Morgunblaðið - 26.08.1999, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1999 13
FRÉTTIR
Hátíðarhöld vegna kristnitökuafmælis hafín
Traust almennings á stofnunum
Minnismerki um
Dömskerfíð nýtur
Síðu-Hall afhjúpað
AUSTFIRÐINGAR og ferðamenn
sem dveljast á Austurlandi um
þessar mundir eru hvattir til að
leggja leið sína til Djúpavogs
sunnudaginn 29. ágúst til að taka
þátt í athöfnum sem marka upphaf
hátíðarhalda sem efnt verður til í
Austfirðingafjórðungi í tilefni af
kristnitökuafmælinu. Hátíðahöldin
eru í tengslum við héraðsfund
Múla-, Austfjarðá- og Skaftafells-
prófastsdæmis sem haldinn er á
Djúpavogi og hefjast þau með hátíð-
armessu í Djúpavogskirkju kl. 11.
Gengið verður í prósessíu frá gömlu
Djúpavogskirkjunni í þá nýju með
fánabera og krossbera í broddi
fylkingar.
Við messuna prédikar Sigurður
Sigurðarson vígslubiskup og prest-
arnir sr. Davíð Baldursson, sr.
Sjöfn Jóhannesdóttir, sr. Lára G.
Oddsdóttir, sr. Gunnlaugur Stef-
ánsson, sr. Haraldur M. Kristjáns-
son og sr. Sigfús J. Árnason þjóna
fyrir altari, biskup lýsir blessun og
tveir kórar, Suðurfjarðakórinn,
undir stjórn Thorvalds Gerde og
Barnakór frá Höfn undir stjóm
Kristínar Jóhannesdóttur syngja.
Eftir hádegi verður haldið að
Þvottá þar sem minnismerki um
Síðu-Hall verður afhjúpað. Við at-
höfnina sem hefst klukkan 15 mun
biskupinn, herra Karl Sigurbjöms-
son, flytja hátíðarávarp og
Snælandskórinn, kór Kirlq'ukóra-
sambands Austurlands, syngja, m.a.
lag eftir Inga T. Lárusson. Minnis-
merkinu hefur verið komið íyrir í
hvammi rétt við þjóðveginn
skammt frá bænum Þvottá. Það er
gert úr tveimur voldugum steinum
úr gabbrói og hefur í annan þeirra
verið höggvin áletrun sem greinir
frá þætti Síðu-Halls í kristnitök-
unni á Alþingi árið þúsund.
Steinana fann Sigurður Björns-
son, bóndi á Kvískerjum á Breiða-
merkursandi, en hann átti upphaf-
lega hugmyndina að því, að Síðu-
Halli yrði reistur minnisvarði og
mun hann afhjúpa minnisvarðann
ásamt Elísi P. Sigurðssyni á Breið-
dalsvík, sem hafði veg og vanda af
uppsetningu hans.
Að athöfn lokinni verður við-
stöddum boðið upp á kaffiveitingar
í Kerhamraskóla í Álftafirði.
minnsts trausts
Traust á Alþingi hefur aukist mikið
ALÞINGI nýtur trausts 54% þeitra
sem spurðir voru í könnun Gallups
um traust landsmanna til ýmissa
stofnana, sem er mun meira traust
en í fyrra þegar 39% aðspurðra
lýstu yfir trausti á Alþingi. í niður-
stöðum könnunarinnar kemur
einnig fram að traust á þjóðkirkj-
unni hefur aukist, eða úr 57% í 61%,
og sömuleiðis á dómskerfinu, eða úr
35% í fyrra í 43% nú. Dómskerfið er
þó sú stofnun sem fólk ber minnst
traust til af þeim sem spurt var um.
Háskóli Islands nýtur trausts
81% þeirra sem svöruðu í könnun-
inni og hefur það minnkað um fjög-
ur prósent síðan í júlí í fyrra þegar
traust til stofnana var kannað síð-
ast. Háskólinn var þó sú stofnun
sem nýtur mesta trausts meðal
fólks af þeim stofnunum sem Gallup
spurði um.
Lögreglan nýtur trausts 72% að-
spurðra sem er 7% meira en í fyrra,
heilbrigðiskerfið nýtur trausts 70%,
umboðsmaður Álþingis nýtur
trausts 64% aðspurðra og ríkis-
sáttasemjari trausts 55% þeirra
sem kváðust bera mikið eða frekar
mikið traust til viðkomandi stofn-
ana. Alls staðar þar sem marktæk-
ur munur var eftir aldri í viðhorfum
svarenda, báru þeir sem eldri eru
meira traust til stofnana en þeir
sem yngri eru.
Um símakönnun var að ræða sem
gerð var frá 15. júlí til 5. ágúst sl.,
og var úrtakið 1.131 manns af öllu
landinu á aldrinum 18 tO 75 ára. Af
þeim svöruðu um 71%.
BAUNOj
;
baleno
SWIFT
TEGUND:
GLS 3d
GLX5d
VERÐ:
980.000 KR.
1.020.000 KR.
JIMNY
TEGUND: VERÐ:
Beinskiptur 1.399.000 KR.
Sjálfskiptur 1-519.000 KR.
Óttastu bensínhækkanir?
Suzuki bílar eru alltaf á meðal
þeirra sparneytnustu
1 WAGON R+ BALENO
TEGUND: VERÐ: TEGUND: VERÐ:
WAGONR+ 1.099.000 KR. 1,3 GL3d 1.195.000 KR.
WAGONR+4X4 1.299.000 KR. 1,3 GL4d 1,6 GLX4d 1.295.000 KR. 1.445.000 KR.
IODYRASTI 4X4 BILUNNi 1,6 GLX 4x4 4d 1.575.000 KR.
A MARKAÐNUM 1,6 GLXWAGON 1,6 GLXWAGON4x4 1.495.000 KR. 1.675.000 KR.
VITARA GRAND VITARA
TEGUND: VERÐ: TEGUND: VERÐ:
JLX SE 5d 1.830.000 KR. GR. VITARA 2,0 L 2.179.000 KR.
DIESEL 5d 2.180.000 KR. GR. VITARA 2,5 L V6 2.429.000 KR.
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabrauf 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson,
Grænukinn 20, slmi 555 15 50. Hvammstangi: Blla- og búvélasalan, Melavegi 17, slmi 451 2617. Isafjörður: Bllagarður ehf.,Grænagarði, slmi 456 30 95.
Keflavík: BG bilakringlan, Grófinni 8, sfmi 421 12 00. Selfoss: Bllasala Suðurlands, Hrísmýri 5, sími 482 37 00.
Sparneytm?
Fjórhjóladrif?
Gott endur-
söluverð?
lí.W'^aöW®'
$ SUZUKI
SUZUKIBILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
www.suzukibilar.is