Morgunblaðið - 20.08.1999, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 20.08.1999, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1999 43 TIL SOLU Snæfellingar Innanstokksmunir verða seldir á Stóra-Kambi í Breiðuvík sunnudaginn 22. ágúst kl. 13—18. Andvirðið rennurtil Reykjalundar. Einnig seldir ryðfríir mjólkurkælan Ástdís og Sigurður, sími 435 6742. Ódýrt — Ódýrt Lagerútsala Leikföng, gjafavörur, sportskór. Opið kl. 13 til 18 fimmtudag og föstudag. Skútuvogi 13 (við hl. á BÓNUS). ISIAUQUIMGARSALA Nauðungarsölur Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins, Suðurgötu 1, Sauðárkróki, fimmtudaginn 26. ágúst 1999, kl. 14.00 á eftirtöldum eignum: Birkihlíð 25, Sauðárkróki, þingl. eign Elíasar Guðmundssonar og Sigrúnar Hrannar Pálmadóttur. Gerðarbeiðendur eru Valgarður Stef- ánsson ehf., sýslumaðurinn á Sauðárkróki og Síld og Fiskur. Giljar, Sveitarfélaginu Skagafirði, þingl. eign Hjalta Jóhannssonar. Gerðarbeiðandi er Jeppasmiðjan ehf. V.s. Ingileif SK-28, skrnr. 2014, þingl. eign Ingileifar ehf. Gerðarbeið- andi er Lífeyrissjóður sjómanna. Kárastígur 15, Hofsósi, þingl. eign Gunnars Geirs Gunnarssonar. Gerðarbeiðandi er sýslumaðurinn á Sauðárkróki. Sýslumaðurinn á Sauðárkróki, 19. ágúst 1999. Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfurn, sem hér segir: Jörðin Litla-Fljót I, Biskupstungnahreppi, þingl. eig. Þórður J. Halldórs- son, gerðarbeiðendur Auður Kristjánsdóttir, Landsbanki íslands hf., aðalbanki og sýslumaðurinn á Selfossi, fimmtudaginn 26. ágúst 1999 kl. 10.00. Sýslumaðurinn á Selfossi, 19. ágúst 1999. Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Hörðuvöllum 1, Selfossi, þriðjudaginn 24. ágúst 1999 kl. 10.00 á eftirfar- andi eignum: Birkivellir 31, Selfossi, þingl. eig. Hörður Vestmann Árnason, gerðar- beiðendur íslandsbanki hf., höfuðst. 500 og Landsbanki íslands hf., aðalbanki. Býlið Vatnsholt III, Villingaholtshreppi, þingl. eig. Margrét Rögnvalds- dóttir, gerðarbeiðendur Menningar/liknarsj. Kumbaravogs og sýslumað- urinn á Selfossi. Eyrarbraut 29, Stokkseyri, ehl. 010101, (408,96 fm), 40% eignar., þingl. eig. Mír ehf., gerðarbeiðandi Selfossveitur bs. Jörðin Reykjavellir, Biskupstungnahr. 60% að undanskildum spildum og gróðrarstöð, þingl. eig. Hannes Sigurður Sigurðsson, gerðarbeiðend- ur Glitnir hf., Ingimundur Einarsson, Landsbanki (slands hf. aðalbanki, Landsbanki (slands hf. lögfrd. og sýslumaðurinn á Selfossi. Jörðin Reykjavellir, Biskupstungnahreppi, 40% að undansk. spildum og gróðrarstöð, þingl. eíg. Sigurður Guðmundsson, gerðarbeiðandi Landsbanki (slands hf. aðalbanki. Lindarskógar 6—8, Laugarvatni, Laugardalshreppi, 80,3%, skv. óþing- lýstum kaupsamningi, þingl. eig. Ásvélar ehf., gerðarbeiðandi sýslumað- urinn á Selfossi. Sýslumaðurinn á Selfossi, 19. ágúst 1999. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF Dagsferðir helgarinnar Laugardaginn 21. ágúst. Leggjabrjótur. Forn þjóðleið á milli Þingvalla og Hvalfjarðar- botns. Brottför frá BSI kl. 10.30. Verð 1.700/1.900. Fararstjóri Gunnar H. Hjálmarsson. Sunnudaginn 22. ágúst. Bakaleiðin. 7, áfangi. Selfoss — Arnarbæli — Hveragerði. Verð 1.700/1.900. Jeppadeild. Dagsferð laugar- daginn 21. ágúst. Brúarár- skörð. Ekið í gegnum Úthlíð að Brúarárskörðum og gengið upp með þeim. Brottför frá Essó á Ár- túnshöfða kl. 10.00. Verð 2.000/ 2.500. Heimasíða: www.utivist.is. Dagskrá 21. og 22. ágúst 1999 Laugardagur 21. ágúst Kl. 13.00 Stekkjargjá — Langistígur. Létt fjölskyldu- ganga, á leiðinni verður rætt um það sem fyrir augu og eyru ber. Gangan hefst á bilastæði við Vallarkrók og tekur 1—1 1/2 klst. Sunnudagur 22. ágúst kl. 13.00: Arnarfell. Lagt af stað frá þjónustumiðstöð og ekið að afleggjaranum að Arnarfelli, þaðan sem lagt verður upp kl. 13.30. Af fellinu er gott útsýni yfir Þingvallavatn og svæðið um- hverfis. Gangan tekur ríflega 3 klst., leiðin er nokkuð strembin á köflum. Því er nauðsynlegt að vera vel skóaður og sjálfsagt er að hafa með sér nestisbita. Kl. 14.00 Guðsþjónusta í Þingvallakirkju. Þátttaka í dagskrá þjóðgarðs- ins á Þingvöllum er ókeypis og allir eru velkomnir. Nánari upplýsingar veita landverðir í þjónustumiðstöð þjóðgarðsins, sími 482 2660. augl@mbl.is |H®r®wníE>Iaíitfe BIRGIR SNÆBJÖRNSSON í DAG fagnar séra Birgir Snæbjörnsson, sóknarprestur á Akur- eyri og í Grímsey, sjö- tíu ára afmæli sínu. Næstkomandi sunnu- dag kveður hann söfn- uð Akureyrarkirkju í kveðjuguðsþjónustu, en hann er nú að láta af störfum eftir langan og farsælan embættis- feril innan kirkjunnar, bæði sem prestur og prófastur. Eg veit að séra Birgir er lítið íyr- ir langlokur og enn minna gefínn fyrir upphafnar lof- ræður. Þó verður ekki undan því vikist að stinga niður penna til að þakka, bæði fyrir mína hönd og margra annarra, sem eiga honum mikla þökk að gjalda. Oft hefur verið meira sagt af minna tilefni. Ég hef bæði átt séra Birgi sem prest og samstarfsmann og man hann alveg frá þeim tíma þegar ég var strákur á Akureyri. Ferming- arfræðslan hjá honum er mér líka í fersku minni og bý ég enn að því sem hann kenndi mér þar. Hann var ætíð kátur og ljúfur. Naut hann bæði virðingar og trausts okkar fermingarbarnanna. Aldrei byrsti hann sig við okkur, þótt hann hefði ábyggilega oft haft fyllstu ástæðu til þess. Guð gaf honum fagra rödd og hún glataði aldrei birtu sinni og hlýju. Árin liðu og við urðum sam- starfsmenn í Akureyrarprestakalli. Séra Birgir tók einstaklega vel á móti mér. Hann kynnti mig fýrir foreldrum fermingarbarna með þessum orðum: „Þetta er strákur úr Innbænum eins og ég!“ Síðan þá hefur hann umborið í mér stráksskapinn. Gæti ég jafnvel trúað að hann hefði stundum haft dálítið gaman af honum, enda er hann ekki einn þeirra manna, sem tekur sig of hátíðlega. Þó hef ég aldrei þekkt samviskusamari mann en séra Birgi. Séra Birgir er afkastamaður og frábærlega verkdrjúgur. Annirnar voru oft miklar hjá honum og á hann kallað úr mörgum áttum. Þá kom sér vel að hann er frá skapar- ans hendi afar svefngrannur. Hæg- indastóla hefur hann trúlega notað í dræmu meðallagi um ævina og tæpast slitið sængum eða koddum þannig að til óhófs geti talist. Sögumar hans séra Birgis þekkja allir, sem manninum hafa kynnst. Hann hefur mjög góða frásagnar- gáfu og er það sem á enskri tungu nefnist „storyteller“. Á hann þar ekki lakari iyrir- mynd en frelsarann sjálfan, en um hann er margsagt í guðspjöll- unum, að hann hafí notað smásögur til að koma boðskap sínum á framfæri og jafnvel ekki reynt að tala öðravísi til fólksins en í dæmisög- um. Enginn veit fjölda þeirra sagna, sem séra Birgir hefur sagt af prédikunarstólnum til að Ijúka upp leyndardómum ritningarinnar. Hann er að eigin sögn ósköp lítill fundamaður. Aldrei var hann mas- gefínn á slíkum samkomum. Kom Safnaðarstarf Sumarferð Nessafnaðar ÁRLEG sumarferð Nessafnaðar verður farin sunnudaginn 22. ágúst. Lagt af stað frá kirkjunni kl. 12. Farið í Borgarfjörð. Guðsþjón- usta og staðarskoðun í Reykholti. Síðdegiskaffi í Munaðarnesi. Kirkjubíllinn ekur um hverfið. Þátttaka tilkynnist í síma 5111560 í dag kl. 10-12. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45-7.05. Mömmumorgunn kl. 10-12. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús í Strandbergi laugardagsmorgna. Trú og mannlíf, biblíulestur og kyrrðarstund. Hofskirkja. Kii'kjuskóli kl. 13.30. Biskupsvísitasía: Guðsþjónusta í Húsavíkurkirkju kl. 10.30, guðs- þjónusta í Klyppsstaðakirkju kl. 15 og messa kl. 20 í Bakkagerðis- kirkju. Sjöunda dags aðventistar á ís- landi: Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Bi- blíufræðsla kl. 10.15. Guðsþjónusta kl. 11.15. Ræðumaður Eric Guð- mundsson. einatt tilhlökkunarglampi í augu fundargesta þegar séra Birgir sté í pontu, því hann setti mál sitt fram fljótt og hnitmiðað og hnýtti yfir- leitt við eins og einni gamansögu. Það er oft mikil lausn að fá fólk til að brosa. Þá list kann séra Birgir. Er ekki amalegt að hafa átt slíkan yfirmann. Hann er búinn að draga plóginn lengi, eins og kollegi hans séra Baldur í Vatnsfirði orðaði það einu sinni. Ekki hefur séra Birgir þó farið um akurinn einn og óstuddur. Oft hefur hann haft orð á því hversu mikil blessun sé að eiga góða konu. Þar talar hann af reynslu, því eiginkona hans, Sumarrós Garðarsdóttir, er konan á bak við þennan mann. Sóknar- böm hans standa ekki síður í þakk- arskuld við hana en hann. Elsku Birgir og Rósa! Ég óska ykkur blessunar Guðs á þessum tímamótum. Megi framtíð ykkar vera björt og gifturík. Söfnuður Akureyrarkirkju mun áfram njóta þess, að eiga ykkur að. Guði sé þökk fyrir allt það sem þið hafið verið okkur. Sr. Svavar A. Jónsson. Safnaðarheimili aðventista, Blika- braut 2, Keflavfk: Guðsþjónusta kl. 10.15. Biblíufræðsla eftir guðsþjón- ustu. Ræðumaður Harpa Theo- dórsdóttir. Safnaðarheimili aðventista, Gagn- heiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumað- ur Halldór Ólafsson. Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vestmannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðu- maður Björgvin Snorrason. Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafn- arfírði: Samkoma kl. 11. HELLUSTEYPA JVJ Vagnhöfða 17 112 Reykfavlk Sími: 587 2222 Fatx: 587 2223 Gerið verðsamanburð Tölvupústur: sala@hellusteypa.is HAGKAUP Meira úrval - betri kaup mBBBS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.