlendra ævintýramanna í lífi og list... - Faith Copeland er uppalinn í Massachusetts, en býr nú í nágrenni Nýhafnarinnar í Kaupmannahöfn. Hún segist aðallega mála undir áhrifum frá fegurðinni sem hún sér allt um kring, sérstaklega hafinu, einnig plöntu- og dýraríkinu. Leitast við að gæða myndir sínar lífsgleði og glaðlegum litum, auk áhrifa af landslagi frá norðlægum slóðum einkum Færeyjum og Islandi, hefur þó einnig leitað á suðlægar slóðir, Flórída og Miðjarðarhafssvæðisins. Verið vel virk á sýningarvettvangi í Danmörku, Færeyjum og Banda- ríkjunum. Það er rétt sem skrifað stendur, að myndir hennar séu blátt áfram og segja oftlega einhverja sögu, einkum af sjávarsíðunni, því hug- hrifin fangar hún umhugsunar- og milliliðalaust, málar af fingrum fram. Hins vegar eru þær afar óbeislaðar, tæknilega ófullkomnar og lausar í sér, og þrátt fyrir að ger- andinn sé auðsjáanlega gæddur bernskri sýn skortir nokkuð á þá sérstöku formkennd sem einkennir nævista, þar fyrir utan eru litur og lína meira á yfirborðinu en að tengj- ast innri lífæðum myndflatarins ... Edourdo Santiere er frá Buenos Aires og nam uppranalega tölvun- arfræði, en hefur lagt hana á hilluna í bili og lagt á listabrautina, þó ekki alveg á því sviði sem ætla mætti að stæði honum næst, heldur í hinu foma blýrissi. Dvelur nú á Lista- miðstöðinni að Straumi og teiknar ofan í kort af Islandi og ríður þar net fínlegra blýantsdrátta sem hann vill meina að séu kraftlínur jarðar- innar. Segir útlínur landsins og ein- stakra héraða eins og Vestfjarða búa yfir sérstæðum og tjáningar- fullum einkennum. Landið sé eins og skapnaður sem iðar og hreyfist í sjónum, er heillaður af landabréfum og segir Borgarskipulag og borgar- kort öðlast sitt eigið innra líf gegn- um fólkið sem notast við það. í öll- um uppdráttunum leynast felu- myndir, andlit eða hlutvaktai’ hug- dettur sem gerandinn finnur nautn af að draga fram í dagsljósið. Mynd- imar era fínlega unnar, en þó er hinn menntunarlegi bakgrunnur meira en sýnilegur, því þær minna ekki svo lítið á tölvur ásamt valinu á myndefnum, helst í þá veru að land- ið og kortin líkjast forritum sem unnið er ofan í. Fyrir vikið verður vinnsluferlið afar vélrænt og ekki úr vegi að auka rennsli skynrænna og skapandi kennda til þess, þannig að skoðandinn skynji meira af blóði tári og svita að baki athafnanna... Elisabet Jarstö, sem er frá Stafangri, lét heillast af Islandi er hún kom þangað fyrst 1985. Nam eitt ár við MHÍ, kom svo aftur til landsins 1988 og þá með norskum og þýskum listamanni og dvaldist í tvo mánuði í Landmannalaugum og Þórsmörk, síðan einn á Korpúlfs- stöðum. Afraksturinn var svo sýnd- ur í Noræna húsinu. Jarstö stofnaði tilraunasal í lítilli byggingu sem eitt sinn hýsti lyfjaverslun Ríkisspítal- ans í Ósló og fór þar fram eins konar samræða milli rýmisins og þehTa 25 listamanna sem sýndu þar á þeim þremui’ áram sem tilraunin stóð yf- ir, en framkvæmdin féll ekki að hug- myndum um almenna sýningarsali. Jarstö sýnir eitt myndband sem hún nefnir, Vendetta, og byggt er á íslenzku landslagi með froskum og málmhljóðum og segir verkið ekki þurfa að vera tilvitnun í íslenzkt landslag, gæti eins verið umfjöllun um söluna á íslenzkum erfðavís- um ... Um er að ræða innsýn í fiskabúr að virðist, þar sem tveir blakkir fiskar era í aðalhlutverkunum, ásamt hreyfingu í vatninu, gáram, loftbólum svo og gróðri. Einnig sér í landslag og leist mér það líflegasti kaflinn. Aðalkostur myndbandsins er þó að það er óvenju stutt og skal ekki misskilið, en þessi hæggengu myndbönd með endurtekningum í síbylju sem geta staðið yfir í hálfa og heila klukkutíma fai’a oftar en ekki mjög í taugarnar á fólki. Á tví- æringnum í Sao Paulo um árið reiknaðist listrýni nokkram, að það tæki allt að tvær til þrjár vikur að skoða myndböndin ein(!)... Þetta er framníngur sem skilur hvorki mikið eftir sig né gefur tilefni til ítarlegrar umfjöllunai’. Með síð- ustu sýningum virðist listasafn Ár- nessýslu komið í samkeppni við Nýlistasafnið og raunar fleiri listhús á höfuðborgarsvæðinu sem er þunn- ur þrettándi og varla vænlegt til að draga að gesti hvorki staðar innan- sveitar né aðkomufólk, og síst af öllu af höfuðborgarsvæðinu. Að auk þarf að vanda meira til umgerðar hverrar framkvæmdai’ fyrir sig svo að sýn- ingargesturinn fari í burt með ein- hverjar heimildir á milli handanna. Bragi Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.